Morgunblaðið - 12.10.1963, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 12. okt. 1963
vorur
Kartöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
Kjötbúðir T ómasar
Sendisvein
Röskan og ábyggilegan, vantar mig nú
þegar, allan eða hálfan daginn.
Stúlkur 'óskast strax
Uppl. í síma 17758.
Veitingahúsið IMAUST
Pvpulagniregamenn
óskast eða menn vanir pípulögnum.
Upplýsingar í síma 15024.
Anna Dagbjartsdóttir
Kveðfa
í DAG verður gerð frá Víkur-
kirkju útför Önnu Dagbjarts-
dóttur. Anna var fædd í Suður
Hvammi 17. apríl 1873, foreldr
ar hennar voru þau hjónin Dag
bjartur Hafliðason og Jórunn
Ólafsdóttir systir Eiríks frá Brún
um.
í fardögum 1903 kom hún til
ömníu minnar og afá í Suður-
Vík, Matthildar Ólafsdóttur og
Halldórs Jónssonar, og var það
hennar heimili síðan. Það er
mikil gæfa að fá á heimili slíka
konu,- sem Anna var, en hún
var gædd miklum hæfileikum.
Hún var greind kona, framúr-
skarandi samvizkusöm, myndar-
leg, reglusöm og dugleg, en slík
ir kostir fást seint metnir sem
skyldi.
Hannyrðir hennar voru ákaf
lega fallegar og vel unnar, er.da
eftirsóttar. Anna var bókhneigð
mjög, orðheppin og kunni vel
að svara fyrir sig, einnig var
hún hagmælt, ’las hún einkan-
lega ljóðabækur og bækur trú-
arlegs eðlis. Trúrækin var hún
og sótti kirkju er hún gat.
Anna fékk heilablæðingu í
marzmánuði 1955 og var hún
að mestu rúmföst upp frá því,
hún andaðist að morgrii 6. þ.m.
Veikindi sín bar hún með þeirri
stillingu sem henni var eigin-
leg.
Að leiðarlokum Anna mín,
færð þú innilegustu kveðjur frá
heimilinu í Suður-Vík og þakkir
fyrir allt. Persónulega á ég þér
mjög mikið að þakka, alla þína
fórnfýsi, hjálpsemi og órofa vin
áttu, ég þakka þér innilega, þú
varst mér sem önnur móðir.
Ólöf Ólafsdóttir.
Þegar blöð af birki falla
bar þér dauðinn kaleik sinn.
Þér var létt um athöfn alla
orkan greiddi feril þinn.
Nú er fölnað hold og hönd
hafin sál á æðri strönd.
Þér var gefinn auður ættar
æskugleði og ljós í sál,
reifuð staka og raunir bættar
rómur hlýr við gamanmál.
Oft við sólris uppi var
ætti að breiða sáturnar.
Sjúkradúkur
fyrirliggjandi.
Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson & Co. h.f.
Sjálfstæðiskvennafélagið
H VÖT
l indur í Sjálfstæðiskvennafélaginu verður í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll n.k.
mánudag 14. okt. kl. 8,30 síðdegis.
D A G S K R Á:
1. Félagsmál.
2. Frú Auður Auðuná alþingismaður
talar á fundinum.
3. Frjálsar umræður. — Skemmtiatriði.
Frú Emelía Jónasdóttir leikkona
les upp.
Ómar Ragnarsson skemmtir.
Félagskonur mætið stundvíslega og takið með ykkur gesti. — Kaffidrykkja.
Aðrar sjálfstæðiskonur velkomnar meðan húsrúm leyfir.
STJÓRNIN.
Trúmiennskunnar veg þú
valdir
viðbrögð traust og gæfurík.
Margir hafa um ár og aldir
ástir tengt við Suður-Vík.
Þarna sindra vorblóm væn
vetrar mjöll og túnin græn.
Hér var vegur húsbændanna
hylltur eins og vera bar,
aldrei latt til átakanna
yndi sótt til gleðinnar.
Hér var bæjarbragur hlýr
búið vel um menn og dýr.
Öllu hér um áraraðir
alúð sýndi dygðugt hjú.
Leiði þig nú lífsins faðir
ljósi mót og sannri trú.
Þar í sælu þína finnir
þar sem Drottinn sjálfur
kynnir.
E. J. E.
Höfðingleg gjöf
Bildudalur, 10. okt.: —
í gærdag barst barna- og ungl«
ingaskólanum hér mjög vegleg
gjöf, kvikmyndasýningarvél 18
mm. af fullkomnustu gerð. Gef-
andi er frú Guðrún Pálsdóttir,
Reykjavík, ekkja Þorbjarnar
Þórðarsonar læknis, en þau hjón
bjuggu hér um 30 ár. Gjöfina
gefur frú Guðrún til minningar
um dvöl sína hér og barna sinna.
Engin sýningarvél var hér fyr
ir hendi hvorki lítil né stór svo
þessi gjöf kemur sér mjög vel.
Bíldudalsbúar þakka frú Guð-
rúnu hina kærkomnu gjöf.
Samkomur
Samkomuhúsið Zion
Óðinsgötu € A.
Almenn samkoma í kvöld og
annað kvöld kl. 20.30. Á sam-
komunni í kvöld talar Ólafur
Vigfússon. Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna.
ELDVARIMARVIKAN I9C3
Vér bið;um yður:
að sýna varkárni i meðferð elds og eldfimra hluta
að gera ráðstafanir til að fyrirbyggja eldsvoða
Sjóvátrgqqi
agísiands
h