Morgunblaðið - 12.10.1963, Blaðsíða 23
Laugardaguc 12. okt. 196S
MOkCUNBLAÐIÐ
23
Brezkir sjómenn í
ryskingum á ísafirði
JÓHANN Gunnar Ólafsson, bæj-
arfógeti á ísafirði, skýrði Morg-
unblaðinu svo frá í símtali í gær,
að ryskingar þær, sem brezkir
sjómenn áttu við lögregluna þar
sl. miðvikudagskvöld hefðu ver-
ið ríijög ýktar í fréttum.
Bæjarfógeti sagði, að engin
meiðsli á mönnum hefðu orðið í
ryskingunum, en hinsvegar hefðu
axlaskúfar á einkennisfötum 2
lögregluþjóna verið rifnir af og
meiri skemmdir unnar á fötum
þeirra.
— Um 2 jbíís. Hk..
Framh. af bls. 1
björgunarstörf á flóðasvæðinu
' í Piave-dalnum, en eðja og
grjót gera erfitt um vik. Eng-
ar fregnir hafa borizt um hve
margir hafa komizt lífs af úr
hamförunum, en um 2 þús.
lík hafa verið flutt í sameigin-
legan grafreit nálægt Belluno.
Þykir áríðandi að grafa líkin
þegar í stað til þess að koma í
veg fyrir að farsóttir brjótist
út. og í dag var sótthreinsandi
efni sprautað yfir flóðasvæðið
úr flugvélum.
Hermenn, sem vinna að
björgun í þorpinu Belluno
komu í morgun auga á konu,
sem stóð við rústir heimilis
síns. Reyndu þeir að fá hana
á brott frá rústunum, en hún
vildi ekki hreyfa sig. Hélt
konan á brúðu í fanginu og
grét. Hún var ein eftirlifandi
af átta manna fjölskyldu.
★
Tilboð um aðstoð vegna
náttúruhamfaranna hafa bor-
izt víðsvegar að og í dag sendu
Bretar fatnað og lyf'til Piave-
dals. — íbúar borgarinnar
Skoplje í Júgóslavíu sendu
háa fjárupphæð, en eins og
kunnugt er lögðu jarðskjálft-
ar hluta borgarinnar í rúst í
sumar. Fulltrúar á kirkjuþing
inu í Róm hafa tilkynnt, að
þeir muni gangast fyrir fjár-
söfnun, de Gaulle Frakklands-
forseti hefur sent peninga og
margir fleiri hafa látið sitt af
hendi rakna.
★
Það var einkafyrirtæki, sem
byggði Vaions-stífluna, en í
stjórnartið Fanfanis var hún
þjóðnýtt. 1961, skömmu . eftir
að stíflan var byggð, birti
kommúnistablaðið „Unitá“
frétt þess efnis, að hætta
vofði yfir Piave-dalnum vegna
stíflunnar, því að skriður gætu
hvenær sem væri fallið úr
Toc-fjalli í uppistöðuvatnið og
valdið hinum mestu hörmung-
um.
Blaðið var lögsótt vegna
þessara skrifa og sakað um að
flytja falsaðar æsifregnir, en
sýknað af ákærunni.
Forseti fyrirtækisins, sem
rekur stífluna fyrir höríd
Stjórnarinnar, Vito Antonio
de Cagno, sagði í dag, að eng-
um hefði getað komið til hug-
ar, að stórskriða á borð við
þá, sem olli hamförunum í
gær, gæti fallið úr fjallinu.
En vitað hefði verið, að hætta
væri á smáskriðum. Eins og
skýrt hefur verið frá varð fyr-
ir nokkru vart jarðlagshreyf-
inga í Toc-fjalli og námu þær
40 sm á sólarhring, var þá
hafizt handa um að hleypa úr
uppistöðuvatninu og átti verk
inu að vera lokið í nóvember.
Bæjarstjóri eins þorpanna,
sem flóðið lagði í eyði, taldi
yfirvofandi hættu steðja að
dalnum vegna jarðlagshreyf-
inganna og vildi flytja íbúa
þorpsins á brott, en ekkert
varð úr framkvæmdum.
Dagana áður en flóðið skall
yfir dalinn, hafði fólk veitt
því athygli, að geitur dalbúa
leituðu til fjalla.
Samkvæmt frásögn fógeta
höfðu sjómenn af tveim brezk-
um togurum setið að sumbli í veit
ingahúsinu Uppsölum,- haft háv-
aða í frammi, ærsl og drykkju-
læti.
Hefðu sjómennirnir svo lent í
ryskingum við tvo lögregluþjóna
og fleiri og hefðu ryskingarnar
endað með því, að 10 þeirra
hefðu verið settir inn í nokkra
tífna, en togararnir haldið á veið-
ar síðar um nóttina, eftir að
trygging hafði verið sett fyrir
tjóni og sektum.
— Alsír
Framh. af bls. 1
en andspyrnumenn gáfust upp
fyrir skriðdrekum stjórnarhers-
ins og hélt hann inn í borgina.
Fregnir frá Kabilýu hafa ver-
ið mjög óljósar í dag því að
öll einkasamtöl við héraðið eru
bönnuð.
Þremur erlendum fréttamönn
um, hefur verið vísað frá Alsír,
en fregnir herma, að þeir hafi
ekki hlýtt skpun stjórnarnnar.
Eru þetta fréttaritarar Assos-
iated Press og United Press Int-
ernational og fyrrv. ritstjóri
franska blaðsins „Depeehe d’Al-
gerie“, sem stjórn Ben Bella tók
eignarnámi fyrir skömmu.
Ens og kunnugt er hefur að
undanförnu komið til bardaga
á landamærum Marokko og
Alsír. í dag áttu fulltrúar land-
anna að hittast í borginni
Tlemcen í Alsír til þess að ræða
deilumálin, en á síðustu stundu
tilkynnti stjórn Marokko, að
hún væri hætt við að senda
fulltrúa til fundarins.
Leiðrétting
í NIÐURLAGI greinar um Þor-
stein Bjarnason á Hurðarbaki, sl.
miðvikudag, féll niður ein lína.
Þar átti að standa „. .. . Soffía,
sem dvalið hefur um langt skeið
í Vestmannaeyjum við verzlunar-
störf þar, Vilborg, látin fyrir
nokkrum árum“.
Aðeins Sigur-
■ • «« +
bjorn i
|gæsluvarðhaldi(
MBL. átti í gær tal við Hall
dór Þorbjömsson, saikadóm
ara, sem vinnur að því að
rannsaka fjársvikamál Sigur-
björns Eiríkssonar, veitinga-
manns. Halldór kvað rann-
sókn málsins enn lokaða, og
væri ekki hægt að greina frá
neinu varðandi hana að svo
komnu máli. Aðspurður bætti
hann þó við, að enginn sæti
í gæzluvarðhaldi vegna máls
nema ákærði.
Á miðvikudaginn hélt Adenauer kanzlari Vestur-Þýzkalands siðasta ráðuneytisfund sinn.1
Á myndinni sést Adenauer setja fundinn, en við hlið hans situr Ludwig Erliard, efnahags-t
málaráðherra, sem tekur við kanzlara embættinu.
Adenauer baðst iausnar í gær
Bonn, 11. okt (NTB-AP)
KONRAD Adenauer, kanzl-
ari V estur-Þýzkalands, af-
henti í dag forseta landsins,
Heinrich Liibke, lausnar-
beiðni sína. Adenauer lætur
af embætti næst komandi
þriðjudag kl. 12 á hádegi og
efnahagsmálaráðherra.
Eins og kunnugt er, hefur
Adenauer verið kanzlari Vest
ur-Þýzkalands í 14 ár.
í sjónvarpsviðtali í dag
sagði Adenauer, að það væri
að nokkru leyti flokkur hans,
sem ákvæði hvað hann tæki
sér fyrir hendur, er hann
hefði látið af embætti. Hann
sagðist eiga vísa skrifstofu
í þinghúsinu og þar hyggð-
ist hann starfa og vera til
taks, ef stjórnin vildi leita
ráða hjá honum.
í dag birtist viðtal við Aden
auer í vestur-þýzka blaðinu
Bild. Ræðir hann þar m.a.
samvinnusáttmála Frakk-
lands og Vestur-Þýzkalands
og segir, að í ljós muni koma,
að sáttmálinn sé mesta stjórn
málalega afrekið, sem hann
hafi unnið á löngum starfs-
ferli.
Adenauer sagði, að tækist
náin samvinna með Vestur-
Þjóðverjum og Frökkum,
færi ekki hjá því, að tekið
yrði tillit til afstöðu þeirra
til atþjóðamála. Kanzlarinn
sagðist vera órólegur vegna
þess að bæði innan Vestur-
Þýzkalands og Vestur-Evrópu
skorti einingu. Er hann var
spurður hvort hann 'teldi
Evrópu hafa náð „fullum
þroska", svaraði hann: „Mei,
því miður. Spyrjið menn,
sem nýlega hafa heimsótt
Bretland. Þeir segja, að af-
staða Breta til Evrópu ein-
kennist af hálfvelgju."
í lok viðtalsins lagði kanzl-
arinn áherzlu- á þá skoðun
sína, að Vesturveldin ættu
ekki að aðstoða Sovétríkin
efnahagslega nema þau væru
reiðubúin að veita stjórn-
málalégar tilslakanir í stað-
inn.
í gær heimsótti Adenau-
er Vestur-Berlín og var gerð
ur áð heiðursiborgara borgár-
innar.
Talið að Butler, Hai
Maudling berjist um
ráðherraembættið
Isham og
forsætis-
Blackpool, 11. okt. (NTB)
í DAG hefur mikið verið rætt
um væntanlegan eftirmann
Macmillans, forsætisráðherra
Breta. Talið er, að baráttan
muni standa milli Hails-
ham lávarðar, vísindamála-
ráðherra, Richards A. Butler,
sem nú gegnir embætti for-
sætisráðherra, og Reginalds
Maudling, fjármálaráðherra,
en Home lávarður, utanríkis-
ráðherra, og Ian Macleod, for-
maður þingflokks íhalds-
flokksins, komi einnig til
greina.
Læknar Macmillans, for-
sætisráðherra, gáfu í dag út
tilkynningu þar sem segir, að
honum líði vel og hann hafi
stigið í fæturna í fyrsta skipti
eftir uppskurðinn.
★
Landsfundi íhaldsflokksins
brezka var haldið áfram í Black-
pool í dag og rædd utanríkismál
og efnahagsmál. — Fluttu Home
lávarður, utanríkisráðherra, og
Reginald Maudling, fjármálaráð-
herra, framsöguræður. Eins og
áður segir þykir Maudling koma
til greina sem eftirmaður Mac-
millans, en bent hefur verið á,
að á fundinum í dag var honum
Morgunblaðið vantar nú þegar duglega krakka, unglinga eða
eldra fólk til blaðadreifingar víðs vegar í Reykjavík.
HVERFISGATA innanverB — LAUGAVECÍNN
neðst - SICTUN - LAUCAVECUk III allra innst
FÁLKAGATA
ekki fagnað éins vel og Horne
lávarði.
Hailsham lávarður hefur nú
skýrt frá því, að hann muni af-
sala sér aðalstign og bjóða sig
fram við kosningar til neðri
deildar. Talið er, að hann njóti «
mestra yinsælda meðal kjósenda
af keppinautunum um forsætis-
ráðherraembættið. Hins vegar
eiga Maudling og Butler meira
fylgi að fagna innan þingflokks
íhaldsmanna.
★
í framsöguræðu sinni um utan-
ríkismál á fundi íhaldsflokksins
í dag, sagði Home lávarður m.a.,
að nú benti allt til þess að friður
gæti haldizt í framtíðinni milli
Vesturveldanna og Sovétríkj-
anna, en þó mættu Vesturveldin
ekki slaka á vörnum sínum, því
að stefnubreyting gæti orðið í
Sovétríkjunum og samningsvilji
þeirra horfið fyrir hótunum og
ofbeldi. Home lávarður kvaðst þó
telja slíka stefnubreytingu ólík-
lega af tveimur ástæðum. Önnur
væri vetnissprengjan, en hin
deilan við Kínverska alþýðulýð-
veldið.
Fundarmenn fögnuðu ræðu
lávarðarins mjög vel.
• EDITH PIAF LÁTIN
París 11. okt. (NTB)
í dag lézt franska Ijóðasöng
konan Edith Piaf á heimili
sínu í París. Banamein henn-
ar var innvortis blæðing.
Varðarfélagar!
Hafið samband við skrifstof-
una. — Gerið skil. Sími 1 71 04.
Skyndihappdrætti
Sjálfstæðisflokksins