Morgunblaðið - 13.10.1963, Page 8

Morgunblaðið - 13.10.1963, Page 8
8 Sunnudagur 13. okt. 1963 MORGUNBLAÐID Þrír brúarsmiðir U N D IR grænni, grasi gróinni brekkunni, á svörtum sléttum sandinum, standa hús fólksins í langri einfaldri röð, einlyft og y.'irlætislaus í skaftfellskri ró. Handan við götuna eru húsin h erri og reisulegri, eins og unga kynslóðin á íslandi, sem vex for- eldrum sínum yfir höfuð. Og ef við göngum lengra vestur eftir komum við í káupfélagshverfið, sem breiðir úr sér, bólgið af við-- reisn og velmegim, beggja vegna götunnar. En við eigum ekki er- indi svona langt í þetta sinn. Við JÓHANN PÁLSSON þurfum að vísu að hitta mann í þessum höfuðstað Mýrdalsins. En hann býr einmitt í einu lága bárujárnshúsinu við brekkufót- inn, þar sem grasið og sandurinn mætast. Það er laugardagskvöld og þess vegna er Valmundur Björnsson heima, nýkominn aust- an yfir Mýrdalssand, austan úr Skaftártungu, þar sem hann hef- ur verið að smíða brú yfir Hólmsá í sumar. Og það er um Hólmsá og brýrnar yfir hana, sem við ætlum að tala við Val- mund í kvöld. Valmundur brúarsmiður mundi hann áreiðanlega vera kallaður, ef greina þyrfti hann frá öðrum mönnum með öðru en skírnar- nafni. En þess þarf ekki. Hér á hann engan nafna— skyldi hann eiga nokkurn nafna á landinu? í sumar hefur hann smíðað tvær brýr. í vór, í maí, meðan svalir vorvindar léku um fjöll og jökla Skaftárþings og ekki var farið að vaxa í vötnum brá Valmundur sér austur í Skaftártungu og steypti undirstöður stöplanna að Hólmsárbrúnni á fáum dögum. Síðan hélt Valmundur út í Mýr- dal og lagði brú yfir Klifan.di til þess að bílfær vegur kæmist upp að bæjunum Felli og Álftagróf, en að því loknu var aftur tekið til við Hólmsá og lauk þeirri brú- argerð seinni hlutann í ágúst. Var þar með lokið þeirri hindr- un, sem hingað til hefur staðið í vegi fyrir að rútur af öllum stærð um og gerðum gætu ekið rak- leiðis austur á Síðu. Þetta er ó- metanleg samgöngubót, sem er kærkomin Skaftfellingum og öll- um þeim mörgu, sem leggja leið sína um hin fögru héruð. Hólmsá er eitt hið versta for- aðsvatnsfall í Skaftárþingi, enda var hún brúuð strax 1907. Þá var aðeins komin ein brú í öllum vatnaklasanum milli Sanda. Það var Skaftárbrúin hjá Klaustri. Hún var byggð árið 1903. Þá var mælskugarpurinn Guðlaugur Guðmundsson sýslumaður á Klaustri. Við brúarvígsluna hélt hann snjalla ræðu og sagði m. a. EINAR EINARSSON frá því, að þegar brúarbyggingin hófst hefði bóndi einn í nágrenn- inu sagt við sig: „Já, þeir eru byrjaðir að brúa hana Skaftá, en þeir eru ekki búnir að því“. Slík var vantrúin á umbætur í sam- göngumálum á þeim tíma. En nú er búið að brúa Skaftá á þremur öðrum stöðum — hjá Heiði, Skál og Skaftárdal. Nú er líka búið að brúa Hólmsá tvisvar síðan 1907. Elzta brúin var timburbrú á steinstöplum. Fyrir því verki stóð Einar brúarsmiður Einarsson, en Árni Zakaríasson vegaverkstjóri sá um byggingu stöplanna. Þá brú tók af í Kötluhlaupinu haust- ið 1918. Ekki var hafizt handa um smíði nýrrar brúar fyrr en árið 1920. Þá var Jóhann Pálsson brú- arsmiður. Því verki var ekki lok- ið fyrr en um veturnætur. Það haust var rigningasamt, mikið í vötnum og Hólmsá erfið og ill viðureignar. Var það því mikið fagnaðarefni, þegar hægt var að taka brúna í notkun og losna við vatnsgöslið við lítt færa ána, þeg- ar mest þurfti að ferðast, koma sláturfé til Víkur o. s. frv. Sú brú, sem nú er nýbyggð yf- ir Hólsmá, er 35 m löng stálbita- brú á steyptum stöplum, sterkleg og vönduð að allri gerð, eins og önnur verk Valmundar Björns- sonar. Hún er 4.20 m á breidd og því auðfarin af öllum okkar stóru og breiðu farartækjum. Geta má þess að allir yfirsmiðirnir við þessar þrjár Hólmsárbrýr: Einar brúarsmiður, Jóhann Pálsson og VALMUNDUR BJÖRNSSON Valmundur eru Tungumenn. Ein- ar og Valmundur frá Svínadal, Jóhann frá Hrífunesi. Það má því með sanni segja, að Skaftártung- an hafi lagt fram drjúgan skerf í baráttunni við Hólmsá, enda hafa þeir átt mest undir því að sú barátta væri sigursæl. En Hólmsá er ekki eina tor- færa leiðin upp í Tungu. Strax handan við Hólsmá tekur við Kötlugilið, djúpt og dimmt. Veg- urinn er brattur bæði ofan í það og upp úr því, flugháll í frostum, lítt fært af fannfergi þegar snjóa gerir. En nú er lika verið að ryðja þessari torfæru úr vegi. í gil- barminum er verið að steypa 38 bands Austurlands var haldinn í Neskaupstað dagana 21. og 22. sept. 1963. Fundinn sátu 23 kenn ara og skólastjórar á sambands- svæðinu auk tveggja gesta, sem boðnir voru, Skúla Þorsteinsson- ar, formanns- Sambands íslenzkra barnakennara, og Ólafs Gunn- arssonar sálfræðings. Rætt var um ýmis mál, þeirra meðal stofnun sumarbúða á Austurlandi, vegabréfaskyldu unglinga og merkjasölu í skól- um. Skúli Þorsteinsson flutti er- indi um kennarasamtökin og launamál og Ólafur Gunnarsson um starfsfræðslu. Vakti erindið verðskuldaða athygli og var síð ar á fundinum kosin fimm manna nefnd til að undirbúa starfsfræðsludag á Austurlandi, sennilega að Eiðum, á næsta hausti. í nefndinni eiga sæti Ár- mann Halldórsson, Eiðum, for- maður, Birgir Stefánsson, Nes- kaupstað, Helgi Seljan, Reyðar- metra langt ræsi og svo á að fylla gilið upp, gera sléttan, breiðan veg í stað þess að áður varð að klöngrast niður gilskorninginn og síðan klífa upp úr honum aftur •með ærinni fyrirhöfn. Aldrei hafa samgöngubætur verið meiri í Skaftafellssýslu heldur en hin síðari ár, síðan við- reisnarstjórnin tók við völdum. Margar nýjar brýr hafa verið byggðar og upphleyptur vegur lagður yfir Mýrdalssand og eftir Meðallandi o. s. frv. Framkvæmd irnar við Hólmsá og Kötlugil eru miklir áfangar í samgöngubótum Vestur-Skaftfellinga. — G. Br. firði, Kristján Ingólfsson, Eski- firði og Steinn Stefánsson, Seyðis firði. Ennfremur var eftirfar- andi ályktun samþykkt um sama efni: Aðalfundur K.S.A. 1963 lýs- ir ánægju sinni yfir þeirri að- stoð, sem hið háa atvinnumála- ráðuneyti hefur veitt til starfs- fræðslu í hinum dreifðu byggð- um landsins og telur það spor í rétta átt. Jafnframt er það álit fundarins að mjög sé að- kallandi aukin þjónusta á þessu sviði og telur hann brýna þörf á fræðilegri og fjárhagslegri að- stoð atvinnumálaráðuneytisins tll þess að svo'megi verða. Aðrar helztu samþykktir fund stjóra í Múlasýslum, Seyðisfirði arins voru: 1) Skorað vor á lögreglu- og Neskaupstað að koma fram vegabréaskyldu barna og ungl- inga á aldrinum 12—20 ára. Var stjórn sambandsins falið að beita áhrifum sínum til þess að téðri vegabréfaskyldu barna og ungl- fyrir 1. maí 1964. 2) Því var beint til skóla- stjóra að losa skólana algerlega við þau óþægindi, seqi merkja- sala fyrir ýmis félög hefur ver- ið á undanförnum árum. 3) Samþykkt var að fara þess á leit við hæstvirtan mennta málaráðherra, að þegar yrði ráð- inn námstjóri fyrir Austurland. sem búsettur ýrði á sambands- svæðinu. 4) Fundurinn harmaði vax- andi drykkjuskap í landinu og taldi að til þess mætti rekja flest það, er til óheilla horfði 1 þjóðfélaginu. Væri fátt nauðsyn- legra en ráða bót á því böli. Fundarstjórar voru Þórður Benediktsson, Egilsstöðum og Ármann Halldórsson, Eiðum. Núverandi stjórn sambands- ins skipa: Steinn Stefánsson, for- maður, Guðmundur Þórðarson, gjaldkeri, Valgeir Sigurðsson, ritari, og til vara ’Emil Emilsson og Þorvaldur Jóhannsson, allir á Seyðisfirði. Rýmingarsala Svefnsófar frá 1700,- Svefn bekkir frá 1200,- Borð- stofuborð 1250,- Pedrgree barnavagn vandaðir 950,- Silver Cross 650,- Sendum gegn póstkröfu. Sófaverk- stæðið Grettisgötu 69. — Sími 20676. niýi frál ceri ParL er penn i no tar uenjulecja pyllincjii e&a ítdp&i Hér kemur einn frábær PARKER. Þegar þér kaupiS hinn nýja PARKER 45 penna, fáiS þér hann meS eigin fyilingu en auk þess tvö hylki af Super Quink. Ef penninn verður bleklaus, þá þurfiS þér ekki að hætta að skrifa eða fylla hann með einhverju bleki. Losið aðeins fyllinguna og ýtið inn hylkjnu __ eins og þér væruð að hlaða byssu — og þér getið haldið áfram að skrifa önnur 10.000 orS Auðvitað er þessi penni PARKER framleiðsla, sem þýðir að hann er fallegur, vel gerður og ■krifar siikimjúkt. 14 ct. gulloddinn er hægt að skipta um með einu handbragði.'Þér getið valið um sjö mismunandi oddbreiddir. Þegar á allt er litið er „45“ frábær viðbót við hópinn, þar sem eru hinir heimsfrægu „21“, „51“ pennar. í PARKER „45“ bjóðast yður PARKER gæði fyrir ótrúlega lágt verð. THE NEW Parker 45 ^jölliceta penna yja f^arher 43 Framleitt af: THE PARKER PEN COMPANY Framleiðendur eftirsóttasta penna heims. Storisfræðsludagur d Austurlundi Frd aðalíundi Kennarasamb. Austurlands AÐALFUNDUR Kennarasám-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.