Morgunblaðið - 29.10.1963, Blaðsíða 24
Ivolvo
HUSGOGN.
STERKOG
STÍLHREIN
236. tbl. — Þriðjudagur 29. október 1963
Bær brann til
kaldra kola
BORG í Miklaholtshreppi, 28.
okt.: — Klukkan 1,30 í nótt kom
upp eldur í íbúðarhúsinu Hömlu-
holtum í Eyjahreppi. Brann það
til kaldra kola á tæpum tveimur
tímum. Stóð skorsteinninn einn
eftir. Slys á fólki urðu ekkL
I>egar eldsins varð vart, var
bóndinn heima með börnin, en
konan var stödd á næsta bæ.
Hjálp barst fljótlega úr sveitinni,
en lítið' var hægt að aðhafast og
sáralitlu af innbúi bjargað. Var
það lágt vátryggt. Veður var
fremur gott, dálítil austan gola
en hlýtt veður.
íbúðarhúsið var járnvarið
timburhús, ein hæð og ris og
geymsluskúr áfastur við það. —
Ókunnugt er um eldsupptök.
í Hömluholtum búa Ármann
Bjarnfreðsson og Kristín Óskars-
dóttir ásamK? börnum. Nú dvelja
þau öll á Rauðkollsstöðum, sem
er næsti bær við Hömlubolt.
Sleginn um borð
í brezkum togura
Á SUNNUDAG kom togarinn
Vic Trix frá Hull inn til ísa-
STEPHAN THOMAS
— háskólafyrirlesari og sér-
fræðingur Bonn-stjórnarinnar
í málefnum Austur-Evrópu.
Stephan Thomas
talar í Háskólan
um í dag
KLUKKAN hálfsex í dag flytur
Stephan Thomas, framkvæmda-
stjóri vestur-þýzka Sósíaldemó-
krataflokksins og einn af aðal-
ráðgjöfum Bonn-stjórnarinnar í
málefnum Austur-Evrópu há-
skólafyrirlestur í I. kennslustofu
Háskólans um efnið „Germany
between East and West“. Erindið
verður flutt á ensku, og er öll-
um heimill aðgangur. Stephan
Thomas dvelst hér á vegum
Varðbergs, félags ungra áhuga-
manna um vestræna samvinnu,
en hann er kiymur fyrirlesari
víða um lönd.
fjarðar. Var einn skipsmanna
lagður á sjúkrahúsið með tvö
glóðaraugu og sárindi í hnakka.
Var í fyrstu talið að maðurinn
væri höfuðkúpubrotinn, en það
reyndist ekki vera.
Áverka þessa mun maðurinn
hiafa fengið í átökum um borð
í togaranum, er hann var á
veiðum. Vill hann ekki fara aft-
ur um borð í skip sitt.
Síðan skipið kom til ísafjarð-
ar hefur verið all líflegt um
borð fig skipverjar gert sér glað-
an dag bæði í fyrrakvöld og
gærkvöldi.
Bíllinn dreginn up p á Loftsbryggjuna.
Mannlaus bíll fór
í Reykjavíkurhöfn
f GÆRMORGUN fór stór og
þungur bíll ,frá Póst og síma-
málastjórninni í sjóinn í krik-
anum við Loftsbryggjuna í
Reykjavíkurhöfn. Enginn var í
bílnum, sem var náð upp, en
hann er mikið skemmdur.
Þetta gerðist snemma um
morguninn, um kl. 6:40. Bílstjór-
inn, Sigurður Björn Arason,
hafði lagt bílnum á bílastæðinu
Síldveiði Ahra-
nesbáta
AKRANESI, 28. okt. — Aðfara-
nótt mánudags fengu 4 bátar
samtals 1256 tunnur af síld. Síld
stóð djúpt og leiðindaveður
var þarna. 40—50 sjómílur út af
Jökli. Aflahæst var Anna með
650 tunnur, Skírnir 350, Harald-
ur 158 og Höfrungur II 120 tunn-
ur. Síldin er hraðfryst — Oddur.
vestan við Hafnarhvol og ætlaði
að fá sér kaffisopa í Hafnarbúð-
um. Telur hann sig hafa sett
bílinn í gír og handbremsuna á.
Er hann kom út aftur, var bíll-
inn horfinn og hafði hann runn-
ið áfram og í sjóinn, en þarna
er ofurlítill hallL
Bíllinn er loftpressubíll frá
Póst- og símamálastjórninni.
Hann mun hafa skemmzt mikið.
Framrúðan brotnaði í honum og
einnig varð hann fyrir hnjaski,
þegar verið var að ná' honum
upp.
Ekki er vitað um nein vitni að
því er bíllinn fór í sjóinn og bið-
ur rannsóknarlögreglan þá sem
e.t.v. hafa séð atburðinn um að
gefa sig fram.
SmyglaÖ áfengi s
hollenzku skipi
AKRANESI, 28. okt. — Á sunnu
daginn hafði tollvörðurinn hér
hendur í hári nokkurra manna,
er keypt höfðu 13 flöskur af
áfengi um borð í Ms. Kerksingel.
Það er hollenzkt og lá við hafn-
argarðinn að lesta skreið á
ítaliumarkað. Tollvörðurinn
fann að flöskurnar voru volgar.
Það þurfti ekki meira.
Eins og hann væri eldingu lost
Náöu brezku vörpunni í landhelgi
Vírendamir pössuðu saman
ÍSAFIRÐI, 28. okt. — Varð-
skipið Óðinn kom til ísa-
fjarðar í gær með vörpuna af
brezka togaranum Lifeguard,
sem hann hjó af sér í síðustu
viku út af Dýrafirði. Höfðu
Óðinsmenn sett fast í vörp-
una á hádegi í gær, eftir að
hafa slætt I 2—3 tíma og
reyndist varpan vera 0,75 sjo
mílur innan landhelgislínunn
ar. En það kemur heim við
síðustu mælingu varðskipsins
á staðarákvörðun við töku
togarans.
Engin auðkenni voru ^á
vörpunni, en hinsvegar voru
samanlagt 400 faðmar af tog
vír á vörpunni og gengu dóm
kvaddir menn úr skugga um
það, að endinn á virnum pass
aði við endann á virbút, sem
varðskipsmenn höfðu tekið
úr togaranum og greinilega
höfðu verið höggnir. — H. T.
inn skaut leynilögreglumannin-
um upp í tollverðinum. Áfengis-
flöskurnar hlutu að hafa verið
Framhald á bls. 23.
Ekbi gengur
stunan í bnup-
deilunum
1 GÆRKVÖLDI sat sáttasemp
ari fund með fulltrúum verzlun-
arfólks og atvinnurekenda, en
Verzlunarfélag Rekjavíkur hef-
ur boðað verkfall 4. október, eöa
næstkomandi mánudag. Fundur-
inn stóð enn er blaðið fór í
prentun.
Enginn fundur var um kaup
og kjör prentara, en deiluaðil-
ar hafa nú vísað málinu til
sáttasemjara. Prentarar hafa boð
að verkfall 1. nóvember eða að-
faranótt föstudags. Þá hafa bók-
bindarar boðað verkfall tveimur
dögum, á eftir prenturum.
Góð sala
HAFNARFIRÐL — Tog-
arinn Maí sendi í Bremerhaven
í Þýzkalandi í gær 125 * tonn
fyrir 127,600 mörk, sem er mjög
góð sala.
Síldarbátarnir eru nú að bú-
ast á veiðar og kom sá fyrsti
þeirra, Auðunn, inn í gær með
200 tunnur.
Féll úr lurni
Borgorspit-
alans
SÁ atburður varð í hádeginu
í gær að liðlega tvítugur pilt-
ur úr Reykjavík féll ofan úr
turni Borgarsjúkrahússins,
sem er 14 hæðir, lenti á stein-
skyggni yfir aðalinngangi
byggingarinnar, og beið sam-
stundis bana að því er talið
er. Engir sjónarvottar voru
að atburði þessum.
Að því er rannsóknarlög-
reglan tjáði Mbl. í gær voru
men-n að vinna að því að fjar-
lægja vinnupalla efst í turn-
inum, og sáu þeir þaðan niður
á skyggnið yfir dyrunum.
Fuillyrða þeir að enginn hafi
legið á skyggninu á tíimabil-
inu 11:00 til 11:30, en er þeir
komu til vinnu á ný laust' ; •
eftir eitt, og varð litið niður, 1
sáu þeir mann liggja ofan á
skyggninu. Var lögreglu og
sjúkrailiði þegar gert aðvart. 1 I
Fallið er eins og fyrr greinir I
14 hæðir, eða nær 40 metrar.
, Uppi í turninuim fannst j
úlpa piltsins, péysa, gleraugu j
og anmbandsúr. Hann vann
ekki við bygginigu hússins.
Röktu slóð þess
villta s 4 klst.
Leitað að rjúpnaveiðimanni i Laugardal
LAUGARVATNI, 28. okt. — Á
laugardagsnóttina var gerð hér
leit að veiðimanni, sem villtist.
Hann kom fram heill á húfi, en
mjög þreyttur eftir langa göngu,
og þykir mildi að hann skyldi
ekki fara í djúp gil og slasa sig.
Þrír Reykvíkingar komu aust
ur til að skjóta rjúpur á laugar-
dagsmorgun. Þeir lögðu af stað
frá Miðdal kl. 9 um morguninn
og dreifðu sér þegar skammt
hafði verið farið. Um kl. 5 komu
tveir þeirra til baka. En einn,
Einar Már Magnússon, kom ekkL
Fóru þá þrír menn að leita, en
þegar maðurinn var ekki fundinn
kl. 8, þótti sýnilegt að hann
mundi hafa villzt.
Um kvöldið sofnuðu menn
liði í sveitinni og fóru 7—8
menn í leitina. Þegar þeir komu
upp á há Miðdalsfjall, fundu
þeir sióð þess týnda. Röktu þeir
slóð hans alla leið inn undir
Rauðafell, sem er æði löng leið.
Þegar þangað kom hafði hann
Framhald á bls. 23.
/