Morgunblaðið - 30.10.1963, Síða 12
12
MORCUNBLAÐIÐ
' Miðvikudagur 30. okt. 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreíðslustjóri: Sverrir tórðarson.
Ritstjórn: Aða.lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
1 iausasölu kr. 4.00 eintakio.
ÞJOÐIN VILL LATA
' SEGJA SÉR
SANNLEIKANN
¥vað er frumskylda hverrar
" ríkisstjórnar að segja þjóð
sinni sannleikann um ástand
mála hennar. Og þjóðin vill
vita sannleikann. Meðal henn
ar kunna að vísu að finnast
öfl, sem vilja láta reka and-
varalaust á reiðanum og
skella skollaeyrum við að-
steðjandi hsettum. En slík öfl
eiga ekki að ráða. Af ábyrg-
um stjórnvöldum verður að
krefjast stöðugrar árvekni og
yfirsýnar um þjóðarhag.
Viðreisnarstjórnin hefur
allt frá því húrv tók við þrota-
búi vinstri stjórnarinnar haft
þann hátt á að kryfja vanda-
mál þjóðfélagsins til mergjar
og segja þjóðinni hiklaust
sannleikann um ástand mála
hennar. Hún hófst þegar í
upphafi valdatímabils síns
handa um fjölþættar ráðstaf-
anir til þess að afstýra því
hruni, sem yfir vofði, eftir
uppgjöf vinstri stjórnarinnar.
Þessar ráðstafanir voru ekki
allar vinsælar í bili. En óhætt
er að fullyrða að yfirgnæf-
andi meirihluti þjóðarinnar
gerði sér ljóst, að þær voru
nauðsynlegar. Reynslan hef-
iu: síðan leitt í ljós, að með
þeim var lagður grundvöllur
að efnahagslegri viðreisn,
aukinni framleíðslu og stór-
bættum lífskjörum alls al-
mennings í landinu.
Vinstri stjómin þorði aldrei
að segja þjóðinni sannleik-
ann. Hún var í eilífum felu-
leik með þann stórbrotna
vanda, sem úrræðaleysi henn-
ar hafði leitt yfir íslendinga.
Hún þorði aldrei að horfast í
augu við staðreyndirnar og
krefjast þess af þjóðinni að
hún gerði slíkt hið sama.
Þess vegna fór sem fór.
Vinstri stjórnin týndist í sín-
um eigin feluleik og gafst
upp á miðju kjörtímabili.
Gálauslegt atferli, sem and-
stæðingar Viðreisnarstjómar-
innar hafa haft forystu um,
veldur því að íslendingum er
á ný mikill vandi á höndum í
efnahagsmálum þeirra. Kapp
hlaupið milli kaupgjalds og
verðlags síðustu misseri ógn-
ar bjargræðisvegunum og
skapar hættu á nýrri verð-
bólguöldu.
Viðreisnarstjómin og mál-
svarar hennar hika ekki við
að segja þjóðinni þann sann-
leika, að þetta atferli getur
ekki haldið áfram. Hér verð-
ur að stinga við fótum. Allir
ábyrgir og hugsandi íslend-
ingar verða að halda vöku
sinni og sameinast í bar-
áttu gegn verðbólgunni, gegn
nýrri gengisfellingu, en fyrir
áframhaldandi uppbyggingu
og framförum í þjóðfélagi
þeirra.
Þetta er hið mikla hlutverk
íslenzku þjóðarinnar í dag. Ef
hún skilur vitjunartíma sinn
nú, eins og hún gerði þegar
Viðreisnarstjórnm hóf merki
viðreisnarinnar, þurfa íslend-
ingar engu að kvíða. Þá verð-
ur efnahagslegt jafnvægi
tryggt, vaxandi framleiðsla,
aukinii arður af þjóðarstarf-
inu og síbatnandi lífskjör öll-
um almenningi til handa.
/
LÆRDÓMAR ÚR
ÞJÓRSÁRDAL
CJkýrslan um atburðina í
Þjórsárdal á sl. sumri fel-
ur í sér margvíslega lærdóma.
íslenzk æska er í hættu stödd.
Meginhluti hennar gætir að
vísu sóma síns og kemur fram
af manndómi og dugnaði. En
allt of margir unglingar þola
ekki þá þjóðlífsbreytingu sem
felst í alsnægtum velmegunar
innar. Aukin fjárráð, los á
heimilum og fjölskyldubönd-
um hafa leitt þessa unglinga
út í óreglu og ábyrgðarleysi.
Það er vissulega vel ráðið
að menntamálaráðuneytið og
dómsmálaráðuneytið skyldu
skipa nefnd til þess að kanna
atburðina í Þjórsárdal og at-
huga, hvað hægt sé að gera,
til þess að koma í veg fyrir
að þeir endurtaki sig. Þessi
nefnd hefur skilað ítarlegum
tillögum um ráðstafanir til
eflingar heilbrigðu félagslífi
æskufólks. Það er sérstaklega
þýðingarmikið að reynt verði
að beina æskunni að hollum
og þroskandi tómstundastörf-
um. Jafnframt þarf að gera
félagslíf unga fólksins fjöl-
breyttara og heilbrigðara.
Endurskoðun á ákvæðum
laga og reglugerða til þess að
koma í veg fyrir áfengis-
neyzlu unglinga, er einnig
sjálfsögð. Umfram allt þarf
að hindra kvöldráp unglinga
á veitingastaði og tryggja að
þeim sé ekki selt eða veitt
áfengi. Um það þarf ekki að
fara í neinar grafgötur að
áfengi er mesti bölvaldur æsk
unnar. Það var áfengið sem
ærði unglingana í Þjórsárdal.
Svipuð saga hefur því miður
gerzt víðar.
Ætlaöi að fremja sjálfsmorð
SÆNSKI ofurstinn Stig
Wennerström, sem í vor
játaði að hafa njósnað fyr-
ir Sovétríkin um árabil,
tók fyrir skömmu inn eitur
í fangaklefa sínum í Stokk-
hólmi, og um tíma var ótt-
azt um líf hans, en nú er
hann talinn úr allri hættu.
Lögreglunni í Stokkhólmi
er mikil ráðgáta hvernig
Wennerström tókst að komast
yfir eitrið og taka það inn,
því að frá handtöku hans hef-
ur hann verið undir mjög
ströngu eftirliti. Tveir menn
gæta ofurstans allan sólar-
hringinn, hann fær ekki að
sofa í myrkri, matur hans er
rannsakaður og hann fær ekki
að skipta um föt nema undir
eftirliti. Lögreglan telur senni
legast, að Wennerström hafi
haft skammt af sterku eitri
falinn í holri tönn. Tannlækn-
ar hafa r'annsakað tennur of-
urstans, en niðurstöður ránn-
sóknanna eru ekki kunnar.
Það var um kl. 6 e.h. á föstu
daginn, sem gæzlumenn
Wennerströms tóku eftir því,
að hann hafði legið óeðlilega
lengi hreyfingarlaus í rúmi
sínu í fangaklefanum í húsa-
kynnurh öryggisþjónustunnar.
Gæzlumennirnir gengu að
'rúminu og sáu að Wetiner-
Stig Wennerström — talið er
að hann hafi falið eitrið í holri
tönn.
ström var meðvitundarlaus.
Þeir gerðu þegar aðvart og
hringt var á sjúkrabifreið.
— Sjúkraflutningamennirnir
fengu ekki að fara inn í hús
öryggisþjónustunnar, en starfs
menn hennar báru Wenner-
ström út í bifreiðina og vissi
enginn nema þeir hver sjúkl-
ingurinn var. Fjöldi vopnaðra
leynilögreglumanna var á
verðí við sjúkrabörurnar og
margar lögreglubifreiðir
fylgdu' sjúkrabifreiðinni til
sjúkrahússins þar sem ekið
var að sérstökum inngangi.
Wennerström var þegar
fluttur á deild fyrir sjúklinga,
sem orðið hafa fyrir eitrun,
og læknarnir staðfestu fljót-
lega gruninn um, að Wenner-
ström hefði ætlað að stytta sér
aldur.
Meðan læknarnir gerðu til-
raunir til þess að bjarga lífi
Wennerströms, flykktust hóp-
ar vopnaðra lögreglumanna til
sjúkrahússins og tóku sér
stöðu umhverfis það. Verðir
voru settir fyrir utan stofu
Wennerströms og öryggisráð-
stafanirnar náðu hámarki, er
leynilögreglumenn í hvítum
sloppum slógust í hóp starfs-
fólks sjúkrahússins.
Læknunum tókst að bjarga
lífi Wennerströms og er hann
nú talinn úr allri hættu. Gert
er ráð fyrir, að hann geti kom
ið til yfirheyrslu innan
skamms, en daginn eftir að
hann tók eitrið átti hann að
mæta í réttinum.
Kínverjar vilja skipa
Mao í guðatölu
Rússar saka Kínverja um ,Mao Tse-tungismaf
Moskvu, 23. okt. AP-NTB.
TÍMARITIÐ „Kommunist“, eitt
af málgögnum rússneska komm-
únistafiokksins, ræðst í dag
íslenzk æska er í dag hraust
ari og glæsilegri en nokkru
sinni fyrr. Hún er fjöregg
þjóðarinnar, ókomna tímans
von. Þess vegna má einskis
láta ófreistað til að standa
vörð um heill hennar og heið-
ur. —
ÚTVARPIÐ
VEKUR 'ÞJÓÐINA
¥ Ttvatpsráð hefur ákveðið að
^ dagskrá Ríkisútvarpsiq^
skuli á þessum vetri hefjast
kl. 7 f. h. eða klukkutíma fyrr
en tíðkazt hefur undanfarin
ár. Þetta er tvímælalaust
skynsamleg og gagnleg ráð-
stöfun. Við íslendingar förum
alltof seint á fætur, miklu
seinna en flestar nágranna-
þjóðir okkar. Á þessu þarf að
verða breyting. Útvarpið, sem
nær til hvers einasta heimilis
í landinu vill leggja fram sinn
skerf til þess að svo megi
verða.
harðlega á kínverska kommún-
ista fyrir persónudýrkun. Segir
blaðið að leiðtogarnir i Kina
reyni nú að skipa Mao-tung
flokksleiðtoga í guðatöiu meðal
þjóðarinnar á sama hátt og Rúss-
ar Stalín hér áður fyrr. Er því
haldið fram að Kínverjar reyni
að útbreiða „Mao Tse-tung-isma“
í stað Leninisma.
„Tilraunin til að taka upp
kenningar Mao Tse-tungs í stað
Leninisma er í algjörri andstöðu
við skoðanir kommúnista. Marx-
Leninismi hefur verið baráttu-
tákn okkar. Við höfum barizt
og munum halda áfram að bérj-
ast fyrir hreinleika kenninga
Márx-Leninisma“, segir „Komm-
unist“.
í greininni er kínversku leið-
togunum líkt við Trotsky-ista og
þeir sakaðir um tilraun til að
sundra alþjóðasamtökum komm-
únista í þeim tilgangi að stofna
ný samtök byggð á eigin kenn-
ingum. Skorar tímaritið á komm-
únista um allan heim að gera
allt sitt til að koma í veg fyrir
að þróunin gangi í þá átt, sem
Peking miðar að. Að öðrpm kosti
muni tilraun Kínverja hafa al-
varlegar afleiðingar.
Vestrænir fréttamenn líta svo
á að ásakanir j>essar séu beint
svar við grein, 'sem birtist í
málgagni kínverskra kommún-
isba í gær, en þar var ráðizt
harkalega á Krúsjeff persónu-
lega. Og fleiri svipaðar árásar-
greinar hafa birzt í kínverskum*
blöðum að undanförnu. Einnig
er litið á greýiina sem spor I
áttina til að útiloka Kínverja frá
alþjóðasamtökum kommúnista. í
næsta mánuði verður haldið þing
kommúnistaieiðtoga fjölmargra
landa í Moskvu, og er jafnvel
talið að þar muni koma fram til-
laga um útilokun Kínverja.
Kirkjukórasamb.
Rvíkurprófastsd.
KIRKJKÓRASAMBAND Reykja
víkurprófastsdæmis hélt aðal-
fund sinn í félagsheimili Nes-
kirkju þriðjud. 22. þ. m. Sóttu
hann fulltrúar frá öllum aðildar-
kórununa, 10 að tölu, svo og
nokkrir organleikarar og aðrir,
þeirra á meðal söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar, dr. Róbert Abra-
ham Ottósson, og formaður
Kirkjukórasaxnbands Islands, Jón
ísleifsson.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa var rætt sérstaklega un\
raddþjálfun og launamál, og urðu
þar um miklar umræður.
Stjóm kirkjukórasambandsins
var öll endurkjörin, en hana
skipa Bald-ur Pálmason formað-
ur, Hrefna Tynes ritari, Hálfdán
Helgason gjaldkeri, Margrét Egg-
ertsdóttir Og Torfi Magnússon
meðstjórnendur. Hinn síðast-
nefndi er einnig formaður launa-
málanefndar sambandsins.
Kirkjukórasamband Reykja-
víkurprófastsdæmis á 15 ára af-
mæli á þessu ári, og er fyrir-
hugað að þess verði minnzt með
samkomu áður en langt líður.
SJÁI.FSMORÐ
London, 24. okt. — AP: —
Víst er talið, að frú Diana Churc
hill, elzta dóttir Sir Winston
Churchill hafi sjálf bundið enda
á líf sitt. Hún fannst látin í bað
herbergi sínu fyrir nokkrum dög
um og kom í ljós við líkskoðun,
að hún hafði tekið mikið magn
svefnlyfja. Er talið að hún hafi
gert það af ásetningi.