Morgunblaðið - 30.10.1963, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.10.1963, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 30. okt. 1963 MORCUNBLAÐIÐ 23 T Á 18. DEGI Sameinuðu þjóð- anna, 24. október s.l„ flutti Adlai Stevenson, fastaíulltrúi Bandaríkjanna bjá samtökun um, ræðu í Dallas í Texas. Þegar Stevenson 'hafði lokið ræðunni og ætlaði að ganga tU bifreiðar sinnar, réðst að honum hópur manna. Báru þeir kröfuspjöld, sem á voru rituð slagorð gegn Samein- uðu þjóðunum, gerðu þeir hróp að Stevenson og kona ein veitti honum höfuðhögg með spjaldi sinu. Er Steven- son var að stiga inn í bifreið sína hræktu tveir ungir menn á hann. Var annar þeirra handtekinn. Kona slær Stevenson með kröfuspjaldi. Andstæðingar SÞ hræktu á Stevenson og slðgu hann AndvirSið í ásl. kr. til Keiieavákurvegar Nokkrir óeirðaséggjanna voru meðal þeirra 5 þús. manna, sem hlýddu á ræðu Stevensons og varð hann að gera hlé á ræðunn fjórum eða fimm sinnum vegna hávaða 1 salnum, en að henni lokinni var honum ákaft fagnað. I»egar Stevenson gekk út úr samkomusalnum, höfðu um 80 menn safnazt saman fyrir utan. Veifuðu þeir banda- ríska fánanum og héldu á lofti spjöldum, sem á var letr að „Bandaríkin úr Sameinuðu þjóðunum", „Niður með Sam einuðu þjóðirnar“ og fleira þess háttar. Mennirnir hróp- uðu ókvæðisorð að Stevenson og lögreglan átti fullt í fangi með að halda þeim í skefjum. Kona ein í hópnum ruddist að Stevenson og veitti honum höfuðhögg með kröfuspjaldi sínu. Stevenson sagði við kon una: „Það er allt í lagi, að þér hafið yðar eigin skoðanir, MBL. hefur borist eftirfarandi fret tatilky nninc £rá Vinnuiveit- endasamibandi íslands. Stjórnanfundur Vinnuiveitenda sambands íslands, sem haldinu en þér skuluð ekki slá fólk“. „Allt í lagi“, sagði konan og hélt á brott. Stevenson bað lögregluna um að refsa ekki konunni og sagði, að vel gæti hugsazt, að hún hefði slegið af slysnL Konan, frú Cora Fredson, sagði síðar við fréttamenn, að hún hefði ekki ætlað að slá Stevenson, sér hefði verið hrint. Þegar Stevenson tókst loks ins að komast að bifreið sinnL stukku tveir ungir menn áð honum og hræktu á hann. Annar þeirra var handtekinn. Síðar sagðist Stevenson ekki skilja, að fólk þyrfti að grípa til slíkra aðgerða, þó að það væri á öndverðum meiði við aðra. Hann lét í ljós áhyggjur vegna ókurteisi og ruddaskapar óeirðaseggjanna og sagðist vera þeirrar skoð- nuar, að þetta fólk ætti frem- ur heima í uppeldisstofnun um en í fangelsum. var 23. þ.m., samíþykkti m.a. eftirfarandi tillögu: „Fundur Ihaldinn í stjóm Vinnuiveitendasamibands ís- lands í Þjóðleikhiúskjatlaran- tun 24. okt. 1963, skorar á í ræðu sinni í Dallas ræddi Stevenson, gagnrýni, sem fram hefur komið á Samein- uðu þjóðirnar og sagði, að æ erfiðara yrði að skilja þá, sem gagnrýndu samtökin. Þeir segðust vilja frið, en um leið vildu þeir feig samtök, sem sett hefðu verið á stófn til þess að varðveita friðinn. Stevenson sagði, að frá 1946 hefði aldrei verið eins gott andrúmsloft á fundum Alls- herjarþingsins og að þessu sinni. „Við stöndum nú and- spænis þeirri spurningu", sagði Stevenson, „hvort komm únistaríkin muni í framtíð- inni horfa í sömu átt og við og það er óvíst að við fáum svar fyrr en eftir mörg ár“. Að kvöldi dags Sameinuðu þjóðanna flutti Stevenson ræðu í kvöldverðarboði í Dall as. Meðan hann talaði flaug flugvél yfir borgina og við hana var festur borði, sem á stóð: „Bandaríkin úr SÞ“. hæsfcvirta rJkisstjórn íslands og borgai-yfirvöld Reykjavík- urborgar,. að hafa saipráð um að takmarka nú verulega opiniberar fjárfestingarfraan- kvæmidir, meðan hinn mikli vinnuaflsskortur ríkir á vinniMnarkaðinum œ draga þannig úr hinni óhóflegu þenslu í efnahagslífinu". Tillagan hefir verið send ríkis- stjórn og borgarstjóranum í Reyifcjavík. GEFIÐ hefur sig fram við rannsóknarlögregluna maður, sem búsettur er að Hólm- garði 22, og kært vegna furðu legra skemmda, sem tvær óþekktar unglingstelpur, trú- lega vart af fermingaraldri, unnu á bíl hans fyrir utan húsið aðfararnótt miðviku- dags í fyrri viku. Umrædda nótt á milli kl. 2 og 3, leit maðurinn út um gluggann og sá þá að tvær unglingstelp- ur klæddar dökkum nælon- •úlpum og dökkum síðbuxum, voru að bjástra við bílinn. Urðu þær mannsins varar og hlupu þá á brott I ljós kom UNDIRRITAÐUR var í fyrra- dag í Washington samningur milli ríkisstjórnar íslands og Ex- port-Import bankans um 500 þús- und dðllara lán til 10 ára. Fyrir lánsupphæðina er ráð- gert að kaupa m.a. veghefla og jarðýtur fyrir vegamálastjórn- ina; kraná til hafharfram- kvæmda; efni til rafvæðingar svo sem rafstrengi og straum- breyta; ýmis tæki og varahluti — Ósiðsamlegt Framh. af bls. 24 bíl til sin og látið hana afklæð- ast að nokkru leyti. Sleppti hann henni síðan að nokkurri stundu liðinni og revndist hún sem bet- ur fer ekki meidd, þannig að á henni sæi. Þegar telpan kom heim til sín var verknaður þessi kærður og i féll þá grunur á umræddan mann. Komst lögreglan að því að hann hefði ekið til Reykja- víkur og ætlað í kvikmyndahús. Var haft samband við lögregl- una þar, sem handtók manninn þegar hann kom út úr einu kvik- myndahúsanna og færði til Hafn arfjarðar. Skýrði Gunnar Sæmundsson blaðinu svo frá í gær, að maður þessi, sem er innan við þrítugt eins og fyrr segir, hafi þrisvar sinnum verið tekinn fastur fyrir öivun við akstur og þjófnað. — G. E. — Engum Framh. af bls. 24 ið inn, því um tvöleytið var það alelda. Engum vörnum I var við komið. — Eldur komst ekki í útl- húsin, þvi þau standa þau langt frá og auk þess var stillt veður. íbúðarhúsið brann til grunna. — Þetta var fjórða árið sem ég og kona min, Kristin Óskarsdóttir, búum í Hömlu- holti. Ég er ábúandi jarðar- innar, en ekki eigandL Mikill skaði hlauzt af brunanum. — Fjölskyldan býr nú á næsta bæ, Rauðkollsstöðum, að undanskildri elztu dóttur minni, Ingibjörgu, 1S ára, sem er i skóla í Stykkishólmi. — Ætli við verðum ekki á Rauðkollsstöðum á meðan maður er að átta sig. — Sáttafundir Framhald af bls. 1. að öffluim líkindum ekki yfir neima í þrjá daga, því að Ben Bella verður að vera fcominn til Algeirsborgar fýrir 1. nóTember, — en þá verður haldinn hátíð- legur þjóðháfcíðardagur Alsírbúa. Þann dag er talið, að Mohammed Boudiaf verði látinn la'us úr fangelsi. að þær höfðu límt merki- miða af fiskpökkum, sem ætl- aðir eru til útfiutnings, og að auki skvett grænni máln- ingu á bílinn á tveimur stöð- um. Miðana höfðu þær eink- um límt á rúður, og var bíll- inn óökufær vegna þess að ekki sást út úr honum fyrr en miðunum hafði verið náð af, en það var illt verk. Ekki hefur gengið betur að ná málningunni af. — Þeir, sem einhverjar upplýsingar gætu gefið um mál þettá, eru vin- samlegast beðnir að gera rannsóknarlögreglunni að- varL v fyrir flugöryggisþjónustu ög fjar skiptadeild símamálastjórnarinn- ar. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að andvirði lánsfjárupphæðarinnar í íslenzkum fcrónum skuli notað til framkvæmda við hinn nýja Keflavíkurveg. (Frá ríkisstjórninni). Sækja þmgmanna fund NATO FUNDUR þingmannasambands Atlantshafsbandalagsins hefst 1 París í byrjun næsta mánaðar. Að venju sækja íslenzkir þing- menn fund sambandsins. Þeir, sem fara, eru Jöhann Hafstein, Matthías Á. Mattíesen, Björn Pálsson, LöngumýrL og að öllum likindum Benedifct Gröndal. Pietro Nenni — ítalskir Framh. af bls. 1 til þess að berjast gegn Atlants- hafsbandalaginu. Hinsvegar væri hann andvígur hugmyndinni um sameiginlegan kjarnorkuher Evrópuríkjanna og þó enn and- vígari því, að Vestur-Þjóðverjar fengju í hendur kjamorkuvopn. Á hinn bóginn kvaðst hann mjög fylgjandi aukinni einingu rikja Evrópu. — ★ — Á landsfundinum voru um 600 fulltrúar, sem skiptust í tvo hópa, fylgismenn Nennis, sem er nú orðinn 72 ára — en þeir eru í meirihluta, nálægt 60%, og fylgismenn Tullio Vecchietti. Lögðu hinir síðarnefndu mikla áherzlu á, að í væntanlegum viðræðum um stjórnarmyndun með aðild sósíalista, yrðu tals- menn þeirra, og þá umfram allt Nenni, að spyrna gegn sérhverri tilrauq, hinna flokkanna til launa stöðvunar. Þeir mættu heldur ekki fallast á samsteypustjóm þar sem kristilegir demókratar fengju úrslitavald í hugsanleg- um ágreiningsmálum. Loks var skorað á Nenni að berjast gegn því, að V-Þjóðverjar fengju kjarnorkuvopn og að komið yrði upp sameiginlegum kjarnorku- her Atlantshafsbandalagsins. Þess er vænzt, að Giovanni Leones, forsætisráðherra segi af sér 1 næstu viku, sennilega þriðjudaginn 5. nóvember. Má þá búast við því, að viðræður hefjist milli flokksleiðtoganna — að Nenni hefji samninga við Aldo Moro frá kristilegum demókrötum, sem talinn er lík- legastur forsætisráðherra, svo og forystumenn sósíal-demókrata og lýðveldisflokksins, en þessir þrír flokkar hafa staðið að minnihlutastjóm Leones. Me6 aðild sósíalista, sem er þriðji stærsti flokkur landsins (hefur 87 þingmenn) yrði þá hægt að mynda meirihlutastjórn. Stjórnmálamenn í Rómaborg spá því, að samningaviðræðurn- ar kunni að verða torveldar og taka langan tíma. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma HÁVARÐÍNA BORGHILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR frá Bolungarvík, sem lézt 14. október s.l. í Borgarspítalanum verður jarð sungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 31. október kL 1,30 e.h. Þeir, sem hefðu hugsað sér að minnast hinnar látnu ■ eru vinsamlegast beðnir að láta gjarnan Hólskirkju í Bolungarvík njóta þess. Minningarspjöld fást í verzl. Pandóru, KirkjuhvolL Hávarður Karl Reimarsson, Fjóla N. Reimarsdóttir, Guðmundur B. Jónsson og barnabörn. EBENESAR EBENESARSON frá Bíldudal, lézt að Sólvangi, Hafnarfirði, mánudaginn 28. október. Stjúpböm. Opinber fjárfesting verði takmörkuð Telpur líma miða á bíl ©g mála grænam

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.