Morgunblaðið - 03.01.1964, Page 3
MORGU N BLAÐIÐ
3
Föstudagur 3. jan.
1964
\
AÐ VENJU birtu málgögn
stjómmálaflokkanna áramóta-
hugleiðingar flokksformanna.
Hér verða birtar örstuttar glefs-
ur úr ræðum þriggja formanna.
áraunhæf launahækkun
Formaður Alþýðuflokksins,
Emil Jónsson, lýsir ástandi þjóð-
málanna svo í upphafi greinar
sinnar í Alþýðublaðinu:
„Verkföll, mjög víðtæk, eru
nýafstaðin, og þó að samkomu-
lag næðist, var það aðeins gert
til stutts tíma,
hjá flestum til
6 mánaða, og
viðbúið að átök-
in haldi þá á-
fram, ef skiln-
ingur almenn-
ings á skaðsemi
þessara átaka
vex eltki frá því
sem nú er. Kaup
gjald almennra launþega hefur
hækkað þrisvar á árinu, fyrst
um 5%, síðar á miðju ári um
714% og loks nú í desember um
15% eða samtals um nær 30%.
Hjá opinberum starfsmönnum
er aftur á móti talið að meðal-
hækkim launa hafi orðið um
40% á miðju ári. Þegar svo aukn
ing þjóðarframleiðslunnar á ári
er talin 3-4%, er sýnilegt að sú
launahækkun sem orðið hefur
getur ekki orðið raunhæf, þegar
hún gengur í gegnum allt launa-
kerfið. Því aðeins hefði hún get-
að orðið það, að hún hefði ein-
ungis náð til takmarkaðs hóps,
og allir aðrir fengið minni hækk
un. Ríkisstjórnin vildi beita sér
fyrir því, að þessi háttur yrði á
hafður í launadeilunni síðustu,
eins og kunnugt er, launahækk-
anirnar þá fyrst og fremst mið-
aðar við þá lægst launuðu, en
tókst það ekki.
Þrjózkan að þrauka
Einar Otgeirsson, formaður
Sameiningarflokks alþýðu os.
frv., segir m.a.:
„Landnám vort er enn í byrj-
un eftir 1000 ár
Enn erum við
aðeins að byrja
ið slá töfra-
jprota tækninn-
ir á þetta land
»g auðlindir
þess, sem við
Itöfum helgað
okkur í krafti
rinnu okkar og
ástar og þeirrar þrjózku að hafa
þraukað þar í 1000 ár, þrátt
fyrir allt.“
Vörubifreið fór 6-7 m. fall
ofan í Bægisárgil
Tveir menn festust í flakinu en var
bjargað
AKURiEYRI, — Bedford
vörublllinn M. 11 fór út af
veginum við Bægisárbrú í
Hörgárdal síðdegis mánudag-
inn 30. des., hrapaði ofan í
ána og gjörónýttist. Tveir
menn voru í bílnum og slös-
uðust báðir mikið.
Síðdegiis á mánudaginn var
vörubifreiðin M. 11, eign
Kaupfélags Borgfirðinga, á
heimleið frá Akureyri, en
þangað hafði hún farið með
ullarfarm. í bílnum voru
tveir ungir menn, ökumaður-
inn Gunnar Kristjánsson og
Axel Þórarinsson, farþegi,
báðir búsettir í Borgarnesi.
Er 'komið var að Bægisár'brú
náði ökumaður ekki beygj-
unni en hún er mjög kröpp
og hglka nokkur á veginum.
Skipti engum togum að bíll-
inn fór útaf og hrapaði ofan
í ána, 6—7 m. fall, lenti á
kletti í árgilinu og gjörónýtt-
ist. Mennirnir tveir skorðuð-
ust svo gjörsamlega, að þeir
gátu sig hvergi hrært, enda
báðir beinbrotnir. Gunnar
var handleggs- og fótbrotinn
og hafði hlotið mikið höfuð-
högg, en Axel hlaut opið brot
á hsegra fæti. Auk þess voru
báðir mikið skornir og skrám-
aðir.
Horfði nú mjög óvænlega
með þeim félögum, því bill-
inn sást ekki af veginum og
þar að auki var almyrkt orðið.
Frost var nokkurt og þá
mæddi mjög_,blóðrás. Telja
má að það hafi orðið þeim til
lífs, að brátt bar að jeppann,
Þ. 1228, og í honum tvo menn
frá Víði'hóli á Fjöllum, Viggó
Jónsson og Jón Stefánsson.
Veittu þeir athygli hjólför-
unum, þar sem þau lágu
fram af vegarbrúninni, fóru
út og aðgættu nánar hverju
það sætti. Heyrðu þeir þá
Bongnesingana kalla á hjálp
og hröðuðu sér þeirn til að-
stoðar. Ekki reyndist þá unnt
að hreyfa þá í flakinu, svo að
annar Þingeyingurinn hljóp
heim að Syðri Bægisá eftir
mannhjálp, en hinn reyndi að
hagræða hinum slösuðu á með
an. Var skjótt brugðið við og
jafnframt símað til Akureyr-
ar eftir lækni og sjúkrabíl.
Var nú farið að reyna að
ná mönnunum. Axel lá ofan
á Gunnari með hægri fótinn
brotinn og sborðaðan undir
miðstöð bílsins og þurfti að
beita lyftara til að losa hann.
Yfirleitt var. miklum erfið-
leikum bundið að ná mönn-
unum úr bilflakinu, því styris
húsið hafði lagzt mikið saman
þegar það lenti á klettinum.
Þó tókst það von bráðar og
var nú hlúð að þeim þarna á
fönninni og beðið komu
sjúkraibílsins sem flutti þá í
sjúkralhúsið á Akureyri, þar
sem gert var að sárum þeirra.
Varla þarf getum að því að
leiða hvernig farið hefði, ef
athygli Þingeyinganna hefði
ekki beihzt að hjólförunum,
sem lágu fram af þverhnýp-
inu. Þetta mun vera sjötti
bíllinn, sem lendir ofan í
Bægiisá, þarna við brúna. Veg-
urinn er þar örmjór og á hon-
um hérumbil vinkilibeygja í
brekku við nyrðri brúarend-
ann og staðurinn stórhættu-
legur ókunnugum, ekki sízt
í myrkri og hálku. — Sv. P.
kvæmt uppástungu Brynjólfs
Jóhannessonar leikara, sem hef-
ir verið bandalagsforseti undan-
farin tvö ár. Aðrir aðalmenn í
stjóm voru kosnir Karl Kvar-
an (frá Félagi íslenzkra mynd-
listarmanna), Sigvaldi Thordar-
son (frá Arkitektafélagi íslands)
Helga Valtýsdóttir (frá Félagi
íslenzkra leikara), Jóhannes úr
Kötlum (frá Ri thöf u ndasam
bandi Íslands), Skúli Halldórs-
son (frá Tónskáldafélagi íslands)
og Sigríður Ármann (frá Félagi
íslenzkra lisitdansara). Stjórnin
hefir skipt með sér verkum
þannig, að varaforseti er frú
Helgia Valtýsdóttir, ritari Karl
Kvaran og gjaldkeri Skúli Hall
dórsson.
15 hafa alls hlotið styrki úr Rit-
höiundasjóði ríkisútvarpsins
Á GAMLÁRSDAG var úthlut
að styrkjum úr Rithöfundasjóði
ríkisútvarpsins í 8. sinn. Að
þessu sinni hlutu rithöfundarnir
Stefán Jónsson, kennari, og Vil-
hjálmur S. Vilhjálmsson styrk-
ina, 20 þúsund krónur hvor.
Kristján Eldjárn, formaður sjóðs
stjórnar, afhenti styrkina, að við
stöddum menntamálaráðherra,
útvarpsstjóra, rithöfundum og
fleiri gestum.
Alls hafa nu 15 rithöfundar
fengið styrki úr sjóðnum, þeir
eru, auk framangreindra rithöf-
unda:
Snorri Hjartarson, Guðmund
ur Frímann, Loftur Guðmunds
son, Jónas Árnason, Hannes Sig
fússon, Guðmundur Ingi Kristj
ánsson, Ólafur Jóhann Sigurðs
son, Stefán Júlíusson, Jón ú
Vör, Matthías Johannessen, Guð
mundur Daníelsson, Jón Óskar
og Þorsteinn frá Hamri.
Stjórn rithöfundasjóðsins skipa
tveir menn frá útvarpinu, einn
frá hvoru rithöfundafélaginu, og
formaðtirinn, sem skipaður er af
manntamálaráðherra.
Sósíalisminn
Jón Þérarinson forntoðar
Bandalags ísl. listamanna
Samkeppni um minnismerki um
meiningarleysa
Formaður Framsóknarflokks-
ins, Eysteinn Jónsson, segir m.a.:
„Meginþorri unga fólksins vill
ekki kommúnismann sjá né
heyra, og heldur ekki þótt hann
sé kallaður sósíalismi til bragð-
bætis, en það er
raunar „þægi-
legt“ orð, því
enginn veit leng
ur hvað það
þýðir. Tinnu-
harðir komm-
únistar segjast
t.d. vera sósía-
listar og sama
segja þingræðis
jafnaðarmenn. Það er búið að
myrða þetta orð með þvílíkri
misnotkun og gera að meining-
arleysu.“
Síðar í greininni gefur Ey-
steinn Jónsson út þessa athygl-
isverðu yfirlýsingu:
„Framsóknarflokkurinn er af-
dráttarlaust fylgjandi vestrænni
samvinnu, þótt hann vilji eigi að
síður góða sambúð við allar þjóð
ir. Flokkurinn telur eðlilegt, að
íslendingar eigi þátt í varnar-
samtökum vestrænna þjóða, Atl-
antshafsbandalaginu.“
Tveir menn skorðuðust í flakinu og þurfti lyftara til að ná
þeim út. Sést hann í stýrishúsinu eftir að búið var að bjarga
mönnunum út.
Bjarna Jónsson frá Vogi
Bíllinn lenti í árgilinu og á kletti og gjörónýttist.
A AÐALFUNDI Bandala.gs ís-
lenzkra listamanna, sam haldinn
var 7. des. síðastliðinn, var á-
kveðið, að bandalgið efni til
samkeppni meðal íslenzkna mynd
listarmanna um hugmynd að
minnismerki um Bjairna Jónsson
frá Vogi í tilefni af hundrað ára
afmæli hans og í þakklætisskyni
fyrir stuðning hans við íslenzk-
er listir og listamenn. Skal sam-
keppninni vera lokið og verð-
laun úir sjóði bandalagsins veitt
á fæðingardag Bjarna, 13. obtó-
ber næstkomandi.
Bandalagsstjórnin hefir ákveð-
ið, að veitt skuli ein verðlaun,
að upphæð 25 þús. krónur. Verð-
ur nú á næstunni formlbga boðið
til samkeppni þessarar.
Forseti bandalagsins til næstu
tveggja ára var kjörinn Jón Þór
Jon Þórarinsson
arinsson tónskáld (úr Félagi ís-
lenzkra tónlistanmanna), sam-