Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLADIÐ Fðstiiclagur 3. jan. 1964 Halldóra Sigur- jónsson - KÆRA vinkona. Mér finnst, að ég geti ekki lát- ið þennan dag líða svo hjá, að ég ekki sendi þér kveðju og þakk- læti fyrir allt það góða, sem þú hefir fyrir mig gert. Ég veit, að margir góðir hugir munu leita þín í dag, því að svo ótal mörg- um hefir þú veitt styrk og þrótt og uppörvun á þeirra erfiðustu stundum. Ein vinkona okkar sagði við mig: „Ég veit ekki hvernig ég hefði komizt í gegn- um lífið, ef ég hefði ekki kynnzt henni Halldóru. >að var kona sem benti mér á að fara til henn- ar, þegar ég var alveg að gefast upp. Þar fékk ég þann skilning og þann styrk, sem dugði mér til þess að komast yfir erfiðasta hjallann. Hún uppfræddi mig, benti mér á veginn framundan og kastaði birtu á hann. Án hennar hjálpar og uppörvunar veit ég ekki, hvað ég hefði gert. Ég er henni þakklátari en svo, að ég geti orðum að komið“. Þetta sagði þessi vinkona okkar, en braut hennar var mjög erfið, eins og svo margra annarra hér á þess- ari jörð. Ég vil gera orð þessarar konu að mínum og þakka þér fyrir allt, sem þú hefir fyrir mig gert, það var svo dásamlegt að koma til þín eða bara að hringja til þín og tala við þig um reynslu, sem af öðrum hefði verið álitin bág- biljur einar. Þú áttir alltaf skiln- ing og uppörvun handa manni. Þú varst svo vel lesin bæði í spiritúalistiskum — (eins og þú - Minning nefndir það) — sálarsóknar- og guðspekilegum fræðum. Alltaf vissir þú, hvar maður gat fengið svar við spurningunum, sem á sóttu. Þú varst svo víðlesin og hafðir svo mikla eigin reynslu. Tvívegis varst þú send til út- landa. Annað skiptið til London, en í hitt skiptið til Svíþjóðar sem fulltrúi Félags Spiritualista ís- lands á þing þess félagsskapar, sem haldinn var á þessum stöð- um. Þar veit ég að ísland átti góðan og öruggan fulltrúa. Það var gaman að frétta af þér á þess- um þingum. Heim komst þú aftur full af fréttum og nýjum sann- indum, sem þú miðlaðir okkur aftur af brunni vizku þinnar. í framhaldi af þessu eru mér, og sjálfsagt einnig mörgum öðr- um, ógleymanlegir fundir þeir sem félagsskapur þinn hélt í Kópavoginum, en þú hafðir for- ystu fyrir. Þú fræddir okkur og fékkst ýmsa til þess að halda þar fræðandi fyrirlestra. Fundurinn endaði með því að beðið var fyr- ir sjúkum. Munu þeir sjálfsagt verða mörgum, sem þá sóttu ógleymanlegir. Það var eins og maður væri alltaf svo léttur á sér á eftir. Tvívegis hafðir þú forystu um það að fá hingað heim hinn há- menntaða og fróða lærdómsmann og miðil, hr. Horace Leaf, en ein bók eftir hann, sem heitir „Dul- rænar gáfur“, er til í íslenzkri þýðingu. Það var okkur öllum, sem höfðum því láni að fagna að kynnast þeim ágæta manni, góð Eiginmaður minn, KKISTINN Á. SIGURÐSSON Hringbraut 74, Reykjavík, lézt 1. janúar. Fyrir mína hönd, barna og tengdabama. Júlíana Kristjánsdóttir. Utför bróður míns ÓLAFS BJÖRNSSONAR frá Bæ, fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 4. janúar kl. 10.30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað. Andrés Bjömsson. Jarðarför mannsins míns, föður okkar og fósturföður BOGA GUÐMUNDSSONAR Bergþórugötu 20, fer fram föstudaginn 3. jan. kl. 10,30 fyrir hádegi Athöfnin fer fram í Fossvogskirkjunni. Eiginkona, börn og fósturdætur. Innilegar þakkir fyrir samúðarkveðjur og kærleiks- gjafir vegna fráfalls HELGA KRISTÓFERSSONAR skipstjóra, er fórst með vélbátnum Hólmari frá Sandgerði 29. nóv. síðastliðinn. Eiginkona og synir, foreldrar og systkini. Þakka innilega auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og útför mannsins míns DAGS BRYNJÚLFSSONAR fyrrv. bónda og hreppstjóra í Gaulverjabæ. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliðs á Sól- vangi í Hafnarfirði. íbúum Gaulverjabæjarhrepps flyt ég alúðarþakkir fyrir minningargjöf, aðrar gjafir og virðingu sýnda hinum látna. Þórlaug Bjarnadóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför mannsins míns, GUÐMUNDAR TÓMASSONAR Mykjunesi. Gróa Einarsdóttir. og hugþekk reynsla. Af honum mátti mikið læra. Þýðing þín á bókinni „Ósýnileg vernd“, bókin um hinn heilaga Franz af Assisi, var okkur líka mikils virði. Þar sem þessar fátæklegu línur mínar eru ekki nein eftirmæli og ég vona, að þér endist það vel heilsa, að við megum hafa þig á meðal vor ennþá góða stund, þá ætla ég ekki að telja upp meira af verkum þínum og ekki að þylja æviferil þinn, þó að það gæti verið fróðlegt og skemmtilegt. Ég veit að það munu margir minnast þín hlýlega í dag og framvegis, því að svo margir hafa svo margt af þér þegið, sem er meira virði heldur en fjárhags- leg hjálp, því að af veraldar auði hefir þú aldrei haft mikið, en því meira af auði þeim, er mölur og rið fær ei grandað. Nú, þegar þér er farin að dapr- ast sýn og heilsan er farin að bila, þá veit ég að margur mun minnast þín, sá er áður hefir sótt styrk til þín. Bið ég svo guð að gefa þér góða heilsu þann tíma, sem þú átt ennþá eftir að vera meðal vor. Með innilegu þakklæti og beztu kveðju. Þinn einlægur. Hálfdán Eiríksson. — Leit Framh. af bls. 12 Vatnsenda og á svæðunum þar í kring. Mikill fjöldi manna hefur tek- ið þátt í leitinni m.a. Andri Heið berg fenginn til að kafa við bryggjusporðinn í Kópavogi. Talið er, að leitin að Bárði sé einhver hin umfangsmesta sem gerð hefur verið að í ná- grenni Reykjavíkur. Leitinni verður haldið áfram í dag, m.a. mun þyrlan taka þátt í henni ef veður leyfir. Bárður Jónsson er meðalmað- ur á hæð, dökkskolhærður, en með þunnt hár. Harm mun vera klæddur í tvihnepptan jakka með ljósum teinum, vestispeysu, brúna skó og með dökklita húfu með skyggni. Verið getur að hann sé klæddur ljósum ryk- frakka. Bárður stingur við, þar sem hann var lítilsháttar meidd- ur á vinstra fætL Bjarni Guðmundsson klæðskera meista ri ÞAÐ mun vera svo m'eð flesta, þegar þeir heyra and'lá Usfregn vina og kunningja að þá setur hljóða. Svo var einnig með mig þegar ég heyrði lát vinar máns, Bjarna Guðmundssonar, klæð- skeraimeistara Grænuíhlíð 11 Reykjavíik, en hann lézt á Lands spítalanum 4. nóvember síðast- liðinn. Bjarni var fæddur í Kerl- ingadal í Mýrdal 15. september 1903, sonur hjónanna Helgu Andrésdóttur og Guðmundar Bjarnasonar sem bæði voru Skaftfellingar. Móður sína missti Bjarni þeg- ar hann var 7 ára og var það vissulega mikið áfall svo imgu barni, en sökum þess hive ungur hann var og barnslundin létt mótuðu þessir erfiðleikar hann ekki eins mikið og ef hann hefði verið eldri. í Kerlingardal átti Bjarni svo heima til 17 ára ald- urs, að faðir hans og stjúpa brugðu búi og fluttust í Árnes- sýslu. Fór hann þá að Loftsstöð- urn og var þar í 2 ár, en fluttist síðan til Reykjavíkur og nam þar klæðskeraiðn sem hann stund- aði æ síðan. Hann rak sauma- stofu ýmist einn eða í fólagi með öðruon. Bjarni giftist árið 1936 fyrri konu einni Bjarnheiði FrLmanns dóttur hinni mestu mydarkonu, en missti hana 1950 frá tveimiur ungum drengjum. Var það hon- um sár harrnur sem hann þó bar með karlmennsku og æðruleysi. Fyrir rúmum 11 árum giftist hann eftirlifandi konu sinni, Val gerði Þorvarðardóttur, góðri og göfugri konu sem með svo mik- il'li snilld reyndist honum og drengjunum, að á betra verður efcki kosið enda fann Bjarni það og mat ag verðleikum. Bjarni var heimakær og heimilisrækinn með afbirygðum, óþrjótandi um- 'hygigja hans fyrir heimilinu sýndi sig allsstaðar. Þangað var g’ott og skemmtilegt að koma. Þar ríkti friður Og ánægja. Mér verður lengi minnisstætt þegar við hjónin komum þangað á síð- asta afmælisdegi Bjarna, hvað þau hjónin vo>ru glöð og sam- taka í að veita og skemmta gest- um sínum, og hafa víst fleiri en ég sem ekki datt í hug að þetta yrði síðasta skiptið sem við sæurn hann í glöðum vinahópi. Nú er Bjarni horfinn yfir móð- una miklu þangað sem leiðir all- ra liggja. Með honum er horfinn góður þegn þjóðfélagsins. Hann var maður ósérhlífinn við alla vinnu, greiðvikinn og gott til hans að leita, ráðhollur og orð- 'heldinn svo af bar, enda mun honum hafa verið innrætt í æsku að sannleikurinn missir aldrei gildi. Bjarni var glæsilegur mað- ur, hár og þrekinn, fríður og karl mannlegur, greindur og glaður t í viðmóti, prúður og kurteis ,í allri framkomu. Einn bróðir átti hann Stefán að nafni, sem bú- sebbur er á Hóli i Landeyjum. Ég vil svo að endingu þakka Bjarna löng kynni og votta konu hans og sonum mina innilegustu samúð. Gamall kunningi. VÖNDUÐ FALLEG 'ÍQitrpórJónssoii £* co Jiafihirstnrti 4 , ATVIIMIMA Viljum ráða þrjá unga menn til verksmiðjustarfa, ákvæðisvinna. Upplýsingar hjá verkstjóra ekki í síma. AXMINSTER, Grensásvegi 8. Iðnaðarhúsnæði ásamt geymsluhúsnæði að stærð 1000 fermetrar á tveimur hæðum er til leigu. Tilboð merkt: „Góður staður — 9771“ sendist blaðinu fyrir 5. janúar 1964. 1 þessi blaðahverfi vantar Morgunblaðið nú þegar unglinga, röska krakka eða eldra fólk til að bera blaðið til kaupenda þess. Greniniel - Þingholtsstræti - Óðinsgötu 8 Þórsgötu - Flókagötu - Skeggjagötu & Rauóarárst. h-M - Snorrabraut sunnan- yerða & Auðarstræti - Hofteig - Austurbrún Gjörið svo vel að tala við atgreiðslu blaðsius eða skrifstofu. jttwgpttiMafrifr Sími 224 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.