Morgunblaðið - 03.01.1964, Side 15
Föstudagur 3. jan. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
15
r ^ sr
—■ Avarp AsgeJrs
Asgeirssonar
Framh. af bls. 6
<Jobtninigu og mann hennar, prins
Fhilip, í Buckinghamhöllinni,
Sir Ajlec Douglas Home forsætis-
ráðherra, í Downing Street 10,
og borgarstjórann í Guildhall.
Ég hafði áður komið tvisvar í
Downing Street 10, og hitt fyrst
McDonald og síðar Dord Baldwin
og þekktu þeir báðir vel til ís-
lands af frásögn William Morris,
sem hafði heimsótt ísland og
þýtt og ort útaf íslendingasög-
uim .Urðu þeir á sinni tíð vel við
mínuim málaleitunum. Að vísu
eagði Baldwin, að sín stærstu
vonbrigði á ævinni stæðu í sam-
bandi við ísland, því að þegar
Morris hafi feomið að kveðja
móður sína, áður en hann lagði
í íslandsferðina, hafi hann klapp-
ftð á feollinn á sér, og lofað að
gefa sér íslenzikan hest, þagar
ihann kæmi til baka. En hestur-
inn kom aldrei. Hér ásannaðist
þó það, sem ég sagði, að íslenzk-
ar fornbékmenntir hafa reynzt
oss góður fulltrúi. Lífet er að
segja um Sir Alec, hann er
Sfcoti, en þeir eru vorir næstu
nágrannar,' þefekja til sögu fs-
Oands, og sýna oss jafnan mikla
vinsemd.
Hjá drottningu og borgar-
stjóra nutuim við hinnar mestu
gestrisni og viðhafnar, sem
Engilendingum er svo töm,
hallarstíll og fornir búningar,
Bkifekj'Ur og skarfhúfur. Þar
sómdi íslenzki skautbúningurinn
sér vel. En þessi íhaldssemi
Englendinga er aðeins á ytra
borðinu, því hið innra með sér
eru þeir raunsæir nútímamenn,
og fúsir og fljótir til að semja
sig að nýjuim og breyttum hátt-
um í hugsun og framikvæmd. Ég
drep aðeins á þessi atriði, og
oflangt mál að rekja ferðasög-
una, enda er hún áðuir kiomin
að nökkru leyti í útvarpi.
Þó vil ég efeki Mta hjá líða
að nefna heimiboðin til háskól-
®nna í Londan, Oxford, Leeds
©g Edinborg, og Britis'h Mus-
eum. I’au heimboð voru engin
tilvilj un, heldur áttu þau rót
eína að refeja til þess, sem óg
endurtek enn, íslenzkra fræða
og sögu. f>ar voru ofekur sýnir
margir dýrgripir íslenzkra hand-
rita og elztu prentaðra bóka, og
bar margt á góma um íslenzk
og engil-saxnesk fræði, enda
munu hvorirtveggja hafa skilið
annars mál, Aðalsteinn konung-
ur og Egill Skallagríms'son, þeg-
er hann dvaldi með konungi á
Englandi. Titill drottningar „The
Queen“ er engil-saxneska, og
sama otrðið og „,fevon“ á íslenzku
t fevonfang og fcvonbænir. í Ox-
ford sá ég bófe, sem ég raunar
þefekti áður, um „Hamlet í ís-
lenzkum bókmenntum'*, en hann
er fyrst nefndur í Snorra-Eddu
©g heitir þar Amlóði. Um hann
eru og Brjánssögur í íslenzkum
þjóðsögum, og mofckrir rímna-
flofckar. En mi'kill munur er á
leifcri'ti Shakespears og íslenzfc-
uim Amlóðarímum. Veldur hver
é heldur, þó söguefni sé hið
sama. Butler, utanríkisráðherr-
ann bauð ofekur í leifehús til að
sjá „Hamlet", f>að var stónkost-
leg sýning að efni og meðferð.
Þvií vænna þótti mér um að sjá
Hamlet hér í Þjóðleifehúsinu um
jólin til samanburður. Sú sýning
tókst mjög vel, og enginn am-
lóðatonagur eins og á nímunum.
En toér verð ég að láta staðar
iiumið.
Ég hefi lagt nofekra áhrezlu
6 það, að vér íslendingar njótum
erlendis vors menningaranfis í
rífeum mæli í hópi menntamanna
og margra valdsmanna, og er
það þjóð vorri ómetanlegur
styrfeur. Persónuleg viðkynning
og vinátta við nágranna- og
viðskiptaþjóðir vorar og ráða-
menn þeirra, er vorri fámennu
þjóð nauðsyn. Þefeking á íslandi
nútímans fer vaxandi meðal
þeirra, sem máli skiptir. Vér
erum efeki lengur utan sjón-
deildarhringsins, og vér fögnum
þvá, þegar oss er sýndur skiln-
ingur og vinahót.
Ég vil að lokum bæta við sög-
una og bófcmenntirnar öðrum
ólaunuðum fulltrúa íslands er-
lendis, en það eru allir þeir
íslendingar, sem þar búa, ýmist
við nám eða heimilisifastir. Við
■höfum á ferðum ofekar hitt f jölda
þeirra, og efcki sízt nú á Engl-
andj og Sfcotlandi. Það er
ánægjulegt, hve ofit maður verð-
ur þess var, hve vel þeir bera
ættlandi sínu söguna með fram-
feomu sinni, hæfileikum og starfi.
Trygigð og ástúð, sem þeir sýna
við svona tækifæri, er með ágæt-
um. Það ber oss að þaklka, enda
má Fjaillkonan vart við því að
missa neitt af börnum sínum.
Að svo mæltu óskum við
hjónin öllum gleðilegs nýjárs
og þjóðinni gæfu og gengis á
þessu nýbyrjaða ári og Guðs-
blessunar.
— Áramótaræða
Framh. af bls. 13
þeirra, sem í stöðuguim deilum
hafa staðið, um nokkuð sem
raunverulega skiptir máli um
lífskjör almennings?
Lítum á tvö verkefni, sem úr-
lausnar bíða.
Enginn vafi er á, að mesta
kjarabótin, sem unnt væri að
afla almenningi hér á landi nú,
væri sú, ef takast mætti að
stytta vinnutíma hér með ó-
sfeertu kaupi ofan í það, sem með
nágrannaþjóðum okkar tíðkast.
Spurningin er, hvort menn vilja
halda áfram að skeggræða um
þetta eða gera raunhæfar ráð-
stafanir til að hrinda því í fram-
kvæmd. Til þess að það heppnist
þarf á að halda samivinnu allra:
Verfcamanna, vinnuveitenda og
ríkisvalds. Vilja menn gefa sér
tóm til að leysa þetta verkefni
eða vilja þeir halda áfram að
eyða tímanum í einskisverðar
þrætur?
Á þessu ári hafa menn átak-
anlega — en sem betur fer án
stórslysa —, verið minntir á, að
enn lifum við í landi elds og ísa
við fábreytta og valta atvinnu-
vegi. Vilja menn kanna til hlít-
ar, hvort unnt sé að koma hér
upp stóriðju, sem strax miundi
færa okkur aufeið öryggi og
skapa skilyrði fyrir áframuhald-
andi stórvirkjunum? Eða kjósa
menn helur að láta allt druifekna
í innbyrðis þrætucm, metingi Og
jafnvel hrepparíg? Svo að ekki
sé talað um minnimáttarkennd-
ina, sem óttast, að þjóðernið
muni farast, ef við semjum við
erlenda aðila um samvinnu, er
nágrannar okkar t. d. í Nöregi
telja sér gulls-í-gildi.
í frjálsu þjóðfélagi eins og oikfc
ar vísar hagnýting þekkingar og
tækni öruggustu — og raunar
einu — leiðina til bættra lífs-
kjara. öll vonum við, að stríð
á milli þjóða séu úr sögunni. En
halda menn þá heilladrýgra að
eiga í stríði innan þjóðar? Lát-
um það efeki henda, að öfluguán
samtökum, sem stofnuð eru til
almennings heilla, sé beitt gegn
handhöfum ríkisvaldsins, sem
löglegur meirihluti hefur trúað
fyrir umboði sínu. Hvergi á inn-
byrðis ófriður og stéttastríð
minni rétt á sér en í okkar ör-
smáa þjóðfélagi, þar sem allir
eru vaxnir af sömu rót og raunar
náskyldir í orðsins eiginlega
skilningi, Hættum þeirri tog-
streitu stéttanna, sem engum
færir ábata. Sameinumist um að
gera þeirn, er örðugast eiga, lífið
léttara Og búa þjóðinni allri hag-
sæld og frið í okkar ástkæra en
erfiða landi.
Að svo mæltu óska ég öllum
íslendingum gleðilegs árs 1964.
Málflutningsskrifstofa
Sveinbjörn Dagfinss. hri.
og Einar Viðar, hdl.
Hafnarstræti 11 — Simi 19406
JON E. AGÚSTSSON
málarameistari Otrateigi
Allskonar málaravinna
Simi á6346.
MORGUNBLAÐIÐ hringdi í
gær til fjögurra forystu-
manna í hinum fjóru helztu
atvinnugreinum Islendinga,
landbúnaði, sjávarútvegi, iðn-
aði og verzlun, og spurðist
fyrir um það, hvernig árferði
hefði verið í atvinnugreinun-
um. Fara svör þeirra hér á
eftir;
• Landbúnaður: árferðið
snerist við
Halldór Pálsson, búnaðar-
málastjóri, sagði: Árið var land-
búnaði nokkuð örðugt, einkum
þar sem segja má, að árferðið
hafi snúizt við. Veturinn í fyrra
var fremur mildur, eins og Vet-
urinn nú, en kuldatíð var frá
páskum og fram í nóvember.
Heyfengur var með minna móti
að magni til, en hins vegar gæða-
betri en árið áður. Hann var í
minna lagi, ekki sízt, þegar tiilit
er tekið til þess, að tún hafa
stækkað og aldrei hefur verið
notað meira af áburði. Uppskera
á hvern hektara lands var því
minni en áður. Víðast hvar spratt
heldur engin há.
Sauðfjárafurðir voru minni nú
en í fyrra; fé hefur heldur fækk-
að og sláturfé var rýrara í haust
en áður.
Mjólkurframleiðslan gekk vel.
Garðrækt var víðast hvar erfið
og kartöfluuppskera óvíða eðli-
leg. Má segja, að hún hafi brugð-
izt, og er sumarfrostum aðallega
um að kenna. Þetta gekk þó mjög
misjafnt yfir landið.
Að lokum má geta þess, að
áburðarnotkun var með mesta
móti, eins og fyrr er drepið á,
og nam hún að verðgildi 121
milljón króna, eða 14 milljónum
meira en árið 1962. Hins vegar
var heyfengur lítið sem ekkert
meiri, og að því leyti er hægt að
segja, að árið hafi verið slæmt
fyrir bændur.
• Sjávarútvegur: árið heldur
hagstætt, þrátt fyrir
örðugleika
Davíð Ólafsson, fiskimála-
stjóri, sagði: Um aflabrögð er það
að segja, að heildarafli var
nokkru minni á árinu 1963 en
1962. Áætla má, að 765.000 lestir
hafi fengizt úr sjó á síðasta ári,
en árið 1962 öfluðust 833.000 lest-
ir. —
Að aflinn hefur minnkað, staf-
ar aðallega af því, að hvorki
sumar- né vetrarsíldveiðarnar
gáfu eins mikið af sér á síðast-
liðnu ári og árið 1962. Sérstak-
lega á þ.etta við um haustsíldar-
veiðarnar.
Um aflabrögð á öðrum fiski
en síld má segja, að árið hafi
verið sæmilega hagstætt, n'ema
fyrir togarana, sem áttu við mik-
ið aflaleysi að stríða. Lenti út-
gerð þeirra þar af leiðandi í
miklum örðugleikum. Aflabrögð
hjá bátunum voru hins vegar
sæmilega hagstæð víðast hvar.
í fiskvinnslu var árið heldur
erfitt vegna gífurlegrar kostnað-
araukningar af völdum hinna
miklu launahækkana. Hækkaði
allur framleiðslukostnaður stór-
kostlega vegna aukinna kaup-
greiðslna.
Verðlag á fiskafurðum var yf-
irleitt fremur hagstætt og verð-
lagsþróunin heldur góð. Verð-
hækkanir hafa orðið á flestum
útflutningsafurðum, en mjög
misjafnlega miklar. Allt lýsi
hækkaði mest.
Mestu máli skiptir þó að sjálf-
sögðu í þessu sambandi verðlag
á helztu útflutningsvörunum:
freðfiski, saltfiski, skreið og síld.
Var það allt heldur hækkandi á
árinu og í samræmi við almenna
verðþróun erlendis.
Niðurstaðan er því þessi: Þótt
afli sé heldur minni en í fyrra,
er ekki hægt að segja annað en
mikill afli hafi borizt á land og
framleiðslan verið mikil. Verð-
lag var heldur hagstætt. Hins
vegar olli síldin vonbrigðum, og
hin mikla kostnaðarhækkun
vegna launahækkana á árinu
hlýtur að koma fram í auknum
örðugleikum við útveginn, og þó
alveg sérstaklega við fisk-
vinnslu.
en verðlagsákvæði spilla
afkomunni
Gunnar J. Friðriksson, for-
maður Félags íslenzkra iðnrek-
enda, sagði: í stuttu máli má
orða svar við spurningu um iðn-
aðinn á liðnu ári, að framleiðsl-
an hafi yfirleitt aukizt á árinu,
en fæstir séu þó ánægðir með
afkomuna. Valda þar mestu úr-
elt og þröng verðlagsákvæði.
í heild má segja, að árið hafi
verið nokkuð hagstætt, en_ ákaf-
lega misjafnt eftir iðngreinum.
Nýja tollskráin hafði mismun-
andi áhrif, og urðu sumir hart
úti í því sambandi, t.d. skóiðn-
aður.
Nóg var að gera á árinu, en
síðari hluta árs gerði skortur á
rekstrarfé þó verulega vart við
sig. Nokkuð var um, að menn
hæfu byggingarframkvæmdir á
árinu; þó minna en eðlilegt væri.
Um árabil var ekki leyft að
byggja atvinnuhúsnæði fyrir iðn-
aðinn, nema þá að ákaflega tak-
mörkuðu leyti. Hin nýju lög um
iðnlánasjóð eru veruleg lagfær-
ing og valda auknum atvinnu-
möguleikum. Sjóðurinn mun nú
brátt fara að segja til sín, en
hingað til hefur iðnaðurinn ekki
átt í nein hús að venda með
r
lánaöflun til byggingarfram-
kvæmda.
Of snemmt er að nefna tölur
um umsetningu, en óhætt ætti
að vera að fullyrða, að flestir
iðnrekendur hafi aukið hana
verulega. Þetta er þó mjög mis-
jafnt eftir iðngreinum.
Ströng verðlagsákvæði há iðn-
aðinum og standa eðlilegri þró-
un fyrir þrifum. Að þessu leyti
er iðnaði íslendinga sniðinn
þröngur stakkur. Þetta lagaðist
svolítið seinni hluta ársins 1963,
en enn er langt í land að leið-
rétta gamalt misræmi.
Iðnaðurinn hér á landi þróað-
ist til réttrar áttar á síðasta ári,
og svo mun einnig verða á ný-
höfnu ári, þótt menn sjái fram
á talsverðar þrengingar í fjár-
málum. Þróunartími alls iðnaðar
er all-langur, og má í því sam-
bandi minna á, að góðan tíma
tekur að þjálía starfsfólk í iðn-
aði.
Nú eru horfur á, að farið verði
að þjálfa fólk á skipulegan hátt
til iðnverkastarfa. í undirbún-
ingi er að taka upp verkþjálfun
fyrir iðnverkafólk og starfsmat.
Yrði matið þá grundvöllur undir
launagreiðslum. í framhaldi af
þessu kæmi svo vinnuhagræð-
ing. Að þessum málum vinna nú
í sameiningu Iðja, félag verk-
smiðjufólks í Reykjavík, og Fé-
lag íslenzkra iðnrekenda, eða
sérfræðingar á vegum þeirra.
Fullur skilningur ríkir af beggja
hálfu ,á mikilvægi þessa máls.
Þetta samstarf, sem tókst á ár-
inu með vinnuveitendum og
vinnuþegum, tel ég, að sé með
merkilegri atburðum ársins frá
sjónarhóli iðnaðarins. Vænti ég
þess fastlega, að samstarf þetta
fari að bera árangur á nýja ár-
inu.
• Verzlun: Mikil velta, en
verzlunarálagning fyrir
löngu of þröng
Þorvarður Jón Júlíusson,
framkvæmdastjóri Verzlunar-
ráðs íslands, sagði: Veltan var
töluvert • miklu meiri árið 1963
en árið 1962 í mörgum greinum
verzlunar. Hins vegar er verzl-
unarálagning óbreytt áfram, og
er hún orðin allt of þröng fyrir
löngu. f nokkrum greinum verzl-
unar, t. d. í matvöruverzlun og
sumum greinum vefnaðarverzl-
unar, var um beinan taprekstur
að ræða á árinu.
Vænta menn þess, að hér verði
úrbót á ráðin, áður en mjög
langt líður á nýja árið.
Halli var á viðskiptum við út-
lönd á árinu. Við því var að vísu
búizt, en hann varð meiri en
haldið var í upphafi árs. Sá halli
er eitt þeirra vandamála, sem við
verður að glíma á árinu 1964.
Ástæða viðskiptahallans við
útlönd ætti að vera öllum kunn:
víxlgangur kaups og verðlags, og
rýmra var um lán og meira um
fé í höndum landsmanna en fyrr
hefur verið.