Morgunblaðið - 23.01.1964, Blaðsíða 22
Olyrapíuðfdifrinn
til Innsbruck
INNSBRUCK hefur að sjálf-
sögðu lengi borið svip þess að
Olympíuleikar eru í undirbún-
ingi. Eftir viku, eða miðviku-
daginn 29. jan. hefjast leikarnir.
Á morgun, föstudag, má^segja
að aðalhátíðahöldin hefjist. Kl.
10.30 lendir á flugvellinum við
borgina flugvél með Olympíu-
eldinn innanborðs. Allmargir
heiðursgesta leikanna verða
einnig með vélinni og aðrir taka
á móti henni á vellinum.
Fyrstur út úr flugvélinni stíg-
ur Karl Schæfer, tvöfaldur
Olympíumeistari og sjöfaldur
heimsmeistari í listhiaupi á
skautum. Hann mun bera blys-
ið með Olympíueldinum á land.
Borgarstjórinn í Innsbruck dr.
Alois Lugger fíytur ávarp og
risastór lúðrasveit leikur gríska
þjóðsönginn. Karl Schæfer af-
hendir síðan borgarstjóranum
blysið með Olympíueldinum og
lúðrasveitin leikur þjóðsöng
Austurríkismanna.
Eftir þessi hátíðahöld verður
eldurinn fluttur til „gamla bæj-
arins“ í Innsbruck og geymdur
í svokölluðum Maxmilian-sal
dagana sem eftir enu til leik-
anna.
JOHNNY NILSSON, sænski
skautahlauparinn var um s.l.
áramót kjörinn „íjþróttaimað-
ur Norðu.rlanda 1963“. Þetta
er í annað sinn sem slíkt kjör
fer fram, en á þingi norrænna
íþróttafréttamanna, sem hald-
ið var í Reykjavík 1962, var
samiþykkt reglugerð fyrir
slíku kjöri. Hefur hvjgxt hinna *
jþróttamaöur Norðurlanda 1963'
5 Norðulanda eitt atkvæði í
skoðanakönnuninni. Niisson
hlaut um s.l. áramót atkvæði
allra Norðurlandanna og hlýt-
ur góð verðlaun fyrir seim nor
rsen samtök íþróttafrétta-
manna veita.
Johnny Nilsson hlaut þessa
viðurkenningu fyrst og fremst
fyrir þann stórglæsilega ár-
angur er hann náði í heims-
meistaramótinu 1963. Þá ruddi
hann heimsmetunuim og varð
yfirburðasigurvegari með ár-
angri sem á engan sinn líka.
Á nýafstöðnu Evrópumóti
gekk honum verr. Hann hafn
aði í 10. sæti samanlagt og
var hvergi framar en nr. 7.
Hann hefur sem sé ekki enn
í vetur fundið formið. Sumir
fréttamenn spá honum betra
gengi í Innsbruck, segja hann
hafa miðað allar sínar æfing-
ár við að koroast á „toppinn"
þegar til Olympíukeppninnar
kemur.
Á myndinni er „Íþróttamað-
ur Norðurlanda 1963“ á fullri
ferð.
Skozka knattspyrnan
2. umferð Skozku bikarkeppninnar
fer fram n.k. laugardag og mætast
þá m.a. þessi lið:
Brechin City — Dundee
Morton — Celtic
Rangers — Duns
St. Mirren — Stranraer
Liðið. sem St. Mirren mætir leikur
í II. deild og er nú sem stendur í
10. sæti með 25 stig eftir 24. leiki.
Staðan í 1. deild í Skotlandi er
þessi:
Kilmarnock
Rangers
Celtic
Hearts
Dundee
22 leikir 37 stig.
22 — 36 —
22 — 30 —
22 — 29 —
22 — 28 —
Dunfermline
Dundee U.
Motherwell
St. Johnstone
Falkirk
Partick
Aberdeen
St. Mirren
Third Lanark
Queen of South
Hibernian
Airdrie
East Stirling
27
23
22
21
21
19
19
17
15
15
14
14
9
Jashin ,svarta tígrisdýrið4
atvinnumaður ■ (Jruguay
Fyrsti rússneski atvinnuma^urinn
HINN heimsfrægi rússneski
knattspyrnumaður, markvörð-
urinn Lev Jasihin, sem hlotið
hefur viðurnefnið „svarta
tígrisdýrið" mun á næsta leik
tíroa hætta að leika fyrir
Dynamo í Moskva og gerast
atvinnumaður í Montevideo í
Uruguay.
Þessar stórmerku fréttir
berast frá Uruguay og er for
maður félagsins Penarol, Gast
on Guelfi heimildarmaður, og
segir félag sitt hafa gert sarnn
ing við Jashin.
Jashin er fyrsti Rússinn,
sem gerist atvinnumaður
(opinberlega) í ilþróttum.
Formaður Penarol-félagsiins
sagði að hann hefði fengið
tilkynningu gegnum sendiráð
Rúisisa í Montevidao að siovézlk
yfirvöld hefðu fallizt á að
Jashin gerizt atvinnumaður
hjá Penarol. Jashin mun og
sjálfur vera fús til verkisins.
Ekkert liggur fyrir um það
hverja upphæð fjár Jasihin
fær fyrir undirritun atvinmu-
samnings, en fyrir liggur, að
kröfur Jashins í þeim eifnum
voru ekki litlar.
. Þannig hljóðar þessi stór-
merka tilkynning fró Uru-
guay. Bkikert hefur hieyrzt um
þetta annars staðar frá og
þykir sumum fréttin nokkuð
ósennileg. En hvað getur ekki
skeð
Þvi má við bæta að Jasihin
er líklega nú frægasti mark-
vörður heims'ins. Á öllium
Lev
Jashin
heimsmeistarakeppnum hefur
hann þótt sk'ára fram úr og
verið valinn í heimslið og lék
m.a. í úrvalsliði Evrópu gegn
Englandi fyrir skömrnu og
hélt marki sínu hreinu þann
hálfleikinn sem haiui lék.
t.l
Handbolta
vinsældir
aukast
DÖNSKU stúlkurnar sem keppa
munu á Norðurlandamóti kvenna
í handknattleik í sumar, verða
engin lömb að leijsa sér við. Þær
hafa þjálfað afar'vel að sögn og
nú nýverið sigruðu þær Svía
með miklum yfirburðum.
Handknattleiksíþróttin á góðu
gengi áð fagna í Danmörku nú.
Árangur beztu mannanna er
mjög góður í vetur m. a. sigur
yfir sænska landsliðinu sem
Dönum þykir sætastur allra sigra
og ennfremur tveir sigrar í ungl
ingalandsleikjum við Svía, auk
þess sem áður er nefnt um
kvennahandknattleikinn.
En kannski enn meira virði
fyrir leiðtogana eru vin-
sældir handknattleiks meðal
áhorfenda. Nú þegar % hlutium
deildakeppninnar er lokið er
komið í ljós að tölur um
fjölda áhorfenda hafa hækk-
að um 30—35% frá því verið
hefur. Þetta á eingöngu vió um
1. deild en allar aðrar deildir
fagna betri aðsókn að kappleikj-
um en áður, þó aukningin sé
ekki eins gífurleg og hjá 1. deild.
Það ríkir mikill spenningur
um . úrglit 1. deildar bæði um
sigurinn og eins um það hverjir
falli í 2. deild. Segja dönsk blöð
því að ekki sé ástæða til að ætla
að áhorfendum fækki síðasta
þriðjung keppnistímabilsins —
heWur þvert á móti. Það virðist
víst að met verði sett í áhorf-
endafjölda.
„Honn hefði
gert hið snma“
BREZKI hnefaleikameistarinn í
þungavigt, Brian London, vann
sl. mánudag Bandaríkjamanninn
Billy Nielsen á rothöggi í New-
castle. En leikurinn var óvenju-
lega sögulegur.
Hinn endanlegi úrslitadómur
féll í 4. lotu. Dómarinn greip inn
í leikinn til að skilja hnefaleik-
arana tvo frá hvor öðrum. Banda
ríkj amaðurinn lét hendur falla,
en í sama augnabliki fékk hann
þungt högg og féll til jarðar.
Hann komst á fætur aftur, en
London rétti honum samstundis
högg, sem lagði hann til fulls.
London neitar að hafa slegið
ólöglegt högg. „Ég gerði það sem
ég bjóst við að Bandaríkjamað-
urinn gerði við mig, ef hann hefði
petað“, sagði London.