Morgunblaðið - 23.01.1964, Qupperneq 24
laugavegi 26 simi ‘209 7Ö
18. tbl. — Fimmtudagur 23. janúar 1964
I
Jr/7//&A/dT/
Frá
Tfeklu.
11
Auslurstræti
Sinti 11687
Le/ð yfir skip-
stjórann í brúnni
í GÆRMORGUN er Hafrún frá
Bolungarvík var að koma til
Vestmannaeyja með 1700 tunnur
af síld rakst.hún á þrjá aðra
báta í höfninni. Var báturinn að
koma sér fyrir í Friðarhöfninni,
þar sem flestir síldarbátarnir
landa og var að bakka. Virtist þá
sem eitthvað bilaði, því báturinn
hélt áfram aftur á bak og lenti
á 3 bátum.
Þegar betur var að gáð kom í
Jafntefli
hjá Tal
Á SKÁKMÓTINU í gær-
kvöld skildu Guðmundur
Pálmason og Tal jafnir. Var
skák þeirra hörð og skemmti-
leg og átti Guðmundur betra
um tíma.
Friðrik vann Magnús,
Johannesen vann Trausta,
Gligqric vann Nonu,
Wade vann Arinbjörn.
Biðskákir urðu hjá Jóni og
Freysteini og hjá Inga og
Ingvari.*.
Eftir 7 umf. eru Tal og
Friðrik jafnir með 6!4, Gli-
goric hefur 6. — í kvöld
verða tefldar biðskákir.
tlmræðurnar
um Lpp-
kastið
tlMRÆÐUFUNDUR Stúdenta-
félags Reykjavíkur um Hannes
Hafstein og Uppkastið í ljósi sög
unnar“ verður haldinn í Sigtúni
(Sjálfstæðishúsinu) í kvöld og
hefst kl. 8.30. Frummælendur
eru þeir Guðmundur G. Hagalín
og Sigurður A. Magnússon.
Fundurinn er opinn almenn-
ingi jafnt og stúdentum, og er
aðgangseyrir 25 kr.
Þessum umræðufundi Stú-
dentafélagsins verður ekki út-
varpað síðar.
Ijós að liðið hafði yfir skipstjór-
ann, en hann var einn í brúnni.
Undanfarið hefur verið slæmt
veður á miðunúm. Aðfaranótt
þriðjudags héldu skipin sjó í
slæmu veðri og næstu nótt voru
þau í veiði, svo hann var búinn
að standa í allt upp í 2 sólar-
hringa.
Einn bátanna, Haförn, skemmd
ist nokkuð, svo hann verður tek-
inn 'í slipp á næsta flóði. Hinir,
Eyjaberg og Frigg, skemmdust
lítið. Skemmdir eru ekki full-
kannaðar. Sjópróf verða í dag.
Véiskipið Jón Garðar á siglingu.
Þriðja síldveiðiskipið
sekkur
Mannbjðrg
Jón Garðar lagðist á
/
hliðina á siglingu og
sökk á 7—10 mínútum
VÉLSKIPIÐ Jón Garðar úr
Garði sökk um kl. 5 í gær-
morgun er það var á siglingu
16 mílur SA af Hjörleifs-
höfða með síldarfarm áleiðis
til Vestmannaeyja. Mann-
björg varð, en skipið sökk á
7—10 mínútum. Skipið var.
með fullar lestar síldar og
um 100 tunnur á dekki. Vél-
skipið Hamravík var nær-
statt og bjargaði áhöfninni
af Jóni Garðari, 10 manns, og
kom með hana til Vestmanna-
eyja í gær um kl. 12 á hádegi.
Áhöfnin kom svo hingað til
Balbo-flugumslag
selt á 46,500 kr.
Á frímerkjauppboði, sem
haldið var hja uppboðsfyrir-
tæikinu Edgar Mohrman &
Co í Hamborg í nóvembermán
uði sl. var selt umsiag með
hinum sjaldgæfu og eftir-
spurðu íslenzku frímerkjum,
sem nefnd eru Balbo-merki,"
en umslag þetta var eitt
þeirra 298, sem send voru héð
an þegar ítalski flugflotinn
flaug um ísland á leið til
Ameríku árið 1933.
Umslagið seldist á uppboð-
inu á DM 4300, sem svarar
ísl. krónum 46.500 með nú-
verandi gengi. Þessi gífurlega
hækkun á umslögum þessum
stafar m.a. af því að eftir-
spurn frá ítöiskum og sviss-
neskum frímerkjasöfnurum
hefur aukizt hin síðari ár, en
snémma á sl. ári var verð
þessara umslaga um það bil
20 þús. kr.
Reykjavíkur um kl. 3 síðdeg-
is og hélt suður í Garð. Suð-
vestan bræla var, 5—6 vind-
stig, og fékk skipið á sig vind-
kviku, er lagði það á hliðina,
svo það náði ekki að rétta sig
við. —
Fréttaritari biaðsins í Vest-
mannaeyjum, Björn Guðmunds-
son, náði tali af skipsmönnum
þar, ennfremur átti blaðamaður
Mbl. stutt viðtai við skipstjór-
ann á Jóni Garðari, Sigurð
Brynjóftsson, er hann kom með
áhöfn sinni hingað til Reykja-
víkur. Nánari atvik slyssins eru
sem hér segir:
Vélskipið Jón Garðar var að
veiðum austur í Meðallandsbugt
og hafði fengið gott kast, um
1700 tunnur, að sögn skipstjóra.
Úr því var háfað í fulla lest,
sem tekur 900—950 tunnur og
síðan var háfað um 100 tunnum
á dekk. Afgangnum úr kastinu
var hent. Lokið var að háfa og
ganga frá um kl. 1.20 eftir mið-
nætti. Hélt þá skipið af stað á-
leiðis til Vestmannaeyja.
Upp úr miðnættinu tók að
vinda af suðvestri. Nokkur und-
iralda var. Allt gekk vel þar til
klukkan Íaust fyrir 5 um nóttina
að vindkvika lagði skipið á hlið-
ina. Vindur stóð á bakborðsbóg
skipsins. Jón Garðar var þá
staddur um 16 míiur SA af Hjör
leifshöfða. Þá var skipstjórinn,
vélstjóri og einn háseti á vakt.
Aðrir voru í hvílum. Sýnilegt
var að skipinu myndi ekki tak-
ast að rétta sig við og sendi skip
stjóri því út neyðarkall. Vélskip
ið Hamravík frá Keflavík var
statt um tvær mílur frá, lítið
eitt á undan, og höfðu skipstjór-
arnir haf-t samband sín á milli
fyrr um nóttina. Hamravík ha-fði
orðið fyrir því óláni að hengil-
rífa nót sína, en hafði litla sem
enga síld innanborðs.
Áhöfnin á Jóni Garðari náði
lausum báðum gúmmíbjörgunar-
bátum skipsins og blésust þeir
upp þegar í stað. Komust skips-
menn allir í annan björgunarbát
inn, flestir þó lé-tt klæddir,/mat-
sveinninn á nærklæðum einum
saman. Skipsmönnum ber saman
um að ekki hafi iiðið nema 7—10
Ujósm.: Snorri Snorrason.
mínútur frá því skipið lagðist á
hliðina og þar til það var sokkið.
Ijr skipið hallaðist kveik-tu Þeir
öll Ijós og sáu þeir á Hamra-
víkinni því greinilega hvar Jón
Garðar fór niður. Komu þeir á
vettyang eftir að skipbrotsmenn
höfðu verið nálegs 10 mínútur í
gúmmíbátnum. Náðu þeir á
Hamravík skipbrotsmönnum
skjótlega um borð og ennfrem-
ur náðu þeir báðum gúmmbát-
unum.
Magnús Bergmann skipstjóri á
Hamravík segist hafa heýrt neyð
arkallið þegar í stað og greið-
lega hefði gengið að finna skip-
brotsmennina og ná þeim um
borð.
Sigurður Bryjólfsson skipstjóri
á Jóni Garðari bað blaðið færa
áhöfn Hamravíkur alúðarþakkir
fyrir björgunina og góða-n við-
urgerning.
Frh. á bls. 23
síldveiði
í FYRRINÓTT var ein bezta
veiðinótt síldarvertíðarinnar
við Suðvesturland. Fengu 39
bátar 35.400 tunnur, og munu
flestir hafa landað í Vest-
mannaeyjum. Var síldin á
austurmiðunum og fengust
þar stór köst. Veður var sæmi
legt fyrst en fór að bræla
er leið á nóttina. Aflahæstir
voru Faxi með 1800 tunnur,
Hrafn Sveinbjarnarson II og
Hafrún með 1700 tunnur, ogi
Guðmundur Þórðarson með
1500.
Er þörf öryggisreglna um
veiðarfæri fiskiskipa?
f
Sildveiðar meb kraftblökk og nælon-
nót ofviöa minnstu skipunum
ÖRYGGISREGLUR um veiðar-
fæ-ri skipa hafa fram til þessa
ekiki verið tímabærar, en svo virð
ist sem þeirra geti orðið þörf,
t.d. að miða stærð veiðarfæra
og togvinda við skipsstæcð-- At-
huga ber / einnig hvort stöðva
bæri nú þegar vetrarsáldveiðar
minnstu skipanna. Þessi ummæli
eru höfð eftir Hjálmari Böðvars-
syni, skipaskoðunarstjóra, sem
talaði í fréttaauka í útvarpinu
um hinar nýju reglur fiskiskipa
á vetrarsíldveiðum, sem áður
hefur verið frá sagt hér í blað-
inu.
Það kom fram hjá skipaskoð-
unarstjóra að litlu síldarskipin
hafa flest tiltölulega litlar lestar
miðað við burðarhæfni skipa,
sum verið hlaðin að undanförnu
með allt að % hluta farms á þil-
fari og 1/3 í lest. Og enn frem-
ur að síldarnætur fara stækk-
andi, eru nú orðnar um eða yfir
6 tonn og sé augljóst að slík yfir
þyngd á bátapalli minnki* veru-
lega stöðugleika skipanna, en sé
að sjálfsögðu hættulegast fyrir
minnstu skipin, sem búin eru
bátapalli fyrir nótina. Um þetta
sagði Hjálmar enn fremur:
Hinar nýju reglur hafa sum-
um þótt vera róttækar og þaer
eru það líka. Þó vaknar sú spur.n
ing óneitanlega strax nú eftir
síðustu skipstapa-na, hvort þær
gangi nógu langt og taki til nægi-
lega margra atriða.
Það vaknar líka aftur sú spurn
ing hvort ekki sé rétt að banna
alveg alla þilfarshleðslu á vetrar
síldveiðum og þá með það fyrir
augum beinlínis að minnstu skip
in leggi niður síldveiði með kraft
blökk að vetrarlagi. Mér er ljóst
að það er dýrt að stíga þetta
skref og mörgum sárt að sjá af
veiði, en það er líka diýrt að láta
skipin sökkva óg enn dýrara er
og óbætanlegt að mi.ssa vaska
sjómenn í hafið.
Framh. á bls. 23