Morgunblaðið - 22.02.1964, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.02.1964, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 22. febr. 1964 Skipholti 21 — Sími 12915. HÖFUM TIL SÖLU: Hurðir á For:’ ’42—’55, Dodge ’47—’59. Merkuri ’52—’54, Öuick ’49—’54, Oldsanobil ,49—’54, Moskwitdh ’55, Reno ’59—’62. Gírkassar í Benz 180, Dodge ’41—’55, Ford ’49—’54. Vélar í Skoda ’47—’55, Benz Diesel '52, Dodge ’42—’53, f Ohevrolet ’49—’53, Ford Prefect ’42—’47. Drif og hásingar í Ford ’49—’56, Dodge ’41—’53, Ohevrolet ’42—’53, Poiitiak ’51—’56, Willys ’42—’47. Höfum fyrirliggjandi: Stuðara, hjólkoppa, kveikj- ur, blöndunga, dínamóa, startara og öxla í flestar tegundir bifreiða. 1\ SALAN Skipholti 21. - Sími 12915. ÞAÐ er nú ákveðið að KR tek ur þátt í keppninni um Evrópu- bikarinn á þessu ári. Þátttöku- tilkynning hefur að vísu enn ekki verið send, en ákvörðun tekin um það hjá KR að taka þátt í þessari merkustu alþjóð- legu knattspyrnukeppni sem árlega fer fram. KR á einnig eftir að fá leyfi KSÍ og ÍSÍ til þátttökunnar, en vænta má að þar sé nánast um formsatriði að ræða sem verði auðsótt. ★ Tveir möguleikar KR er sigurvegari í 1. óeild s.l. ór (íslandsmeistari) og einnig í KVENSKÓR með lágum breiðum kvart- hœl Gott úrval nýkomið verð frá kr. 360.oo Skóverzlun Péturs Hndréssonar Laugavegi 17. Skóbúðin Framnesvegi 2. 2i SALAN Úrslit i firmakeppni badminton í dag UM ÞESSAR mundir fer fram firmakeppni hjá Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur. — Keppnin er útsláttarkeppni og fellur það fyrirtæki úr, sem tap ar leik. Að undanfömu hafa ver ið leiknir úrtökuleikir, og eru nú alls 16 fyrirtæki eftir, sem engum leik hafa tapað. Fara úrslit fram í dag kl. 15.30 í íþróttahúsi Vals að Hlíðarenda. Keppnin er með forgjafarsniði og eru leikir því mjög tvísýnir. Má því búast við skemmtilegum leikum í dag. Sigurlaunin er fagur silfurbikar, sem Leður- verzlun Magnúsar Víglundsson- ar gaf árið 1957, en það er far- andgripur. Fær sigurfyrirtækið áritað nafn sitt á hann og hefir vörzlu hans til næstu keppni. — Jafnframt fær það fyrirtæki silf urbikar til eignar, svo og einnig það fyrirtæki, sem hlýtur annað sætið í keppninni. Eftirfarandi 16 fyrirtæki taka þátt í úrslit- unum í dag: Prentsmiðjan Oddi h.f. gegn P. Jónasson & Co. Pétur O. Nikulásson, umboðs- og heildverzl. gegn L. H. Múller. Sælgætisgerðin Víkingur gegn Sjávátryggingafélagi íslands h.f. Húsgögai Co. gegn Veitinga- húsinu Naust. Vinnufatagerð íslands h.f. gegn Málning h.f. O. V. Jóhannsson & Co gegn Herradeild P & Ó. 3yggingavörur h.f. gegn Völ- undi h.f., timburverzlun. S. Árnason & Co. gegn Korne- líus Jónssyni', verzlun. Dómarar fá góö ráð Handknattleiksdómarar höfðu það einstæða tækifæri að hlýða á túlkun eins frægasta hand- knattleiksdómara Evrópu á fimmtudag, föstudag og síðasta tækifæri er á morgun. Þetta er Daninn Knud Knudsen sem kom inn er hingað til að dæma lands- leiki Bandaríkjamanna og íslend inga í dag og á morgun. Á fimmtudaginn þegar fyrsti dómarafundurinn var sendum við ljósmyndara á vettvang og hann tók mynd af öllum ísl. dóm urum sem höfðu áhuga á að hlusta túlkun hins fræga manns. Það mættu 8 — átta — og þar rneðal þeirra sem vantaði voru sumir þeirra er ilesta leiki dæma í 1. deild og stöðugt er verið að gagnrýna fyrir misjafna túlkun á reglunum. Það var vel til fundið hjá dóm aranefnd HSÍ undir forystu Hann esar Þ. Sigurðssonar að halda fundi með þessum kunna dóm- ara. En áhugaleysi dómara er óskiljanlegt. Myndirnar hér með sýna eir Knudsen er að útskýra merk- ingu vallarins og hinsvegar þá dómara sem mættir voru auk Hannesar Sigurðsson.ar formanns dómnefndar sem ekki sézt en túlkaði fyrir þa er ekki skildu dönskuna. bikarkeppninni. KR-ingar gætu því tekið þátt í keppninni bæði um Evrópubikarinn, sem er hin veglegasta keppni þar sem að- eins sigurvegarar 1-deildar hvers lands hafa þátttökurétt, og um Evrópubikar fyrir þau lið er sigra í bikarkeppni hves lands eiga rétt til þátttöku í. Árlega taka tugir liða þátt í keppninni um Evrópubikarinn, sem er miklu eftiróknarverðari eins og sigur í 1. deild er eftir- sóknarverðari en sigur í bikar- keppni. Þátttökuliðunum er skipt í landssvæði vegna ferð- arkostnaðar og munu Norður- lönd (utan Finnlands) svo og Niðurlönd ásamt íslandi senni- legast saman í mögulegum sam drætti. íslenzka landsliðið í handknattleik. Minnsta þjóðin á sigurvon ir móti þeirri stærstu SKÍÐASAMBAND íslands hafði ákveðið að vera þátttakandi í norrænni keppni í skíðagöngu almennings, 5 km vegalengd. — Var ákveðið að keppni hæfist um þessa helgi. Vegna snjóleysis um allt land hiefur SKÍ ákveðið að fresta „opnun“ göngunnar um óákveð- inn tíma. upplýsingar um liðin. íslenzka liðið er skipað þessum mönnum: Hjalti Einarsson FH, Guðmundur Gústafsson Þrótti, Gunnlaugur Hjálmarsson ÍR, Einar sigurðs- son FH, Birgir Björnsson FH, Guðjón Jónsson Fram, Ingólfur Óskarsson Fram, Ragnar Jóns- son FH sem er fyrirliði liðsins, Karl Jóhannson KR, Hörður Kristinsson Ármanni, sigurður Einarsson Fram. A Forleikur. Á undan leiknum fer fram leik- ur milli landsliðs unglinga sem keppa á Norðurlandamótinu í marzmánuði og leikur unglinga* landslið við iið sem íþróttafrétta menn hafa valið. Liðin eru þannig. Jón Breiðfjörð Valur, Einar Hákonarson Víkingur, Viðar Sím Framhald á bls. 23. Þegar dregið verður um það hvaða liði KR eigi að mæta er hugsanlegt að t.d. hið heimsfræga lið Totten- ham, sem er líklegastur sig- urvegari í Englandi, dragizt móti KR. Það væri ekki ó- nýtt fyrir KR að fá slíkt lið í heimsókn, en leikið er bæði heima og heiman. KR liðið hefur átt misjafna leiki við erlend lið, stundum magnast margfaldlega og gert miklu meir en vænzt var. Kannski er eitthvað í þá áttina væntanlegur mögu- leiki á næsta sumri. Skíðagöngu frestað LandsEeikur við Bandaríkin í dag I DAG kl. 4 síðdegis er fyrri landsleikur íslands og Banda- ríkjanna í handknattleik í íþrótta húsinu á Kefiavíkurvelli. Þetta verður 18. landsleikur íslands en fyrsti landsleikur viðkomandi þjóða í þessari grein. Mikill spenningur er um þessa leiki, enda eru bæði liðin á leið til Tékkóslóvakiu þar sem þau taka þátt i 16 liða úrslitakeppni um heimstitilinn í handknattleik. ★ Spenningui. Miðasala var fyrstu dagana mjög ör svo að lá við örþroti miða, en þeir munu enn fáan- Farid snemma Vegna gífurlegrar umferð- ar til Keflavíkur er fólki sem ætlar að sjá landsleikinn í handknattleik við Banda- ríkjamenn ráðlagt að fara tímanlega af stað. ■ilNaMMMMMMH legir hjá Lárusi Blöndal, Hjólinu í Hafnarfirði, og hjá Fons í Kefla vík. Eftir kl. 2 er ferðir hefjast frá BSÍ verða miðar seldir þar ef einhverjir verða eftir og við hliðið á Keflavíkurvelli. ★ Breytt hús. íþróttáhúsinu á Keflavíkur- velli hefur verið breytt til þess að geta tekið við fleiri áhorfend- um. Þannig verða upphækkuð stæði sett á svölunum og sæta- röð þeim megin sem fram til þessa hafa eingöngu verið stæði, en stæðin upphækkuð. Stjórn HSÍ stendur i málinu með flokk trésmiða og sjálfboðahða. ★ Liðið. Við höfum áður birt ýmsar KR keppir um Evrópubikarinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.