Morgunblaðið - 22.02.1964, Page 24
44. tbl. — Laugar«lagur 22. febrúar 1964
-JBordens VORUR
bragðásTbézt
Dómur í Sigurb]arnarmalinu:
VEITÍNGAMADURINN
HLAUT 20 MÁN. FANGELSI
Annar gjatdkeranna 30 daga skilorðsbundið fangelsi —
Refsing hins felld niður — Báðir taldir hafa sýnt stór-
fellt hirðuleysi í opinberu starfi
Haraldur
Guðni
Guðmundur
Kári
Þorleifur
Trésmiðir, tryggiö sigur B-listans
Kosning hefst í dag
STJÓRNARKOSNING í Trésmiðafélagi Reykjav^kur fer fram í dag
og á morgun. Kosið er í skrifstofu félagsins, Laufásvegi 8, og hefst
kosningin í dag kl. 2 og stendur til kl. 10 í kvöld. — Á morgun
(sunnudag) verður kosið frá kl. 10 árdegis til kl. 12 og frá kl. 1 e. h.
til kl. 10 og er þá kosningu lokið.
í G Æ R var upp kveðinn í
Sakadómi Reykjavíkur dóm-
ur í máli ákæruvaldsins gegn
Sigurbirni Eiríkssyni, veit-
ingamanni, og tveimur fyrr-
verandi gjaldkerum Lands-
banka íslands. Dóminn kvað
upp Halldór Þorbjörnsson,
sakadómari.
Ákærður Sigurbjörn Eiríksson
var dæmdur í 20 mánaða fang-
elsi fyrir að hafa brotið gegn 248.
grein almennra hegningarlaga
(um fjársvik) með því að selja í
Landsbanka íslands dagana 19.,
20. og 21. september 1963 sex
tékka að fjárhæð samt. 1,925,000,
án þess að innistæða væri fyrir
tékkunum á viðkomandi banka-
reikningum og án þess að hann
léti þess getið að þannig var á-
statt um tékkana. Hann var hins-
vegar sýknaður af ákæru um
hlutdeild í brotum hinna með-
ákærðu gjaldkera. Frá refsingu
Sigurbjarnar dragist gæzluhalds-
vist hans, 19 dagar.
Fram skal tekið varðandi dóm-
inn yfir Sigurbirni, að Lands-
banki ísiands hefur sótt bóta-
kröfur sínar í einkamálum, og
komu þær því ekki við sögu í
þessu refsimáli.
Ákærður, Garðar Siggeirsson,
var dæmur í 30 daga skilorðs-
bundið varðhald samkvæmt 141.
grein almennra hegningarlaga
fyrir stórfellt hirðuleysi í opin-
beru starfi, en hann tók við fjór-
um af hinum sex tékkum Sigur-
bjarnar, og hafði þó haft kynni
af tékkaútgáfu Sigurbjarnar,
bæði vegna fyrirmæla um þau
viðskipti, sem aðalféhirðir hafði
gefið honum, svo og vegna per-
sónulegs sambands við Sigur-
björn. Garðar var sýknaður af
ákæru um að hann hefði misnot-
að stöðu sína í bankanum í eigin-
hagsmunaskyni.
Ákærði, Marinó Hafsteinn
Sveinsson, sem keypti tvo af áð-
urnefndum sex tékkum, þrátt
fyrir áðurnefnda aðvörun aðal-
féhirðis og án þess að ráðfæra
sig við hann, var talinn hafa sýnt
stórfellt hirðuleysi í opinberu
starfi og því hafa brotið gegn 141.
grein almennra hegningarlaga,
Framíhald á bls. 23.
TEKIZT hefur á Álafossi að
framleiða ullarfeiti (lanolin) úr
þvottalegi, sem kemur frá hin-
um nýju ullarþvottavélum. Er
feitin unnin úr þvottaleginum á
kemiskan hátt, en ekki með vél-
Tveir listar eru í kjöri, eins og
undanfarin ár í félaginu, B-listi
lýðræðissinna, sem skipaður er
mörgum reyndustu mönnum fé-
Þetta kom fram í ræðu, sem
Ásbjörn Sigurjónsson á Álafossi,
flutti á Búnaðarþingi í gærmorg
un. Ásbjörn gaf öllum þingfull-
trúum sýnishorn af þessari nýju
framleiðslu og gat hann þess, að
þetta væri í fyrsta skipti sem
ullarfeiti væri unnin á fslandx.
Hann sagði einnig, að feitin
væri tekin úr þvottaleginum á
kemiskarr hátt en ekki með vél-
Tveir seldu í
Þýzkalandi
INGÓLFUR Arnarson seldi afla
sinn sl. fimmtudag í Cuxhaven,
142 tonn fyrir 118.742 mörk.
í gær seldi Surprise afla sinn
í Bremerhaven, 119.5 tonn fyrix
101 þúsund mörk.
Ekki selja fleiri togarar er-
iendis í þessari viku.
FUNDI fulltrúa SAS og Loft-
leiða lauk sl. fimmtudag og fór
SAS-mennirnir fjórir af landi
brott í gærmorgun. Morgunblað-
inu hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkynning frá Loftleiðum
um viðræðurnar:
„Fulltrúar Loftleiða og SAS
hafa dagana 19.—20. febrúar
haldið fundi í Reykjavik í þeim
tilgangi að kynna sér sameiigin-
lega annars vegar verðlagsgrund
völlinn og kostnaðarhlið norr-
æns flugs yfir Norður-Atlantshaf,
lagsins, sem staðið hafa í fylk-
ingarbrjósti í baráttu fyrir flest-
um hagsmunamálum stéttarinnar
og A-listi, sem að mestu leyti er
um, þetta væri aðeins byrjunar-
stig, en vonandi yrði hægt að
fullkomna framleiðsluna, sem
yrði nokkur búbót fyrir sauðfjár
bændur.
Ullarfeiti er notuð í alls konar
snyrtikrem, handáburð, sápur,
hárþvottalegi og margs konar
aðrar snyrtivörur. Fram til þessa
hefur orðið að flytja ullarfeiti
(lanolin) inn til landsins, en ef
þessi tilraun að Álafossi tekst
jafn vel og byrjunartilraunirnar
gefa vonir um má búast við, að
innflutningur þessarar dýru
vöru leggist niður og að jafnvel
verði um útflutning að ræða.
13 Akranesbátar
með 72 ionn
Akranesi, 21. íebrúar.
SJÖTÍU og tvö tonn fiskuðu 13
bátar samtals í gær. Aflahæstur
var vélbáturinn Anna með 8.8
tonn, annar Sæfari með 8 tonn
og þriðji Fram með 7.2 tonn.
Margir höfðu loðnubeitta línuna
í gær. Margir róa með 40 bjóð.
Haföm er sá fyrsti hér, sem
vitjar um þorskanet á vertíðinm,
fiskaði í gær 1200 kíló. — Oddur.
og hins vegar til þess að rann-
saka möguleika fyrir samvinnu.
Umræðurnar fóru fram í hrein
skilni og vinsemd og hefir ár-
angurinn orðið sá, að báðir aðil-
ar hafa gert ljósa afstöðu sína
til vandamálanna.
Fulltrúar flugfélaganna munu
láta flugmálastjórnum í té grein-
argerðir. Flugmálastjórnir ís-
lands og Norðurlandanna munu
hittast í náinni framtíð til þess
að halda áfram viðræðum."
skipaður kommúnistum, enda
hafa þeir haft öll ráð í stjórn fé-
lagsins síðustu árin og unnið það
eitt til afreka að knýja félagið út
í tilgangslausar vinnudeilur, sem
skaðað hafa félagana um þús-
undir króna.
Takist kommúnistum að halda
stjórn félagsins áfram má gera
ráð fyrir að þessari stefnu verði
haldið áfram, enda er fráfarandi
stjórn algert verkfæri í höndum
þeirra pólitísku ævintýramanna,
er stjórna verkalýðsmálastefnu
kommúnistaflokksins.
B-listi lýðræðissinna er þannig
skipaður: Haraldur Sumarliða-
son, formaður, Guðni H. Árna-
son, varaformaður, Guðmundur
Sigfússon, ritari, Kári Éjl. Ingv-
arsson, vararitari, og Þorleifur
Sigurðsson, gjaldkeri. Varastjórn:
Kristinn Magnússon, Ólafur Ól-
afsson og Viktor H. Auðbergsson.
Trésmiðir! Greiðið atkvæði
sem fyrst, því að það auðveldar
alla vinnu í sambandi við kosn-
ingarnar. Hafið samband við fé-
laga ykkar og komið í kosninga-
skrifstofu lýðræðissinna og veitið
aðstoð ykkar í baráttunni gegn
kommúnistum: Munið að sigur
B-listans er sigur ykkar og sam-
takanna.
Ekki fólsku
verk
AF FRÉTT blaðsins í gser um
að drengur á hjóli hafi verið
barinn af öðrum dreng má
ráða að um fólkskuárás bafi
verið að ræða. Svo var þó
ekki, /
Samkvæmt uppiýsingum,
sem blaðinu hafa nú verið
gefnar, er forsaga málsins
sú, að drengurinn, sem kom
á hjóli eftir Ásvallagötunni,
hrifsaði húfu af öðrum minni,
sem var þar á götunni. Þriðji
drengurinn, sem var þarna
staddur, sveiflaði þá tösku
sinni til þess á hjólinu. Kom
taskan í hjólið (ekki andlit
piltsins) með þeim afieiðing-
um, að drengurinn, sem á
því var, féll í götuna og
skrámaðist allmikið. Dreng-
irnir eru nágrannar og fór
sá, sem með töskuna var
heim með hinum. Mæðrum
piltanna kom síðan saman
um, að rétt væri að fara með
þann slasaða í Siysavarðstof-
una og fóru þangað með
hann báðar. Kom þar í ljós
að piltSánn hafði fengið
snert af heilahristing.
um.
Engar auglýsingar í
færeyska útvarpinu,
segir Djurhuus lögmaður
BLAÐEÐ haifði spurnir af því
í gær að Landssamband ís-
lenzkra útvegsmanna hefði
verið tilkynnt það í skeyti
frá Færeyjum að ekki yrðu
teknar frá því auglýsingar
um mannaráðningar í fær-
eyska útvarpið. Ennfremur
herfði fulltrúa þess í Færeyj-
um verið neitað um það sama.
Sama gilti um tilkynningar
frá Landssambandinu. Hins
vegar hafði í fyrrakvöld ver-
ið birt tilkynning þess til
ieiðréttingar á því, er útvarp
ið hafði sagt um gengisfell-
ingu og gjaldeyrisskort hér
á landi.
Fyrri tilkynningar Fiski-
mannafélags Færeyja hafa
sýnilega haft áhrif, því ekki
hofðu nema tveir sjómenn
pantað far með Gullfossi hing
að til lands í þessari ferð, en
ástæða hafði verið til að ætla
að fleiri mundu leita hér at-
vinnu.
Vegna þessa máls átti blað
ið í gær símtal við lögmann
Færeyja, Hákun Djurhuus og
var það á þessa leið.
— Hvað viljið þér segja um
þann orðróm að lög verði sett
í Færeyjum, sem banna sjó-
mönnum að ráða sig'á islenzk
skip?
— Ég hef ekki heyrt að
nein lög yrðu sett á Lög-
þingi Færeyja um að banna
sjómönnum að fara á íslenzka
báta, eða báta annara þjóða,
svo sem Norðmanna og Þjóð-
verja.
— Hvað mynduð þér segja
um slíka lagasetningu?
Framh. á bls. 23
Ullarfeiti framleidd á ís-
landi í fyrsta sinn
Er notuð í alls konar snyrti-
vörur, sápur og hárþvottalegi
Ræddu möguleika á
samvinnu Loftleiða
og SAS