Morgunblaðið - 21.03.1964, Page 6

Morgunblaðið - 21.03.1964, Page 6
b MORGUU*LAÐIÐ r Laugardagur 21. marz 1964 Verkefni sem bíða íslenzks iðnaðar eru óþrjútandi Ræða Gunnars J. Friorikssonar, formanns Félags íslenzkra iðnrekenda við setningu ársþings iðnrekenda 1964 FRÁ >VÍ að ársþing iðnrek- enda var haldið í apríl s. 1., hafa orðið straumlhvörf í efna- hagslífi okkar íslendinga. Á því árslþingi gætti mikillar bjartsýni um framtíð og afkomu iðnaðarins. Útlit var fyrir að að- gerðir ríkisstjórnarinar til þess að skapa hér frjálsara eínahags- kerfi líkt og nágrannaþjóðir okkar búa við, ætluðu að bera árangur. Ótti manna við, að af- nám innflutningshafta mundi auka svo innflutning, að ekki yrði við neitt ráðið hafði reynzt ástæðulaus. Eftir að iðnaði og verzlun hafði að heita má í meira en áratug verið haldið í viðjum hafta og opin'berrar ihlut unar í flestum efnum, var nú tekið að rofa til og menn fengu aukið frelsi til reksturs fyrir- tækja sinna. En aukig frelsi nær skammt, og ber ekki þann árangur er skyldi, ef ekki tekst um leið að viðhalda jafnvægi í efnahagsmál um. Fyrir því ætti reynsla liðins árs að vera sönnun. Samkvæmt fyrstu áætlunum, er nú liggja fyrir, mun aukning þjóðarframleiðslu hafa numið 4-5% og er það nokkru minni aukning er varð árið 1962. Það lætur þó nærri að aukning þjóð- arframleiðslunnar hafi legið nálasgt því, sem áætlað er í þjóðhags- og framkvæmdaáætl- un þeirri, er rikisstjórnin lagði fram á s .1. vori. Hins vegar þykir ljóst, að ráðstöfun verð- mæta hefi orðið mun meiri en andvirðí þjóðarframleiðslunnar nam og á ég þar við neyzlu einkaaðila, fjárfestingu og út- gjöld hins opinbera. Verðmæta- ráðstðfunin hefur farið veru- lega fram úr því, sem gert var ráð fyrir í þjóðhags og fram- kvæmdaáætluninni, og þá einik- um fjárfesting. Afleiðing þess var óhófleg þennsla innanlands og verulega aukin eftirspurn eftir gjaldeyri. Gjaldeyrisstaðan hélt þrátt fyrir það áfra-m að batna, en þó aðeins um 161 millj. kr. á móti 623 millj. kr. árið 1962. Að gjaldeyrisstaðan skuli þó hafa batnað stafaði hins veg- ar fyrst og fremst af mikilli not- kun erlends lánsfjár, en auk þess reyndist þróun viðskiptakjara okkar hagstæð þar sem verð- lag útflutnings mun hafa hækk- að um 3,8% á móti 2,3% hækkun á verðlagi innfluttra vara. Um iðnaðarframleiðsluna er enniþá lítið hægt að segja. >ó benda áætla/iir til þess, að heild- arframleiðsluaukningin hafi orð- ið hlutfallslega mjög svipuð og aukning þjóðarframieiðslunnar, þ. e. 4-5%. Það ber þó að hafa í huga, að hér er um meðaltals- aukningu að ræða og að undan- skilinn er fiskiðnaður og vinnsla landbúnaðarafurða. í nokkrum iðngreinum var 'hins vegar um samdrátt að ræða og benda úr- taksrannsóknir Hagstofunar á starfsmannahaldi eindregið til þess að svo hafi verið m. a. í skógerð, fatagerð og veiðarfæra- iðnaði. Engan' þurfti að undra, að einhverra ráðstafana var þörf til þess að draga úr þeirri eftir- spurnarþennslu, er ríkti og þá einkum er leið að miðju ári. Var þá orðinn slíkur skortur á vinnu- afli, að fyrirsjáanlegt var að leiða myndi til átaka í kaup- gjaldsmálum, enda var sú og raunin. Hinar stórkostlegu launa hækkanir, sem áttu sér stað höfðu í för með sér mikla erfið- leika á sviði verðlagsmála iðn- fyrirtækja, þar sem erfitt reynd- ist að fá nauðsynlegar leiðrétt- ingar á framleiðslukostnaði viðurkenndar af verðlagsyfir- völdunum. Þrátt fyrir það að beinar verð- lagshömlur séu og hafi verið strangari hér á landi en þekkist til í nokkru nágrannalanda okkar, hafa verðhækkanir orðið meiri hér en víðast hvar annars staðar. Af því má ráða, að ströng verðlagshöft nægja engan veginn sem trygging fyrir stöð- ugu verðlagi. Árangur þeirra hér á landi er 'helzt sá, að þau hafa valdið fyrirtækjum erfið- leikum og tjóni og tafið stór- lega fyrir uppbyggingu iðnaðar- ins. Bezta trygging fyrir stöð- ugu verðlagi hlýtur ávallt að vera sú, að komið sé í veg fyrir ofþennslu í efnahagslífinu. Opinber verðlagsákvæði tryggja það ekki. Fyrir því er 20 ára reynsla nægileg sönnun, sem viðurkenna verður með afnámi verðlagsákvæða I núverandi mynd. Fyrstu ráðstafanirnar, sem gerðar voru til þess að draga úr ofþennslu efnahagslífsins, voru þær, að Seðlabankinn hækkaði verulega yfirdráttarvexti við- skiptabankanna, jaínframt því, sem hann hvatti þá til meira aðhalds í útlánum. Síðan komu efnahagsráðstafanir ríkisstjórn- arinnar í kjölfar kauphækkunar- innar í desember, með lögum um ráðstafanir vegna sjávar- útvegsins o. fl. Þær aðgerðir minna því miður óþægilega á tímabilið fyrir 1960. Með styrkjum og uppbótum á suma þætti efnahagslífsins, hlýt- ur eðlilegt jafnvægi að ra9kast og þróunin verður ekki í sam- ræmi við lögmál efnahagslífs- ins. Þetta misræmi kemur mjög hart niður á ýmsum nýgræðingi í útflutningsframleiðslu og einnig þeim iðnaði, sem engar eða lítillar tollvemdar nýtur, auk þess sem samkeppnisaðstaða annars iðnaðar versnar. Það er ekki af kunnáttu eða viljaleysi, að ullariðnaður, niður suða, skipasmíðar eða veiðar- færaiðnaður, svo augljósustu dæmin séu nefnd, hafa ekki náð að vaxa meira en raun ber vitni. Það verður fyrst og fremst rakið til þeirrar efnahagsstefnu, sem fylgt var að meira eða minna leyti frá því skömmu eftir stríðslok og til ársins 1960. Vegna þess hve menn eru fljótir að gleyrna og ekki er laust við að þær raddir heyrist, Gunnar J. Friðriksson sem innleiða vilja að nýju inn- flutningshöft og auknar uppbæt- ur sem lið í lausn þeirra efna- hagsvandamála, sem við nú eigum við að etja, þykir mér rétt að skýra frá niðurstöðum, sem Norðmaðurinn Haarr kemst að um áhrif hafta og uppbóta- tímans á hinn svokallaða toll- verndaða iðnað. Niðurstöður sínar dregur hann m. a. út frá athugun á aukningu starfsmannahalds í hinum toll- vernduðu iðngreinum, en á tíma- bilinu 1947-59 nam aukning þess 18% á sama tíma sem aukn ing starfsmannahalds alls iðn- aðar, að vinnslu landbúnaðar- afurða og fiskiðnaði meðtöldum, nam 97%. Honum er það undrunarefni, hversu lítil framleiðsluaukningin hafi orðið, þrátt fyrir það, að beitt hafi verið í innflutnings- höftum og aðflutningsgjöld hafi verið há. Slík stefna hefði átt að skapa skilyrði til verulegrar framleiðsluaukningar. Að sú varð ekki raunin, segir hann að rekja megi e. t. v. að nokkru leyti til svæðar markaðsins. En aðalástæðuna telur hann að rekja megi til þess að heima- ^ Hver sigrar? Nú ætla þeir að reyna með sér, kapparnir, til þess að fá úr því skorið hver lengst komist á fimm lítrum af benzíni. Fæst þá loksins skorið úr því í eitt skipti fyrir öll hvað eru bílar og hvað ekki bílar. Nú á dög- um, þegar enginn sparar neitt til neins, er ekki ástæða til að spara benzín fremur en annað — og það er a.m.k. ekkert „fínt“ að spara. Þeir, sem eru að hugsa um að kaupa bíl, bíða nú í of- væni eftir því að fá úr því skor- ið hvaða tegund eyði mestu benzíni. Sá bíllinn, sem ekki kemst upp Hverfisgötu á fimm lítrum, verður óhjákvæmilega sigurvegarinn. Þetta minnir mig annars á litla benzínsögu: Einn ágætur maður vestan af landi ók jeppa sínum úti í sveit og þar kom, að bíllinn varð benzínlaus. Komst hann þó klakklaust að benzínstöð við þjóðveginn — en sat þar kyrr. Afgreiðslumaðurinn, sonur bóndans á bænum, kom til þess að brynna hinum þyrsta reið- skjóta — og sagði ökumaður þá: „Fylla hann, fylla hann“, um leið og hann þurrkaði af sér svitann. En skyndilega veitti ökumað- ur því athygli, að þetta var Shell-benzín. Sem betur fer hafði afgreiðslumaðurinn ekki látið dropa á bílinn — og öku- maður sagði því: „Nei, takk —■ nei, takk — ekki Shell-benzín“. Svo spurði hann hve langt væri til næstu ESSO-stöðvar. Þrettán kílómetrar var svarið. Þá settist ökumaðurinn upp í bíl sinn og sagði: „Þangað ek ég benzínlaus frekar en að taka Shell-benzin“. Þá vandast málið Hingað kom kona ein, sem kvartaði yfir afgreiðslu í brauð búðum. Sagðist hún hafa hætt viðskiptum við fjórar brauð- búðir á skömmum tíma vegna ónógs hreinlætis. Hefði hún orð ið vitni að því, að afgreiðslu- stúlkur hefðu hnerrað og hóst- að í lófann og haldið áfram að afgreiða brauð án þess að þvo sér. Þetta fannst henni ekki nógu gott — og ég er á sama máli. Þess vegna er rétt að vekja athygli allra á vatninu í krön- unum og hve mikil þægindi það annars pr að eeta bvGfíÍð sér markaðsiðnaðurinn hafi starfað við mörg erfið skilyrði flest árin eftir síðari heimsstyrjöldina. Það sem einkum hefur staðið honum fyrir þrifum álítur hann vera, að stefnan í efnahagsmái- unum hafi ekki miðazt við að efla þennan iðnað. Helztu þætt- ina, telur hann vera skort á hráefnum, vélum og tækjum vegna innflutningshafta, enn- fremur lánsfjárskort, verðlags- höft og stefnuna í skattamálurru Fyrir okkur sem stundum iðn- rekstur á þessum árum eru þetta engin ný sannindi en hins vegar er mikilvægt að hafa þetta staðfest af óvilhollum sérfræð- ingi. Mér þótti rétt að fara nokkr- um orðum um áhrif uppbóta- kerfisins á þróun iðnaðarins. vegna þess að nú hefur að nokk- ru leyti enn verið farið inn á þá braut í lausn efna'hagsvanda- málanna. Þorri þeirra, sem við iðnað fást, er þeirrar skoðunar, að sú leið sé þróun iðnaðarin3 skaðleg og að eina raunhæfa lausnin sé, að aðeins sé eitt gengi á krónunni og það sé rétt skráð. Þá aðeins skapast skilyrði fyrir fjölbreyttari útflutningi og réttur mælikvarði á það, hvers iðnaðurinn er megnugur. Þótt mikið hafi áunnizt I lánsfjármálum iðnaðarins með setningu nýrra laga Um Iðnlána- sjóð á síðasta ári, og áframhald- andi lántökum hans af P. L.-480 fé, þarf enn að gera stórt átak á sviði lánsfjármála. Geta Inð- lánasjóðsins til að sinna þörf- um iðnaðarins fyrir fjárfestingar lán er enn svo takmörkuð að fyrirsjáanlegt er, að með nú- verandi vexti hans og þrátt fyrir gjald það, sem innheimt er til hans af iðnaðinum, munu líða mörg ár, þar til hann getur gegnt því hlutverki að sinna brýnustu lánaþörfinni svo að nokkru nemi, að ekki sé talað um að lána 60% af andvirði byggingakostnaðar eins og lög hans heimila. Iðnlánasjóður þarf því að stórauka umráðafé sitt með auknum lántökum svo sem lög hans gera ráð fyrir. Það verður ennfremur að teljast eðlilegt, að sjóðurinn njóti jafnréttis á við Framh. á bls. 14. um hendurnar þegar manni dettur í hug. En svo eru það þeir, sem aldrei dettur neitt í hug. Þá vandast nú málið maður minn. Soraya — „íslands- vinur“? Jæja, nú er í ljós komið, að Soraya, fyrrum keisaradrottn- ing, er með víkingablóð í æð- um. Er nú skammt stórra högga í milli, því það upplýstist í blaðaviðtali á dögunum, að mexíkanski sendiherrann i • Ósló hefði eitthvað af íslenzku blóði í sínum æðum — og því til sönnunar sagði hann í blaða- viðtalinu, að einn af forfeðrum hans hefði endur fyrir löngu étið íslending. Tengsl Sorayu við íslendinga munu hins vegar vera með öðr- um hætti, en fagna ber hvoru tveggja. En það ber aftur á móti að harma, að enn hefur ekki borizt frá Sorayu nein yfir lýsing, sem gefið gæti til kynna, að hún væri „sannur íslands- vinur“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.