Morgunblaðið - 21.03.1964, Side 8

Morgunblaðið - 21.03.1964, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ r Laugardagur 21. marz 1964 8 ☆i VORSÝNING Þjóðdansafélags Reykjavíkur verður í Háskóla- '' bió kl. 2 á sunnudaginn. Þetta er orðinn fastur liður í Skemmtanalífi bæjarins, enda er þetta 13. Vorsýning fé- lagsins. Það hefur starfað af miklu kappi í vetur og kennt hefur verið í mörgum flokkum. Félagið gengst fyrst og fremst fyrir kennslu í þjóðdönsum, eins og nafnið bendir til, bæði innlendum og erlendum, en auk þess heldur það uppi kennslu í gömlu dönsunum. Félagið hefur það og á stefnu- skrá sinni að endurvekja gömlu íslenzku þjóðbúningana og á Vor 100 börn dansa í Háskólabíói sýningunni gefst kostur á að sjá sitt hvað á því sviði. Þar verða dansar frá 12 löndum, islenzku dansarnir meðtaldir. En .af er- lendum dönsum verður sýnt margt nýstárlegt, allt frá Brasi- líu til Danmerkur, og klæðist dansfólkið þjóðbúningum við- kbmandi landa. Þarna sýna margir flokkar, börn, unglingar og fullorðnir, en þátttakendur í sýningunni verða 160, þar af 100 börn. Kennarar hjá Þjóðdansafélagi fteykjavíkur hafa verið í vetur þau Mínvera Jónsdóttir, Helga Þórarinsdóttir og Svavar Guð- mundsson. Formaður félagsins er Dóra Jónsdóttir. Ástæða er til að minna á í þessu sambandi, að það var flokkur frá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur, sem fór í sýning- arferð til Noregs í fyrra, tók þátt í 20. norræna þjóðdansamótinu, og hlaut mikið lof. OLIVANT, tímarit Leikarringen í Bonde- ungdomslaget í Osló, sagði m. a. um þá heimsókn, að ekki væri of sterkt tekið til orða, þótt sagt væri, að þáttur íslendinga í efn- isskrá mótsins hefði verið með því bezta, sem þar kom fram. í þágu atvinnuveganna FUNDIJR var haldinn í neðri deild og sameinuðu þingi í gær. í neðri deild urðu nokkr- ar umræður um rannsóknir í þágu atvinnuveganna. í sam- einuðu þingi var kosið í út- hlutunarnefnd listamanna- launa og nokkrar umræður urðu um stóriðju. Þetta var síðasti fundur neðri deildar og sameinaðs þings fyrir páskahlé, sem gert er ráð fyr- ir að standi til 1. apríl. \A ÍÆ SÆ217R Gylfi Þ. Gíslason menntamála- rnáðherra fylgdi úr hlaði frum- varpi um rannsóknir í þágu at- vinnuveganna. Kvað hann frum- varp um þetta efni hafa verið flutt á þinginu 1962 og væri nú flutt á ný með litlum þreyting- um. Rakti hann að nokkru efni frumvarpsins og vitnaði til fyrri greinargerðar. Kvað ráðherrann megingallann á núgildandi lögum hve kröftum væri dreift og nefndi sem dærni að 3 aðilar fjölluðu uan þessi mál innan landbúnaðarins eins. Með þessum lögum væri ætlað að sameina kraftana og finna nýja tekjustofna til iðnaðar og húsbyggingariðnaðar, er'' næmu á 3. millj. króna. Skipulagið yrði nú það að starfandi yrðu 5 sjálf stæðar stofnanir, hafrannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins, rannsókn arstofnun landbúnaðarins, rann- sóknarstofnun iðnaðarins og rannsóknarstofnun húsibygging- ariðnaðarins. Eysteinn Jónsson (F) kvað fulla þörf hafa verið á lögum þessum en aukið fé vantaði til starfsins. Þá lýsti hann undrun sinni að á skyldi komið nýju inn heimtukerfi fyrir ekki meiri fjár öflun en fælist í lögunum. Einar Olgeirsson (K) gerði nokkrar athugasemdir við skip- an stjórna rannsóknarstofnan- anna. SALA JARÐAR Matthías Mathiesen (S) mælti fyrir frumvarpi um sölu jarðar- innar Áss í Hafnarfirði, en þeg- ar er Hafnarfjörður eigandi ó- ræktaðs lands jarðarinnar. Einar Olgeirsson (K) kvaðst vilja benda nefnd þeirri, er fengi málið til meðferðar á, að setja inn í lögin að Hafnarfjarðarbær skyldi óheimilt að selja land þetta öðrum. DIPLOMATISK SAMSKIPTI VIÐ KÍNA Einar Olgeirsson (K) mælti fyrir þáltill. í Sþ. um skipti á diplómatiskum fulltrúum við kínverska alþýðulýðveldið. Benti lýðveldið. hann á, að þar byggi nú um lk mannkyns og tekið hefði ver- ið upp diplómat iskt samband við Japan. Þá hefðu öll Norður löndin að und- anskyldu íslandi samband við UMRÆÐUR UM STÓRIÐJU Eysteinn Jónsson (F) mælti fyrir þáltill. um stórvirkjunar og stóriðjumál. — Kvað hann nauð syn að sett yrðu lög um hverja einstaka slíka framkv. og sérsamninga. Þá kvað hann nauðsyn að gæta jafnvægis byggðarinnar í sam- bandi við væntanlegar stóriðju- framkvæmdir. LúSvík Jósefsson (K) tók und ir nauðsyn var- færni í þessum málum. Kvað hann íslenaka at vinnuvegi hafa verið vanmetna í þessu sam- bandi, en flokks menn hans væru ekki á móti stór yðju svo fremi sem fjármagn okkar leyfði og eðlileg þróun krefði. MÁLINU VAR FRESTAÐ ÞINGHLÉ. í lok fundar ávarpaöi forseti Sameinaðs þings, Birgir Finns- son, þingmenn og árnaði þeim góðrar heimferðar og gleðilegra páska, en þetta var síðasti fund ur þingsins fyrir páskahátíð. Eysteinn Jónsson þakkaði fyrir hönd þingmanna og óskaði for- seta gleðilegrar pásikahátíðar. — Þing menn risu úr .sætum og tóku undir árnaðaróskirnar. Vélstjóra og háseta vantar á netabát. — Upplýsingar í Fiski- miðstöðinni h.f. — Sími 13560 og 17857. Alfred Brendel feikur mónudag á vegum Tón- listurfélugsins AUSTURRÍSKI píanóleikarinn Alfred Brendel heldur tónleika i Austurbæjarbíói n.k. mánudags- og þriðjudagskvöld fyrir styrkt- arfélaga Tónlistarfélagsins. Á efnisskránni eru þessi verk: Fantasía í c-moll og Duport-tiI» brigðin eftir Mozart, Sónata í c- moll op. 111 eftir Beethoven, Elegie eftir Busoni, Bagatella, Unstern og Csardas Macabre eft- ir Franz Liszt og loks Wander- er-fantasían eftir Schubert. Alfred Brendel er fæddur 1 Wiesenberg í Máhren en er af austurrískum ættum. Hann er aðeins 33 ára gamall, en hefur þegar haldið marga tónleika víða um heim, í flestum Vestur-Ev- rópulöndum, Suður-Afríku, Mið- og Suður-Ameríku og nú kem- ur hann hingað úr annari tón- leikaför sinni um Bandaríkin, en þar hefur hann verið síðustu 7 vikurnar og haldið 14 tónleika og hlotið sérstaklega góða dóma gagnrýnenda. Hann er búsettur í Vínarborg. Síðastliðið fimmtudagskvöld lék Brendel með Sinfóníuhljóm- sveit íslands, Píanókonsert nr. 4, eftir Beethoven og var honum framúrskarandi vel fagnað af áheyrendum. Ánægjulegur ufmælisfagnoð- ur Hvutur MÁNUDAGINN 16. marz s.L, hélt Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt 27. afmælisfagnað sinn, er hófst með sameiginlegu borð- haldi kl. 7V& e.h., í Sjálfstæðis- húsinu. Formaður félagsins frk. María Maack setti hófið og stjórnaði því. Meðan setið var undir borð- um voru sungin og spiluð ætt- jarðarljóð og minni flutt. Frú Auður Auðuns alþingis- maður minntist Hvatar og Sjálf- stæðisflokksins, frú Ragnhildur Helgadóttir f.v. alþingismaður minntist ættjarðarinnar og frú Gróa Pétursdóttir borgarfull- trúi minntist Reykjavíkur. Öll voru minni þessi vel og skemmti lega flutt. Þá las Guðrún Aradóttir prófessorsfrú, með miklum ágæt um nokkur ljóð eftir Davíð skáld Stefánsson. Eftir að borð höfðu verið upp tekin var dans stiginn og Ómar Ragnarsson skemmti með gam- anvísnasöng. Hófi þessu lauk kl. 1 e.m., eftir góða og ánægjulega skemmtun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.