Morgunblaðið - 21.03.1964, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.03.1964, Blaðsíða 13
L,augardagur 2f. rnarr 1964 MORCUNBLAÐIÐ 13 Horfur í bandarískum stjórnmálum BANDARÍSK stjórnmál eru mjög á dagskrá um þessar mundir. í haust verður gengið til forseta- og þingkosninga þar í landi og fara þær fram 3. nóvem- ber. Fyrir skemmstu voru fyrstu undankosningar vestra haldnar í New Hampshire. Þótt þar sé ekki um stórt kjördæmi að ræða, beindist athygli mjög að úrslitum þar, m.a. vegna þess, að þar var um fyrstu prófraun þeirra manna að ræða, sem mest hafa haft sig í frammi í stjórnmálabaráttunni und- anfarið. Sérstaklega beindist at- hyglin að repúblikönum, en margir stefna að því að komast í forsetaframboð fyrir flokkinn. Úrslit í fyrstu aukakosningunum benda til þess, að tíðinda sé að vænta næstu mánuði úr þeirri átt. Nokkur .átök eiga sér einnig stað í röðum demó- krata, þótt fullvíst sé talið, að Johnson, forseti, verði í framboði. Hitt ríkir óvissa um, hver verði í framboði til varaforseta. Hér fer á eftir grein, þýdd og endur- sögð, um stjórnmálaástand og horfur vestra nú. Bandaríska stórblaðið „The New York Times“ telur að- stöðu helztu leiðtoga répúblik- ana þessa, eftir úrslitin í kosn- ingunum í New Hampshire: Goldwater — Virtist uppr haflega eiga sterka aðstöðu, en hefur tapað. Lodge — Hefur aukizt fylgi, en það kann að vera meira nú en síðar. Nixon — Harður keppi- nautur; kann. að fá tækifæri síðar. Rockefeller — Hefur lagt sig mikið fram, en er ekki talinn mjög sigurstranglegur. Scranton — Hefur farið sér hægt, en rétt er þó að gefa honum nánari gætur. Flestir stjórnmálafréttarit- arar eru á einu máli um, að útlitið sé í höfuðdráttum, eins og að ofan greinir. Kosning- arnar í New Hampshire leiddu í ljós, að Goldwater, öldunga- deildarþingmaður, og Rocke- feller, ríkisstjóri, áttu ekki því fylgi að fagna, sem talið var. Hins vegar vegnaði Lodge, sendiherra, þar vel, og sömuleiðis Nixon, þótt hvor- ugur þeirra væri í kjöri. Er úrslitin voru kunngerð, voru flestir- stjórnmálafréttaritarar á þeirri skoðun, að aðstaða þeirra þriggja, sem við sögu komu, og ekki voru í kjöri, þ.e. Lodge, Nixon og Scranton, væri sterkust. í hópi demókrata ríkti meiri ró óg festa. Helzta spurningin er, hvort Robert Kennedy, dómsmálaráðherra, verður í framboði til varaforseta. — Kennedy hafði beiðzt þess af stuðningsmönnum sínum, að þeir beittu sér ekki um of, a.m.k., fyrir New Hampshire- kosningarnar. Venjan er, að forsetaefni hvors flokks róði mestu um, hvern hann vill fá tilnefndan í framboð til vara- forseta. Sú barátta, sem stuðningsmenn dómsmálaráð- herrans héldu uppi, olli nokkr um óróa í Hvíta húsinu. Lítill vafi, ef nokkur, leiþur hins vegar á því, að Johnson, for- seti verður í framboði til for- seta, við kosningarnar í nóv- ember. Fyrsta prófraunin íbúar New Hampshire eru um 600.000, eða álíka margir og íbúar Boston. Ríkið á 14 fulltrúa á landsþingi repú- blikana, og 20 á demókrata- þinginu. Heildartala fulltrúa, á hvoru þingi fyrir sig, er rúm lega 1000. Þrátt fyrir það, hve hlutdeild ríkisins er lítil, vöktu undankosningarnar ný- verið þjóðarathygli. Þrjú stærstu sjónvarpsfyrirtæki Bandaríkjanna, auk hóps er- lendra og innlendra fréttarit- ljós, að stuðningsmenn Henry Cabot Lodge héldu uppi mikl- um áróðri. Sama gerðu stuðn- ingsmenn Nixons. Hvorugur þeirra var þó á skrá. Langan tíma tók að ná sam- an öllum atkvæðunum, er kos- ið hafði verið, enda víða þung- fært í ríkinu. Úrslitin urðu þessi: Lodge 33.007 35.7% Goldwater 20.692 22.4% Rockefeller 19.504 21.1% Nixon 15.587 16.9% Samkeppnin var engin meðal demókrata, þótt stuðn- ingsmenn Kennedys héldu uppi baráttu fyrir hann, utan skrár. Sú barátta þótti sumum demókrötum óviðeigandi, og töldu hana geta verið óheppi- lega fyrir Johnson, forseta, sérstaklega, ef Kennedy fengi fleiri atkvæði en forsetinn. Úr Framboðsefni repúblikana , Úrslitin í New Hampshire hafa valdið miklum heilabrot- um um það, hver muni verða í framboði fyrir repúblikana. Ýmsir sérfræðingar hafa talið aðstöðu Goldwaters og Rocke- fellers. gjörbreytta. Þó sé a.m.k. ekki á þessu stigi máls- ins, hægt að segja, að Lodge hafi borið þá slíku ofurliði, að þeir eigi sér ekki viðreisnar von. Lítill vafi er þó talinn á því, að báðir eigi þeir á bratt- ann að sækja, meir en áður. Ummæli Goldwaters um úr- slitin voru þau, að honum hlyti að „hafa mistekizt einhvers staðar“. Almennt álit þeirra, sem um þetta mál hafa fjall- að í ræðu og riti, er þó, að ó- sigur hans eigi ekki rætur sín- ar að rekja til „mistaka". Astæðan sé sú, að kjósendur Goldwater — Rockefeller (voru á skrá) ■* Scranton — Nixon — Lodge — (ekki á skrá) ara þyrptust til, og var engu líkara, en örlög alþjóðar væru undir úrslitunum komin. Stað- reyndin er hins vegar sú, að hér var um fyrstu raunveru- legu prófraunina að ræða; verið var að leggja spurningar fyrir kjósendur, í fyrsta skipti á kosningaárinu. Goldwater og Rockefeller höfðu báðir háð harða baráttu í New Hampshire, og varið þar miklu fé. Sumir segja um 200 þús. dölum hvor, þ.e. hálfri níundu millj. ísl. króna. Báðir vildu sýna leiðtogum og áhrifa mönnum repúblikana fram á, svo að ekki yrði um villzt, að einn maður — og einn aðeins — kæmi til greina: Goldwater hugðist sanna, að þjóðin ósk- aði eftir því afbrigði íhalds- stefnu, sem hann hefur barizt fyrir; Rockefeller, að hans stefna, þ.e. hægfara, íhalds- söm stefna njóti fylgis — og e.t.v. umfram allt, að skilnað- ur hans og gifting hefðu ekki svipt hann fyrra fylgi. Allt fram til þess, að kjós- endur gengu að kjörborðinu, leit út fyrir, að þeir hefðu að- eins milli þeirra tveggja að velja. Aðrir, sem á skrá voru, Margaret Chase Smith, öld- ungadeildarþingmaður, Har- old E. Stassen og Norman Le- Page voru ekki taldir skæðir keppinautar. Undir lok bar- áttunnar kom hins vegar í slitin voru þau, að Johnson fékk 29.317 atkv., en Kennedy 25,094. Skömmu eftir að úrslitin í New Hampshire voru kunn, hélt Rockefeller til Kaliforníu, en þar hefur hann hafið bar- áttuna, fyrir aukakosningarn- ar, sem fram fara 2. júní. Goldwater hélt til Arizona, heimaríkis síns. Þar dvaldist hann í 2 daga, en nú er hann einnig í Kaliforníu. Viðbrögð Nixons urðu þau, að hann ákvað að bæta við þann þrönga hóp stjórnmála- ráðgjafa, sem hann hefur í þjónustu sinni. Þá hefur hann nýlega haldið ræðu í New York, þar sem hann gagnrýndi harðlega stefnu Johnsons í ut- anríkismálum. Þau telur Nix- on munu verða aðalkosninga- málið vestra, á hausti kom- anda. Scranton, sem kaus að koma hvergi nærri í New Hamp- shire, hefur ekki tekið neina nýja afstöðu, í ljósi úrslitanna. Hins vegar er ljóst, að hann mun gefa kost á sér, fari á- hrifamenn flokksins þess á leit við hann. Fátt eit.t hefur heyrzt frá Lodge, sendiherra í S-Viet- nam. Hann á erfitt með að taka beinan þátt í stjórn- málabaráttunni heima fyrir. Þar verða aðrir að berjast fyr- ir hann, a.m.k. enn þá. telji stefnu hans sundurlausa, jafnvel óskiljanlega á köflum. Goldwater hefur aftur á móti lýst því yfir, að hann muni ekki „endurskoða afstöðu sína“. Því kann hann að eiga erfitt með að afla sér aukins fylgis, ef sú skoðun er á rök- um reist, að stéfnu hans sé um fylgisleysi að kenna. Rockefeller hefur sagt, að úrslitin séu þess greinilegt merki, að hann sé sífellt að auka við fylgi sitt. Hann hafi lagt út í fylgisbaráttuna nær fylgislaus, og því hafi hann raunverulega staðið sig mjög vel í New Hampshire. Stjórn- málasérfræðingar munu þó al- mennt telja, að Rockefeller hafi ekki tekizt að sanna það, sem hann fyrst og fremst þurfti með, að einkamál hans hafi ekki gert hann óhlutgeng-- an. Niðurstaða stjórnmálasér- fræðinganna er á þann veg, að úrslitin í New Hampshire tákni sigur „skynsamlegrar framfarastefnu" yfir „öfga- stefnum". Þessi túlkun getur á engan hátt talizt sigur fyrir Rockefeller, því að fjöldi þeirra atkvæðamanna, sem fylgja „skynsamlegri fram- farastefnu“, er mikill. Sigur Goldwaters eða Rocke fellers í undankosningunum í Oregon-ríki, 15. maí, gæti gef- ið byr undir báða vængi. Ekk- ert hefur enn komið fram, sem bendir til þess, að þeim hafi vaxið fylgi. Fylgi Lodge hefur verið nokkur ráðgáta. Hlaut hann svo mörg atkvæði, vegna þess, að hann er ættaður frá grann-" ríkinu Nýja-Englandi? Menn eru yfirleitt á þeirri skoðun, að ekki sé mark takandi á Lodge, fyrr en hann hafi eýnt og sannað í undankosn- ingum annars staðar, að hann njóti almenns fylgis repúblik- ana um land allt. Ætli Lodge sér að taka þátt í kosningabaráttunni af al- vöru, þarf hann að hrista af sér það orð, sem hann fékk á sig í kosningunum 1960, er hann var varaforsetaefni flokksins. Margir áhrifamenn í hópi repúblikana telja, að Lodge hafi þá staðið sig illa, og því sé ekki rétt að veita honum stuðning nú. Mesta vandamál Lodge nú er, hvort hann eigi að segja af sér embætti sendiherra Banda ríkjanna í S-Vietnam. Margt kemur þar til, og ekki sízt, að S-Vietnam á nú í erfiðri bar- áttu við kommúnista. Sumir telja jafnvel, að hlutverk Lodge í þeirri baráttu eigi eft- ir að segja til sín í kosninga- baráttunni heima fyrir. Marg- ir stuðnmgsmenn hans eru sagðir á þeirri skoðun, og því hljóti að koma að því, að hann verði að segja af sér. Sjálfur sagði Lodge fyrir skemmstu, að hann hefði ekkert slíkt í hyggju, en svo kann þó að fara, að hánn verði að gera það. Nixon er talinn hafa ástæðu til að vera ánægður með úr- slitin í New Hampshire. Að- staða hans er talin hafa batn- að álíka mikið og aðstaða Gold waters og Rockefellers versn- aði. Bent hefur verið á, að fylgi hans verði að teljast at- hyglisvert, því að stuðnings- menn hans hafi ekki lagt sig mjög fram. Er það í fullu sam- ræmi við afstöðu Nixons sjálfs, en hann hefur ekki vilj að, enn a.m.k., taka fullan þátt í kosningabaráttunni, þótt hann hafi atls ekki dregið sig alveg í hlé, eða lýst því yfir, að hann muni ekki gefa kost á sér. Óhætt virðist þó að full- yrða, að Nixon telji sig enn góðan baráttumann, þrátt fyr- ir ósigurinn gegn Kennedy 1960, og ósigurinn í ríkisstjóra kosningunum í Kaliforníu. í síðustu viku sagði Nixon: „Það er enginn maður í þessu landi, sem getur haldið uppi áhrifa- meiri baráttu gegn Johnson, en ég“. Scranton, ríkisstjóri í Pen- sylvania, hafði bannað stuðn- ingsmönnum sínum í New Hampshire að reka áróður. Samt lýsti einn þeirra því yf- ir, er úrslitin urðu kunn, að Scranton hefði unnið. Afstað- an virðist sú, í hópi þeirra, er hann styðja, að úrslitin sýni, að repúblikanar séu að leita að öðrum en Goldwater og Rockefeller, og sá maður verði að lokum Scranton. Þó finnst mörgum erfitt að skilja, hvers vegna Scranton sé lík- legri maður til að leysa Gold- water og Rockefeller af hólmi, en t.d. Lodge eða Nixon. Að vísu hefur Scranton aldrei beð ið ósigur á borð við þá, sem þeir hafa beðið, en hann er heldur ekki eins þjóðkunnur maður. Hafi hann í hyggju að ráða bót á því, hefur hann enn Framh. á bls. 15 (II

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.