Morgunblaðið - 21.03.1964, Síða 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 21. marz 1964
— Verkefni
Framhald af bls. 6
fjárfestingarlánasjóði iandbún-
aðar og sjávarútvegs, með því
að ríkissjóður hækki framiag
sitt úr 2 millj. kr. til jafns við
það framiag, sem innheimt er af
iðhaðinum með iðnlánasjóðs-
gjaidi .
Bkiki verður án aivarlegra af-
leiðiraga dregið skyndilega úr
rekstri iðnaðarfyrirtæikja.
Sá samdráttur, sem átt hefur
sér stað á undanförnum mánuð-
um í útiánastarfsemi bankanna
á sama tíaria og framleiðslu-
kostnaður hefur farið stórhækk-
andi, hefur komið mjög hart
niðux á iðnfyrirtækjum og vald-
t
Móðir okkar
Jóhanna Þorgrímsdóttir
Freyjugötu 34
andaðist föstudaginn 20. þessa mánaðar.
Hólmfríður Pálsdóttir,
Lárus Pálsson.
Móðir okkar og fósturmóðir
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR
Mikiubraut 72
andaðíst á Landakotsspítala 19. þ.m. — Jarðarförin hef-
ur verið ákveðin mánudaginn 23. marz kL 1,30 e.h.
frá Fossvogskirkju.
Sveina Egilsdóttir, Egill Egi'lsson,
Gunnlaugur Egilsson, Aðalheiður Armann.
Útför bróður okkar
STEINARS GUÐMUNDSSONj»r»
frá Stykkishólmi,
fer fram frá Dómkirkjunni, mánudaginn 23. uuuz og
hefst kl. 10,30 f.h. — Kirkjuathöfninni verður útvarpað.
Fyrir hönd systkinanna.
Kristján Guðmundsson.
Sonur minn og bróðir
JÓN SVAN KARLSSON
skipstjóri frá Stokkseyri
verður jarðsunginn 21. marz. — Húskveðja verður frá
heimili hans A-götu 8, Þorlákshöfn, kl. 12 f.h. — Jarð-
sett verður frá Stokkseyrarkirkju kl. 2,30 e.h. —
Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er
bent á Siysavarnafélag íslands.
Sesselja Jónsdóttir og systkini.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför eiginkonu minnar og fósturmóður
HÓLMFRÍÐAR GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR
frá Mávahlíð.
Klemens Jónsson, Steinólfur Jóhannesson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu mér samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför litlu dóttur minnar
ELLÝAR HALLDÓRU ELÍASDÓTTUR
frá Þórshöfn.
Aðalheiður Sigtryggsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okk-
ar og tengdaföður
HALLDÓRS R. GUNNARSSONAR
Steinunn Gunnarsson,
Rútur Halldórsson, Brynjólfur H. Haildórsson,
Guðrún St. H. Dodsworth, John Brian Dodsworth.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við fráfall
BJARGAR BJÖRGÚLFSDÓTTUR
Hafnarfirði.
Hjörleifur Gunnarsson,
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Asgeir Long,
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Magnús Gunnarsson,
Ada Litvak Gunnarsson, Björgúlfur Gunnarsson,
Ásta Lúðvíksdóttir, Geir Gunnarsson,
Nanna Friðgeirsdóttir, Hjörtur Gunnarsson,
bamahörn og systkini.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför föður míns, tengdaföður og afa
ÁRNA TEITSSONAR
Hverfisgötu 40, Hafnarfirði.
Gróa Árnadóttir, Páll Ingimarsson,
Ingibjörg Pálsdóttir, Árni Pálsson.
ið alvarlegum erfiðleíkum í
rekstri þeirra. Hefur hann einn-
ig stuðlað að því að veikja sam-
keppnisaðstöðuna gagnvart er-
lendum keppinautum. Þó heim-
ilt sé fyrir iðnfyrirtæki að
taka allt að 90 daga vörukaupa-
lán við kaup á 'hráefnum er-
lendis, þó er það jafnan fallið
í gjalddaga áður en úr hráefninu
hefur verið unnin markaðsvara.
Sé fullunnin iðnaðarvara flutt
inn með sama gjaldfresti þá
hefur andvirði hennar hins veg-
ar í flestum tilfellum skilað
sér áður en lánsfresturinn renn-
ur út. Alvarlegast er þó ástandið
fyrir fjárvana iðnað, sem keppa
þarf við erlenda framleiðslu,
er fæst með allt að 7 ára lánum.
Þegar þetta er haft í huga,
verður að telja fulla þörf á að
Seðlabankinn beiti sér fyrir
aukinni fyrirgreiðslu við iðn-
aðinn hvag lánsfé snertir, bæði
innlent og erlent m. a. með rýmk
un heimilda til töku vörukaupa-
lána, og að gerðar verði ráð-
stafanir til þess að framkvæmd
verði viljayfirlýsing Aiþingis um
endurkaup 'hráefna- og afurða-
víx'la iðnaðarins í fullu jafn-
rétti við sjávarútveg og land-
búnað.
Af opinberri hálfu hefur verið
gefið í skyn, að fjárfestirag iðn-
aðar og verzlunar eigi drjúgan
'þátt í þeirri þennslu, er ríkt
hefur í byggingariðnaði. Það
þarf engan að undra, þótt veru-
leg aukning ætti sér stað á
byggiragu iðnaðarhúsnæðis, eftir
að næstum algjört bann á bygg-
ingu slíks húsnæðis hafði rikt á
annan áratug. Með tilliti til þess
og hinnar miklu þarfar fyrir
aukið iðnaðarhúsnæði, mætti
þó frekar segja, að því miður
hefði geta iðnaðarins til þess að
ráðast í nauðsynlegar bygiging-
ar verið of takmörkuð í saman-
burði við fjárfestingar opin-
berra aðila og annarra atvinnu-
vega.
Frumskilyrði þess, að 'hægt sé
að beita fyllstu hagkvæmni og
hagræðingu í rekstri iðnfyrir-
tækja er, að hentugt og nægilegt
húsnæði sé fyrir hendi. Hömlur
á iðnaðarbyggingum um árafoil
og ógreiður aðgangur að láns-
fé, foafa orðið þess valdandi að
þorri iðnfyrirtækja býr við alls-
endis ófullnægjandi foúsakost.
Þá fyrst er mótazt hefur nægi-
Jegur ökilningur á þörf iðnaðar-
ins fyrir stóraukið lánsfé kemur
að því, að skilyrði skapazt fyrir
'því að iðnaðurinn geti farið að
hagnýta sér í auknum mæli þá
reynslu og þekkingu sem fengizt
hefur hér heima og eriendis í
hagræðingu í rekstri fyrirtækja.
Betri og aukin nýting tækja,
skipulag húsnæðis og vinnu-
svæðis, bætt vinnuibrögð og
vinnuskilyrði stuðla að aukinni
og ódýrari framleiðslu. Það ber
iþví að fagna þvi að gerð hefur
verið áætlun um opinberan
stuðning við atvinnusamtök
vegna hagræðingarstarfsemi og
hefur fé verið veitt til þess i
fjárlögum.
Nauðsyn á vel þjálfuðu iðn-
verkafólki og verkstjórum fer
einnig ört vaxandi eftir því sem
meiri kröfur erú gerðar til
iðnaðarframleiðslunnar og ber
því brýna nauðsyn til að skipu-
lagi verði komið á þjálfun þess.
í því sambandi væri mjög at-
'hugandi hvort I. M. S. í. gæti
tekið að sér skipulag slikrar
þjálfunar og væri þá eðlilegt
að fjárveiting til þeirrar stofn-
unar verði verulega aukin. Ann-
ar miklvægur þáttur í þjálfun
iðnverkafólks gæti verið í því
fólgin að koma efnilegum starfs-
mönnum til þjálfunar um tak-
markaðan tíma hjá hliðstæðum
erlendum fyrirtækjum. Meðan
Framleiðnistofnun starfaði hafði
I. M. S. í. fyrirgreiðslu á þessu
sviði en síðan hún hætti störf-
um, hefur þessi háttur í starf-
sesmi I. M. S. í. lagzt niður. Ekki
mun vera auðvelt að koma slíku
á, en gegnum þau tengsl sem
ihaía skapazt milli iðnrekenda-
félaga Norðurlanda og tengsla
I. M. S. í. við hliðstæðar erlendar
stofnanir ætti að vera hægt að
koma þessu í krirag.
Hin hraða tækniþróun gerir
kröfur til þess að iðnaðurinn
fylgist vel með öiium nýjungum
í vísindum og tækni, er snerta
þann iðnað sem hér er rekin eða
ætla mætti að möguiegt væri að
reka hér.
TD þess þarf víðtækar rann-
sóknir og leiðbeiningar. Að þessu
leyti hefur aðstaða iðnaðarins
verið mun lakari en bæði
sjávarútvegs og landbúnaðar.
í þágu þessara atvinnuvega er
rekin víðtæk rannsóknar og
fræðslustarfsemi en um þá rann-
sóknarstofnun, sem kennd er við
iðnað er varla hægt að segja að
hún sé í nokikrum raunhæfum
tengslum við iðnaðinn enda
árangurinn eftir því. Á þessu
verður hið bráðasta að ráða bót.
Það blýtur að vera okkur
fagnaðarefni ef veruiegur skrið-
ur kemst á iðnvæðingu íslands
við það að ráðizt verði í að reisa
hér nokkur stóriðnaðarfyrir-
tæki og þá ekki sízt það ag það
gerir okkur mögulegt að ráðast
í stórvirkjanir sem tryggja muni
öllum iðnaði nóg rafmagn á hag-
kvæmu verði. Ef skammsýni
og annarleg pólitisk sjónarmið
verða ekki til þess að hindra eða
tefja framgang þeirra áætlana
sem á döfinni eru um stóriðnað
á íslandi. Hin aukna tækni'kunn-
átta og verkmenning sem flyzt
inn í landið auk áhrifa til jafn-
vægis á efnahagslífið, mun
skapa ákjósaraleg skilyrði til
þróunar fyrir fjölþættan iðnað.
Um fjármögnun þess stóriðn-
aðar, sem rætt hefur verið um
tel ég auðsynlegt eins og málum
er háttað að stuðzt sé við erlent
fjármagn og samvinna sé höfð
við erlend fyrirtæki. Það verður
einnig ag teljast sjálfsagt að al-
menningi hér á landi verði gef-
inn kostur á að kaupa hluti í þess
um fyrirtækjum, en forðast það
að um hrein ríkisfyrirtæki verði
að ræða, þar eð slíkt mnndi ekki
Iryggja nægilega, að fyrirtæki
þessi yrðu látin starfa á eðlileg-
um efnaihagsgrund'velli.
Ég hef hér að framan aðeins
drepið á nokkur verkefni og
vandamál á sviðd iðnaðarins.
Astæða hefði verið til að minn-
ast á fleiri mál, svo sem tolla-
mál og skattamál svo nokkur séu
nefnd, en það verður ekki gert
að þessu sinni. Hins vegar muniu
nefndium þingsins verða falið að
ræða nánar ýmis vandamál iðn-
aðiariras og skila um þau tillög-
um.
Verkefni sem bíða íslenzks iðn
aðar eru óþrjótandi og fjöl-
breytni í fraimleiðslu eykst stöð-
ugt. Eái iðnaðurinn aðstöðu og
tækifæri til þess að glíma við
viðfansefnin mun hann ekki
breðast því foiutverki að auka
fjölbreytni í atvinnulífinu og
stuðla að bættum lífskjörum.
Húsbyggjendur Iðnaðarmenn
Eftirtaldar vörur flytjum við út frá PÓLLANDI:
Söguð FURA og GRENI
Söguð EIK
„ALPEX“ spónapötur
„ALPEX“ harðtex
„ALPEX“ trétex
„ALPEX“ hörplötur
„HIPAN“ spónlagðar
spónaplötur
Gœðavara — Samkeppnisfœrt verð
Allar nánari upplýsingar veitir umboðsmaður vor:
t ^ r ^
Asbjörn Olafsson hf.
Grettisgötu 2. — Reykjavík.
Einkaútflytjendur:
Foreign Trade Enterprice.
Warszawa, Plac 3 Krzyzy 18, P.O. Box 101, Poland.
Telex 81221. — Símnefni: HAZAPAGED, WARSZAWA.
KROSSVIÐUR
GABOON-PLÖTUR
LIGNOFOL-PLÖTUR
EIKAR- og BEYKI PARKET
EIKAR-MOSAIK PARKET
EIKAR- og BEYKI GÓLFBORÐ