Morgunblaðið - 21.03.1964, Side 15

Morgunblaðið - 21.03.1964, Side 15
Laugardagur 21. marz 19C4 MORCUNBLAÐIÐ 15 — Horfur Framh. á bls. 13. ekki gert neinar áþreifanlegar ráðstafanir til þess. Johnson og hver? Flestir eru á einu máli um, að úrslitin í New Hampshire hafi sýnt — ef þau má að nokkru marka — að Robert Kennedy sé sá, sem mestar- líkur hafi til að verða í fram- boði til varaforseta, nú í haust. Johnson, forseti, hefur hins vegar lútið að því liggja, að hann muni neyta þess réttar, eem forsetaefni hefur, til að tilnefna varaforsetaefni. — Greinilegt er, að Johnson er ekki ánægður með neinar ráð- stafanir, sem gera honum erf- itt fyrir, í því sambandi. Komi til ágreinings milli Johnsons og Kennedys um val varaforsetaefnis, kann það að hafa alvarlegar afleiðingar. Fáum áhrifamönnum demó- krata mun dyljast, að Robert hefur tekið til sín mikið af fylgi bróður síns, Kennedys, forseta. Deila við Johnson kann einnig að hafa mjög ó- heppileg áhrif á frekari frama Roberts, því að vel kann svo að fara, að Johnson verði á- hrifamesti maður demókrata- flokksins næstu 8 árin. Oft hefur verið rætt um kuldaleg samskipti Roberts Kennedys og Johnsons, eða allt frá því 1960. Þá gaus upp sá kvittur, sem aldrei hefur verið kveðinn niður, að Rob- ert hafi lagzt gegn þeirri á- kvörðun John F. Kennedys að velja Johnson í embætti vara- forseta. Er Johnson tók við embætti í nóvember hófust enn bollaleggingar um það, hvort þeim myndi lynda, Kennedy og honum. | Sá áróður, sem rekinn var fyrir Robert Kennedy í New Hampshire, varð ekki til að draga úr grunsemdum um erf- iða samvinnu dómsmálaráð- herrans og forsetans. Nú fyrir skemmstu var t.d. stofnað í Wisconsin-ríki félag manna, sem vilja stuðla að því, að Robert Kennedy verði í fram- boði til forseta, nú í haust. j Kennedy reyndi að halda aftur af stuðningsmönnum sín um, um leið og dregið var úr sögusögnum um, að deila standi milli hans og forsetans. Kennedy beiddist þess af stuðningsmönnum sínum í Wisconsin, að þeir færu sér hægt, en því var synjað. Sjálf- ur hafði Kennedy þetta að segja um samband sitt og for- setans: „Ég hef lesið frásagn- ir um deilu. Þær eiga ekki við rök að styðjast. ... Ég ber mestu virðingu fyrir honum (forsetanum).... samband okkar hefur alltaf einkennzt af vináttu“. Almennt eru menn ekki trú- aðir á, að þessi yfirlýsing verði til þess að binda enda á sagnir um ósátt forsetans og dómsmálaráðherrans. Ljóst er, að báðir eiga sína stuðnings- menn, sem draga ekki allir dul á afstöðu sína, og hella þannig olíu á eldinn. í. Johnson, forseti, hefur að vísu í hendi sér að binda enda á frekari umræður um þetta mál, með því að láta að því hggja, að hann ætli sér að út- nefna Kennedy varaforseta- efni. Þá leið vill forsetinn þó ekki fara, að því er haft er eftir áreiðanlegum heimildum. j Hann vill vega og meta hvern þann, sem til greina kemur — m.a. Hubert Humphrey, Shri- ver, Stevenson, og e.t.v. fleiri — og taka endanlega ákvörð- un, er repúblikanar hafa á- kveðið frambjóðendur sína. ! Stefna Johnsons, forseta, virðist vera að forðast hlut- drægni, um leið og hann legg- ur áherzlu á að auka fylgi sitt með aðgerðum heima fyrir. I NÚ er lokið við að rífa gamla húsið að SuSurgötu 5 og stendur tréð eitt og yfirgefið og bíður þess að verða rifið á lóðinni líka. Myndin var tekin af stæðL Sv.Þ. fyrir 4 dögum. Þarna verður gert bíla- Mikill áhugi á að tunnuverksmiðja sé rekin í Höfðakaupstað BRÁÐRAR úrlausnar er nú þörf í atvinnumálum í Höfðatoaupstað. Hafa staðarmenn mikinn áhuga á að þar verði reist og starfrækt tunnuverksmiðja og benda þeir á að fyrir hendi séu byggingar og aðstaða sem nýta megi í þessu skyni um leið og atvinnu ástandið á staðnum sé bætt. 16. jan. var haldinn fundur í Höfðakaupstað um málið. Þor- finnur Bjarnason oddviti stjórn- aði honum en mættir voru full- trúar hreppsnefndarinnar og Björn Fálsson alþm. svo og all- margir iðnaðarmenn á staðnum, sem sérstaklega voru boðaðir á fundinn. Umræðuefnið var: At- vinnumál á Skagastiönd. Oddviti lýsti núverahdi at- vinnumálum almennt, en gaf að þvi búnu Birni Pálssyni orðið. Hann flutti all ýtarlegt yfirlits- erindi um atvinnumál og lýsti þingsályktunartillögu er hann á- samt Gunnari Gíslasyni og Bene- dikt Gröndal flutti á allþingi í desemiber s.l., en vannst ekki tími til að afgreiða fyrir jólafrí, en verður að sjálfsögðu tekin fyrir næstu daga. í nefndri tillögu er gert ráð fyrir að alþingi og ríkis stjórnin kj'ósi 5 manna nefnd' til þess að athuga um nýjan iðn- rekstur í kauptúnum og kaup- stöðum úti á landi, þar sem ónóg er atvinna. — Auk fyrrgreindra manna tóku til máls: Pálmi Sig urðsson, Björgvin Brynjólfsson, Guðmundur Lárusson, Ásmundur Magnússon og Björn Sigurðsson. Fram komu eftirfarandi tillögur: A. „Sameiginlegur fundur hreppsnefndar Höfðahrepps og iðnaðarmanna á Skagaströnd 16. janúar 1964, samþykkir að skora á alla þingmenn Norðurlandskjör dæmis vestra að vinna að því að reist verði tunnuverksmiðja á Skagaströnd." Jafnframt skorar fundurinn á þingmennina að að- stoða rekstur einstaklinga og fé- laga til eflingar iðnaði og at- vinnuaukningar hér á staðnum með lánsfjárútvegunum.“ Samþ. samhljóða. B. „Fundur í hreppsnefnd Höfðahrepps haldinn 16. janúar 1964, samlþykkir að skora á al- þingi að samþykkja framkomna þingsályktunartillögu um athug- un á atvinnuástandi kauptúna og kaupstaða úti á landi, sem flutt er af Birni Pálssyni, Gunnari Gíslasyni og Benedikt Gröndal". Samþykkt samhl. C. „Fundur hreppsnefndar og iðnaðarmanna í Höfðalhreppi skorar á alþingi að samþyk.kija framkomna tillögu Ragnars Arn- alds, um rannsóikn á atvinnuá- standi í Norðurlandskjördæmi vestra, og vinna að því að koma á fót atvinnutækjum á hverjum stað, í samræmi við þá niður- stöðu, sem þá fæst.“ Samþ. sam- hljóða. Greinargerð hreppsnefndar Höfðahrepps og athugun iðnaðar- manna, á rekstri tunnuverk- smiðju yfir vetrarmánuðina á Skagastrnönd, til þess að forða staðbundnu atvinnuleysi staðar- ins er ríkt hefur hér ár eftir ár og mun ríkja fyrirsjáanlega í vetur, vegna aflagrests, þar sem útgerðin verður að flytja til afla sælli verstöðva að vetrinum. Tunnuverksmiðja og rekstur tunnusmiði er aðeins stunduð að vetrinum, einmitt þann tíma sem atvinnunnar er mest þörf, og er því iðnaður sem tekur ekki vinnuaflið, sjómenn og verka- menn, frá útgerðinni og fiskiðn- aðinum sumar- og haustmánuð- ina. Slikur iðnaður fullnægir að mestu atvinnuþörfinni. Það er því álit framanritaðra aðila að hér mundi tunnuverksmiðj a bezt henta atvinnuþörfinni, enda til- tölulega hagstætt að koma þess- ari grein iðnaðar á framkvæmd, án mikils kostnaðar, og skal það mál rakið að nokkru. Hér á Skagaströnd eru stórar geymsluskemmur hjá S.R., sama og ekkert notaðar yfir veturinn. Einnig stór skemma sem ekkert hefur verið notuð þótt smávegis kæmi af síld, plön fengið að geyma þar tómtunnur. Þar mundi hægt með nokkrum endurbótum á því húsi með samlþ. S.R. að stað setja vélar tunnuverksmiðjunnar, og geyma framleiddar tunnur í hinni stóru mjölskemmu S.R. — Stofnkostnaður varðandi rekstur tunnuverksmiðjunnar hér yrði því aðallega eða að mestu leyti kaup vélanna, sem talið er að mundu kosta 2 milljónir. Ekki er víst að síldin verði alltaf fyr ir Austurlandinu, en viðtöl ráða manna um þetta mál, hafa verið þann veg að þar yrði næsta verk smiðja reist. Eins og verið hefur berst mest magn sildar á land á Austurlandi þar er því næg atvinna allt árið í öllurn þorpum og kaupstöðum við vinnslu síldarinnar og bygg ingarframkvæmdir í sambandi við aukna afkastamöguleika. Þar er því engin þörf á tunnuverk- smiðju til atvinnuaukningar, — næg atvinna fyrir og yrði senni- lega að fú aðkomufólk til að vinna í henni. Eina sem mælir með því að staðsetja tunnuverk- smiðju þar er dreifing -á tunn- unum og kostnaðurinn við hana, meðan síldin er fyrir austan, sem getur breytzt, og þá gæti svo farið að verksmiðjan væri eins vel staðsett hér. Sáralftill munur er' á kostnaði við flutning á tunnum frá Skagaströnd eða frá Siglufirði, sem hefur tunnu verksmiðju, og skapar 40 manns atvinnu, og er stór liður til þess að leysa staðbundið atvinnuleysi þar að vetrinum, sem ógerning- ur hefur reynzt að leysa annan veg, alveg eins hér á Skaga- strönd. Vinnuaflið þarf að vera fyrir hendi á báðum stöðum, ef síld og fiskur vill þóknnsamleg- ast heimsæka staðina, en þegar það bregst, þarf iðnað sem rek- inn er að vetrinum á báðum stöðum og er tunnusmíði. þar langheppilegast. Tunnur þarf alltaf að smíða og ekkert þar um að deila annað en dreifingar- kostnaðinn, en hann er aldrei ’hægt að dæma fyrirfram verri héðan, það fer eftir göngum síld arinnar, sem að vísu eins og er, er langárstíðabundin ár eftir ár fyrir Austurlandinu, en var það t.d. ekki um 30 ára skeið og þau ár hefði ekki verið talið skyn- samlegt að hafa tu. nuverksmiðju á Austurlandi. í viðræðum hreppsnefndar og iðnaðarmanna, kom skýrt fram, það álit að rekstur tunnuverk- smiðju væri raunhæf lausn að miklu leyti til frambúðar, en mjög er þýðingarmikið að finna þá lausn, heldur en ef út í var- hugaverða og áhættusamar iðn- greinar sé farið, svo sem niður- lagningu sjávarafurða, sem reynslu vantar í, s/kipasmíði (dráttarbraut) og fleira, sem yrði miklu fjárfrekara í stofn- kostnaði. Skjótlega þarf að gera eitthvað, því sú þróun er að verða mjög hættuleg að fólkið flytur burtu, og húsin standa auð eftir. Skorað er þvi á þing- menn kjördæmisins að beita sé alvarlega fyrir þessu máli sér- staklega og að rannsókn fari nú þegar fram á því og mögulegum framkvæmdum, sem allra fyrst. Ef vélar væru pantaðar fljótlega og leyfi fengizt hjá SR fyrir hús- næði, mætti fara að vinna hér tunnur meðan verið er að byggja upp .tunnuverksmiðjuna á Siglu- firði, að nýju. F.h. hreppsnefndar og iðnaðarmanna Skagastr. Þorfinnur Bjarnason. Hver er réttur neytenda? NÚTÍMA þjóðfélag, sem við telj- um okkur heyra til, leitast við að skapa þegnum sínum betri lífs- kjör og aukna þjónustu. Þessir hagsmunir hafa verið aðalbar- áttumál stjórnmálaflokka í þró- un seinni tíma þjóðfélaga og al- menningur, hvar sem er í heim- inum, gerir sífellt auknar kröfur fyrir bættum lífskjörum, meiri þægindum og betri þjónustu. Hér í okkar litla þjóðfélagi er hinsvegar verið að stíga spor í öfuga átt og lífsþægindin afnum- in með nýútgefinni samþykkt borgarráðs, sem mun taka gildi 1. apríl næstkomandi. Hlutur hins almenna neytanda er bor- inn fyrir borð, og margra ára velmetin þjónusta tekin af neyt- endum með opinberri ráðstöfun, sem komin er til vegna innbyrðis deilu og óánægju innan kaup- mannastéttarinnar. Þann 1. apríl verða kvöldsölu- kaupmenn að leggja niður margra ára þjónustu við almenn- ing og loka verzlunarstöðum sín- um á venjulegum lokunartíma verzlana. Þessi kvöð nær til allra söluturna og flestra veit- ingastaða bæjarins, sem annazt hafa ýmis konar vörusölu til al- mennings. Flestir kvöldsölukaup- menn og veitingamenn hafa lagt í mikinn tilkostnað vegna at- vinnureksturs síns, til þess að veita almenningi viðunandi þjón- ustu að kvöldlagi. Með þessari samþykkt er ekki einungis gengið á rétt neytenda í heild og atvinnufrelsi viðkom- andi aðilja, heldur ráðast borgar- yfirvöld inn á hættulegar braut- ir, þar sem gefið er fordæmi fyr- ir því að hægt sé fyrirvaralaust að skerða atvinnurétt einnar stéttar. Geta þá ekki aðrar at- vinnustéttir átt von á svipaðri atvinnuskerðingu? í 5. og 11. grein samþykktar- innar er tilgreint, að undanþágur megi veita í vissum tilfellum, samkvæmt tillögum lögreglu- stjóra og heilbrigðisnefndar, og má sala þá einungis fara fram um söluop. Vöruvali er einnig þröng- ur stakkur skorinn. Slíkir verzl- unarhættir yrðu stirðir og mjög hvimleiðir í veðurfari eins og okkar og ekki til þess að auka á hreinlæti á götum úti. Fyrir slíkt kvöldleyfi þarf kaupmaður að greiða 10.000 kr. á ári, að auki. Til þess að koma í veg fyrir slíka öfugþróun og til þess að gæta rétíar síns, liggur ekki annað fyr- ir neytendum og kvöldsölukaup- mönnum, en að taka höndum sam an og láta undirskriftalista liggja frammi fyrir almenningi í öllum kvöldsölustöðum, sem áskorun til borgarráðs um að fella sam- þykktina úr gildi, og láta neyt- endur halda áfram að njóta þeirr ar þjónustu, sem kvöldverzlanir hafa hingað til veitt þeim. Sigurjón Ragnarsson. Studdir til Islandsfarar í NORRÆNU menningarmála- nefndinni kom fyrir 2—3 árum fram tillaga um að senda h\>p jarðfræðinga og landfræðinga árlega til íslands, bæði náms- menn og vísindamenn frá Norð urlöndum. Á fjárlögunum dönsku fyrir næsta fjárhagsár er gert ráð fyrir 10.700 kr. fjárveitingu i þessu skyni; 30 þús. sænskum kr. á fjárlögum Svía, en Norð- menn munu einnig ætla að leggja til fé til þessa af heildar- fjárveitingu norska ríkisins til norrænnar samvinnu. Ekki er víst að af leiðangri verði á þessu ári. Aðstæður þykja hvergi betri en á íslandi til rannsókna fyrir jarð fræðinga og landfræðinga og var lagt til í tillögunni að ísl. jarðfræðingur yrði fenginn til að veita leiðangrinum forstöðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.