Morgunblaðið - 11.04.1964, Page 26
20
MORCUNBLAÐIÐ
l.augardagur 11. apríl 1964’
Fer leikur Noröurlanda og
Evrópuúrvals út um þúfur?
Svíar vilja ekki lána sína bezfu
menn af„ ótta við ofþreytu
KOMIÐ ER upp mikið og heitt
stríð milli I>ana og Svía út af
væntanlegum leik í knattspyrnu
milli liðs Norðurlanda móti úr-
valsliði Evrópu, en sá leikur er
ráðgerður 20. maí í tilefni af 75
ára afmæli danska knattspyrnu-
sambandsins. Ris málið út af því
að Svíar tala um að 2 af þeim 6
sænsku leikmönnum, sem valdir
höfðu verið í liðið geti ekki
mætt og vilja senda sína „næst
beztu“ í staðinn. Danir segja að
ef Svíar beygi sig ekki og sendi
sína beztu menn verði ekkert úr
leiknum — og eigi Svíar sök á
því. Politiken bætir við að þá
sé ekkert annað fyrir danska
knattspyrnusambandið að gera en
endurgreiða þeim sem vilja að-
göngumiða er þeir hafi þegar
keypt. Slikt geti kostað danska
sambandið 400 þús. d. kr. eða
2,5 millj. ísl. kr.
Svíar hafa ákveðið landsleiki
við Rússa 13. og 27. maí. Telja
þeir að það sé ofviða Agne Sim-
onsen og Öyan Person að leika
þriðja stórleikinn 20. mai auk
sinna leikja í 1. deildinni
sænsku. Áður en þeir ákváðu
leikina við Rússa höfðu þeir lof
að Dönum að aliir sænskir leik-
menn yrðu til ráðstöfunar í
Norðurlandaliðinu.
Til að leysa vandann þarf að
flytja til leik í 1. deildinni
sænsku milli Örgryte og Kamme
raterne. Telja forráðamenn fé-
laganna að það kosti félögin 60
þús. s. kr. að fiytja leikinn til
vegna minnkandi aðsóknar og þá
orsök telja þeir næga til að
stofna sambandi við Dani á knatt
spyrnusviðinu í voða.
Úrslitakostir.
Danir hafa sent Svíum úrslita
kosti í málinu og krafizt svars
fyrir 16. apríl og stjórnarfundur
í danska sambandinu er ákveð-
inn 8. apríl. Þar verður látið til
skarar skríða — annað hvort
beygja Svíar sig, eða knatt-
Enska knattspyrnan
KEPPNIN í I. deild er mjög
spennandi bæði um meistaratit-
ilinn og um hvaða lið falli nið-
ur í II. deild.
Efstu liðin eru þessi:
1. Liverpool 52 stig í 37 leikjum.
2. Everton 49 stig í 39 leikjum.
3. Manchester U 47 st. í 38 leikj.
4. Tottenham 47 st. í 38 leikjum.
Alls eru leikirnir í I. deild 42
og fara síðustu leikirnir fram á
næstu 3 vikum.
Efstu liðin eiga eftir að leika
við eftirtalin lið.
Liverpool: Arsenal (heima),
Burnley, W'.B.A. Birmingham og
Stoke.
Everton: Wolverhampton
(heima), West Ham -heima), og
Chelsea.
Manchester U.: Aston Villa
(heima), Sheffield U. (heima),
N. Forest -heima) og Stoke.
Tottenham: Bolton (heima),
Sheffield W., Leicester og Burn-
ley.
Ekki er hægt að neita því að
allar líkur benda til að Liverpool
sigri. að þessu sinni, en rétt er
þó að gæta þess að af 5 leikjum
liðsins eru 4 á útivelli.
í botninum er Ipswich talið
fallið, liðið hefur 19 stig og á eft
ir 4 leiki. Næstu lið, Boiton með
24 stig og Birmingham með 25
stig eiga einnig eftir 4 leiki og er
því mikil barátta milli þeirra
hvort heldur sætinu í I. deild.
Telja má öruggt að Leeds og
Sunderland flytjist í I. deild, en
mikil barátta er í botninum á II.
deild.
Þar er staðan þessi:
Swansea 30 stig í 36 leikjum.
Plymouth 29 stig í 39 leikjum.
Bury 28 stig í 37 leikjum.
Grimsby 27 stig í 38 leikjum.
fNA IS hnúhr I y SVSOhr.útv X Snjótoma • /'/*.• 7 Skúrir Z Þrvmur
UM hádegi í gær var lægð-
armiðja við suðurströnd ís-
lands og stefndi ANA fyrir
land. Jafnframt var önnur
lægð suður af Grænlandi og
stefndi NA eftir. Hér á landi
var vindur tvíátta og veður
breytilegt. Vestan lands var
NV-gola og slydda en austan
lands var SA-kaldi og 6 st.
hiti. Allmikil rigning var suð
austan lands en þurrt á Norð
ur- og NorðausturlandL
spyrnusambandi landanna er
slitið, segir Politíken.
Danska sambandið vonar og
býst við að Svíar láti sig og hef
ur því enn ekki fjallað um hvaða
lið mæti Evrópuúrvalinu 20.
maí ef ekki verður hægt að
koma saman úrvalsiiði Norður-
landa vegna stífni Svía.
En málið getur orðið Dönum
fjárhagslega erfitt. 33 þús. mið-
ar eru þegar seldir og svo getur
farið að fólk heimti endurgreiðslu
Annars hafa Danir gert allt til að
undirbúa þessa hátíð 20. maí
sem bezt.
Þarna eru ýmsir forráðamann a danskra knattspyrnumála að
skipuleggja og æfa hvernig setn ing hátiðahaldanna í tilefni af'
75 ára afmæli danska knattspy rnusambandsins fari fram. Það
verða borin inn spjöld með nöfnum allra þeirra landa er Dan”
ir hafa leikið við, fjölmennar 1 úðrasveitir leika og marsera á
sinn skemmtilega hátt.
HafríTirðingar komu í veg fyrir
að Keflvíkingar ynnu bikarinn
Spennandi í bæjakeppni í sundi
HAFNFIRÐINGAR og Keflvík-
ingar háðu bæjarkeppni í sundi
í fyrrakvöld og var keppnin afar
jöfn og tvísýn til síðasta sunds.
Keflvikingar höfðu fyrr sigrað
3 sinnum í keppninni þar af 2
sinnum í röð siðustu árin og
hefðu því unnið bikarinn sem
um er keppt með sigri nú: En
Hafnfirðingar komu í veg fyrir
það, unnu keppnina nú með 45
stigum gegn 43 og hafa þá þrjá
sigra samtals í þessari skemmti
legu keppni eins og Keflvikingar.
Davíð Valgarðsson Keflavik
bar ægishjálm af öðrum hvað
afrek snerti og setti Keflavík
urmet í 100 m skriðsundi
1.00,5. En stúlkurnar háðu
hörðustu keppnina m.a. í 50 m
baksundi þar sem bæði voru
sett Hafnarfjarðar- og Kefla
10 liðo knott-
spyrnukeppni
í New York
TÍU knattspyrnulið taka í ár þátt
í hinni föstu alþjóðlegu knatt-
spyrnukeppni í New York. Þess-
ari keppni var á sínum tíma
hleypt af stokkunum til að auka
áhuga Bandaríkjamanna á knatt
spyrnu og hefur hann stórum
aukizt.
Liðin 10, sem nú taka þátt í
keppninni eru Bahia (Braisilíu),
Blaokburn (England), Werder
Bremen (V-Þýzkalandi), Hearts
(Skotlandi), Schwechater (Aust
urríki), Red Star (Júgóslavíu),
Gornik Sosnowiec (Póllandi),
AEK (Grikklandi), Guimares
(Portúgal) og Lanerossi (ítal-
íu).
Það lið er sigrar í keppninni í
ár mætir síðar sigurvegara frá
fyrra ári, Dukla, Prag.
M0LAR
Rouen — Frakkiand og
England skildu jöfn í lands-
leik unglinga, skoruðu 2 mörk
gegn 2. í hálfleik var staðan
1—o fyrir Englendinga. i-.eik-
urinn fór fram í Rouen.
víkurmet, og ekki sízt í boð-
sundinu þar sem klukkurnar
mældu ekki mismun en Kefl-
vikingar unnu með sjónar-
mun.
Helztu úrslit keppninnar urðu
þessi:
100 m bringusund kvenna:
1. Auður Guðjónsd., Keflavík,
1.31,0.
2. Gyða Hauksdóttir Hafnarf.
1.38,9.
3. Lovísa Guðjónsdóttir, Kefiav.
1.40,7.
4. Herdís Jónsdóttir Hafnarf.
1.47,5.
Spónn kominn í
undonúrslitin
SPÁNN sigraði íriand í knatt-
spyrnu í keppni landsliða um
Evrópubikarinn. Markatalan í
þessum leik var 2:0 og fór leik-
urinn fram í Dublin. í fyrri leik
liðanna sem fram fór á Spáni
unnu Spánverjar með 5:1. Með
samanlagðri markatölu 7:1 eru
Spánverjar komnir í undanúr-
slit keppninnar, en áður höfðu
Danir tryggt sér rétt til undan-
úrsiita, en óvíst er enn um hvaða
tvö lið fylla undanúrslitariðil-
100 m skriðsund karla:
1. Davíð Valgarðsson, Keflav.
1.00,5 (Keflavíkurmet).
2. Guðm. G. Jónsson, Hafnarf.
1.08,2.
3. Ómar Kjartansson, Hafnarf, '
1.08,9.
4. Jóhannes Jóhannesson Keflav,
1.20,2. f:
100 m bringusund karla:
1. Gestur Jónsson, Hafnarf.
1.21,5.
2. Hafsteinn Jónsson, Hpfnari
1.25,0.
3. Þór Magnússon, Keflavík.
1.26,7. .
4. Sigm. Einarsson, Keflavík,
1.28,9.
50 m skriðsund, konur:
1. Ágústa Ágústsdóttir, Hf. 34,8.
2. Lára Ingvadóttir K, 37,8.
3. Þorbjörg Símonard. Hf., 38,3.
4. Andrea Guðnadóttir K, 38,5,
50 m baksund karla: ;
1. Davíð Vaigarðsson, K, 33,5.
2. Erling Georgsson, Hf, 35,3. v
3. Ómar Kjartansson, Hf, 37,4.
4. Magnús Guðmundsson, K, 41,3.
50 m baksund, konur:
1. Auður Guðjónsdóttir, K, 38,0.
(Keflavíkurmet).
2. Ásta Ágústsdóttir, Hf, 38,6.
(Hafnarfjarðarmet). ,
3. Hulda Róbertsdóttir, Hf, 42,7. 1
4. Kristín Einarsdóttir, K, 46,8, (
4x50 m fjórsund karla:
1. Hafnarfjörður, 2.16,4.
2. Keflavík, 2.24,3.
3x50 m þrísund kvenna:
1. Keflavík, 2.02,0.
2. Hafnarfjörður, 2.02,0.
Þessi ágæt'1 *e>knimynd frá frj álsíþróttamóti þarfnast ekkl
skýringa-