Morgunblaðið - 11.04.1964, Qupperneq 28
!§MH
LC KTROUJX UMBOÐIÐ
IAVOAVE0I U sími 21800
82. tbl. — Laugardagur 11. apríl 1964
Geir Hallgrimsson, borgarstjóri, ræðir skipulagsmálin í hópi blaðamanna og borgartulltrúa í gær.
(Ljósm. Mbl.: Ol. K. M.)
Heildarskipulag Stór-Reykja-
víkur skýrt í frumdráttum
Kflíðað víð 1509ooo ibúa 1983 - Reykjavík taki
37,ooo manns af fólksfjölguninni
GEIR Hallgrímsson, borgar-
stjóri, og forráðamenn skipu-
lagsmála Reykjavíkur boðuðu
blaðamenn á sinn fund í gær
í tilefni ákvarðana, sem tekn-
ar hafa verið um skipulagið.
Á fundum, sem haldnir voru
í Reykjavík 2.—6. apríl sl. um
þesi mál, og þátt tóku í ráðu-
nautar borgarinnar um skipu
lagsmálin, jafnt innlendir sem
erlendir, var samþykkt að
leggja til við borgarráð, að
það féllist á ákveðin frum-
atr’ði skipulagsins. Borgarráð
samþvkkti á fundi sínum á
þriðjudag að falast fyrir sitt
leyti á þessi atriði, og að unn-
ið yrði áfram að skipulagsmál
um Reykjavíkur á grundvelli
þessa. Var þetta samþykkt
samhljóða að öðru leyti en
því, að Guðmundur Vigfús-
son (K) skilaði séráliti um
skipulag Miðbæjarins, og
Björn Guðmundsson (F) tók
ekki afstöðu til E-liðs í bréfi
borgarverkfræðings um mál-
in. —
Hér fer á eftir S heild bréf
borgarverkfræðings, Gústafs E.
Páissoaar, til borgarráðs:
„Á fundum, sem haidnir voru í
Reykjavík dagana 2.—6. þ. m.
um heiidarskipulag Reykjavík-
jur, þar sem voru viðstaddir inn-
lendir og erlendir ráðunautar
borgarstjórnar, varð samkomu-
lag um það að mæla með við borg
arráð, að það féllist á eftirfar-
andi atriði og heimilaði fyrir
sitt leyti að unnið verði áfram
að skipulagsmálum Reykjavíkur
á grundvelli þeirra ákvarðanna.
A. Samþykkt var í höfuðatrið-
um, að þær forsendur um fram-
tíðarstaðsetnir.gu byggðarinnar,
sem er að finna í „Forklarende
noter til de forenede bymodell-
er“ frá marz 1964, séu notaðar
sem grundvöllur að frekari vinnu
við umferðarkönnunina og heild-
arskipulagið. Þær forsendur hafa
verið ræddar ítarlega við Geir
Hallgrímsson borgarstjóra, Gísla
Halldórsson borgarfulltrúa,
skipulagsmenn Reykjavikurborg
ar og skipulagsnefnd ríkisins.
Forsendurnar hafa fyrr verið
kynntar borgarráði, og voru
enn fremur skýrðar með kortum
og myndum af Sven Sommer
arkitekt á fundi borgarráðs þ.
3. apríl.
B. Á fundi þ. 3. apríl gaf And
ers Nyvig verkfræðingur yfirlit
yfir fyrstu niðurstöðurnar af um
ferðarkönnunni. Þar var sýnt
hvernig bifreiðaumferðin mundi
verða árið 1963 á aðalæðunum
í hugsuðu gatnahverfi, sem kall
að hefur verið „sameinaða gatna
kerfið“, ef gengið væri út írá því
að allir reitir borgarinnar þró-
uðust ekki nema að því lág-
marki, sem menn geta hugsað sér
nú. Það þýðir, að umferðin mun
þó í raun og veru verða enn
meiri ai tveim ástæðum:
1. af því að sumum götunum
mun mega sleppa sem aðalæð
um úr þessu kerfi,
2. af því að þróun að hugsuðu
lágmarki mun ekki verða sam
tímis í öllum reitum.
Meðat annars vegna niður-
stöðu umferðarkönnunarinnar
var samþykkt í borgarráði að
hyggja frekari vinnu við heild-
arskipulagið, að því er varðar
Miðbæinn og Austurbæinn, á
safni hinna lægstu þróunartalna
(að meðtöldum „jöfnunartöl-
um“).
Þær tölur lýsa þróun, sem sam
kvæmt raunhæfu mati mun ekki
verða hægt að komast hjá i þess
um borgarhlutum.
Þróun að vissu marki er jafn
framt æskileg til þess að ein-
stakir borgarhlutar fái á sig full-
nægjandi heildarsvip. Að stærð-
argráðu samsvarar þróunin því,
sem gert hefur verið ráð fyrir í
nýrri áætlun um Miðbæinn, sem
unnin hefur verið af sérstökum
samstarfshópi, og í annarri nýrri
áætlun um Austurbæinn, sem
unnið hefur verið að í teikni-
stofu skipulags Reykjavíkur.
Að því er Miðbæinn snertir,
munu þessar ráðagerðir svara
til þess að fram að 1983 geti orð-
ið þar nærri því tvöföldun á gólf
fleti verzlana og skrifstofa. í Aust
urbænum svara þær til þess að
fram til 1983 geti flötur verzl-
ana aukizt um 50%, en flötur
skrifstofa tvöfaldazt.
Framh. á bls. 27
Níu höfðu opið
NOICKRAR vérzlanir auglýstu 1
gær, að opið yrði til kl. 22 um
kvöldið. Munu eigendur þeirra
hafa talið, að skv. hinni nýju
reglugerð væri þeim það heimilt.
Hins vegar taldi stjórn Verzlun-
armannafdlags Reykjavíkur það
óheimilt, þar eð reglugerðin væri
ekki einhlít. Samningar VR við
Kaupmannasamtök fslands kæmu
í veg fyrir, að hægt væri að
lengja afgreiðslutímann frá kl.
19 til 22. Stjórn Kí mun hafa
verið á sama máli.
f gærkvöldi fóru eftirlitsmenn
frá VR á milli verzlana í borg-
inni. Fundu þeir níu verzlanir
opnar. Sagði skrifstofustjóri VR,
Magnús L. Sveinsson, Morgun-
blaðinu í gærkvöldi, að i flestum
tilvikum hefði verið opið af
misskilningi, þar sem kaupmenn
hefðu talið reglugerðina einhlita.
Á öllum níu stöðunum var lokað
samstundis.
Upplýsingar
vantar
MILLI kl. hálfsjö og sjö á
fimmtudagskvöld var ekið á
Landrover-jeppa, sem stóð á bif-
reiðastæði við Hverfisgötu 34,
hjá Vegfóðraranum. Hafði bíl
greinilega verið ekið aftur á bak
frá jeppanum, en krækzt í aftur-
brettið, beyglað það og rifið. —
Þeir, sem einhverjar upplýsingar
gætu veitt um málið, eru vin-
samlega beðnir að hafa sam-
band við umferðardeild rann-
sóknarlögreglunnar í sima
2 11 08.
Gert ráð fyrir óbreyttum
Rvíkurflugvelli næstu ár
A BLAÐAMANNAFUNDI um
skipulagsmál Reykjavíkur í gær,
sagði Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, að vinna að skipulaginu
hefði miðazt m. a. við að gert
væri ráð fyrir að næstu árin yrði
Reykjavíkurflugvöllur starfrækt-
ur fyrir innanlandsflug, en sam-
tímis hefði einnig verið gert ráð
fyrir hversu flugvallarsvæðið
yrði notað, ef starfsemi legðist
þar niður.
Borgarstjóri sagði, að kæmi til
þess, að flugvöllurinn yrði lagð-
ur niður, yrði svæðið m. a. not-
að sem útivistarsvæði borgarbúa
í sambandi við slík ráðgerð
svæði við Öskjuhlíð og Nauthóls-
vík. Um Nauthólsvík sagði borg-
arstjóri að í at'hugi’.n væri skipu-
lagning veitingastaða o.s.frv. þar
tengd útilífi.
Þá væri ráð fyrir því gert, ef
svo bæri undir, að ýmsar opin-
berar byggingar, m. a. í sam-
bandi við Háskólann, yrðu nærri
Háskólabyggingunni sjálfri, og
auk þess væri ráðgert á svæðinu
ffcúðahverfi fyrir 15—20 þúsund
manns. Hinsvegar sagði tærgar-
stjóri, að við athuganir hefði
fram komið, að flugvöllurinn
væri svo nauðsynlegur Reykja-
vík vegna innanlandsflugsins, að
ekki væri gert ráð fyrir því, að
hann legðist niður næstu árin.
Borgarstjóri sagði að síðustu
varðandi þetta mal, að áður en
skipulag yrði gert varðandi þetta
svæði, yrði athugað hvaða á'hrif
umferð frá því hefði á skipulag
borgarinnar í heildL
Manet-
myndarinnar
er enn leitað
RANNSÓKN heldur enn
áfram á hvarfi málverksins
Konumynd, eftir hinn
heimsfræga franska im-
pressionista Edouard Man-
et, en J»ví var fyrir nokkru
stolið af heimili Gunnars
Guðjónssonar, skipamiðl-
ara, er hann dvaldist er-
lendis ásamt fjölskyldu
sinni.
Þetta málverk hins
franska meistara mun v«ra
hið verðmætasta í eigu ís-
lendings að því er bezt er
vitað.