Morgunblaðið - 31.07.1964, Síða 2
2
MORCU N BLAÐIÐ
Fostu'dagur 31. JúTf 1964
Samanburöur á tekjuskatti og
útsvari eftir gömlu og nýju
reglunum
HÉR fer á eftir samanburð
ur á tekjuskatti og útsvari
eftir nýju og gömlu reglun-
um. Samanburðurinn er
miðaður við lágar tekjur,
miðlungstekjur og ríflegar
meðaltekjur, þ.e. 50 þús.,
60 þús., 80 þús., 100 þús.,
120 þús. og 140 þúsund
króna tekjur.
Nettó-
tekjur
til
skatts
f fremsta dálkinum eru
tekjuupphæðirnar, þ.e. nettó-
tekjur til skatts. Frá þeim er
dregið, áður en útsvar er lagt
á, útsvar frá fyrra ári, sem
miðast við tæpa 13% aukn-
ingu á nettótekjum milli ár-
anna 1962 og 1963. í saman-
burðinum er miðað við álagn-
ingarárin 1963 og 1964.
í næsta dálki táknar T ==
tekjuskatt og Ú = útsvar. Þá
Hjón
50 þús.
80 þús.
80 þús.
100 þús.
120 þús.
140 þús.
gömlu nýju gömlu nýju gömlu
regL regl. regl. regl. regL
T 0 0 0 0 0
Ú 4300 3900 3700 2100 1500
T 500 0 0 0 0
Ú 6000 5400 5400 3700 3200
T 2500 1500 500 0 0
Ú 9500 9100 8900 6800 6600
T 5500 4000 2500 900 0
Ú 12900 13700 12400 11100 10100
T 9500 8500 5500 2900 1500
Ú 16700 18300 16100 15701 13900
T 14500 14500 9500 680. 4000
Ú 20800 22700 20300 20200 17900
Hjón með 3 börn
nýju
regl.
0
0
0
1400
0
4400
0
7700
0
12200
1000
16700
er gerður samanburður á
tekjuskatti og útsvari einhleyp
inga eftir gömlu og nýju regl-
unum, síðan á gjöldum hjóna
og loks á gjöldum hjóna með
3 börn.
„Ingiber Olafsson II" kemur í nótt
í NÓTT er væntanlegt til
landsins nýtt 250 tonna fiski-
skip frá Noregi. Er það „Ingi-
ber ólafsson 11“ eign bræðr-
anna Jóns og Óskars Ingibers-
son í Ytri-Njarðvík, smíðað
hjá Ulstein mek. Verksted í
Ulsteinvik.
Skip þetta hefur vakið tals-
verða athygli í Noregi, og mik
ið verið um það skrifað i
norsk blöð. Mbl. bárust í gær
blaðaumsagnir úr „Sunmörs-
posten“ og Sunmöre Arbeid-
eravis frá 27. og 28. þ. m., og
fara hér á eftir nokkur atriði
úr þeim. Það er ekkert vafa-
mál að þessi nýi 111 feta bát-
ur er fjöður í hatt Ul-
stein skipasmíðastöðvarinnar
og þeirra, sem þar vinna. Bát-
urinn er búinn 510 hestafla
Caterpillar aðalvél, og vai
siglingarhraðinn í reynslu-
ferð 11,5 sjómílur. Það er at-
hyglisvert að vélin er svo
stutt og tekur svo lítið ptóss
að lestarrýmið verður mun
stærra af þeim sökum. Á skip-
ið að bera 2700 hl. I heiíd |
sannar skipið það að íslend-
ingar fylgjast vel með öllum
nýjungum á sviði tækninnar
Og báturinn er hreinasta
augnayndi að utan sem innan.
Gert er ráð fyrir að 12 manna
áhöfn verði á skipinu, en rúm
er fyrir 14 í eins og tveggja
manna klefum. — Með skip-
inu kemur Magnulf Ulstein,
forstjóri skipasmíðastöðvar-
innar, og ætlar hann m. a. að
fara á laxveiðar fyrir norðan.
Johnson
lýsir ánœgju sinni
Forsœtisráðherra
rœðir við hann um
miðjan ágúst
Einkaskeyti til Morgunblaðs-
ins, Washington, 30. júlí —
AP
FORSÆTISRÁÐHERRA ís-
lands, Bjarni Benediktsson,
mun koma til Washington 18.
ágúst, og ræðir hann þá við
forseta Bandarikjanna Lynd-
on B. Johnson.
Talsmaður Hvíta hússins
skýrði frá því I dag, að John-
son, forseti, hefði lýst því yfir,
að það væri honum mikil
ánægja að endurnýja kunn-
ingsskap sinn við Bjarna
Benediktsson, sem hann kynnt
Ist á sJ. hausti, er Johnson, þá
varaforseti, kom í heimsókn
til íslands.
Oscor A. Boram
sjötupur
í GÆR varð sjötugur einn af
merkustu lögvísindamönnum á
Norðurlöndum, dr. Oscar A. Bor-
um, prófessor við Kaupmanna-
hafnarháskóla.
Borum er mörgum íslending-
um að góðu kunnur, því að
kennslubækur eftir hann hafa
verið notaðar hér við Háskóla ís-
lands um nokkurt árabil, og
hinigað hefur hann komið oftar
en einu sinni.
í tilefni afmælisins kom út í
gær mikið afmælisrit, sem hon-
um er helgað. í því eru ritgerðir
um lögfræðileg efni, einkum sér-
svið hans, sifja- erfða og per-
sónurétt og a'lþjóðlegan einka-
málarétt. Ein íslenzk ritgerð er
í ritinu. Hún er eftir Ármann
Snævarr, rektor Háskóla íslands,
og fjallar um erfðalögin íslenzku
frá 1962 og norrænt samstarf á
sviði erfðalöggjafar.
Heillaóskalisti fylgir ritinu, og
er þar m.a. skráð nöfn 30—40
íslenzkra iögfræðinga.
Loftleiðir fluttar á
Keflavíkurflugvöll
f GÆRMORGUN voru tvær flug-
vélar Loftleiða afgreiddar í síð-
asta sinn á Reykjavíkurflugvelli
á leið sinni frá New York austúr
um haf. í gær var svo öll fluig-
þjónuáta félagsins flutt suður á
Keflavttkurflugvöll, en Reykja-
víkurflugvöllur verður framveg-
is aðeins notaður sem varaflug-
völlur fyrir fiugvélar Loftleiða.
Eins og áður hefur komið framv
hafa Loftleiðir tekið við rekstri
flugvallarhótelsins á Keflavíkur-
flugvelli og fara þar nú fram
ýmar breytimgar á húsakynnum.
Farþegar Loftleiða úr Reykja-
vík verða fluttir ókeypis suður
á Keflavíkurflug völl frá aif-
greiðslunni á Reykjavíkurflug-
Eldflaugarskotinu frestað
Reynt aftur á miðnætti í nótt
ELHFLAUGARSKOTI Frakka
af Mýrdalssandi var frestað í
gærkvöldi aðallega vegna óhag-
stæðs veðurskilyrða. Á miðnætti
í nótt á að re.vna að skjóta eld-
flauginni á loft.
Upphaflega átti að skjóta flaug
inni upp á miðnætti sl. nótt, en
í igærdag var því frestað þar til
kl. eitt í nótt. Veður var misgott
eystra í gær, oftast rigning eða
súld, en rofaði til á milli. Búizt
var við því, að svipað veður yrði
í nótt sem leið, og átti þá að nota
tækifærið, þegar rofaði til, og
senda flaugina á loft.
Margir lögðu leið sína austur á
sanda í gærkvöldi, til þess að sjá
skotið Á annað hundrað bílar úr
Reykjavík einni voru þarna með
fólk. KL hálftólf vax ioftbelgur
með veðurathugartæki sendur á
loft, en tækin biluðu. Þegar klukk
an var fimmtán mínútur yfir
miðnætti, 45 mínútum áður en
sjóta átti var ákveðið að hætta
við skotið. Var það aðallega
vegna slæmra veðurskilyrða og
eins vegna hins, að engar upp-
lýsingar fengust frá tækjum í
loftibelgnum um veðrið í háloft-
unum. Ákveðið var að reyna
aftur á miðnætti aðfaranótt laug
dags.
í mæstu viku ætla Frakkar að
skjóta annarri eldflaug á loft
Segulmælir bilaði í henni, en
Frakkarnir búast við að hafa
lökið viðgerð á honum eftir helg
ina. Verður henni þá skotið á
loft eins fljótt og unnt er eftir
heigina, eða í fyrsta Lagi á þriðju
dag. f raæstu viku telja Frakkarn
ir skilyrði í háloftunum til rann-
sókna á Van Allens-beitinu mjög
hagkvæm.
Aðalverktakar
malbika
HAFNARFTRÐI — Á fundi
bæjarstjórnar mú í vikunni,
skýrði bæjarstjórinn, Hafsteinn
Baldvinsson, frá samningsvið-
ræðum við íslenzka aðalverktaka
um að þeir taki að sér malbikun
Reykjavíkurvegar og Arnar-
hrauns. Undirbúningur er þegar
hafinn, en verktakar munu hefja
starf eftir helgina. — Er ætlunin
að verkinu verði lc/kið í sept.—
okt. — G.E.
velli, sem flytur á næstunni í
vesturhluta nýja skrifstofuhúss-
ins. Eiga farþegar að mæta á
Reykjavíkurflugvelli 90 mínút-
um fyrir þrotbför flugvélar, en
45 mínútum fyrir brottför á
Keflavíkurflugvelli.
Góð aflabrögð hjá
Sauðárkróks-
bátum
Sauðárkróki, 30. júlí.
TOGSKIPIB Skagfirðingur kom
af veiðum í nótt með oa. 60—70
tonn, bæði þork og karfa.
Afli snurpuveiðabátanna er dá-
góður, oig einnig er hann að glæð-
ast hjá smábátum á línu, svo að
atvinna er næg á Sauóárkróiki
eins og er. —Jón.
Utanrílcisráðherra í
cpinbera heimsókn
til Itforegs
OSLÓ, 30. júlí (AP).
GUÐMUNDUR t Guðmundsson,
utanríkisráðherra, fer í opinbera
heimsókn ásamt konu sinni, frú
Rósu Ingólfsdóttur, til Noregs
dagana 9. — 15. ágúst. Var þetta
tilkynnt í norska utanrikisráðu-
neytinu í dag.
Utanríkisráðherra kemur til
Osló kl. 12.30 sunnudagimn 9.
ágúst með flugvél. Fyrsta dag-
imn er engin opinber dagskrá.
Ráðherrann mun búa í Grand
Hotel.
Hin opinbera heimsókn hefet á
mánudag, með því að Guðmund
ur í. Guðmundsson gengur á
fund Halvards Lange, norska
utanríkisráðherrans, sem nú
gegnir jafnframt starfum for-
sætisráðherra, og forseta Stór-
þingsins, Nils Langhelle.
Utanríkisráðherra mun leggja
blómsveig við minnismerki fall-
inna, norskra hermanna í Akurs-
húsi. Einnig mun hann heim-
sækja norsku tækni- og vísinda-
rannsóknarstofnunina, áður en
hann gengur á fund Ólafs
N oregskonungs.
Eftir áheyrnina hjá kommgi,
býður konungur til hádegisverð-
ar í konungshöllinni til heiðurs
gestinum.
Síðar um daginn verður utan-
ríkisráðherra staddur í norska
utanríkismálaáðuneytinu, þar
sem stjómmálalegar viðræður
fara fram. Síðan mætir ráðherr-
ann á blaðamannafundi.
Um kvöldið býðu ríkisstjórnin
til kvöldverðar í Akurshúskast-
ala.
Þriðjudagima lb júií heim-
sækir ráðherra radíóverksmiðju
Simonsens, sem m. a. er þekkt
fyrir framleiðslu tækja fyrir
fiskiskip. Síðan býður Hans G.
Andersen, sendiherra, til hádeg-
isverðar. Um kvöldið flýgur ráð-
herra til Álasunds og snæðir
kvöldverð í boði borgarstjórmar.
Á miðvikudag heimsækir ráð-
herra Spelkavik skósmíðafyrri-
tækið og Stokke húsgagnaverk-
stæðið, áður en hann heimsækir
fjallakofa (Fjellstue), borgar-
bókasafnið og höfuðkirkjuraa.
Oscar Larsen, ræðismaður ís-
lands í Álasundi, býður til kvöld-
verðar, en síðan heldur ráðherra
til Olden, þar sem hann verður
um nóttina. Næsta dag verður
farið í ökuferð eftir Noregs-
strönd og haldið til Björgvinjar.
Þar heimsækir ráðherra föstu-
daginn 14. ágúst fiskveiðisafníð.
fiskasafnið, Hákonarhöllina og
gamla bæinn. Eftir hádegisverð
verður ekið um borgina, farið 1
verzlunarskóla, nýbyggingar
skoðaðar og að lokum haldið til
Troidhaugen, þar sem tónskáld-
ið Edward Grieg bjó. Borgar-
stjórn Björgvinjar býður til
kvöldverðar. Á laugardag fer
ráðherrann meðfram suður-
ströndinni á loftkoddaskipinu
Vingþór (Vingtor) til Stafang-
urs. Frá Stafangri flýgur ráð-
herrann síðan til Osló. Þá um
kvöldið kl. 17.20 flýgur hann til
Stokkhólms. — Halvard Lange,
Hans G. Andersen og Jóhaa
Cappelen, sendiherra Norð-
manna á íslandi, verða með Guð-
mundi f. Guðmumdssyni á ferð
haras um vesturströndiraa.