Morgunblaðið - 31.07.1964, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 31.07.1964, Qupperneq 3
^ Föstu'dagur 31A júlí 1964 ^ MORGU N BLAÐID ☆ f GÆRKVÖLDI var .aldinn að Hótel Sögu fundur til und- irbúnings stofnunar hlutafé- lags um byggingu og rekstur „mótels“, sem lagt var til, að yrði reist í Hveragerði. — Gert er ráð fyrir, að hlut- hafar verði á annað hundr- að, hlutafé að minnsta kosti 6jö milljónir króna, og má segja, að fyrirhuguð uppbygg ing hlutafélagsins grundvall- ■»' v'- Frá fundinum í gærkvöldi. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.) Félag stofnað um byggingu veitinga - og gistihúsa Fyrsti átangi vœntanlega Hveragerði 'mótel' ist á hugmyndum um svo- nefnd almenningshlutafélög. Samþykkti fundurinn, að fé- lagið skyldi stofnað og kaus fimm manna bráðabirgða- stjórn til að undirbúa fram- haldsstofnfund, sem haldinn verður innan nokkurra vikna, Fram kom á fundinum, að stefnt er að því, að fram- kvæmdir hef jist á næsta vori og „mótelið“ taki til starfa á árinu 1966. Eyjólfur Konráð Jónsson, rit- stjóri, setti fundinn fyrir hönd fundarboðenda, en auk hans höfðu einkum unnið að undirbún ingi málsins Konráð Guðmunds- son, hótelstjóri, Halldór Blöndal, veitingamaður, Manfreð Vil- hjálmsson, arkitekt, Bragi Ein- arsson, garðyrkjumaður, Styrmir Gunnarsson, stud. jur., og Hörð- ur Einarsson, stud. jur. Samkvæmt drögum að stofn- samningi félagsins, sem lögð voru fram á fundinum, er tilgangur fé- lagsins veitinga- og gistihúsa- rekstur og fyrirgreiðsla ferða- manna. Lagt er til, að nafn fé- lagsins verði Hlað hf. í setningarræðu sinni gerði Eyjólfur Konráð Jónsson grein fyrir því í aðaldráttum, í hverju fyrirhugaðar samþykktir félags- ins eru frábrugðnar lögum íslenzkra hlutafélaga yfirleitt. Atkvæðisréttur hvers hluthafa er takmarkaður við 1% af heildar- hlutafénu. Engar hömlur eru lagðar á sölu eða veðsetningu hlutabréfa. Sérstakur háttur er hafður á við stjórnarkjör, sem tryggir, að hugsanlegur minni- hluti í félaginu geti fengið kjör- inn fulltrúa í stjórn. Strangar reglur eru um skyldur stjórn- enda, framkvæmdastjóra og end- urskoðenda. Tryggt er, að hlut- hafar geti haft greiðan aðgang að hluthafaskrá. Gert er ráð fyrir, að félagið verði rekið fyrir opn- um tjöldum, og m.a. lagt til, að blaðamönnum verði heimiluð seta á hluthafafundum. Naumast er þó hægt að segja, að þegar í upphafi verið hér um að ræða almenningshlutlafélag, því að sú leið hefur ekki verið farin að bjóða hlutafé út á al- mennum markaði. Ekki er gert ráð fyrir því á fyrsta stigi, að neinn hluthafi eigi minni blut en kr. 50.000.00, sem væntanlega verður heimilað að greiða á allt að tveim árum. Var þessi leið farin til þess að í byrjun gerð- ust ekki aðrir hluthafar en þeir, sem verulegan áhuga hefðu á málinu oig væru reiðubúnir til að hætta nokkru fé í trausti þess, að um arðvænlegt fyrirtæki geti verið að ræða. Upphaflega var gert ráð fyrir, að hlutafé yrði 7 millj. kr., en áhugi hefur verið það mikill á þátttöku, að í frum- varpinu að samiþykktum félags- ins er lagt til, að stjórninni verði heimilað að hækka hlutaféð í allt að 10 millj. kr. Engu að síður er hér ekki um stærra félag að ræða en svo, að einnig af þeirri ástæðu er vafa- samt, að það geti talizt almenn- inigshlutafélag, en hugmyndin er fyrst og fremst að reyna þann rekstur sem hér er um að ræða, með því að byggja eitt „módel“. Ef reksturinn gefur góða raun og útlit er fyrir, að hann geti skilað verulegum hagnaði, er gert ráð fyrir því í fyrirhuguðum sam- þykktum, að unnt verði að opna félaigið, bjóða út nýtt hlutafé, byggja fleiri „módel“ og gera félagið að almenningshlutafélagi. Þegar Eyjólfur Konráð hafði lokið máli sínu, var Geir Hall- grímsson borgarstjóri kjörinn fundarstjóri og Hjörtur Torfa- son hdl. fundarritari. Konráð Guðmundsson greindi nokkuð frá hugmyndum um byggingarframkvæmdir, sem Manfreð Vilhjálmsson arkitekt hefur unnið að í samráði við aðra þá, sem að undirbúningi máls- ins hafa starfað. Sjálft mótelið yrði væntanlega byggt í tveim 20 húsa samstæðum. Verða hús- in sambyggð með sérinngangi og sérgarði. Verður unnt að aka beint að hverju húsi um sig. Einnig yrði komið upp útisund- laug með ýmiss konar böðum, nuddi o.þ.h. í nokkurri fjarlægð frá mót- elinu er g«rt ráð fyrir allstóru veitingahúsi, sem yrði tvískipt. Annarsvegar yrði „kafetería“, þar sem unnt væri að veita allt að 50 manns fljóta afgreiðslu, og yrði hún fyrst og fremst ætluð þeim, sem eru á hraðferð. Hins vegar yrði svo veitingasalur fyr- ir allt að 100 manns, sem veitti mjög góða þjónustu. í sömu bygg ingu _ yrði einnig gestamótta'ka o.fl. í tengslum við þessa bygg- ingu verður stór skáli, þar sem koma mætti fyrir ýmiss konar leiktækjum svo sem bowling, billiard oig tennis, og yrði skáli þessi þannig byggður, að hann mætti ryðja að einhverju leyti og nota hann sem fundarsal fyr- ir stærri ráðstefnur. Loks yrði svo benzínsala og sælgætissala rekin í sambandi við mótelið. Gert er ráð fyrir, að rekstur mótelsins byggist á dvalargest- um og hinni miklu umferð um Hveragerði. Greindi Konráð Guðmundsson frá þvi, að fyrir- hugað væri að koma upp ýmiss konar aðstöðu fyrir dvalargesti til þess að gera þeim dvölina á- nægjulegri, svo sem sundlaug og böð, sem áður eru nefnd. Er ætl- unin, að gestir geti notið ýmiss konar þjónustu þar, svo sem heitra og kaldra baða, nudds o.þ.h. allt að beiftni læknismeð- ferð, sem ekki er gert ráð fyrir, að þar verði unnt að fá, a.m.k. ekki á vegum þessa fyrirtækis Auk fyrrnefnds leikskála er enn fremur að því stefnt, að úti verði komið upp aðstöðu til ýmiss kon ar leikja t.d. tennis og jafnvel golf. Að öðru leyti mundi gestun um veitt tækifæri til þess að stunda útreiðar, skíðaferðir, veiði mennsku, gönguferðir, rjúpna- veiðar, berjatínslu, heimsóknir í gróðurhús Hveragerðis, ferðir um Suðurland o.s.frv. Manfreð Vilhjálmsson arkitekt gaf sð lokinni ræðu Konráðs Guðmundssonar ýmsar nánari skýringar á þeim hugmyndum um byggingarframkvæmdir, sem að hefur verið unnið. Eyjólfur Konráð Jónsson gerði þessu næst grein fyrir drögum að stofnsamningi og samiþykktum félagsins. Auk þeírra atriða, sem þegar hefur verið getið, vöktu athygli ákvæði þess efnis, að fé- laginu skyldi einungis um stund- arsakir heimilt að eiga eigið hlutafé allt að 10%, en stjórn félagsins skuli gera ráðstafanir til að losa félagið sem fyrst heilbrigðan hátt við það hlutf. fé sem eðlilegt væri talið að kaupa í félaginu sjálfu — og að aldrei megi nota atkvæði þau, sem fylgja hlutum, er félagið kynni að eiga sjálft. Er gert rað fyrir, að síðastnefnda ákvæðinu sé óheimilt að breyta. Eftir talsverðar umræður fund armanna um málefni hins fyrir- hugaða félags, samþykkti fund' urinn að tillögu fundarboðenda að kallaður skyldi saman fram naldsstofnfundur innan nokkurra vikna til þess að ganga endan- lega frá stofnun félagsins og lög um þess. Var kosin fimm manna bráðabirgðastjórn auk eins vara. manns til þess að undirbúa fund- inn. í stjórnina voru kjörnir Konráð Guðmundsson, Halldór Gröndal, Bragi Einarsson, Styrm ir Gunnarsson og Steingrímur Hermannsson. Til vara: Hörður Einarsson. Gjaldahæstu fyrir- tæki í Reykjavík HER fer á eftir listi yfir þau lyrirtæki i kjuvik, sem greioa hæstu opinberu gjöldin. Gjöldin eru lögð saman, en þau eru tekju baattur, slysatryggingargjald, e.gnarskattur, lífeyristryggingar- gjald, kirkjugarðsgjald, tekjuút- svar, atvinnuleysistryggingar- sjóðsgjald, eignaútsvar, aðstöðu- gjald og iðnlánasjóðsgjald. — Að sjálfsögðu greiða ekki öll fyrir tækin öll þessi gjöld. Loftleiðir 29.444.849 SÍS 12.502.617 Eimskipafélag íslands 5.475.230 Olíufélagið 5.453.603 Kassagerð Reykjavíkur 4.249.649 Olíuverzlun íslands 4.211.700 Heildverzlunin Hekla 3.236.004 Slippfélagið 2.510.742 Eggert Kristjáns- son & Co. 2.313.190 Vélsmiðjan Héðinn 2.237.741 Jöklar 2.031.446 Hamar . 1. Verksmiðjan Vífilfell 1 Sláturfélag Suðurlands 1 Verzlun O. Ellingsen 1. Egill Vilhjálmsson 1, S j óvátry ggingarf élag íslands 1, Gunnar Ásgeirsson hf. 1 Ölgerðin Egill Skalla- grímsson hf. 1 Garðar Gíslason hf. 1 Ofnasmiðjan 1 Síldar- og fiskimjöls- verksmiðjan 1 Ó. Johnson & Kaaber hf. 1. Togaraafgreiðslan 1 Ræsir 1 Mjólkursamsalan 1 Stálsmiðjan Lýsi hf Byggingafélagið Brú Flugfélag íslands Mjólkurfélag R.-víkur Almeinna byggingafélagið 720.817 .694.560 625.719 577.419 383.957 323.802 301.577 231.028 .151.674 137.031 108.951 070.508 065.161 .029.091 .022.512 979.562 948.297 925.461 916.499 912.304 887.150 Véltækni hf 881.188 Sölumiðstöð hraðfrysth. 877.661 Kr. Kristjánsson hf 852.286 Nói hf 833.933 Steypustöðin 816.561 Hótel Borg 813.954 Ásbjörn Ólafsson hf 786.152 Sindri 749.760 Hótel Saga 744.390 Austurver 706.559 KRON 689.701 Trésm. Sveins M. Sveinss. 670.352 Silli & Valdi 655.549 ísl.-erl. verzlunarfélagið 653.341 Kaffibrennsla Ó. Johnson & Kaaber 645.575 Þórscafé 624.087 Dráttarvélar 624.016 Kristján Ó. Skagfjörð hf 605.466 H. Benediktsson hf 591.276 Bergur Lárusson hf 557.123 Egill Guttormsson heildv. 553.545 Sanitas hf 549.408 Framhald á bls. 23 STAKSTEIMAR Gjaldeyrisstaðan hefur batnað Nýlega ritaði Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráðherra, grein í Alþýðublaðið, þar sem hann ræð ir um blekkingar Framsóknar- manna um gjaldeyrismál. Hann segir m.a.: ,Vilji menn gera sér grein fyr ir árangri þeirrar stefnu í efna- hagsmálum, sem fylgt er á nokkr urra ára skeiði, þá á auðvitað ekki að bera saman gjaldeyris- stöðu eða erlendar skuldir um einhver tvenn áramót, nema ástandið geti talizt sambærilegt. en engan veginn er víst að svo sé, eins og t.d. kemur glöggt fram, ef borin eru saman árslok- in 1958 og 1963. Réttari mynd fæst með samanburði á breyting- um á gjaldeyrisstöðu og lántöku á þeim tímabilum, sem menn vilja bera saman. Tölur eru ttl um fyrstu 4 árin, síðan breytt var um stefnu í efnahagsmálum, þ.ekjs. árin 1960 til ‘63. Á þess- um árum hefur gjaldeyrisstaða bankanna batnað um 1455 millj. króna. Lántökur til lengri tíma en eins árs hafa numið 675 millj. króna og tekin hafa verið stutt vörukaupalán tii allt að eins árs að upphæð 441 millj. kr. Ef lán- tökurnar eru dregnar frá bata gjaldeyrisstöðunnar hefur heild- arstaðan gagnvart útlöndum á þessu fjögurra ára tímabili batn- að um 339 millj. kr.“ Seig á ógæfuhliðina á vinstri stjórnartímanum „Ef til samanburðar er tekið fjögurra ára tímabilið 1955 tíl ’58, kemur í ijós að gjaldeyris- staðan versnaði á þessu timabili um 407 millj. kr. Lántökur tíl lengri tíma en eins árs námu 1177 millj. kr. Ekki var þá leyft að taka stutt vöVukaupalán er- iendis. Eitthvað hefur eflaust kveðið að slíku, en engar skýrsl- ur eru til um þær lántökur. Heildarstaðan gagnvart útlönd- um versnaði því á árunum 1955-1958 um 1548 millj kr. Það var einmitt þessi þróun, sem gerði stefnubreytinguna 1960 bráðnauðsynlega. Hinn mikli greiðsluhaili þess- ara ára hefur oft verið afsakað- ur með miklum innflutningi framleiðslutækja og mikilli fjár- festingu. Hér er þó um rangar staðhæfingar að ræða, á árunum 1955 til ’58 nam innflutningur skipa og flugvéla 778 millj. króna, en á • árunum 1960-’63 hefur hann numið 1446 miUj. kr., eða hefur m.ö.o. verið næst- um helmingi meiri. Það er sömu- Ieiðis alrangt, að heildarfjárfest- ingin hafi verið minni á á'runum 1960 tii 1963 en á jafnlöngu skeiði, hallabúskaparins. Miðað við verðlag 1960 hefur heildar- fjárfesting áranna 1960 til 1963 numið 9654 millj. kr., en heildar- fjárfesting áranna 1955-’58 nam, miðað við sama verðlag, 8327 millj kr., eða var m.ö.o. 1300 millj. kr minni“. Látlausar blekkingar ^ímans Og enn segir ráðherrann: „Sannleikurinn um þau efni, sem Timinn hefur nú undanfarn- ar vikur farið með látlausar blekkingar um, er augljóslega sá, að þegar núverandi stjórnar- flokkar tóku við völdum í árs- lok 1959, hafði um langt skeið verið aivariegur greiðsluhalli í utanríkisviðskiptum þjóðarinnar, liann hafði verið jafnaður með lántökum til alltof stutts tíma, en lánstraustið erlendis var í raun og veru þrotið. Það tókst á tiltölulega stuttum tima, að breyta þessum greiðsluhalla í greiðsluafgang og safna allgild- um gjaldeyrissjóði".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.