Morgunblaðið - 31.07.1964, Síða 12

Morgunblaðið - 31.07.1964, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Fostudagur 31. júlí 1964 Útgefandi: Framk væmdast j óri: Ritstjorar: Auglýsingar: Útbreiðslustjóri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. HÁAR TEKJUR ITegna hinna miklu kaup- " hækkana á síðasta ári og verðhækkananna, sem í'kjöl- farið fylgdu, taldi-Viðreisnar- stjórnin óhjákvæmilegt að breyta bæði skattstigum og útsvarsstigum á síðasta þingi til lækkunar, því ella hefðu skattar manna orðið óhæfi- lega háir. Hinar nýju reglur lækkuðu skatta og útsvör allra miðað við sömu tekjur og áður, en hins vegar hélzt skattalækkun á þeim, sem hærri tekjurnar hafa varla í hendur við kauphækkanir og verðhækkanir, en skattar á láglaunafólk lækkuðu aftur mun meira en verðhækkun- um nam. Sá háttur að létta fyrst og fremst byrðarnar af láglauna- mönnum, þótt það yrði til þess að ekki yrði hægt að lækka eins mikið skatta á há- tekjumönnum, var afleiðing af þeirri miklu óánægju, sem reis á síðasta ári vegna tekju- hækkana þeirra, sem hærri launin hafa. Varð ljóst, að tekjulægsta fólkið myndi ekki sætta sig við óbreytt á- stand og þess vegna rétt að reyna að ívilna því í skatta- álögum, enda víst að sam- komulag hefði ekki náðst nú í sumar, ef sú leið hefði ekki verið farin. Hitt er svo anríað mál, að þeir eru orðnir býsna margir í þjóðfélaginu, sem hafa háar tekjur, og margir eru þeir vafalaust, sem bregður í brún, þegar þeir átta sig á því, að þeir eru með tekjuhærri mönnum í þjóðfélaginu og greiða því þar af leiðandi háa skatta, þótt þeir séu félags- bundnir í verkalýðsfélögun- um og hafi tekið undir kröf- urnar um það, að skattabyrði yrði fyrst og fremst létt af láglaunafólki. Áður en Viðreisnarstjórnin tók við völdum voru skattar hér eins og kunnugt er með þeim hætti, að fjöldi manna taldi sig knúinn til að skjóta undan skatti eða hafa auka- vinnu, sem hvergi væri fram talin. — Viðreisnarstjórnin gerði í þessu efni gagngerðar umbætur, sem menn mjög tóku eftir og skattaframtöl bötnuðu til stórra muna. Hinu er ekki að neita, að hin stöðuga verðbólga hefir jafnharðan kippt stoðunum undan heilbrigðri skattalög- gjöf og erfitt hefir reynzt fyr- ir ríkisvaldið að breyta skatta álögum jafnharðan þannig, að engir fyndu fyrir hækkuð- um sköttum, samhliða stór- hækkuðu kaupgjaldi. Því miður hafa menn ver- ið allt of gjarnir á það hér á landi að halda, að kjör þeirra bötnuðu stórlega í hvert sinn, sem verulegar kaupgjalds- hækkanir hafa orðið. Því mið- ur er ekki til neitt slíkt undra ráð til að bæta kjörin. Það er framleiðslan sjálf, hin raun- verulegu verðmæti, sem sköp- uð eru, sem segja til um kjör manna, en ekki peningaupp- hæðin, sem þeir fá í laun. . Við vaxandi tilkostnað þarf ríkið og bæjarfélög aukið fjármagn til að standa undir framkvæmdum sínum. Það verður að taka af borgurun- um. Þetta vita menn raunar, en þó vill það fara svo fyrir mörgum, að þegar hann fær aukið fé í hendur þá bætir hann þegar kjör sín og kaup- ir sér eitt og annað, en gleym- ist þá, að hann á eftir að láta sinn skerf af hendi rakna til hins opinbera. Kauphækkanirnar vilja því oft verða stundarávinningur, sem menn hagnýta sér þegar í stað ,án þess að hugsa til þess, að í rauninni er fé þetta ekki allt frjálst til eigin ráð- stöfunar. Það ber þannig allt að sama brunni. Það er heppilegast fyrir fólk, að jafnvægi geti ríkt í efnahagsmálum, kaup- hækkanir komi ekki í stórum skriðum, heldur einungis þeg- ar framleiðslan getur undir þeim staðið. Þá getur ríkið betur takmarkað álögur sín- ar og þá vita mennirnir bet- ur, hvar þeir standa f járhags- lega. MOLDVIÐRI Cjtjórnarandstæðingar reyna ^ að þyrla upp hinu mesta moldviðri í sambandi við skattana og ætla að hagnýta sér það, að nú sem áður hljóta ýmsir að vera óánægðir með þau gjöld, sem á þá eru lögð. Dæmi um þetta birtist í mik- illi forsíðufregn í kommún- istablaðinu í gær. Þar er því blákalt haldið fram að síðan 1958 hafi útsvör á félög í Reykajvík aðeins hækkað um 8 milljónir króna, og þannig sé verið að ívilna félögum á kostnað einstaklinga. Hér er um freklegustu blekkingu að ræða. Árið 1958 greiddu félög í útsvör eins og blaðið segir réttilega 53,3 milljónir króna, að meðtöldu veltuútsvari, sem þá var á lagt. Nú hefir veltuútsvar hins vegar verið afnumið, en aðstöðugjald tekið í staðinn og nú greiða félög í útsvör NÚ fyrri helgina fer fram á Miami Beach í Flórida alþjóð leg fegurðarsamkeppni um titilinn „Miss Universe". Þetta er önnur keppni en sú sem Guðrún Bjarnadóttir tók þátt í á Langasandi í fyrra. Keppnin sjálf mun fara fram á föstudag en úrslit gerð á laugardag. Fulltrúi íslands vestur á Flóridaströnd er Thelma Ingvarsdóttir. Stúlkurnar komu flestar til Miami Beach fyrir nokkrum dögum, og hefur verið skemmt á ýmsa vegu meðan þær bíða þess að- keppnin hefjist fyrir alvöru. Meðfylgj andi myndir eru teknar í garð boði sem fegurðardísunum var haldið á sunnudag í Viz- oaya-görðunum á MiamL „Þær hljóta að hafa talað um veðrið“, stóð undir þessari mynd, sem tekin var í boðinu í Vizcayagörðunum suður í Flórida á sunnudag. Eins og sjá má, er stúlkan ttt hægri engin önnur en hún Thelma okkar Ingvarsdóttir, en hin heitir Susan Marlin og er frá Fairbanks í Alaska. i ! Þrjár að sunnan í þjóðhúningum sínum: Vzt til vinstrl er Angela Pereira frá Brasilíu, þá kemur Emmanela Stramana, frá Ítalíu og til hægri er Alba Ramírez, frá Kólombíu. og aðstöðugjöld, sem er sam- bærileg upphæð við þá, sem áður var nefnd, 128,1 milljón króna, og er hækkunin 74,8 milljónir króna eða 140%. Einstaklingar greiddu hins vegar árið 1958 í útsvör, og þar með talin veltuútsvör þeirra einstaklinga, sem at- vinnurekstur stunda, 172 milljónir króna, en nú er út- svar og aðstöðugjöld einstakl- inga 392,3 milljónir króna. Hækkunin er þannig 220,3 milljónir eða 128%. Útsvör og aðstöðugjöld á fyrirtækjum hafa þannig hækkað mun meira en útsvör á einstaklingum, en ekki gagnstætt eins og kommún- istamálgagnið vill halda fram. En fullyrðing þess er í sam- ræmi við öll skrif stjórnar- andstöðublaðanna um skatta þessa dagana. RÖKFRÆÐI TÍMANS Af öllum íslenzkum blöðum er Tíminn frægastur fyr- ir rakaleysi, útúrsnúninga og blekkingar. í gær segir blað- ið t.d. í ritstjórnargrein, að útsvör í Reykjavík hafi hækk að um 100% á tveim árum og síðan segir orðrétt: „Að vísu hafa orðið nokkr- ar hækkanir á reksturskostn- aði á þessum tveim árum. Þær hækkanir eru þó vitanlega langt innan við 100%. Útsvör- in hafa því verið hækkuð langt umfram það, sem auk- inn rekstrarkostnaður hefir krafizt. Framkvæmdir hafa verið nokkuð auknar, en þó fer f jarri því að þær hafi tvö- faldazt.“ Það er röksemdafærslu á borð við þessa, sem í raun- inni hefir dæmt Tímann úr leik í pólitískum umræðum; gjörsamlega er vonlaust að ætla að ræða málefnalega við það blað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.