Morgunblaðið - 31.07.1964, Page 17
r Föstudagur 31. júlí 1964
MORCUNBLAÐIÐ
' 17
Pálmi Skarphéðinsson — Minning
PÁLMI Skarphéðinsson var f. 28.
okt. 1897 á Oddstöðum í Mið-
dölum, Dalasýslu, d. 23. júlí 1964.
Foreldrar: Skarphéðinn Jónsson,
bóndi þar, Jónssonar bónda í
Stóra-Galtardal á Fellsströnd
Þorgeirssonar. Kona hans, Krist-
ín Pálmadóttir bónda á Sval-
barða í Miðdölum, Ólafssonar
bónda á Breiðabólsstað og víð-
ar, Pálmasonar. Ættfaðir frá því
á 17. öld með því nafni, Pálmi
Hinriksson bóndi á Breiðabóls-
etað og kona hans, Ragnheiður
} Eggertsdóttir, lögréttumanns í
Snóksdal Hannessonar. Hans
! ættmenn voru löngum bændur á
Breiðabólsstað, þó ekki óslitið,
en Pálma nafnið mjög títt í ætt-
inni, t.d. komu allar 3 dætur
Pálma á Svalbarða upp nafni
föður síns.
Pálmi var elztur systkina
sinna og ólst upp með þeim í
foreldrahúsum, systkini hans eru:
Lára, saumakona í Reykjavík,
Jens, vinnur í verksmiðjunni
Kletti, Reykjavík og Friðjón,
sýslumaður og bæjarfógeti á Ak-
ureyri.
Foreldrar Pálma áttu eigi mik-
ið af þessa heims auði eins og
almennt var á þeim árum, en
börn þeirra öll vel gefin og stóð
hugur Pálma og þrá til menntun-
ar og menningar, en féleysi
hamlaði því að svo gæti orðið.
Hann komst þó í unglingaskóla
Ólafs Ólafssonar prófasts í Hjarð
arholti veturinn 1915—16 og
hafði miklar mætur á séra Ólafi
æ síðan. Fékkst síðan við barna-
kennslu í Haukadal í Dölum
1918—’20, þar og í Miðdölum
1924—’25 en var við heimilis
kennslu 1920—’24, bóndi á Odds-
Stöðum 1927—’30, fluttist þá til
Akraness og til Reykjavíkur
1934. Vann þar að öðrum þætti
hugðarefnis síns, smíðum. Skarp-
héðinn faðir hans var völundur
á allar smíðar og hugvitssamur
um margt er að því laut. Pálmi
erfði þær gáfur föður síns í rík-
um mæli, enda smíðaði hann og
skar út margs konar búsmuni
með snilldar handbragði og
smekkvísi. Hann var fjölhæfur
ejálfmenntaður listasmiður, enda
búinn að ávinna sér meistara-
réttindi í húsgagnasmíði, og vann
óslitið að ýmsum smíðum frá því
að hann fluttist úr sveit og þar
til á síðastliðnum áramótum, að
hann varð að hætta sökum heilsu
brests.
Mörgum frístundum sínum,
jafnvel öllum um árabil, varði
Pálmi til lesturs á Landsbóka-
eafninu. Hann var þyrstur í all-
»n fornan fróðleik og átti senni-
lega margt í handriti, einkum
um ættir og búendatal í Dölum,
gamlar sögur og sagnir, allt var
það brunnur er hann vildi
drekka úr.
Bókasafn mun hann hafa átt
ítrúlega mikið og vandað að öll-
frágangi og batt sjálfur inn
sínar bækur, hafði þó ekki úr
öðru að spila en almennum vinnu
launum til að sjá um heimili sitt
og kosta sonu sína til langskóla-
náms, en sparsemi og iðjusemi
lögðu þar lóðið.
Pálmi var hlédrægur að upp-
lagi, og vildi ekki láta á sér bera
né verkum sínum, orðmerkur og
háttprúður í allri framkomu,
fremur fálátur við fyrstu kynni,
en kiminn og gamansamur á hóg-
væran hátt í kunningjahóp.
Ég kynntist Pálma nokkuð á
hans yngri árum, en ekki síðan
hann fluttist úr héraðinu. Út af
þeim kynnum get ég með sanni
sagt, að hann var einn með þeim
vönduðustu mönnum, í orði og
verki, er ég hefi þekkt um dag-
ana.
Pálmi kvæntist 25. sept. 1926
Guðrúnu Guðmundsdóttur, frænd
oknu sinni, íkaboðssonar bónda
í Skörðum og konu hans, Hug-
borgar Magnúsdóttur, hugþekkri
greindarkonu og gæða húsmóð-
ur og var sambúð þeirra og heim-
ilishald allt, með ágætum, fágað
í allri framkomu, umgengni,
reglu og iðjusemi, ásamt um-
hyggju fyrir velferð sona þeirra.
Enda þeir ekki brugðizt þeim
anda er foreldrarnir ólu þá upp í,
svo sem bezt kom í ljós á þeirra
lærdómsferli og námsafrekum.
Synir þeirra hjóna eru:
Skarphéðinn, stærðfræðingur,
kennari við Menntaskólann í
Reykjavík, kvæntur Kirstine
Olsen frá Færeyjum.
Guðmundur, eðlisfræðingur
og skákmaður, starfar við jarð-
hitadeild Raforkumáladeildar í
Reykjavík, kvæntur Ólöfu Jóns-
dóttur.
Ólafur magister, kennari við
Menntaskólann í Reykjavík,
kvæntur í>óru Davíðsdóttur,
kennari.
Pálmi lifði það, að vita alla
sonu sína hafa lokið langskóla-
námi og fullnaðarprófi, hvern í
sinni grein, með ágætum, og að
þeir væru komnir í virðulegar
og mikilsvarðandi stöður í þjóð-
félaginu, og að hafa stofnað sín
eigin heimili. Þannig sá hann í
sonunum rætast sína eigin þrá
unglingsáranna. Má því segja, að
hann að því leyti væri búinn að
ljúka sínu lífsstarfi, enda var
vanheilsa hans sú seinustu mán-
uði lífs hans, að dauðinn kom
ekki að óvörum þeim er kunnug-
ir voru. Lífskraftar voru þrotnir,
og þá er gott að losna við hin
líkamlegu bönd.
Þó er það að sjálfsögðu svo,
að ástvinum, skyldmennum og
vinum, er ætíð harmur í huga
þegar hinir nánustu hverfa sýn-
um. En huggunin er sú, að minn-
ingarnar lifa þó maðruinn deyi.
Blessuð veri hans minning öll-
um aðstandendum.
Jón Sumarliðason.
Gísli Jóhannsson
Skrifstofustjóri — Mirmingarorð
f. 5. ágúst 1929> d. 24. júlí 1964.1
ÉG man ekki til að mér hafi
í seinni tíð brugðið meir, en er I
mér á nýbyrjuðum samninga- j
fundi með fulltrúum Sovétríkj-
anna 25. þ.m. var tilkynnt að
Gísla Jóhannssonar væri saknað
og allar líkur væru til að hann
íhefði farizt af slysförum við veiði
skap við Ölfusá, sem því miður
reyndist rétt
Sízt hafði það hvarflað að mér
að þegar frestað var samninga-
fundinum síðdegis á föstudag, er
við kvöddumst lauslega en glað-
laga að það væri í síðasta sinn
er funum okkar bar saman.
Gísli var eins og fyrr segir
fæddur 5. ágúst 1929. Fæðingar-
staður hans var Þrastastaðir í
Stíflu, Austurfljótum. Foreldrar
hans Sigríður Gísladóttir ættuð
frá Ljótsstöðum á Höfðaströnd og
maður hennar Jóhann Guðmunds
son, þáverandi bóndi að Þrasta-
stöðum. Ungur fluttist Gísli með
foreldrum sínum til Siglufjarð-
Hannes B. Árnason
Miirning
í DAG er borinn til hinztu hvíld
ar Hannes B. Árnason, póstaf-
greiðslumaður, hér í borg. Hann
lézt hinn 25. þ.m. eftir langvinn-
an og erfiðan sjúkdóm.
Hannes var fæddur 9. ágúst
1917 í Krossgerði á Berufjarðar-
strönd. Foreldrar hans voru Árni
Sigurðsson, bóndi í Krossigerði og
kona hans Hansína Bergsveins-
dóttir. Níu mánaða gamalL missti
Hannes móður sína og var hann
þá tekinn til umönnunar af mág-
konu Árna föður hans, Vilborgu
Einarsdóttur, er einnig bjó í
Krossgerði. Naut sveinninn þar
hins mesta ástríkis enda kallaði
Hannes hana jafnvel mömmu.
Hannes kom 16 ára gamall til
Reykjavíkur, þá sjúklingur, og
dvaldist meðal annars heilt ár
í Sóttvarnarhúsinu. Hann áitti
láni að faigna, er hann kynntist
lækni sínum Birni Gunnlaugs-
syni, sem reyndist honum fram-
úrskarandi, enda minntist Hann-
es hans jafnan með hlýjum og
þakklátum huga.
Þegar Hannes var nokkurn
veginn kominn til heilsu tók
hann að stunda ýmsa vinnu, eink
um bifreiðaakstur. Starfaði hann
nokkurn tíma á bifreiðastöð
Steindórs.
Hinn 1. júní 1942, var Hannes
ráðinn sem póstbifreiðarstjóri
hér í borg og gegndi því starfi
af miklum dugnaði og ósérihlífni
þar til hann var skipaður póst-
aflgreiðslumaður frá því 1. jan.
1956, sem hann gegndi til ævi-
loka. Póststörf urðu þannig ævi-
starf Hannesar.
Póststarfið er margþætt og
reynir tals'vert á hæfileika þeirra
sem við það fást. Þessi marg-
þættu störf fóru Hannesi alltaf
vel úr hendi því maðurinn var
bæði glöggur, aðgætinn og sam-
vizkusamur. En ' þótt Hannes
rækti póststörfin af mestu prýði
og hefði glöggt auga fyrir mörgu
sem betur mátti fara í rekstrin-
um, hygg ég þó að annað hafi
staðið ennþá nær huga hans, en
þar voru véltæknistörf allskonar.
Hann var aflburða hagur maður,
völundur á margt, sem bæði
þurfti kunnáttu til og handlag.
Hann hafði um tíma yfirumsjón
með bifreiðum pósthússins og
þekkti vélar þeirra út og inn og
igætti þess jafnan að gert væri
að þeim í tíma. í frítímum sín-
um stundaði hann úrsmíði hjá
Midhelsen, úrsmíðameistara, og
hafði á heimili sínu verkstæði
til viðgerða á hinum margbrotnu
saumavélum. Ég er sannfærður
um, að hefði Hannes gert þetta
starf að ævistarfi, hefði hann orð
ið einn hinna fremstu manna í
þeirri grein.
Hannes kvæntist 15. maí 1939,
Hiíf Bjarnadóttur, mikilhæfri og
glæsilegri konu, sem staðið hef-
ur sem hetja við hlið ástvinar
síns alla hans löngu og strönigu
sjúkdómstíð. Þau eignuðust fimm
syni og misstu elzta soninn 18
ára igamlan, efnis- og myndar-
pilt.
í vor áttu þau hjón silfurbrúð-
kaup og þann dag hugðist hús-
bóndinn efna til þafcklætishátíð-
ar með vinum og vandamönnum.
En það fór á annan veg. Leiðin
lá þann sama dag til sjúkrastof-
unnar, því varð ei afstýrt.
Hannes Árnason og ég, sem
þessar línur rita, vorum starfs-
félagar nokkur ár. Hann varð
mér handgengnari fremur öðrum
°g því gafst mér kostur á að
kynnast honum að talsverðu
leyti. Mér var það mikil ánægja.
Þar kynntist ég manni heilsteypt
um að lundarfari, glaðlyndum
en þó undir niðri alvörugefnum.
Við áttum í sumarleyfum nokkr-
ar veiðiferðir saman. Þar kynnt-
ist óg enn einni hlið þessa ljúfa
drengs. Það var hrifnæmi hans
fyrir fegurð og stórfengleik ís-
lenzkrar náttúru, enda vaxinn
upp í næsta námunda hins undur
fagra Breiðdals.
Ég kveð með sárum söknuði
kæran samstarfsmann og vin og
vottum við hjónin sonum henn-
ar tengdadóttur og barnabarni
innilegar samúðarkveðjur.
Ma,gnús Jochumsson.
ar og vakti bá þegar athygli fyrir
prúðmennsku og farsælar náms
gáfur.
Gísli fór ungur í Verzlunar-
skóla íslands og laufc þaðan prófi
1948 með góðum vitnisburði. Árið
1952 kvæntist hann eftirlifandi
konu sinni Guðrúnu Gunnars,
fósturdóttur Steiniþóru Einarsdótt
ur og Gunnars Jóhannssonar
fyrrv. alþingismanns. Þau hjón
eignuðust 3 börn, dreng 12 ára
og 2 stúlkur 8 og 2ja ára. Mér
var kunnugt um að Gísli lét sér
mjög annt um heimili sitt og var
góður heimjlisfaðir. Einnig var
einkar kært á milli hans og hinna
öldruðu tengdaforeldra, sem
oft dvöldu á heimili hans.
Má nærri geta að hið sviplega
fráfall hans er þeim mikill miss
ir og enn meiri harmur. Þó að ég
þekkti Gísla sem ungmenni á
Siglufirði, var það þó fyrst þeg-
ar hann réðist til Sílarútveigs-
nefndar fyrir 14 árum að
ég fór að kynnast honum. Sú
kynning fór vaxandi og álit mitt
á honum að sama skapi, enda var
Gísli ágætur starfsmaður og ör-
uggur mjög í starfi. Ég þori að
fullyrða að hin seinustu ár var
kynning okkar orðin að vináttu,
sem báðir vildu auka. Gísli tók
við störfum sem skirfstofustjóri
Síldaútvegsnefndar 1959 og fór
vaxandi í starfi, svo sem vænta
mátti.
Hann sá um allt bókhald nefnd
arinnar hér syðra, sem hann
reyndar hafði gert áður, trygg-
ingar allar, opnun — rem-
'bursa — fyrir innflutningsvörum
og útflutningspappíra, og sást þá
ekki fyrir að leggja nótt við daig
ef á þurfti að halda. Málamaður
var Gísli ágætur, einkum ensku-
maður.
Árið 1960 fór hann með síldar-
matsstjóra, Leó Jónssyni ,til Sov
étríkjanna. Gaf hann um þá ferð
sína ítarlega skýrslu um það sem
fyrir bar og að gagni mátti vera.
Var þar margan fróðleik að finna,
sem kom sér vel að vita. Einnig
fór hann verzlunarferðir til meg
ir.lands á vegum Síldarútveigs-
nefndar.
Gísli var oft í fyrirsvari fyrir
samstarfsmenn sína i launamál-
um og öðru sem tryiggja mátti
hag þeirra og framtíð. Hann var
ákveðinn í skoðunum, rólegur
en einarður og lét ekki hlut sinn
fyrir neinum ef hann taldi sig
hafa á réttu að standa. Mér er
sérstaklega minnisstætt starf
hans í því að tryggja starfsmönn
um Síldarútvegsnefndar aðild að
eftirlaunum úr eftirlaunasjóði
opinberra starfsmanna. Þar vann
hann mikið starf og aflaði víð-
tækra upplýsinga. Síðastliðið ár
tókst að koma þessu máli í höfn
með fullu samkomulagi við þá
aðila sem hlut áttu að máli. Hygg
ég að á engan sé hallað þó full-
yrt sé að þar hafi hann átt stærst
an hlut.
Það voru miklar vonir bundn-
ar við framtíðarstarf þessa unga
manns, sem féll í valinn fyrir
aldur fram. Hann var trúr í starfi
og vann sínu fyrirtæki vel. Fyrir
það vil ég þakka.
Ég vil enda þessi fáu orð með
því að flytja ástvinum hans öll-
um innilegar samúðarkveðjur
frá mér og öllum samstarfsmönn
um hans. Ég bið ástvini hans að
minnast þess að þó að missir-
inn og harmurinn sé mikill þá
má það vera hin mesta huggun
að ungur maður lauk miklu dags
verki og þeir sem kynntust hon-
um virtu hann og dáðu.
Erl. Þorsteinsson.
Skrifstofur
okkar verða lokaðar eftir hádegi í dag vegna jarðar
farar Gisla Jóhannssonar skrifstofustjóra.
SÍLDARÚTVEGSNEFND.
tarttovt?f
fcRB RIKISiNS
Ferðaáætlun
M.s. Herjólíur
í byrjun ágúst:
1. /8. laugardag frá Vestm.
kl. 13 til Þorlákshafnar,
þaðan aftur kl. 18 til Ve.
Miðnæturferð til Surts-
eyjar kl. 2i3. Farmiðar
seldir fyrir hádegi.
2. /8. sunnudag frá Ve. kl. 1)5
til Þorl.h., þaðan aftui
kl. 09 til Surtseyjar og
Ve.; þaðan kl. 20 til Þorl.
(23,30) og áfram til Rv.
Frá 3./8. til 5./8. verða ferðir
eins og venjulega, en þar
sem mánud. 3.8. er frídagur
verzlunarmanna, er reiknað
með að flestir sendi vörur
í hús útgerðarinnar fyrir
helgina. — Athugið einnig
að þá eru að verða síðustu
forvöð að senda vörur til
Vestm. fyrir Þjóðhátíð, því
að miðvikudagsferðin gefur
minni möguleika um vöru-
flutning.
6./8. fid. kl. 17 frá Ve til Þorl.
—• — kl. 21 frá Þorl. til Ve.
7/8 fd kl. 05 frá Ve. til Þorlh.
7/8 fd. 09 frá Þorlh — Ve.
7/8 fd. kl. 14 frá Ve. — Þorlh.
7/8 fd. kl. 18 frá Þorlh' — Ve.
7/8 fd kl. 22 frá Ve. til Horna
fjarðar.
8/8 ld. kl. 13—19 á Hornafjörð
9/8 sd. kl. 10 frá Ve. til Þorlh.
9/8 sd. kl. 14 frá Þorlh. — Vt.
9/8 sd. kl. 19 frá Ve., Þorlti.
og Rvík.