Morgunblaðið - 31.07.1964, Side 23
Föstudfagur 31. }ð?[ 1§84
MORCUNBLADIÐ
23
Aðalfundi IMorrænu
bændasamtakanna lokið
MIÐSTJÓRNARFUNDI Nor-
rænu bændasamtakanna (N.B.C.)
lauk hér í Reykjavik á miðviku-
— Gjaldhæstu
Framh. á bls. 3.
J. Brytijólfss. & Kvaran sf 538.068
Efnagerðin Valur 535.179
Bræðurnir Ormsson hf 527.719
Prentsmiðjan Oddi 501.322
iMarz h.f. 494.260
J. Þorláksson & Norð-
mann 403.913
Marco hjf. 482.194
Hraðfrystistöðin í Reykja-
. vík 480.103
Siríus h.f. 477.344
J. B. Pétursson sf. 466.221
Björgun h.f. 462.611
P. Stefánsson hf. 459.146
Framkvæmdir h.f. 451.258
Steinavör 443.865
Klúbburinn h.f. 442.828
Almennar trygingar h.f. 438.539
Kristján G. Gíslason 436.319
Edda h.f. 434.842
Davíð S. Jónsson
& Co h.f. 426.537
G. J. Fossberg h.f. 416.844
Ágúst Ármann h.f. 413.411
Natihan & Olsen h.f. 409.802
Timburverzlunin Völ-
undur 408.130
Verklegar framkvæmdir 366.881
Júpiter h.f. 364.095
Sig. Þ. Skjaldberg h.f. 350.935
G. Helgason & Melsted 347.496
Sveinn Egilsson h.f. 346.324
Timburverzlun Árna Jóns-
sonar 266.161
Fálkinn h.f. 264.300
Naust h.f. 256.331
dag. Segir svo m.a. um fundinn
í fréttatilkynningu frá samtök-
unum:
Aðalfundur N.B.C., sem eru
félagsskapur bændasamtaka í
Danmörku, Finnlandi, íslandi,
Noregi og Svíþjóð, var haldinn í
Reykjavík 28. og 29. júlá Fyrir
fundinum lágu venjulegar skýrsl
ur um efnaihagsástandið á Norð-
urlöndum, einkum með tilliti til
landbúnaðar, og um atþjóðleg
markaðsbandalög.
í umræðum kom fram mikill
álhuigi á því að au'ka hina við-
skiptalegu starfsemi innán N.B.C.
Fundarmönnum veittist tæki-
færi til þess að kynnast íslenzk-
um aðstæðum með námsför hinn
30. júlí.
Næsti aðalfundur verður hald-
inn í Svíþjóð árið 1965. Forseti
N.B.C. þangað til var kosinn
Ture Bengtsson, lögfræðingur,
formaður Sveriges Lantbruks-
förband.
Bílvelta í Andakíl
BORARNESI, 30. júlí. — Milli
kl. 16 og 16.30 í dag valt nýr fólks
bíll á veginum nálægt Skelja-
brekku í Andakíl. Hafði bíllinn
ekið utan í lausan vegkant og
oltið síðan. Lenti hann á þakinu.
Ein kona var í bílnum, og slapp
hún ómeidd, en bíllinn skemmd-
ist mjög mikið. — H.
Gísli Jóhannsson
skrifstofustjóri — Minningaroró
r F. 5/8/29. — D. 24/7/64.
LÍFIÐ og dauðinn eru tvær
hiiðar á þeirri tilveru, sem er
eilíf. Engu að síður fáum við ekki
skilið, er ungir menn í blóma
lífsins, sem framtíðin virðist
brosa við eru kallaðir burt. Sú
harmafregn kom því eins og reið
arslag yfir vini og vandamenn
Gísia heitins Jóhannssonar, skrif
stofustjóra Síldarútvegsnefndar,
er það spurðist, að hann væri
látinn, aðeins tæplega 35 ára að
aldri.
Gísli heitinn var fæddur 5.
égúst 1929, sonur hjónanna frú
Sigríðar Gísladóttur og Jóhanns
Guðmundssonar, nú til heimilis
að Eyrargötu 21, Siglufirði. Hann
ólst upp í foreldrahúsum hér í
Siglufirði og átti hér heimili unz
hann hóf störf hjá Síldarútvegs-
nefnd í Reykjavík að loknu námi
í Verzlunarskóla íslands.
Sá sem þessar línur ritar, átti
þess kost að njóta félagsskapar
og vináttu Gísla heitins allt frá
því við lékum sem drengir á
igötum Siglufjarðar, enda vorum
við bekkjarbræður bæði í Gagn-
fræðaskóla og Verzlunarskóla og
herbergisfélagar þá vetur, sem
við vorum við nám í Reykja-
vík. Gísli Jóhannsson var gæddur
farsælum gáfum og átti til að
Ibera þá kosti drenglyndis og
órofatryggðar, sem svo miklu
máli s'kipta í samskiptum og sam
félagi oíkkar. Hann var að eðlis-
fari hlédrægur en í vinahópi
hrókur alls fagnaðar enda kunnu
fáir honum betur að beita léttri
kímni og að lífga vinarþel.
Gísli kvæntist árið 1952 eftir-
lifandi konu sinni, Guðrúnu
Gunnars, fósturdóttur Gunnars
Jóhannssonar, fyrv. alþingis-
manns, og frú Steinþóru Einars-
dóttur, hinni mætustu konu, sem
bjó manni sínum hið bezta heim-
ili. Þau eignuðust þrjú börn, einn
so.n og tvær dætur, hið elzta 12
ára.
Með Gísla JÓhannssyni er
genginn góður drengur, sannur
vinur vina sinna, sem vann öli
fiín verk af alúð og samvizku-
fiemi oig iagði ætíð gott til allra
miála. Það er vissulega skarð
fyrir skildi í hópi bekkjarsystkina
sem útskrifuðust úr Vei-zlunar-
skóla íslands vorið 1948, er Gísli
Jóhannsson er allur, en minning
hans mun lifa með okkur og
yfir henni verður ætíð heiðríkja.
Mestur er þó harmur eigin-
':onu og barna, foreldra og syst-
kina, sem nú kveðja Gísla
Jóhannsson, er svo ungur
leggur upp í för til fyrirheitna
landsins, frá öllum þeim björtu
vonum, sem við hann voru
bundnar, frá svo glæstum starfs-
ferli, sem hann hafði skapað sér,
frá öllum þeim verkefnum, sem
hann hafði hug á við að glíma.
Ég sendi venzlafólki hans mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Og á þessari kveðjustund eru
mér efst í huga þakkir til þessa
látna vinar míns fyrir árin öll
og allar stundirnar, sem við átt-
um saman í leik og starfi, og
fyrir þá vináttu og tryggð, sem
■var svo ríkur þáttur í skapshöfn
hans.
Far þú heill, góði vinur, veg-
inn til vorsins, sem við öll eig-
um eftir að ganga; og verk þín
og hjartalag tryggja þér: „að þar
eru vinir í varpa, sem von er á
gesti“.
Siglufirði, 28. júlí 1964.
Stefán Friðbjarnarson.
— Borgarisjaki
Framhald af bls. 24
undir yfirborðinu. Skallarif
er blindsker, og hafa skip
stundum strandað þar.
Séð frá einni hlið virðist
jakinn helzt líkjast aftur-
byggðu skipi á siglingu eins og
sjá má á annarri myndinni.
Kortið sýnir, hvar jakinn er.
Ljósm.: Magnús Eymundsson.
— Hrunhætta
Framhald af bls. 1.
sem lokaðir eru inni í nám-
unni.
Mjög kalt er og rakt I nám-
unni. Martinet bað björgunar-
menn að fara mjög varlega, því
að búast mætti við, að minnsta
rask gæti komið af stað nýju
hruni. Til mála hefur komið að
reyna að sprengja burt stóran
stein, sem nú er aðal Þrándur
í götu. Við björgunina er notazt
við bora, og björgunartæki sömu
tegundar, sem beitt var við slys-
ið í Lengeden í V-Þýzkalandi í
fyrra.
Unnið er dag og nótt, en sakir
hættunnar á hruni, hefur orðið
að fara hægt í dag. Því er ekki
gert ráð fyrir, að takast megi að
ná til mannanna, fyr en um
helgi.
Borgarstjórinn í Champagnole
sagði í dag, að mennirnir væru
í mikilli hættu, og litlar líkur
væru á því taldar, að takast
mætti að bjarga þeim.
Sildin
Framhald af bls. 24
80 sjómílur norðaustur af Langa-
nesi, er feit og stór og ágæt til
söltunar. — K. S.
§ Aflaskýrsla miðviku-
dag/fimmtudag
Eftirtalin skip tilkynntu
veiði frá miðvikudagsmorgni til
fimmtudagsmorguns (aflinn tal-
inn í tunnum);
Hafrún ÍS 1200, Steingrímur
trölli SU 1000, Hilmir II KE 500,
Loftur Baldvinsson EA 600, Guð-
björg ÓF 900, Anna SI 450, Ás-
kell ÞH 600, Ögri GK 500, Guð-
rún GK 500, Vigri GK 500, Sigl-
firðingur SI 350, Ólafur Magnús-
son EA 400, Fagriklettur GK 400,
Guðbjartur Kristján ÍS 1000,
Björgúlfur EA 800, Snæfell EA
1100, Faxi GK 800, Björgvin EA
900, Framnes ÍS 500, Skálgberg
NS 100, Grótta RE 500, Jörundur
II RE 1500, Jörundur III RE 2800,
Sigurður SI 550, Einar Hálfdáns
ÍS 400, Súlan EA 800, Engey RE
800, Margrét SI 1600, Oddgeir ÞH
1200, Sigurpáll GK 1800, Sæfaxi
NK 450, Auðunn GK 400, Gylfi II
EA 350, Sraumnes ÍS 300, Arn-
firðingur RE 400, Hannes Haf-
stein EA 500, Sæþór ÓF 1000 og
Héðinn ÞH 200.
Forseti settur í em-
bætti á laugardag
HERRA Ásgeir Ásgeirsson tekur
á ný við forsetaembætti laugar-
daginn 1. ágúst n.k. Athöfnin
hefst í Dómkirkjunni klukkan
hálf-fjögur, en afhending kjör-
bréfs fer siðan fram í sal neðri
deildar Alþin,gis. Er kjörbréf
hefur verið afhent, mun forseti
koma fram á svalir þinghússins.
Þeir, sem ætla að vera við
kirkjuathöfnina, eru beðnir að
vera komnir í sæti fyrir klukkan
hálf-fjögur. í alþingishúsinu
rúmast ekki aðrir en boðsgestir.
Gjallarhornum verður komið
fyrir úti svo að menn geti fylgzt
með því, sem fram fer í kirkju og
þinghúsi. Lúðrasveit mun leika
á isturvelli.
(Frá forsætisréðuneytinu)
— Forsætis-
ráðherra
Framh. af bls. 1-
lendingadagsnefndar, en munu
síðan halda vestur að Kyrrahafs-
strönd í boði Þjóðræknisfélags-
ins og heimsækja byggðir Vestur-
íslendinga í Kanada, eftir því
sem við verður komið. Heimsókn
inni í Kanada Iýkur hinn 14.
ágúst.
Þá hefur forsætisráðherra þeg-
ið boð Lyndons B. Johnsons, for-
seta Bandaríkjanna, um að koma
í óformlega heimsókn til Was-
hington hinn 18. ágúst til við-
ræðna.
Ráðgert er, að þau hjón haldi
heimleiðis frá New York hinn 19.
ágúst með ms. Brúarfossi.
ATHUGIÐ
í Morgunblaðinu en öðrum
er langtum óýrara að auglýsa
að borið saman við útbreiðslu
blöðum.
— Um öræfi
Framhald af bls 10
smækkuð Þórsmörk, jökull-
inn inn af dalbotninum og
hlíðin vaxin kjarri öðru meg-
in. Þar hefðum við þurft að
eyða nokkrum dögum.“
„Viljið þér mæla með því,
að fólk feti í fótspor ykkar
á Hornströndum?“
„Já, svo sannarlega. Þetta
ætti að vera öllum fært, úr
því að ég komst það. Þó hugsa
ég, að það væri hentugra, að
vera fleiri saman, einkum
vegna byrðanna. Stóri draum-
urinn okkar Gunnars er að
fara í aðra ferð svipaða þess-
ari. Við erum ekki ennþa bú-
in að vinna úr öllum minnð-
ingum Hornstrandaferðarinn-
ar í huganum. Ég hef aldrei
óskað þess eins heitt að vera
pennafær og þegar við kom-
um heim úr þessari ferð. Hún
hefur orðið okkur ógleyman-
ieg. Og ekki var hún dýr, svo
að kostnaðurinn ætti ekki að
verða mörgum fjötur um fót.“
„Hittuð þið margt fóik á
Hornströndum? “
„Nei, á leið okkar var ekk-
ert byggt ból, nema Horn-
bjargsviti. Alls staðar í fjörð-
um og víkum standa auð hús.
Fyrir utan Jóhann Pétursson
og hans fólk, hittum við að-
eins einn mann, Bjarna Pét-
ursson, sem var að refaveið-
um í Hornvík. Hann hafði bú-
ið á Hesteyri og átti þar eyði-
býli. Bauð hann okkur gist-
ingu í húsi sínu síðustu nótt-
ina á Hornströndum. Daginn
eftir fórum við yfir til Aðal-
víkur og tókum okkur far
með báti, sem annaðist flutn-
inga þangað fyrir Bandaríkja-
mennina, sem þá dvöldust
þar.“
„Hvert farið þið næst?“
„Ég veit það ekki. Við eig-
um eftir að skoða hér í nám-
unda við Reykjavík, en þar
er einmitt ótæmandi náma
náttúrufegurðar. Ef fólk vildi
bara skilja bílinn sinn eftir
helgi og helgi. Það gæti tekið
börnin með sér og gengið á
fjöll eða fjörur. Þetta fer nú
kannski að koma úr því að
búið er að stofna „Stíflufé-
lagið“. Það er einkennilega
töfrandi að príla upp fjalls-
hlíðar og sjá alltaf meira og
meira, eftir því sem ofar dreg-
ur. Svo er maður forvitinn að
komast að því, hvað er hinum
megin. Og sannleikurinn er
sá, að það virðist ómögulegt
að fá sig fullsaddan af nátt-
úrufegurð, fremur en flestu
öðru í heiminum-“
— Johnson
Framhald af bls. 1.
hverri fjölskyldu í heiminum
— því að geislavirkt úrfall,
hversu lítið sem það kann að
vera, felur í sér hættu. Við
verðum að gera allt, sem í
okkar valdi stendur, til að
tryggja framtíð Bandaríkj-
anna.
Er fréttamenn beindu talinu
að kosningunum í haust, sagði
Johnson, að hann gæti enn
ekkert um það sagt, hver yrði
í framboði fyrir demokrata tU
varaforseta. Kvað hann það mál
vart til lykta leitt, fyrr en lands-
þing demokrata yrði haldið í
Atlantic City, 24. ágúst.
Einkaritari
Stúlka sem er fær í ensku, vön vélrUun og getur
unnið sjálfstætt, óskast til aðstoðar við rannsókna-
starfsemi. Laun 10 — 12 þúsund kr. á mánuði.
Tilboð iiieð mynd og upplýsingum um fyrri störf
sendist afgreiðslu Morgunblaðsins merkt:
„Einkarilari — 4234“.