Morgunblaðið - 14.08.1964, Page 1

Morgunblaðið - 14.08.1964, Page 1
24 síður 61 árgangnr 188. tbl. — Föstudagur 14. ágúst 1964 Þyrla írá varnarliSinu um kl. 20.30 í Þrengslaskarði, í gærkvöldi. — Hún bíður Ljósm. Sv. ásamt Þ. Iækni éftir fréttum af leitinni að týndu flugvélinni. Myndin er tekin Lítillar flugvélar saknað á leið frá Eyjum Einn maður í vélinni - Viðtækrí leit haldið áfram í nótt ÞEGAR blaðið fór í prentun í nótt stóð yfir umfangsmikil leit að flugvél frá Flugsýn, Cessnu 140, tveggja manna vél með einkennisstöfunum TF—AIH, sem lagði af stað frá Vestmannaeyjum kl. 14.55 í gærdag og áætlað var að lenda mundi á Reykjavíkurflugvelli kl. 15.50, en týndist á leið- ínni. Flugmaðurinn, Elmer Róbert Daníels, á þrítugsaldri, hafði farið til Vestmannaeyja á miðvikudag og hugðist skreppa til Surtseyjar að gamni sínu, varð veðurtepptur í Vestmannaeyjum, þangað til í gær vegna þoku. Hann er vanur flugmaður og hefur flogið víða um land og tók nú vél- ina á leigu til að skoða Surt. Fréttaritari Morgunblaðsins í Vestmannaeyjum segir, að hann hafi unað því heldur illa að vera veðurtepptur í Eyjum og haft orð á því að hann þyrfti að komast til Reykjavíkur sem fyrst, og brá hann skjótt við, þegar hanii fékk leyfi til að leggja af stað í gær- dag. Þá var veður gott í Eyjum, en á leiðinni lenti hann í þoku, radíósamband slitnaði við vélina og hefur ekkert til hennar spurzt síðan menn urðu varir við hana skammt frá Þrengslaveginum. Það var um fjögur leytið í gær. (Sjá frásögn annars staðar í blaðinu). Erfið skilyrði til leitar Morgunblaðið spurði Arnór Hjálmarsson, yfirfluigumferða- etjóra hjá Flugumferðastjórninni Nýlt rússnesbt geimfar? Enköping, Svíþjóð, 13. ág. AP Sérfræðingar í Sviiþjóð og Finnlandi segja að Rússar muni sennilega senda mannað geimfar á loft mjöig bráðlega, og ber þeim saman við orðróm sem gengið hefur um Moskvu undanfarið. Segja sérfræðing- arnir að óvenju mi’kið hafi verið um fjarskiptasendingar í gær á bylgjulengdum, sem rússneskir geimfarar nota, en slíkar sendingar séu ja.fnan undanfari nýrra geimskota. | sem hefur umsjón með leitinni, hvernig henni hefði verið hagað. Hann sagði, að á miðnætti hefði verið búið að leita allt leitar- svæðið eins og hægt var, en vegna slæmra s'kilyrða var leit erfið og ónákvæm. Frá því leitin hófst var skyggni ekki nema 20 metrar, en 50 metra skyggni mun hafa verið um þær mundir sem vélin var á sveimi yfir Þrengsla- veginum. Leitarsvæðið í gær og nótt var frá Sandskeiði, Bláfjöll Heiðin há, Ölfusið, Kambabrún og hringnum lokað á Hellisheiði Ennfremur fór flokikur leitar- manna úr Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði um Krísuvík,urleið- ina að Hlíðardalsskóla, en á þeirri leið var ekki leitað í hlíðum og hæðum fyrr en komið var rétt sunnan undir Heiðina háu, það- an voru hlíðar þræddar alla leið niður á Þrengslaveginn. Á þess- uan slóðum var einnig 15 manna flokikur frá Fiugbjörgunarsveit- inni. Leitarflokkur frá Selfossi fór um ölfusið, 15 manna sveit úr Hjálparsveit skáta í Hafnar- firði leitaði ásamt 7 manna flokki úr Flugbjörgunarsveitinni á Skálafellinu og var Úlfar Þórðar son læknir í þeim hópi, en Kjart- an Magnússon læknir var í þyrlu varnarliðsins sem beið átekta við Þrengslaveginn, því ekki var viðlit. að nota hana til leit- ar eins og aðstæður voru. Þá fór einnig floklmr úr Flugbjörgunar sveitinni um Þrengslaveginn að Sandfelli og enn annar leitaði á Lambafel'li til Bláfjalla, Slysa- varnarfélagsmenn leituðu í Krosisfjöllum og Geitafelli. Brunalykt við Hlíðardalsskóla Þegar flugvélin var ekki kom- in fram á tilsettum tíma, flaug Sverrir Jónsson, skólastjóri Flug sýnar austur og hugðist reyna að Framhald á bls. 2 Prentsmiðja Morgunblaðsiiu Uppreisnar menn á undanhaldi í Kongó Elisabethville, Kongó, 13. ágúst (AP-NTB) UPPREISN ARMENN í Kongó virðast nú vera á undanhaldi á flestum víg-stöðvum. 1 fréttum, sem bárust í dag til Elisabeth- ville segir að sveitir uppreisnar- manna séu að undirbúa brott- flutning hersveita sinna frá Al- bertville, höfuðborg Norður- Katanga héraðs. Einnig bárust fréttir um það í dag að uppreisn armenn hafi þegar yfirgefið borgina Kabalo, um 400 kíló- metrum fyrir vestan Albertville, en borg þessa tóku uppreisnar- menn fyrir rúmum mánuði. Þá hafa borizt fregnir til Leopold- ville þess efnis að stjórnarher- inn hafi hrakið sveitir uppreisn armanna á flótta I grennd við bænn Bukavn. Þar hefur stjórn- arherinn beitt flugvélum af gerð inni T-28, sem fengnar eru frá Bandarikjunum. Uppreisnarmenn hafa haft Al- bertville á sinu valdi frá því í júníbyrjun, og er ekki vitað hversvegna þeir búa sig nú und ir að yfirgefa borgina. Segir innanrikisráðherra Austur-Ka- tanga, Alexis Kishiba, að upp- reisnarmenn hafi komið fram af mikilli grimmd gagnvart ka- þólskum trúboðum og öðrum evrópskum mönnum í Albet- Framhald.á bls. 2 Grikkir neita samningaviðræðum við I Tyrki um Kýpur Ankara og Aþenu, 13. ágúst. — (AP-NTB) — TYRKNESKA stjórnin lýsti því yfir í dag að hætti ekki gríska stjórnin takmarkalaus- um stuðningi sínum við Mak- arios erkibiskup á Kýpur, geti svo farið að 12 þúsund grísk- ættuðum íbúum Tyrklands verði vísað úr landi. Gríska stjórnin tilkynnti í kvöld að hún gæti ekki fallizt á tilmæli Inonu, forsætisráð- herra Tyrkja, um beinar samn ingaviðræður til að leysa deil- una um Kýpur. Telur stjórn- in að allar samningatilraunir eigi að gera á vegum Samein- uðu þjóðanna. Thimayya hershöfðingi, yf- irmaður herliðs SÞ á Kýpur, kom í dag til Kokkina á norð- Framhald á bls. 23. Makarios erkibiskup, forseti Kýpur, í heimsókn hjá einum þeirra manna, sem særðust i ioftárás tyrkneskra flugvéla á þorp- ið Polis binn 9. þ. m.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.