Morgunblaðið - 14.08.1964, Side 13

Morgunblaðið - 14.08.1964, Side 13
Föstudagur 14. ágúst 1964 ^ MORGUNBLAÐIÐ 13 EINS og frá hefir verið skýrt i ýtarlegum fréttum og grein- um hér í blaðinu var hátíð- legt haldið 75 ára afmæli Bændaskólans á Hvanneyri um síðustu helgi. Þegar hefir verið birt setningarræða skóla stjórans og aðalræða dagsins, - Hvanneyrarstaður eins og hann er i dag Almenn menntun land- búnaðarmanna fari fram ■ landinu sfálfu Ræður Péturs Ottesens og Ásgeirs Péturssonar á 75 ára afmæli Bændaskólans á Hvanneyri sem landbúnaðarráðherra flutti. AÍS sjálfsögðu notuðu ræðumenn tækifærið til að fjalla um mörg veigamestu málin, sem efst eru á baugi í íslenzkum landbúnaði. Það er því fróðlegt fyrir lesendur Mbl. að fá að lesa ræðurnar. Blaðið hefir fengið leyfi þeirra Péturs Ottesen, fyrrv. alþingismanns og Asgeirs ■ Péturssonar sýslumanns til að birta ræður þeirra í lieild og fara þær hér á eftir: Ræða Péturs Ottesen „Vér sem erum saman komin á Hvanneyri í dag erum stödd á merku höfuðbóli í sögu þjóðar vorrar. Kemur 'þar margt til og þó einkum það, að hér er höfuð- setur búvísinda í landi voru. í sjötíiT'og fimm ár, eða þrjá fjórðunga' úr öld, hafa íslending- ar sótt hingað að Hvanneyri fræðslu og þekkingu í landbún- eðarfræðum. Sú raunsæa fræðsla og þekking, sem streymt hefir út um allar byggðir þessa lands hef- ir reynzt þjóðinni svo haldgóð og‘ farsæl, að oss hefir, á þessu tímabili auðnast að reisa þjóðlíf vort á landbúnaðarsviðinu úr frumstæðri örbyrgðartilveru á það svið tækniþróunar, sem gjör- breytt hefir viðhorfi voru til hag- oýtingar allra landsins gæða. í ljósi þess lærdóms, sem oss hefir fallið í skaut á Hvanneyri og öðrum menntasetrum land- búnaðarins, horfum vér íslend- ingar haukfránum augum til framtíðar þjóðar vorrar. Við sjónum vorum blasir hin mikla víðátta lands vors, hið mikla landrými og ónumda land sem breiðir faðminn á móti oss. Nú er oss ljóst að þessar að- stæður eru hinn vígði þáttur í framtíðarlífi og starfi þjóðar vorrar. Nú vitum vér með fullri 7Íssu og til hlítar að hvern fer- pumlung af gróðurlandi, sem liggur neðan vlð hin eiginlegu jróðurmörk, getum vér ræktað Bæði til fóðuröflunar og beitar »f vild vorri. Með hverju árinu sem líður eykst þekking vor á landþurrkun, sem víða er undir- Btaða ræktunarinnar. Sama máli gegnir með hin blásnu og beru landsvæðL Nú er oss það leikur | eum að breyta rjúkandi foksands I breiðum í blómlegt og frjósamt gr.óðurlendi. Slíkur er máttur fræðslu og þekkingar. Búpenings- j x-æktun vor er á hröðu framfara- j skeiði, en þó ekki nema svipur hjá sjón hjá því sem verður í fyllingu tímans, þegar sókn sú, j sem nú er hafin í ræktuninni héf- | ir náð lengra fram og búið hefir verið betur í haginn fyrir þann mikla gróðurmátt, sem fólginn er í hinum frjóa moldarjarðvegi lands vors. Hætta af grasbresti, er oft og löngum var mikill skað- valdur landbúnaðinum og ógnaði oft lífsafkomu þjóðarinnar, er nú víða vegna sívaxandi þekkingar í ræktunarmálum og tilkomu nýrra áburðartegunda úr sögunni og kalhættunni er einnig bægt frá bæjardyrum vorum með ræktun þolnari grasstofna eins og röggsamlega er að unnið hér á Hvanneyri. Hvarvetna, hvert sem litið er, standa oss fyrir sjónum ný viðhorf á verklegu Asgeir Pétursson, sýslumaður. sviði í landbúnaði vorum, við- horf sem öll eru til þess fallin að auka og glæða trú vora og bjartsýni. Engan veginn skulum vér láta það raska ró vorri og stillingu, þótt margt komi á dag- inn við þá gjörbreytingu í land- búnaðinum, - að í stað þess að byggja allt á handaflinu 'einu og beitingu lélegra og frumstæðra áhalda, komi vélvæðingin til sög- unnar. Það skal taka hug vorn ailan að hér er vissulega til batn-, aðar breytt, hér erum vér á sig Urgöngu. Manndómur vor og menning hefir með þessu fengið þann vind í seglin er tryggir þjóð vorri farsæla framtíð og eykur hróður hennar út á við og inn á við. Enn stöndum vér nokkuð höllum fæti um hagnýtingu hey- fóðurs, að verja heyið skemmd- um í langvarandi votviðrum. En þetta er einungis tímaspursmál. Súgþurrkun og votheýsgerð er úr bót en ekkert endamark til lausn- ar á þessu vandamáli. Lausnin er heyþurrkunarstöð á hverju heimili, þar sem heyið eins og það kemur af Ijánum er látið inn í annan enda þurrkarans, en Pétur Ottesen, fyrrv. alþingis- maður. kemur svo þurrt út úr hinum og að því loknu blásið inn í hlöðu. Þetta mál er ekki enn leyst frá kostnaðarins hlið, tæknilega er þetta auðvelt. En við getum ver- ið viss um það, að hugvitið og tæknin, sem nú er að verða alls ráðandi, muni áður en langt um líður leysa þetta og gera þetta kleift kostnaðar vegna. En þá er stóru og gildisríku takmarki náð í íslenzkum landbúnaði. Þá skyld um vér eigi láta okkur yfirsjást um það hve mikil auðlegð er fólg in í jarðhitanum, sem víða í landi voru streymir upp úr iðrum jarð- ar. Sú auðlegð er ekki tengd landbúnaðinum einum. Þar njóta fleiri góðs af. Reykjavík er eini bærinn í víðri veröld, sem hitað- ur er upp með jarðhita. En hlut- ur landbúnaðarins er þar eigi að síður stór. Gróðurhúsastarfsem- inni hefir vaxið ásmegin hin síð- ari ár. Enn sem komið er, er framleiðslan eigi umfram það sem notað er í landinu sjálfu. En þess er ekki langt að bíða að útflutningur hefjist. Útflutning- ur á skrautblómum er á næsta leiti og það allan ársins hring, einkum þó að vgtrarlagi, því vönt un á sólarljósi á þeim árstíma verður bætt upp með jafngildri birtu, sem framleidd er við raf- magn. Skammdegið getur orðið engu síður en sólarmánuðirnir, dýrðartími gróðurhúsastarfsem- innar. Svona má lengi telja, því það er fjölmargt sem stefnir rak- leitt til vaxtar og þroska í ís- lenzkum landbúnaði. En minnast skyldum vér þess æ og ævinlega í sambandi við hugleiðingar vorar Um landbún- aðinn og framkvæmdir á því sviði, að jjekking er máttur. Það hefir reynsían sýnt okkur eins og að er vikið í upphafi þessara orða minna. Hér dugir ekki brjóst vitið eitt þótt mikilsvert sé og enginn skyldi lítið úr því gera. Vísindi og þekking í hverju við- fangsefni er óhjákvæmileg, ekki sízt að því er tekur til landbún- aðarrekstrar. Vísindin er sameign allra þjóða. Frjósemi uppfinn- inga, nýsköpunar og tækniþróun- ar, er skiljanlega mest að vöxt- um í fjölmenninu í heiminum. En allir njóta þar góðs af. Vér ís- lendingar erum þar ekkert utan garðs eins og reynslan sýnir. En þess skyldum vér gæta gaumgæfilega að samhæfa þau vísindi, er oss berast erlendis frá þeim verkefnum, sem vér ætlum að beita þeim að. Á þetta ekki sízt við um landbúnaðinn. Það á ekki hið sama við hér og víða annars staðar, svo að niður- stöður sem fengizt hafa við aðr- ar og ólíkar aðstæður, eru ekki raunhæfar til þess að byggja á hér. Hér verðum vér því að vinna að slíkum tilraunum á sjálf stæðan hátt. Öll málefnaleg rök hníga að því að slíkt sé gert á sveitasetri í skauti grósku og gróðurs í víðfeðmi sveitabyggða vorra. Hér á Hvanneyri er þróunin á tilraunum og búvísindum, sem byggð eru á þeim, lengst á veg komin á landi hér. Hér eru starf- ræktar árlega merkilegar gras- ræktar- og áburðartilraunir, sem leitt hafa i ljós merkar bending- ar um hvað oss henti bezt í þeim efnum. Hér hefir verið stofnuð og starfrækt nú um nokkurt ára- bil framhaldsdeild, vísir að bún- aðarháskóla, sem búnaðarþing hefir gert ályktun um að hér yrði stofnsettur. Nú hefur landbúnaðarráðherra gefið merka yfirlýsingu um auk- ið fjárframlag til starfseminnar á Hvanneyri, sem reynast mun sterkur þáttur í því áð efla bú- vísindi hér og stuðla að vexti og þróun framhaldsdeildarinnar, og að allt þetta verði til þess að veita brautargengi því, sem fram kemur í samþykkt búnaðarþings ins, að á Hvanneyri rísi upp í fyllingu tímans búnaðarháskóli. Bændaskólinn á Hvanneyri hef- ir reynzt mikil þjóðnytjastofnun. En á búvísindasviðinu eru"enn stærri verkefni fram undan en nokkru sinni fyrr. Framþróunin tekur engan enda. Þar fara í fylk ingu ný og ný viðhorf, sem þarf að íklæða holdi og blóði raun- veruleikans. Það er .höfuðnauð- syn þjóð vorri að landbúnaðar- fi-æðslan og búvísindastarfsemin skipi jafnan veglegan sess i skóla og fræðslukerfi voru. Að lokum þetta. Það er rótgróin sannfæring mín að landbúnaðurinn hafi öll skilyrði til þess að gegna for- ystuhlutverki með þjóð vorri, verða sá burðarás í þjóðlífi voru, sem stærstu hlassi veltir, höfuð atvinnuvegur vor og upþspretta auðs og farsældar í landi voru. Það er því vissulega ánægju- legt og þroskavænlegt að vera ungur maður á íslandi í dag.“ Ræða Ásgeirs Péturssonar „Á þessum merku tímamótum í sögu bændaskólans á Hvann- eyri vil ég- af hálfu íbúa í Borg- arfjarðarhéraði, færa skólastjóra, kennurum og öðru starfsliði skól- ans, svo og nemendum og öllum velunnurum hans, árnaðaróskir og þakkir fyrir þjóðnýt störf, sem þetta hérað hefur ekki sízt notið góðs af, sökum náinna tengsla og nærvistar skólans hér í Borgarfirði. Þáttur sýslunefndar Borgar- fjarðarsýslu í stofnun búnaðar- skóla á Hvanneyri var sá, að vafa samt er að hér hefði nokkurn tíma risið upp þessi stofnun, ef forgöngu sýslunefndarinnar hefði ekki notið við. Það var hinn 16. júlí 1885, að sýslunefndin sam- þykkti að kaupa jörðina Hvann- eyri í því skyni, að koma þar upp bændaskóla. Fyrir þetta frumkvæði erum við þakklát öll- um þeim Borgfirðingum, sem annað hvort áttu sæti í sýslu- nefndinni, eða studdu að fram- gang'i málsins á annan hátt. Þeir eru nú allir látnir, en minning þeirra er heiðruð á þessum bjarta degi. Um þær mundir, sem þessi skóli tók til starfa, voru flestir þættir þjóðlífs okkar, þó einkum atvinnulífs, rrieð svipuðum hætti og verið hafði óbreytt öldum sam an, - í þessu landi. Tekið var þó að morgna í frelsisbaráttu þjóð- arinnar, undir forystu Jóns Sig- urðssonar forseta. Hann gerði sér glögga grein fyrir því, að skil- yrði þess að þjóðin gæti náð fullu frelsi og sjálfstæði, voru m.a. þau, að efla atvinnulíf og efnahagslega afkomu lands- manna, sem þá var vissulega bág borin. Hann sá og skyldi, að án efnahagslegs sjálfstæðis, var von lítið að stjórnmálalegt sjálfstæði næðist, eða fengi staðizt til lengd ar. Svo framsýnn var forsetinn og áhuginn brennamdi á umbót- um, að hann skrifaði sjálfur m.a. tvær bækur um atvinnumál. Önnur þeirrá heitir „Lítil varn- ingsbók" handa bændum og bú- mönnum á íslandi. Kom hún út á árinu 1861. Það er engum vafa undirorp- ið að þessi bók hefur vakið marga til umhugsunar um að nauðsyn væri að hrista hlekkina. Hún hefur glætt skilning manna á því að undanfari stjórnmála- legs sjálfstæðis, hlaut að vera efnalegt sjálfstæði. Þau orð, sem Jón Sigurðsson ritaði um þessi efni fyrir rúmum 100 árum, eiga við enn í dag og eru jafn sönn. og tímabær nú og þau voru þá. Hann segir m.a.: „Jörðin verður þá aðeins fögur og nytsöm eign, þegar hún verður gjörð sein Framhald á bls 15.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.