Morgunblaðið - 17.09.1964, Side 15

Morgunblaðið - 17.09.1964, Side 15
Fimmludagur 17. sept. 1964 MORGU NBLAÐIÐ 15 — Minnisblöð Framhald af bls. 10. verkalýðsstéttin getur tek- ið völdin í þjóðfélagi sem hefur ekki breytt um bongaralegt eðli sitt og þá hvort hægt sé að breyta smám saman því eðli með baráttu innanfrá. f löndum þar sem kommúnistahreyf ingin er orðin öflug, eins og hjá okkur (eða í Frakk- landi), er þetta mál mál- anna í allri hinni pólitísku baráttu. Af því leiðir auð- vitað aukna róttækni þess- arar baráttu og undir henni mun svo aftur kom- in vígstaða okkar síðar“. Fólitisk mistök og Stalín í lok minnisblaðanna ræðir Togliatti tengsl kommúnista við nýlendur og nýfrjáls lönd. Segir hann, að hafa eigi samvinnu ekki aðeins við kommúnistaflokka í þessum löndum, heldur einnig við „framfaraöfl“ til þess að koma sér saman um ákveðna stefnuskrá til leiðsagnar í bar áttunni gegn „heimsvalda- sinnum". Að lokum er svo íjallað um vandamálin í kommúnistaríkjunum og Btalín. Orð hans um þau atriði eru athyglisverð því að hann var sá maður utan Sovétríkjanna, sem var hvað mestur sam- starfsmaður Stalíns og vinur. Hann var einnig mikill ráða- maður í alþjóðahreyfingu kommúnista, Komintern. Honum þykir Krúsjev oig rússneskir kommúnistar ekki enn hafa leyst vandamálið vegna Stalíns og harðstjórnar hans. Um það segir Togliatti: „Þess er ekki að dyljast að gagnrýnin á Stalín hef- ur skilið eftir alldjúp spor. Einna alvarlegast er í því sambandi að mönnum, einnig þeim sem standa okkur nærri hættir til að taka af tortryggni fréttum af nýjum efnahaigslegum eða pólitískum ávinning- um. Auk þess verður að álíta að enn hafi ekki verið ráðinn sá vandi, hver voru upptök Stalínsdýrkunar- innar og hvernig hún gat komið upp. Það er ekki hægt að fallast á þá skýr- ingu að allt hafi það staf- að af persónulegum göll- um Stalíns. Reynt er að grafast fyrir um hver hafi getað verið þau pólitísku mistök sem áttu sinn þátt í upphafi dýrkunarinnar. Um þetta fjalla saignfræð- ingar og reyndir forvígis- menn flokksins. Við letj- um þá ekki, vegha þess að þetta leiðir af sér dýpri skilning á sögu byltihgar- innar og erfiðleikum henn- ar. En við ráðleggjum þeim að vera varfærnir í dómum og að fylgjast með því sem birt er og þeim rannsóknum sem gerðar eru í Sovétríkjun- um. En vandamálið sem okk- ur varðar mestu í dag þeg- ar Sovétríkin og önnur lönd sósíalismans eiga í . hlut er hvernig sigrazt verður á því stjórnarfari réttindaskerðingar og af- náms á lýðfrelsi og al- jnennum mannréttindum sem Stalín kom á. Það er ekki sömu sögu að segja frá öllum sósíalistísku ríkj unum. Þegar á heildina er litið fær maður hugboð um seinagang og viðnám gegn afturhvarfi til hinnar lenínsku aðferðar, sem tryggir mönnum skoðana- írelsi bæði innan flokks ©g utan, ekki aðeins á sviði menningar og lista, held- ur einnig um stjórnmál. Við eigum erfitt með að skilja þennan seinagantg ©g þetta viðnám, einkum eins og nú horfir, þegar ekki er lengur um að ræða umsát auðvaldsríkjanna og hinir stórfenglegustu sigrar hafa unnizt í uppbyiggingu efnahagslífs- ins“. Þessi minnisblöð hins látna kommúnistaleiðtoga eru mjög athyglisverð og varpa Ijósi á vandamál og stefnu komm- únistaflokkanna um þessar mundir. Ekki er síður at- hyglisverð birting minnis- blaðanna í Pravda og birting „Þjóðviljans“ á þeim daginn eftir. Þegar L’Unitá, blað ítalskra kommúnista birti minnisblöðin, þá var það í óþökk Rússa og raunveruleg uppreisnartilraun. Þegar Pravda birtir minnisblöð- in, þá hefur Kreml gefið linuna um minnisblöðin og höfuðinntak þeirra. „Þjóð- viljinn" birtir þau því óðar og línan frá Kreml hefur ver- ið gefin. Vandamál kommúnista hafa aukizt mjög við - deilur Moskvu og Peking. Það er gegn þessum klofningi, sem Togliatti er að mæla öðrum þræði. Stefna hans er sjálf- stæði kommúnistaflokkanna í borgaralegu þjóðfélagi. Hin erlenda yfirstjórn sé þeim fjötur um fót og einangri þá. Það er þó athyglisvert, að á sama tíma og kommúnista- flokkar Vestur-Evrópu krefj- ast aukins sjálfstæðis frá Moskvu, þá eru yfirráð Moskvu yfir kommúnistum á íslandi áréttuð o,g auglýst, en það hefur ekki verið á yfir- borðinu í mörg ár. Frá gagnfræðaskólum Reykjavíkur Nemendur mæti í skólunum föstudaginn 18. þ.m., kl. 3—6 síðdegis, til skráningar (1. og 2. bekkur) og til staðfestingar umsóknum sínum (3. og 4. bekkur). 1. bekkur. Skólahverfin verða hin sömu og s.l. vetur. 2. bekkur. Nemendur mæti hver í sínum skóla. 3. bekkur. LANDSPRÓFSDEILDIR: Þeir sem luku unglingaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar, Hagaskóla, Vogaskóla og Réttarholtsskóla, mæti hver í sínum skóla. Nemendur frá Lindargötu- skóla komi í Gagnfræðaskóla Austurbæjar, en nem- endur frá Langholtsskóla í Vogaskóla. Aðrir, er sótt hafa um landsprófsdeild, komi í Gagnfræðaskóla Vestur urb^æjar við Vonarstræti. 3. bekkur ALMENNAR DEILDIR: Nemendur mæti hver í sínum skóla, með eftirtöldum undantekningum: Nemendur frá Laugarnesskóla komi í Gagnfræðaskólann við Lindargötu. Nemendur frá Mið- bæjarskóla í Gagnfræðaskóla Austurbæjar og nem- endur frá Langholtsskóla komi í Vogaskóla. 3. bekkur VERZLUNARDEILDIR: Nemendur frá Miðbæjarskóla og Laugarnesskóla komi í Gagnfræðaskólann við Lindargötu. Nemendur frá Langholtsskóla komi í Vogaskóla. Aðrir umsækj- endur um verzlunardeild mæti þar, sem þeir luku unglingaprófi. 3. bekkur FRAMIIALDSDEILDIR: Framhaldsdeildir munu starfa við Vogaskóla og Gagn fræðaskólann við Lindargötu. Umsækjendur mæti þar, sem þeir hafa fengið loforð um skólavist. 3. bekkur VERKNÁMSDEILDIR: Hússtjórnardeild: Umsækjendur komi í Gagnfræða- skólann við Lindargötu. Sauma- og vefnaðardeild: í Gagnfræðaskólann við Lindargötu komi umsækjendur, er unglingaprófi luku frá þeim skóla og frá Miðbæjarskóla. Aðrir umsækj- endur, um sauma- og vefnaðardeild komi í Gagnfræða- skóla verknáms Brautarholti 18. Trésmíðadeild: Umsækjendur mæti í Gagnfræða- skóla verknáms. . .Járnsmíða- og vélvirkjadeild: Umsækjendur mæti í Gagnfræðaskóla verknáms. Sjóvinnudeild: Umsækjendur komi í Gagnfræðaskól- ann við Lindargötu. Umsækjendur 3. bekkjar liafi með sér prófsskírteini. 4. bekkur: Umsækjendur mæti þar, sem þeir hafa fengið skóla- vist. Nauðsynlegt er, að nemendur mæti eða einhver fyrir þeirra hönd, annars eiga þeir á hættu að missa af skólavist. Fræðslustjórinn í Reykjavík. Sendill Drengur eða stúlka óskast til sendistarfa. — Upp- lýsingar veittar á skrifstofunni, Vesturgötu 17. Engar uppl. veittar í síma. Vinnufatagerð íslands hf. REYKJAVÍK. Sendisveinn óskast strax hálfan daginn. Olíufél. Skeljungur hf. Suðurlandsbraut 4. VDNDUÐ II FALLEG ÖDYR U öiqurþórjónsscm &co ^ Jldflkltytinli >t Semjið við okkur um kaup á VARMA-plast einangrunarplötum og pípuplasti á íbúðina. VARMA VERKSMIBJAN Röðu// V v r-rr rrrrrrr. •. • r. s »»(««. v <■ ’ s\v.w. % PLASTEINANGRUN á vcggi og pípur. ARMA PLAST SðluumboS: P. ÞORGRÍMSSON & CO. - SuSurlandibraut 6 . Simi *>9*K, AfKreUSala á plasti úr vorufeynulunni Suðurlaudsbrcut (. HELGA og BARRY WICKS ★ Eyþór er kominn aftur, og skemmtiir í kvöld með nýja hljómsveit ásamt grínlistamönnunum Helgu og Barry Wicks. — Söngkona er Didde Sveins. Matur framreiddur frá kl. 7. — Sími 15327.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.