Morgunblaðið - 29.01.1965, Side 22
MORCU N**iAO/Ð
Föstudagur 29. janúar 196S
«o
4L>£-,
Mdðir keypti son
sinn á 4 þús. pund
Einsdæmi i enskri knattspyrnu
í fyrsta sinn í sögu enskrar
knattspyrnu hefur það skeð að
leikmaður hefur verið seldur
sinni eigin móður. Á miðviku-
dag samdi enska 2. deldar ’iðið
Charlton að samningi um að
selja S-Afríkumanninn Cliff
Durandt — og kaupandinn er
móðir Cliffs.
Mamman, sem heitir frú Letty
Durant, kom fyrir þremur vik-
um til Lundúna í því eina
markmiði að fá son sinn heim
til að starfa við fyrirtæki æbtar-
innar. En sá var galli á giötf
Njarðar að sonurinn hafði und-
irritað atvinnusamning við Char-
lon-liðið sem gilti til ákveðins
tíma — og þar að auki „átti“
félagið sölurétt á drengnum er
samningurinn rynni út. Þetta
eru ekki aðrar regiur en gidda
um hvern þann er gengur at-
vinnumennsku í knattspyrnu á
hönd.
Forráðamenn Charl'bn sögðu
gömlu konunni, að þeir vildu
ekki láta Ciiff af hendi nema
hún greiddi ákveðna peninga-
upphæð til félagsins. Upphatf-
lega krafðist félagið 5000 sterl-
ingspunda eða um 600 þús. ístt.
kr.
Þegar símað var heim til
„pabba gamla“ í S-Afríku
fannst honum þetta heldur mik-
ið fé og þá byrjaði þrasið um
greiðsluna.
í gær voru gerðir samningar
og var endanleg greiðsla gömiu
kommnar fyrir að fá soninn
heim til að reka fyrirtækið 4
þúsund sterlingspumd eða um
480 þús. krónur.
Skíðaferðir og
S km lantís-
gangan
SKÍÐAFERÐIR um helgina
verða á laugardag kl. 2 og kl. 6
og á sunnudag kl. 10 og kl. 1.
Á sunnudaginn verður hægt að
ganga 5 km skíðalandsgönguna á
5 stöðum eða í Jósefsdal, við
Skála ÍR í Hamragili, við skála
KR í Skálafejli, við ÍK skálann
í Skálafelli og við Skíðaskálann
í Hveradölum.
Firmakeppni skíða-
manna á sunnudag
30 f&rrrni keppa til úrslita
FIRMAKEPPNI Skíðaráðs
Reykjavíkur 1965 fer fram næsta
sunnudag 31. janúar í Hamm-
gili við ÍR-skálann. Keppni hefst
kl. 1.30, en keppendur mæti fyrir
hádegi. Skíðadeild ÍR annast
Knattspyrnu-
stjörnur d
Adamsklælum
i
ÞAÐ ER víða, sem hneykslin
gerast. Nú síðast fóru hinir
frægu knattspyrnumenn enska
liðsins Everton frá Liverpool yf
ir mörg mörk velsæmisins — og
var fleygt út af gistihúsi er þeir
höfðu flutzt inn í í Leeds. Ever-
ton og Leeds eiga að mætast í 4.
umferð ensku bikarkeppninnar á
laugardaginn en komu til Leeds
þegar á miðvikudag.
Og hlutverk sitt á laugardag
inn tóku leikmenn alvarlega. Þeir
hófu um kl. 2:30 um nóttina, að
kasta stólum gistihússins út um
glugga og aðrir innanstokksmun
ir margir hverjir fóru sömu leið.
Var þó lítt hafzt að af hálfu gisti
hússins um sinn. En þegar ganga
stúlkurnar tóku að kvarta yfir
því að leikmennirnir gengju á
Adamsklæðum um húsið, þá
þótti gistihússtjóranum nóg kom
ið og lét fleygja öllum stjörnun
um út. — (NTB).
framkvæmd mótsins. Bílferðir
verða frá B.S.R. kl. 10 og kl. 1
á sunnudaginn. Öll fyrirtæki,
sem styðja Skíðaráð Reykjavíkur
í keppni þessari eru boðin að
korna á mótsstað. Sameiginleg
kaffidrykkja með umboðsmönn-
um fyrirtækjanna, keppendum
og starfsmönnum verður í lR-
skálanum að keppni lokinni. Þar
sem erfitt er að ná til allra fyrir-
tækjanna vonast Skíðaráðið til
að fyrirtækin taki boð þetta gilt
hér. Um 100 fyrirtæki hafa verið
með í undanrásinni, sem farið
hefur fram við skála félaganna.
f úrslitakeppninni á sunnudag-
inn eru 30 firma. 12 verðlaun
(farandgikarar) verða veitt, og
fer verðlaunaafhendingin fram
við kaffidrykkjuna í skálanum
eftir keppni. Skíðaráð Reykja-
víkur þakkar öllum þeim, er
styrkt hafa starfsemi ráðsins.
Leðurverzlun Jóns Brynjólfs-
sonar(Ásgeir Úlfarsson, KR);
L. H. Múller (Valdimar Örnólfs-
son, ÍR) Korkiðjan (Asgeir
Christiansen, VÍK); Gufubað-
stofa v..Kvisthaga (Arnór Sig-
urðsson Á.); Skósalan (Theódór
Blöndahl, KR); Sælgætisgerðin
Víkingur (Eyþór Haraldsson, ÍR)
Heildverzlun Bjarna Björnssonar
(Guðmundur Ingólfsson. Á);
Nesti hf (Hinrik Hermannsson,
KR); ölgerðin Egill Skallagríms-
son (Þorbergur Eysteinsson, ÍR;
Herradeild P.Ó. (Björn Ólafsson,
VÍK); Jöklar hf (Sigurjón Guð-
jónsson, Á.); Austurbæjarbíó
(Einar Þorkelsson, KR); Otto A.
| Skytturnar hafa tekið ser stöðu. Efst t. h. situr hjá eina konan er þátt tók í keppninni. Hún skaut
[ þremur skotum, slökkti á kerti í einu, klauf spil í öðru en misnotaði eitt. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Slökkt á kertum og spil klofin
meö byssukúlu að Hálogalandi
SKOTFÉLAG Reykjavíkur
heldur uppi félagsstarfsemi
sinni vetur sem sumar. Að
vetrarlagi er æft að Háloga-
landi en á sumrin eru æfing-
ar ög kennsla í meðferð skot-
vopna og skotreglna á svæði
félagsins við Hamrahlíð.
Skotfélagsmenn efna til
margvíslegra æfingamóta og
bregða þá á leik á hinn
skemmtilegasta hátt. Ein slík
Hér er skotstjóri keppninnar,
Leo Schmidt, með tvö spilanna,
sem skytturnar hafa klofið.
Michaelsen (Helgi Axelsson, ÍR) ;
Tinaburverzl. Völundur (Magnús
Jónsson, VÍK.); Almenna verzl-
unarfélagið (Tómas Jónsson, Á);
Sveinn Björnsson (Gunnlaugur
Sigurðsson, KR); Dagblaðið Tím-
inn (Sigurður Einarsson, ÍR);
Síld & Fiskur (Þorsteinn Ás-
geirsson, Á); Hydrel hf (Einar
Gunnlaugsson, KR); Eggert
Kristjánsson hf (Þórir Lárusson,
ÍR); Bæjarleiðir sf (Bergur Ei-
ríksson, Á); Byggingarvöruverzl.
Isleifs Jónssonar (Ólafur Níels-
son, KR); Steinvör hf (Guðni
Sigfússon, ÍR); Skeljungur hf
(Örn Kjemested, Á); Sjóklæða-
gerð íslands (Bogi Nilsson, KR);
Eimskipafélag Lslands hf (Björn
Bjarnason,ÍR); Heildverzlun Rolf
Johansen (Bjarni Einarsson, Á.);
Skóverzlun Péturs Andréssonar
(Hilmar Steingrímsson, KR);
Verzlunin Sport (Þórður Sigur-
jónsson, iR); Einar J. Skúlason
(Georg Guðjónsson,Á).
keppni var haldin í fyrra-
kvöld að Hálogalandi og var
jafnframt til örlítillar fjáröfl
unar fyrir félagið.
Takmarkið var að slökkva
á logandi kerti með einni
byssukúlu og mátti þó ekki
skemma kertið á neinn hátt.
Ef svo fór kom 5 kr. sekt til.
Þetta tókst skotmönnunum
misjafnlega en sumir voru
næsta lagnir við verkefnið.
Önnur þraut var sú að spil-
um var stilt upp þannig, að
röndin sneri að skotmönnun
um. Voru þeir í 20 m fjar-
lægð og var þá illt að sjá rönd
ina. En á bakvið var skot-
skífa, venjuleg, með svörtum
punkti og sá sem. hitti hann
örugglega hitti í rönd spils-
ins, sem klofnaði við skotið.
Þetta tókst mörgum einnig á-
gætlega en allmörg voru einn
ig hin misheppnuðu skot.
Ein kona var með í keppn-
inni og stóð hún sig með mestu
prýði.
Margir hafa áhuga á skot-
fimi. Hún reynir ekki mikið á
líkamlegt þrek, en þeim mun
meir á einbeitingu, ákveðni og
sjálfsaga. Starf Skotfélagsins
hefur alltaf verið með allmikl
um blóma og vart fleiri komist
Spilunum stillt upp þannig, að
þau snúa rönd aö skyttunum,
sem eru í 25 m fjarlægð.
að einkum yfir vetrartímann
þegar félagið fær fáa tíma til
umráða að Hálogalandi en eng
inn annar salur er nógu lang
ur til skotkeppni — og Háloga
landssalurinn er einnig helzt
til stuttur.
Kveikt á einu kertanna. Takið eftir hinum sérkennilegu kössum
sem „grípa“ skotin og drepa skotkraft þeirra.