Morgunblaðið - 29.01.1965, Síða 24
Opinberir starfsmenn
fá kjarabætur
I samræmí vIÖ lúnisamkomulagið
MBL. barst í gær eftirfarandi
fréttatilkynning frá
f dag (2S. janúar) var undir-
ritaður samningur milli fjár-
málaráðheria f.h. ríkissjóðs og
Kjararáðs f.h. Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja um 6,6%
launahækkuu til ríkisstarfs-
manna frá 1. október 1964 að
telja. Þó helzt yfirvinnukaup og
vaktaál.ag óbreytt til 1. janúar
1965.
Frá 1. janúar 1965 lækkar eftir
vinnuálag úr 60% í 50% og verð-
ur því kaup fyrir eftirvinnú ó-
breytt að krórutölu, en nætur-
og helgidagakaup hækk.ar jafnt
og föstulaunin, svo og vaktaálag.
Um verðlag.suppbót á allar
launagreiðslur fer samkvæmt
lögum.
í júnímánuðl sl. óskaði stjóm
B.S.R.B. eftir samkomulagi við
ríkisstjórnina á sama grundvelli
og gert var milli ríkisstjómar-
innar, Alþýðusambands íslands
og Vinnuveitendasambands ís-
lands.
Þegar þeirrf 6sk hafði verið
synjað af ríkisstjórninni og kom-
ið fram í desember, ákvað banda
lagsstjórnin að gera iaunahækk-
unarkröfu á grundvelli 7. gr.
kj arasamningalaganna, e n d a
voru orðnar almennar launa-
hækkanir annarra stétta. Banda-
lagsstjórn taldi rétt að taka þá
upp að nýju kröfu um 16%
launahækkun, sem Kjaradómur
synjaði 31. marz 1964, til þess
að ítreka fyrri kröfur, ef málið
gengi til Kjaradóms.
í uppbafi viðræðna samnings-
aðila í desember sl. kom það
skýrt fram, að ríkisstjómin léði
ekki máls á viðræðum um 15%
kröfuna, sem Kjaradómur þegar
hefðx hafnað, en lýsti sig þá
reiðubúna að ræða um launa-
hækkanir, sem byggðust á júní-
samkomulaginu.
Þegar svo var komið töldu
Kjararáð og stjóm B.S.R.B. rétt
að takmarka viðræðumar að
þessu sinni við grundvöll júní-
samkomulagsins og fresta kröf-
unni um 15% launahækkun þang
að til í heildarendurskoðun
kjarasamninganna, sem fram
mun fara á þessu ári.
Ofangreindur samningur er
því eingöngu byggður á júní-
samkomulaginu.
(Fréttatilkynning
frá B.S.R.B.).
Handritanefndinni hafa
borizt öll umbeðin svör
Kaupmannahöfn, 28. jan.
Einkaskeyti til Mbl.
EFTIR að handritanefnd danska
þingsins barst svar Jóns Helga-
sonar, prófessors, hefur hún
móttekið öll þau svör, er nefnd-
armenn óskuðu eftir varðandi
málið. Á morgun, föstudag, munu
nefndarmenn vinna úr svörunum
en að því loknu leggur formað-
ur handritanefndarinnar til að
nefndin hafi samráð við K. B.
Ande'rsen, menntamálaráðherra.
Búizt er við að handrita-
nefndin muni setja ákveðin
skilyrði fyrir afhendingu, ekki
breytingar á frumvarpinu í heild,
heldur fara fram á fyrirheit um
•bætt fjárbagsskilyrði varðandi
rannsóknir á handrifunum. Mun
nefndin m.a. krefjast þess að
þeim vísindamönnum, sem vænt-
anlega fara í framtíðinni til
Reykjavíkur til rannsókna á
frumhandritum, verði séð fyrir
ríflegri fjárhagsaðstoð. Enn-
fremur mun nefndin krefjast
þess að engin handrit megi af-
henda fyrr
ljósmynduð.
en þau hafa verið
Rytgaard.
Mynd þessi var tekin á flugvelli við Lundúnaborg, þegar forseti Islands, herra Asgeir Asgeirsson,
kom þangað ásamt dætrum sínum með flugvél frá Flugfélagi fslands síðastliðinn föstudag.
Frá vinstri talið: Jóhann Sigurðsson, formaður íslendingafélagsins í Lundúnum, herra Ásgeir
Ásgeirsson, frú Björg Ásgeirsdóttir, frú Vala Thoroddsen og Henrik Sv. Björnsson, sendiherra
íslands í Bretlandi.
Þunglega
horílr
SATTAFUNDUR sá í sjó-
mannadeilunni, sem hófst kl.
17 á miðvikudag stóð aðeins
til kl. 20, 01? tókust engar
sættir. Þykir nú heldur þung-
lega horfa, að sættir náist í
bráð.
Loftleiðir hsíja fost leiguflug
í sumur með tveimur „sexum“
LOFTLEIÐIR munu hefja fast
leiguflug (charter-flug) með
tveimur „sexum“ þ.e. flugvél-
um af gerðinni DC-6B, á sumri
komanda. Félagið á nú fimm
flugvélar af slíkri gerð, og verða
þá þrjár áfram í áætlunarflugi,
að því er Kristján Guðlaugsson,
stjórnarformaður Loftleiða,
skýrði Mbl. frá í gær.
Loftleiðir hafa stundað nokk-
uð leiguflug, og hafa allir um-
boðsmenn félagsins visst umboð
til að taka á móti tilboðum, sem
stjórnin hér í Reykjavík tekur
svo ákvörðun um. Nú verður
leiguflugið fastur liður í starf-
semi félagsins. Farið verður í
einu og öllu eftir skilyrðum,
sem sett eru fyrir leiguflug í
alþjóðalegri IATA-reglugerð.
Kaupmannahafnarblaðið B. T.
segir frá þessu undir fimm dálka
fyrirsögn sl. þriðjudag. Fyrir-
sögnin hljóðar svo: „Nú byrja
Loftleiðir líka að lokka okkur
með leiiguflugi. Hinn íslenzki
erí'ðafjandi SAS, hið óháða félag
Loftleiðir, er aftur í baráttuhug"
(„pá krigsstien igen“). Segir í
greininni, að fxamvegis verði
það ekki áðeins áætlunarflug-
félög, fyrst og fremst SAS, sem
fái að finna fyrir samkeppninni
við hið litla en atorkusama ís-
Ienzka flugfélag. Nú eigi leigu-
flugfélögin líka að kynnast ást-
Framhald á bls. 23
Drengur beiö bana
í bílslysi
ENN HEFUR orðið hörmulegt
banaslys. Á sjöunda tímanum í
fyrrakvöld varð tólf ára dreng-
ur fyrir langferðabifreið á Suð-
urlandsveginum á móts við Selás
búðin fyrir ofan Árbæ og beið
hann þegar hana.
Laust fyrir kl. 7 þá um kvöld
ið var 34ra sæta langferðabifreið
af Mercedes-Benz gerð á leið aust
ur Suðurlandsveg. Bifreiðastjóri
hennar segir svo frá, að þegar
hann kemur á móts við Selásbúð
ina, mætir hánn bíl með mjög
sterkum ljósum, og víkur hann
vel út á vinstri vegarbrún, en
maibikaði vegurinn þarna er
mjög mjór. Um leið og bílarnir
eru að mætast, sér hann skyndi-
lega dreng á reiðhjóli á vegin-
um fyrir framan sig. Kveðst
hann þegar hafa hemlað, en það
var þá um seinan. Rann bíllinn
um 20 metra áfram, enda blautt
á malbikuðum ^ginum.
Bíllinn skall á drengnum og
reiðhjólinu og mun bæði hann
og hjólið hafa dregizt nbkkurn
spöl með bílnum, því að hvort
tveggja lá fyrir framan bílinn
þegar þílstjórinn kom út. Var
þá ekkert lífsmark með drengn
um. Má telja víst, að hann hafi
látizt samstundis. Drengurinn
hét Benedikt Jóhann Hafstein
Jakobsson og átti heima að Ár-
bæjarbletti 33, sonur hjónanna
Steinunnar Kristjónsdóttur og
Jakobs Jóhannssonar.
Þeir, sem kynnu að hafa orðið
sjónarvottar að þessu hörmulega
slysi eru beðnir að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna,
og sömuleiðis er ökumaður bif-
reiðar þeirrar, sem mætti lang-
ferðabifreiðinni við Selásbúðina
beðinn að gefa sig fram.
Kristmundur Sigurðsson varð-
stjóri hjá rannsóknarlögreglunni
tjáði blaðinu í gær, að svo virt-
ist af öllu, að bæði ökumaður
langferðabifreiðarinnar og dreng
urinn, sem lézt, hafi sýnt fulla
aðgæzlu og farið að umferðar-
reglum.
Á bls. 2 er sagrt frá útboði á fyrsta áfanga fyrirhugaðrar Sundahafnar. Uppdráttur þessi sýnir nýju höfnina, sem fullgerð verður í
Vatnagörðum á árinu 1967. og hugsanlega stækkun hennar síðar. Le ngst til vinstri er olíustöð BP í Laugarnesi og Vatnagarðar til hægri.
Jeppi lendir
ofan á vörubíl
HARÐUR árekstur varð klukkan
liðlega eitt í gærdag í Keflavík.
Fólksbíll ætlaði inn á Hafnar-
götu, sem er aðalgata, frá benzín-
afgreiðslu Aðalstöðvarinnar. í
sömu svifum var jeppa ekið norð-
ur götuna, og skullu bílarnir sam-
an. Brunaði jeppinn áfram og til
vinstri upp á gangstétt. Þar tókst
hann á loft og lenti ofan á vélar-
húsi á kyrrstæðum vörubíl. 1
leiðinni hafði steyputunna krækzt
framan á jeppann, og fylgdi hún
með í flugferðinni. Menn voru
þarna við vinnu, og þykir mildi,
að enginn skyldi verða fyrir jepp
anum. Hvorugur bílstjóranna
slasaðist, en bílarnir eru allir
mikið skemmdir.
★ ULBRICHT HEIMSÆKIR
EGYPTALAND
Bonn 27. janúar (NTB)
AUSTUR-ÞÝZKA frétta®tofan
ADN hefur skýrt frá því, að
Walter Ulbrieht, leiðto'gi
austur-þýzkra kommúnista,
hafi þegið boð Nassers forseta
um að heimsækja Egyptaland
í febrúar n.k.