Morgunblaðið - 04.02.1965, Page 6

Morgunblaðið - 04.02.1965, Page 6
6 MORCUNBLADIÐ Fimmtudagur 4. febrúar 1965 Karlinn veltir því fyrir sér um leið og hann spýtir út fyrir borðstokkinn, hvaða eiturkvik- indi leggi ekki á flótta út í hafsauga undan svona áhöfn. Gei piverð á íslenzkum frímerkjum í New York SÆNSKA blaðið Dagens Ny- voru sænskir frímerkjasafnar frímerkjum farið ðrt vaxandi heter skýrir frá því, að á upp- ar- Hefur áhugi á íslenzkum í Svíþjóð hin síðari ár. boði í New York fyrir ■ - — Söngskemmtun F. Lazaros ÞAÐ leyndi sér ekki, að söngur spánska tenorsöngvarans Franc- isco Lazaro féll í góðan jarðveg hjá gestum Tónlistarfélagsins í sl. viku. Fögnuður slíkur sem þar var látinn í ljós er næsta fátíður á tónleikum í þessu kalda landi. Það er því eiginlega með hálf- um huga sem ég geri það upp- skátt, að, hrifning mín af þvi sem þarna fór fram var miklum tak- mörkum bundin. Liggja til þess ýrnsar ástæður. í fyrsta lagi finnst mér of mik- ið að heyra á rúmum klukku- tíma tíu helztu „glansnúmerin'* * úr næstum jafnmörgum óperum. Gildi þeirra oig áhrifamáttur er — eins og flest annað sem tónlist varðar — algerlega „relatívt", og þegar slíkum verkefnum er raðað upp eins og hér var gert, bókstaflega drepa þau hvert annað. f öðru lagi fannst mér raddbeiting söngvarans og allur söngmáti ákafleiga ein’hæfur og beinlínis þreytandi, þegar til lengdar lét Því verður ekki með rökum neitað, að raddefni söngvarans er að ýmsu leyti glæsilegt, og það mátti heyra, að hann fylgdist með því, sem hann söng, og „lifði sig inn í“ hin margvíslegu hlut- verk sín að vissu marki. Tel ég vafalaust, að gaman væri að heyra hann í óperu, þar sem kraftasöngur af þessu tagi væri ekki alveg eins einráður og 'hér var. En ég er hræddur um, að hann verði ek'ki annar Caruso, eins og hér virðist vera almenn trú, nema hann breyti mjög um söngaðferð, og það heldur fyrr New York, 2. febr. (NTB) • Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að gera viku hlé á störfum, með an gerðar séu enn frekari til- raunir til að ráða bót á fjár- hagsvandræðum samtakanna. en síðar. Með þessari rneðferð á rödd sinni getur hann varla enzt nema fá ár enn. Árni Kristjánsson lék hlut- verk hljómsveitarinnar á þessum tónleikum og fór það vel úr hendi, eftir því sem efni stóðu tiL Jón Þórarinsson. LÖGREGLAN í Reykjavík hef- ur í mörgu að snúast. Stór hlutl af störfum hennar er að veiia borgurunum aðstoð sína, þegar vandi steðjar að. Hér eru tveir lögregiluþjónar að klifra milll hæða utan á einu af háhýsum borgarinnar, en húsfreyja hafði læst lyklana inni. (Ljósmynd Mbl. Sv. Þorm.). skömmu hafi selzt umslag, sem á voru nokkur hinna elztu íslenzku frímerkja, fyrir 150 þús. ísl. krónur. Merkin eru að verðgildi tveir skilding ar og þriggja skildinga sam- stæða. Þau eru ekki metin nema á nokkur hundruð krón ur. En frá tímabiiinu 1873 til 1876, þegar þessi merki voru í gangi á íslandi, eru ekki til varðveitt nema 18 frímerkt hréf — og þegar eitthvert þeirra fer á markaðinn, er eft irspumin gífurleg. Þessi eftirspurn hefur aldrei verið meiri en einmitt nú. Hjá uppboðsfyrirtækinu Ir- win Heiman varð hennar fyrst vart, og þegar merkin voru boðin upp, hljóðaði fyrsta til- boðið upp á 53.750 ísl krónur, en að nokkrum mínútum liðn- um, áður en uppboðshaldar- inn sló þrjú högg í borðið, var tilboðið komið upp í 150.000 ísl. krónur. Tilboðið kom frá bandarískum frímerkjasafn- ara og hreppti hann hin ís- lenzku frimerki, en meðal ■þeirra, sem höfðu augastað á þessum fágætu frímerkjum ★ DAVÍÐSHÚS „Gömul sveitakona“ skrifar okkur um Davíðshús: „Ég fagnaði þeim fréttum, að Akureyringar hefðu tekið þá ákvörðun, að leita til þjóðar- innar í heild með kaup.á húsi Davíðs skálds Stefánssonar. Vitanlega getur Akureyrarbær einn ekki lagt út svo mikið fé, hefur þó þegar keypt hið mikla bókasafn. Það ber að þakka erfingjum fyrir að gefa hús- muni ag listverk skáldsins, en ég get þó ekki varizt þeirri hugsun, að það séu helgispjöll að meta Davíðshús til peninga, úr því skáldið átti ekki eigin- konu né börn. En ég trúi því samt að það safnist fé til að kaupa húsið og ég vona að guð gefi fslendingum, að þeir kunni að meta Otg njóta þeirrar feg- urðar og unaðar, sem Davíð Stefánsson, þjóðskáldið ástsæla, gaf þjóð sinni í verkum sínum. Árlegur kostnaður við safnið og viðhald hússins, að vinna að fegrun garðsins umhverfis hús- ið og borga gæzlumanni, verður auðvitað mikill. Garðurinn þarf að verða reglulegur Fagri- skóigur Davíðs, svo sem mig minnir að Páll ísólfsson hafi komizt að orði einu sinni. Það hefur líka verið bent á að í framtíðinni verði þar tryggari staður fyrir styttu Skáldsins en á jörðinni Fagraskógi, því að vitanlega er engin trygging fyrir því að ættmenn Davíðs skálds búi þar um ár og aldir. Það gæti orðið svipað eins og þar, sem ættangrafreitir eru á jörðum, en vandmenn fluttir á braut. Æskilegt væri að söfn- unin yrði það stór að afgangur- inn nægði til sjóðmyndunar til að kosta safnið framvegis, a.m.k. að einhverju leyti. Ekki fyndist mér heldur fráleit hug- mynd, að einn bekkur í barna- Skóla Akureyrar gyldi vor hvert eitt dagsverk hver nem- andi í garðinum í þegnskyldu- vinnu. Við þetta gæti farið saman minni kaupgreiðsla og að uniglingarnir kynntust, a.m.k. sumir hverjir, betur Davíðs- húsi og þeim andlegu verðmæt- um, sem það geymir. Þá fengju þeir varanlega greiðslu fyrir dagsverkið sitt. Gömul sveitakona". * HÁVAÐI FRÁ BÍLSKÚR Og svo er hér bréf frá „Friðsælum borgara", sem kvartar yfir ónæði: Er ekki kominn tími til að þeim lögum, sem Reykjavíkur- borg setur, sé framfylgt? Þar á ég við notkun þeirra bílskúra, sem byiggðir hafa verið við íbúðarhús í íbúðarhverfum borgarinnar. Um nökkurt árabil hefur verið frjálst að byggja atvinnu og iðnaðarhúsnæði, svo óþarfi er að sjá lengur í gegn um fingur sér fyrir þá ráðamenn borgarinnar, sem eiga að hafa eftirlit með að bílskúrar séu ekki leigðir út við íbúðarhúa til bílaviðlgerða, jámsmíði, tré- smíði oig annars skylds atvinnu- rekstrar, sem er okkur íbúun- um til ama og armæðu. Heimilisfól'k er bæði stundar atvinnu og nám á heimtingu á að fá ró og frið fyrir þungum höggum, dunum og dynkjum, er það kemur þreytt heim að kvöldi og um heligar. Að ég tali nú ekki um þá slysahættu sem þessu fylgir, er stórir vöru- flutningabílar koma til ferm- ingar og áffermingar og börnin eru að leik eða ruslið og bíla- hræin sem fylgja flestum bif- reiðaverkstæðum. Ég vona nú að þeir ráða- menn borgarinnar, sem með þetta hafa að gera, vakni nú af dvala og átti sig skjótt á að slíkt á ekki heima í íbúðarhverf um Reykjavíkur og að þeir hreinsi borgina af þessu fyrir hina árlegu hreingerningu 17. júní. Friðsæll borgarbúi*'. spennustillar, í miklu úrvali. BRÆÐURNIR ORMSSON hJt. Vesturgötu 3. — Sími 114®7

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.