Morgunblaðið - 04.02.1965, Page 28

Morgunblaðið - 04.02.1965, Page 28
lELEKTROLUX UMBOÐIÐ 1 iAUOAVEGI 6? sTmi 21800 29. tbl. — Fimmtudagur 4. febrúar 1965 Samkomulagið staðfest Sjómenn: 254 gegn 181 * — litvegsmenn: 134 gegn 42 í FYRRADAG fór fram atkvæða grciðsla í félögum sjómanna og útveigsmanna um samkomulag það, sem náðist með deiluaðilum á fundi með sáttasemjara rikisins í fyrrinótt. Atkvæðum frá þeim 10 stöðum, sem í hlut áttu, var 'síðan safnað saman ogr fór taln- ing fram í gærdag. Úrslit at- kvæðagreiðslunnar urðu, þau, að samkomulagið var samþykkt bæði af sjómönnum og útvegs- mönnum. Á kjörskrá í félögum sjómanna voru 444, 254 greiddu atkvæði með samkomulaginu, en 181 á móti. Auðir seðlar voru 9. Á kjörskrá útvegsmanna voru 177. 134 greiddu atkvæði með, en 42 á móti. Einn seðill var ógildur. Þegar í gær var hafinn undir- búningur bátaflotans í Reykja- vík, vatn, vistir og veiðarfæri tekin um borð. Ætluðu margir að láta úr höfn þegar í gærkveldi og nótt. Krafizt 95 þús. danskra kr, til að leysa Jarlinn og skipsmenn úr haldi — annars verður málsókn haldið áfram SMYGÍ.MÁL það, sem upp er komið í Kaupmannahöfn, vegna íslenzka flutningaskipsins Jarls- ins, var tekið fyrir þar í dag. Eins og skýrt hefur verið frá, hafa 5 skpiverjar, þar á meðal skipstjóri og 1. vélstjóri, verið hafðir í gæzluvarðhaldi að undan förnu. Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi skeyti frá frétta- ritara sínum í Kaupmannahöfn, Rytgaard: Svo virðist sem smyglmál flutningaskipsins Jarlsins frá Flateyri me^gi útkljá, ef útgerð- in með milligöngu íslenzka sendi ráðsins vill fallast á að greiða alls 95 þúsund danskar krónur (589 þús. isl. kr.) í sektir og upp- töku. Þessi lausn málsins var rædd í bæjarþingi Kaupmanna- hafnar, þar sem til meðferðar var málið gegn skipstjóranum, 1. vél- fsijóra. 2. stýrimanni og einum há wta. Tveir aðrir voru í fyrstu grunaðir, en hafa nú verið látn- ir lausir. Fyrsti stýrimaður hvarf af skipimi í Landskrona og er ekki kominn til Kaupmannahafnar Gullfoss fekur verkufólk i Færeyjum GULLFOSS fór í gær frá Kaup- mannahöfn á heimleið. Mun skipið að þessu sinni koma við í Þórshöfn í Færeyjum og verður þar væntanlega n.k. laugardag. í Þórshöfn mun Gullfoss taka um 110 færeyska sjómenn og verkafólk, og jafnvel enn fleiri, eem ætla að fara til að vinna á vertíð á íslandi. GuIIfoss er væntanlegur til Reykjavíkur n.k. mánudag. ennþá, en hann hefur mjög verið til umræðu í réttinum. Eftir réttarhaldið í dag, munu eftirfarandi atriði vera ljós: Mál- sókn var hafin eftir'að tollrann- sókn hafði verið gerð um borð í skipinu. í ljós hafði komið, að skipið var fljótandi áfengis- skemma. Auk þeirra 85 flaskna sem gefnar voru upp til tollyfir- valdanna og sagðar allar birgðir skipsins, fundu tollverðirnir víðs vegar um skipið 600 til 700 flösk ur af áfengi, aðallega genever, viskí og romm. Flöskur þessar voru geymdar á margvíslegum felustöðum, t.d. í leyniskápi nokkrum, bak við haglega gerð- an vegg í balllesttanki skipsins. >á fannst og nokkurt magn undir rúmi skipstjórans. Samkvæmt ákvæðum tollalag- anna skulu vínbirgðir skips gefn Verkalýðsnóm- skeið í Valhöll VF.RKALÝÐSRÁB Sjálfstæðis- flokksins og Málfundafélagið Óðinn hafa ákveðið að efna til fræðslunámskeiðs um atvinnu- og verkalýðsmál, er hefjast mun um miðjan febrúar og standa fram í miðjan april. Námskeiðið verður haldið í Valhöll við Suðurgötu, og verða fundir haldnir einu sinni í viku. Á námskeiðinu verða fluttir fyr- irlestrar um ýmis málefni, er sérstaklega varða félaga í laun- þegasamtökunum, og einnig verða haldnir málfundir. Þeir, sem óska eftir að taka þátt í námskeiðinu, eru beðnir að tilkynna þátttöku sína í skrif- stofu Verkalýðsráðs í Valhöll, sími 17100, og þar verða einnig gefnar nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðsins. ar upp til fulls við komu til danskrar hafnar, og það því ljóst að bessi ákvæði höfðu verið brot- in. Ennfremur kom það fram, að skipverjum hafði heppnazt að smygla 24 áfengisflöskum í land í Kaupmannahöfn, þar sem þær voru seldar fyrir .u.þ.b. 700 d. kr. (4340 kr.). Þannig vörðuðu at- hafnir Jarlsmanna einnig við smyglákvæði tollalaganna. Þannig voru'Guðmundur Krist Framhald á bls. 27. Gunnar Schram, símstjóri á Akureyri, tilkynnir Ingóifi Jóns- syni ráðherra, að sambandið sé opnað. Sjálfvirkt samband milli Akureyrar og R-víkur Akureyri, 3. fe<brúar. SJÁLFVIRKT símasamiband m.illi Akureyrar og sjálfvirku stöðv- anna á Suðvesturlandi var opn- að kl. 17 í dag. Gunnar Sdhram, símstjóri, átti fyrsta samtali af þessu tagi við Ingólf Jónsson, póst- og símamálaráðlherra, og tilkynnti honum, a'ð samíbandið væri opnað og til'búið til afnota, Nú geta símnotendur hér val- ið sjálfir númer það, sem þeir vilja tala við, með því að velja svæðisnúmer viðtökustöðvarinn- ar fyrst, t.d. 91 ef þeir vilja tala við númer í Reykjavík, síðan strax á eftir þa'ð númer, sem samtals er óskað við. Á sama hátt velja Reykvíkingar svæðis- númerið 96, ef þeir vilja tala hingað til Akureyrar. Uppsetning á búnaði sjálf- virka sambandsins hefur staðið yfir á annað ár og margir menn unnið við hana, undir yfirumsjón Þorvarðar Jónssonar, verkfræ'ð- ings, sem var viðstaddur opnun- ina í dag. Tveir sænskir síma- Kjarnorkufloti Atlantshafsbanda- lagsins til umræðu á Atþingi Utanrikisráðherra svaraði fyrirspurn i gær A FTJNDI í Sameinuðu þingi í gær, var á dagskrá m.a. fyrir- spurn frá Ragnari Arnoids tii utanríkisráðherra um kjanorku- flota Atlantshafsbandalagsins. í svari sánu tók utanríkisráðherra m. a. fram, að við ísiendingar höfum ávalit verið vopnlaus þjóð og viö höfum engin áform um eigin vopnabúnuð, og var það því afstaða rikisstjórnarinnar tii þessa máls að taka ekki þátt í viðræðum, sem fram hafa fiarið um hugmyndir Bandarikjastjórn- ar um fyrirhugaðan kjarnorku- flota Atiantshafsbandalagsins. Ragnar Amalds gerði fyrst grein fyrir fyrirspurn sinni, sem var á þessa leið: 1. Hver er afstaða ríkisstjórn- arinnar til fyrirhugaðs kjarnorku flota Atlantshafsbandalagsins (MLF — Multilateral force)? 2. Hvernig hyggst ríkisstjómin beita atkvæði Islands á ráðherra fundi NATO, ef éformin um Framhald á bls. 8 tæknimenn hafa starfað hér við frágang stöðvarinnar síðustu vik urnar. Verð 'hverrar tímaeiningar, sem er 6 sekúndur, verður 110 aurar milli Akureyrar og Reykja víkur, þannig að samtal, sem stendur í 3 mínútur kostar 33 krónur, svipað og 1 viðtalsbil með handvirka sambandinu. Hins vegar ver'ða samtöl ódýrari nú, ef ek'ki er talað í fullar 3 mín- útur. Nýja laginu fylgja þeir ann- markar, áð ekki er hægt að fá slíkt samtal með kvaðningu, þar sem teljarinn telur frá því er viðtökusíminn svarar. Og ekki er iheldur hægt að fá sérstakan reikning fyrir samtalinu. Rétt er þó að benda á, að Framh. á bls. 27 Flugfélagið flutti yfir 112 þús. farþega sl. ár eða fleiri, en nokkru sinni fyrr FLUTNINGAiR Flugfélags ís- lands árið 1964 gengu mjög vel, og fluttu flugvélar félaigsins fleiri farþega en nokkurntíma áður. Einnig varð veruleg aukning á vöruflutningum og póstflutning- um, en færri leigufiug voru far- in en árið á undan. Millilandaflug. Farþegar félagsins í áætlun- arfiugi milli landa árið 1964 voru samtals 36.952, en voru 28.937 árið á undan. Aukning 27,7%. Vörufiutningar milli landa námu 412 lestum. Árið áður voru flutt- ar 332 lestir og var'ð aukning því tæpieiga 24%. Þá voru fluttar 115 lestir af pósti á móti 90,6 lestum árið áður; aukning 26,4%. Innanlandsflug Farlþegar Fiugfélagsins á flug- leiðum innan lands voru á árinu 69.834, en voru 62.056 árið á undan. Aukning í farþegaflutn- ingum innaniands er 12,5%. Vöru flutningar á innanlandsleiðum námu 1049 lestum, en voru 974 lestir árið áður; aukning er 7,7% og fluttar voru 128 lestir af p>ósti á móti 117,5 lestum árið áður; aukning 9,4%. Þess ber að geta Framihaild á bls. 27. Loðnuverðið 5S aurar pr. kg. VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs- ins hefur ákveðið að lágmarks- verð á loðnu til vinnslu í verk- smiðjum á loðnuvertíð 1965 skuii vera kr. 0,56 pr. kg. Verðið er miðað við loðnuna komna á flutningstæki við hlið veiðiskips. Seljandi skal skila loðnu til bræðslu í verksmiðjuþró og Igreiði kaupandi kr. 0,04 pr. kg. í flutningsgjald frá skipshlið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.