Morgunblaðið - 07.02.1965, Qupperneq 5
Sunnudagur 7. febrúar 1965
MORGU N BLADIÐ
5
' > r • •
OSVOR
*
I
BOLUNGAVÍR
MYNDIN hér að ofan er af
hinni frægu vör, ÓSVaíR við
Bolungarvík. Fjallið, sem sézt
á myndinni er Traðarhyrna,
með ófæru og Máfakömibum,
en til vinstri sér á nyrsta
hluta Bolungarvíkurkauptúns.
Um Ósvör er til þjóðsaga
sú, sem hér skal sögð eftir
minni: Einhverntíma fyrir
æva löngu réðst vinnuma’ður
nokkur til vistar hjá bóndan-
um á Ósi. Bóndinn átti dóttur
eina, hinn bezta kvenkost.
Tókust miklir kærleikar milli
vinnumanns og bóndadóttur.
Fór svo að lokum, að vinnu-
maður gekk á fund bónda og
bað hann að gefa sér heima-
sætuna.
Bóndi tók þessu bónorði
víðs fjarri í fyrstu, en svo fór
a'ð lokum, að hann lofaði
vinnumanni stúlkunni, en þó
með því skilyrði að hann
ryddi fyrir hann vör mn vet-
urinn, en lending var ekki góð
þarna.
Vinnumaður, sem var helj-
armenni að burðum, tók
þegar til við að ryðja vörina,
og um vorið var vörin full-
rudd og hin bezta lending í
henni.
Fór þá vinnumaður a'ð hitta
bónda á nýjan leik og herma
upp á hann loforð hans. En
svar bóndans var á þá leið, að
aldrei skyldi hann gefa dótt-
uj- sína vinnumannsstaula.
Vinnumaður varð fár við,
sár og leiður og mjög gram-
ur bónda fyrir sviksemina.
Gekk hann út að vörinni, og
gekk bérserksgang. Þreif upp
eitt heljarbjarg úr fjörunni,
og varpaði því í mynni varar
innar, og hugðist með því
eýðileggja hana. Sagan er
ekki lengri. Steinninn, sem
vinnumaður varpaði í vörina,
sést enn. Hann er kallaður í
daglegu tali þar vestra VARA
KOLLUR. Á myndinni sést
hann á henni miðri og
brýtur á honum. Vinnumanni
tókst ekki að eyðileggja vör-
ina með Varakolli, því að Ós-
vör hefur lengi verið notuð,
og einmitt Varakollur varn-
ar því, að aldan skelli óbrotin
upp í vörina.
breiðfirðinga- þ
>bew< j*v
GÖMLU DANSARNIR niðri
IMeistarnir leika
Dansstjóri: Helgi Eysteins.
Aðgöngumiðasala hefst kl. 8.
Símar 17985 og 16540.
• ■
utan úr STÓRA nmurn i heimi |
Margar tegundir dýra er hægt
eð temja svo sem kunnugt er,
en þess munu ekki mörg dæmi,
að mönnum hafi tekizt að hæna
laxa svo að sér, að nálega ýkju-
iaust mætti kalla hann húsdýr.
Og líklega eru margir vantrúaðir
á að það sé hægt. Skal engum láð
það.
Árið 1955 hafði manni einum í
Troms-fylki í Noregi heppiiast að
halda laxi í mjólkurgrindinni í
bæjarlæknum í meira en 5 ár.
Laxinn var látinn þangað sem
örlítið seyði og var eftir þessi
fimm ár orðinn um % pund að
þyngd. Þegar hann hafði verið
þarna í 4 ár, voru tvö seyði sett
þangað til hans, og virtust þau
etrax kunna við sig líka.
Grindin var út í miðjum lækn-
um, svo að laxarnir gætu hvenær
sem þeim þóknaðist, farið sína
leið. Botninn var hvítur sandur
©g því auðvelt að athuga fiskana.
Einkum þykir í frásögu fær-
andi, að eigandinn tókst að venja
fiskinn á að éta úr lófa sínum.
Á sumrin gaf hann honum maðk,
skordýr o.fl., en þorskhrogn á
vetrum. — Þá kendi hann laxin-
um að éta úr skeið!
Ég skil það vel, dóttir mín,
að þig langi til þess að sjá sem
mest af heiminum, en góða gættu
þess að heimurinn sjái sem
minnst af þér.
Akranesferðir með sérleyfisbílum Þ.
Þ. Þ. Afgreiðsla hjá B.S.R. Frá Reykja
vík alla virka daga kl. 6. Frá Akra
nesi kl. 8, nema á Laugardögum ferðir
frá Akranesi kl. 8 frá Reykjavík kl.
8. Á sunnudögum frá Akranesi kl. 3.
Frá Reykjavík kl. 9.
Akraborg: Sunnudagur frá Rvík kl.
6; 13; og 16:30. Frá Akranesi kl. 10:45
14:15 og 16, Mánuidagur frá Rvík kl.
1:45; 11:45; og 18. Frá Ak-ranesi kl. 9
13 og 19:30. Þriðjudagur frá Bvik ki.
B; og 18. Frá B. kl. 13. Frá Aknanesi
ki 14:45 og 19:30.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Gullfaxi keanur frá Kaupmannaíhöfn
©g Glaegow ki, 16:05 (DC-6B) í dag.
Bólfaxi fer til Glasgow og Kaupmanna
hafnar kl. 08:00 á morgun. Vélin
kemur aftur til Rvikur ki. 16:05 á
udaginn. Innanlandsf lug: í dag
er áætlað að fljúga til Akureyrar og
Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað
að fljúga til Akureyrar, Vestmanna-
eyja (2 ferðir), Hornafjarðar og Egils
staða.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla fór frá
Rvík í gærkvöldi austur um land í
hring'ferð. Esja fer frá Rvík á þriðju
daginn vestur um land i hringferð.
Herjóifur fer frá Rvík kl. 21:00 annað
kvöld til Vestmannaeyja, Þyrill er á
leið fiá Danmörku tii Englands. Skjald
breið er á Húnaflóa á leið tll Akur-
eyrar. Herjólfur er á Austfjörðum ð
suðurleið.
Skipadeild SÍS: Arnarfell er í New
Haven, fer þaðan til Rvíkur, Jökul-
fell er í Camden. Ióísarfell er vænt-
anlegt tii Antwerpen 9., fer þaðan til
Rotterdam. Litiafeli er 1 olíuflutning-
um á Kaxafloa. Helgafell er væntan-
legt til Aabo 11., fer þaðan tii Helsing-
fors. Hamrafeii er væntanlegt til
Aruba 17. fer þaðan til Rvíkur. Stapa
fell er væntaniegt til Brombrough 9.
Ma-iifeiL er væntanlegt til Cabo de
Gata í dag, fer þaðan til íslands.
H.f. Jöklar: Drangajökull kom til
Hanko í nótt og fer þaðan til Norr-
köping og íslands. Hofsjökull kom tii
Gdynia í nótt, fer þaðan til Odansk,
Hamborgar og Rvifcur. Langjökull
bom til Caen í morgun, fe.r þaðan tii
Rotterdam og Rvíkur. Vatnajökull
lestar í Vestmannaeyjum.
FRÉTTIR
Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju held
ur aðalfund ménudaginn 8. febrúar ki.
8:30 í ALþýðuhúsinu.
Kvenfélag Langholtssóknar heklur
aðalfund sinn þriðjudaginn 9. febrúar
í Safnaðarheimilinu. Gestur fundar
inis verður frú Sigríður Gunnarsdóttir
forstöðukiOna Tízkuskólans^ Stjórnin.
Kvenfélag Ásprestakalls. Aðalfund-
ur félagsins verður haldinn mánudag-
inn 8. febrúar kl. 8:30 að Sóliheimum
13. Fundarefni: Venjuleg aðaLfundar-
störtf og á eftir sýnir Bjöm Pálsson
flugmaður liitskuggatmyndir frá ýms-
um stöðum á landinu. Kaffidrykkja
Stjórnin.
Næstkomandi sunnudagskvöld kl. 8
er efnt til fagnaðar fyrir alla í Kópa-
vogi sem eru 70 ára eða eldri og maka
þeirra. Verður sameiiginleg kaÆfi
drykkja og margt til skemmtunar.
Þeir sem þess óska eru sóttir og einn-
ig fl-uttir heim.
Kvenfélag Bústaðasóknar. Fundur í
Róttailhioltisiskólanum mánudaigskvöld
kl. 8:30. Kvikmyndasýning og fleira.
Stjórnin.
PRENTARAKONUR. Kvenfélagið
EDDA heldur spilafund mánudaginn
9. febrúar kl. 8:30 í Félagsheimili HÍP
Stjórnin.
Kvenfélag Grensássóknar, heldur
fund í Breiðagerðisskóla mánudaginn
8. febrúar kl. 8:30. Skemmtiatriði:
Konur Fjölmennið. Stjórnin.
Langholtssöfnuður. SafnaðarfóLk og
gestir Spila- og kynningarkvöLd í
Safnaðarheimilinu við SóLheima sunnu
dagskvöld kl. 8:30. Vetrarstarfsnefnd.
Slysavarnardeild Hraunprýði held-
ur fund þriðjudaginn 9. febrúar í
Alþýðuhúsinu. Spiluð verður félagis-
viist. Konur fjölmennið.
Fíladelfía: Perera talar í Frikirkj-
unni í kvöld kl. 8:30.
Málshœttir
Eins dauði er annars brauð.
Ekki eru allax ferðir til fjárs, |
þó farnar séu.
Það er annað Hólastóll en
hundaþúfa.
SÖFNIN
Ásgrímssafn verður lokað í mánaðar
tíma vegna lagfæringar, en þá hefst í
safninu skólasýning.
Þjóðminjasafnið opið eftirtalda
daga: Þriðjudaga — fimmtudag —
laugardaga — sunnudaga frá kL 1:30
til 4.
Listasafn íslands er opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugadaga og |
sunnudaga kl. 1:30 — 4.
Messur í dag
Séra Hallg-rímur Pétursson.
Hallgrímskirkja
Vegna prentvillu í gær er end- j
ur tekin messuauglýsing.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.
Messa kl. 11. Séra Jakob Jónsson |
Messa kl. 2. Séra Sigurjón Þ.
Árnason.
Ásprestakall
Barnasamkoma í Laugarásbíó |
kl. 10. Almenn guðsfþjónusta kl.
5. Séra Grímur Grímsson.
VÍSUKORIM
Við andlát hins aldna heiðurs-
manns og bókasafnara, Þorsteins |
Þorsteinssonar sýslum.anns, fædd j
ist þessi vísa:
Fallega Þorsteinn flugið tók,
fór um himin kliður.
Lylda-Pétur, Lífsins bók
læsti í skyndi niður.
Hœgra hornið
Karlmáðurinn er aldrei eins
veikur fyrir og þegar einhver
kona er að segja honum að hann j
sé sterkur.
IUB8URINN
Ástralska söngkonan
Juc/ Cannon
Hljómsveit
Karls Lilliendahl
söngkona:
bertha biering
1 Judy C'annon
AAGE LORANGE leikur £ hléum.
Borðpantanir í síma 35355 eftir kl. 4.
Fálkinn
Á MORGUIM
Látið ykkur ekki
nœgja að hlusta á
það sem aðrir segja
um Fálkann.
Fálkinn kemur út á
morgun og þér getið
keypt hann á nœsta
blaðsölustað
FALKIIMIM FLYGUR ÚT
MAXICROP
BLÓMAÁBURÐUR FYRIR ÖLL BLÓM.
Mögnuð plöntufæða og jarðvegsbætir.
100% lífrænn, gerður úr ÞANGI. Ríkur
af náttúrulegum vaxtaraukandi efnum,
sem gerir stilkina lengri og sterkari og
gefur blómum og blöðum dýpri lit. Maxi-
crop lengir blómstrunartímann og örv-
ar rótarmyndunina.
MAXICROP þangvökvi inniheldur öll sporefni sjávar.