Morgunblaðið - 08.04.1965, Page 2
2
MQRGUNBLAÐID
1
Fimmtudagur 7. apríl 1965
Joftnson Dandarlkjaforseti:
kynda elda í
— Þeir hafa þurrkað út frelsið í
Tíbet, ráðizt á Indland og verið
fordæmdir af Sam. þjóðunum
Baltimore, 7. apríl — NTB.
JOHNSON Bandaríkjafor-
seti sagði í ræðu, sem hann
flutti við John Hopkins-
háskólann í Baltimore í
kvöld og sjónvarpað var og
útvarpað um gjörvöil
Bandaríkin, að Bandaríkin
væru reiðubúin til þess að
taka þátt í viðræðum um
friðsamlega lausn Viet
Nam málsins án þess að
setja nokkur skilyrði fyrir
fram. Sagði Johnson að
friðsamleg lausn væri eina
hugsanlega stefnumark
hugsandi manna. Jafn-
framt stakk Johnson upp á
því að Bandaríkin veittu
einn milljarð dollara til að-
stoðar Suðaustur-Asíu svo
fremi að friður komist á í
þeim hluta heimsins.
í ræðu sinni sagði Johnson
að Norður Viet Nam hefði að-
eins eitt markmið og það
væri að sölsa undir sig allt S-
Viet Nam. Hann sagði að
styrjöldin í Viet Nam væri að-
eins einn liður í stærri árásar-
fyrirætlunum og að Kínverjar
kyntu eldana í N-Viet Nam
af kappi. Takmark Ban'daríkj-
anna væri að verja sjálfstæði
S-Viet Nam, og að Bandaríkin
myndu gera allt sem nauðsyn-
legt væri — en einnig aðeins
það sem nauðsynlegt væri —
til þess að ná því takmarki.
Johnson lagði á það áherzlu
að ,hin eina skynsamlega leið
væri sú sem lægi til friðsam-
legrar lausnar. Sem skilyrði
fyrir friði nefndi hann sjálf-
stætt S-Viet Nam, án utanað-
komandi afskipta, án þátt-
töku í nokkrum hernaðar-
bandalögum og án erlendra
herstöðva.
Forsetinn sagði að Banda-
ríkin væru reiðubúin til við-
ræðna án þess að setja nokk-
ur skilyrði fyrirfram, og að
Bandaríkin myndu reyna að
koma í veg fyrir að styrjöldin
breiddist út.
Johnson beindi því til landa
SA-Asíu að þau tækju hönd-
um saman um umfangsmikið
þróunarstarf, og kvaðst hann
vona að Norður-Viet Nam
mundi taka þátt í slíku sam-
starfi, svo fljótt sem friðsam-
leg samvinna er möguleg. Þá
kvaðst Johnson einnig vonast
til þátttöku Sovétríkjanna í
slíku samstarfi, og ennfrem-
ur allra annarra iðnaðarþjóða.
Forsétinn kvaðst vona að U
Thant, aðalritari SÞ, mundi
eiga frumkvæðið að umfangs-
mikilli þróunaráætlun fyrir
SA-Asíu, og hann kvaðst sjálf
ur myndu leggja til við Banda
ríkjaþing að það veitti einn
milljarð dollara til þessarar á-
ætlunar, yrði hún að veru-
leika.
Forsetinn sagði að kynslóð
vor ætti um eftirtalda kosti
að velja: Að eyðileggja eða
byggja upp, drepa eða hjálpa,
og hata eða skilja.
„Alþýða manna í N-Viet
Nam og S-Viet Nam, í- Ind-
landi og Kína, í Sovétrikjun-
um og Bandaríkjunum er hug
rakkt fólk. Meirihluti þessa
fólks vill ekki að synir þess
deyi á vígvellinum eða að heim
ili annarra séu lögð í rúst“,
sagði Johnson.
Forsetinn fléttaði í friðarósk
ir sínar yfirlýsingu um á-
kveðni Bandaríkjanna í Viet
Nam deilunni.
„Við munum ekki draga
okkur í hlé, hvorki opinber-
lega né í skjóli tilgangslauss
sáttmála. Við æskjum engra
ívilnana til handa okkur sjálf-
um. Við æskjum þess aðeins
að fólkið í S-Viet Nam fái að
stjórna landi sínu á sinn eig-
inn hátt“.
Forsetinn sagði að tilgang-
urinn með loftárásunum á N-
Viet Nam væri sá að draga úr
árásum kommúnista og auka
hinu hugprúða fólki S-Viet
Uyndon li. Johnson
Nam stolt og álit. Auk þess
væru árásirnar til þess gerð-
ar að sannfæra leiðtoga N-
Viet Nam og alla þá aðra, sem
reyndu að taka þátt í yfir-
gangi þeirra, um eina ein-
falda staðreynd: „Við munum
ekki láta troða okkur um
tær. Og við munum ekki
þreytast".
„Við vitum, að loftárásirnar
einar sem slíkar eru ekki
nægilegar í þessu sambandi
en það er skoðun þessarar rík
isstjórnar að þær séu nauð-
synlegur þáttur í öruggustu
leiðinni til friðar“, sagði for-
setinn.
Johnson lýsti styrjöldinni í
Viet Nam, sem styrjöld slíkr-
ar grimmdar, að slíks væru
engin dæmi, og sagði að Kína
kastaði löngum skugga sínum
yfir hana.
„Ráðamennirnir í Hanoi eru
eggjaðir til dáða af Peking.
Stjórnin, sem situr í Peking,
hefur gert út af við frelsið í
Tíbet, ráðist á Indland og ver
ið fordæmd af hinum Samein
uðu þjóðum fyrir árásarað-
gerðir í Kóreu. Þetta er þjóð,
sem hlúir að ofbeldinu í nær
öllum álfum heims. Og styrj
öldin í Viet Nam er aðeins
liður í enn stærri áætlunum
um yfirgang og árásir“.
„Við vonum að friður
komist á fljótt, en það mál er
í höndum fleiri aðila en okk
ar, og við verðum að búa
okkur undir langvinna bar-
áttu. Þetta mun krefjast þolin
mæði jafnt sem hreysti —
vilja til þess að slaka ekki á
jafnt, sem vilja til andspyrnu.
Við munum beita kröftum okk
ar með hófsemi, en við mun-
um beita þeim“, sagði John-
son forseti.
-<A
Tónleikar Pólyfón-
kórsins í Kristskirkju
PÓLÝFÓNKÓRINN heldur hina
árlegu vortónleika sína fyrir
styrktarfélaga og almenning í
Kristskirkju, Landakoti, dagana
9.—11. apríl. Fyrstu tónleikarnir
verða næstkomandi föstudags-
kvöld kl. 9, en alls verða 4 sam-
songvar, hinn næsti á laugardag
kl. 6 siðdegis og sunnudaginn 11.
april syngur kórinn tvisvar, kl.
6 síðdegis og kl. 9. um kvöldið.
Síðustu opinberir tónleikar
Pólýfónkórsins voru um jólin, og
þó flutti hann fyrri hluta Jólaora-
toríu Bachs ásamt einsöngvurum
og hljómsveit. Þetta er 8. starfs-
ár kórsins, og hefur hann kynnt
fjölda fagurra verka fyrir bland-
aðan kór, sem áður voru óþekkt
íslenzkum hlustendum, einkum
tónlist frá gullaldartímabili kór-
tónlistar, 16. og 17. öld og einnig
nútímatónlist.
Nafn Pólýfónkórsins er dregið
af gríska orðinu polyfonos, sem
þýðir margraddaður. Kórinn vel-
ur sér líka sannarlega verkefni,
sem hæfa nafni hans, enda hafa
viðfangsefnin sjaldan verið jafn
margradda og nú. Fyrst á efnis-
skrá þessara tónleika eru tvær
mótettur fyrir 6 raddir, Haec
dies eftir enska tónskáldið Will-
iam Byrd og „Ich bin ein rechter
Weinstock" eftir þýzka tónskáld-
ið Heinrich Schútz, sem báðir
voru fæddir á 16. öld. Voru báðir
miklir snillingar og Suhutz tal-
inn mesta tónskáld evangelisku
kirkjunnar fyrir daga Bachs.
Þessir tónleikar Pólýfónkórs-
ins verða þó að teljast mestur
viðburður fyrir þá sök, að þar
verður flutt í fyrsta sinn á Is-
landi ein af fegurstu og virtustu
tónsmíðum hins kaþólska siðar,
Stabat Mater eftir Palestrina.
Þykir snilld þessa meistara óvíða
birtast í jafn skíru ljósi og í
Stabat Mater, sem samið er fyrir
tvo kóra, 8 raddir. Var verkið
jafnan flutt í kapellu páfans í
Róm á pálmasunnudag, en vand-
lega varðveitt og afritun þess
ekki leyfð. Loks tókst að koma
eintaki undan, • og var verkið
fyrst gefið út í London árið 1771.
Nú verður verkið flutt hér á
pálmasunnudag — tvisvar sinn-
um.
*
A seinnihluta efnisskrárinnar
eru tvö nútímaverk: Agnus Dei,
fyrir kór otg fjórar einsöngsradd-
ir eftir Þorkell Sigurbjörnsson,
sem flutt verður í fyrsta sinn
hér á landi, en hefur verið flutt
í Bandaríkjunum, og að lokum
Þýzk messa eftir þýzk-austur-
ríska tónskáldið Johan Nepomuk
David, sem var í fremstu röð tón-
skálda á þessari öld, sem samið
hafa í Pólýfón-stíl, en er látinn
fyrir skömmu.
Verkið er samið fyrir 4—10
raddir og mjög áhrifamikið. Pólý-
fónkórinn flutti verk þetta einu
sinni áður, vorið 1960, og vakti
það þá mikla athygli, og er því
endurtekið nú.
Söngstjóri Pólýfótikórsin,s er
Ingólfur Guðbrandsson, en for-
maður Rúnar Einarsson. í kórn-
um eru nú 40 manns. Eins og áð-
ur var getið, eru tónleikar þessir
fyrst og fremst fyrir styrktar-
félaga kórsins, en nokkrir að-
gönigumiðar verða seldir í Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar.
(Fréttatilkynning frá Pólýfón-
kórnum).
Fræðsluhindur
kvenna
NÆSTI fundur á fræðslunám-
skeiði kvenna verður í Valhöll í
kvöld kl. 8.30. Frú Guðrún P.
Helgadóttir skólastjóri talar um
fræðslumól.
Þátttakendur eru beðnir áð
mæta vel og stundvíslega.
Grafarnesbátar
með 3000 tonn
Grafarnesi, 7. apríl.
AFLI Grafarnesbáta er mjög
sæmilegur, það sem af er vertíð.
8 bátar eru gerðir út héðan og
róa þeir allir með þorskanet.
Afii þeirra til 1. apríl var sam-
tals nálega 3000 tonn. Hæstur
var Farsæll með 527 tonn, þá
Blíðfari með 434 og Runólfur
með 427 tonn.
Aflinn minnkaði talsvert sfð-
ari hluta marzínánaðar, en hefur
nú glæðst nokkuð eftú,- mánaða-
mótin. — Emil.
Afli á Vestfjöröum í
marz tæp 11000 tonn
ÍSAFIRÐI, 7. apríl. — f marzmánuði nam heildarafli Vestfjarða-
báta 10,885 lestum og er það 850 lestum meira en í marz í fyrra.
Heildaraflinn á vertíðinni er nú 18,367 lestir, sem er um 450 lestum
minna en í fyrra. Aflahæstu bátar á Vestfjörðum frá áramótum
til 1. apríl eru þessir:
Helga Guðmundsdóttir, Patreksfirði .......... 924,5 (31)
Dofri, Patreksfirði......................... 757,2 ( 54)
Seley, Patreksfirði ......................... 751,9 (53)
Framnes, Þingeyri ........................... 691,9 (40)
Sæborg, Patreksfirði ........................ 555,3 (38)
Einar Hálfdáns, Bolungarvík.................. 552,2 (47)
Sæfari, Tálknafirði ......................... 532,2 (40)
Guðbjartur Kristján, ÍS 280 ................ 527,7 (45)
Guðbjörg, ísafirði .......................... 521,7 (42)
Þorgrímur, Þingeyri ......................... 518,2 (37)
Aflahæstu bátarnir, sem eingöngu hafa stundað línuveiðar;
Sif, Súgandafirði .......................... 446,4 (56)
Hilmir II, Flateyri......................... 438,3 (54)
Heiðrún, Bolungarvík ....................... 413,7 (59)
Aflinn í einstökum verstöðvum í marzmánuði:
Patreksfjörður . . 1,852
Tálknafjörður . .. * 785
Bíldudalur 485
Þingeyri .. 1,115
Flateyri 634
Suðureyri . . 1.357
Bolungarvík ......... 1,204
Hnífsdalur ............ 751
fsafjörður .......... 2,270
Súðavik ............... 529
Hólmavík ................ 3
Drangsnes ............... 0
Segja má,að afli í marz hafi yfirleitt verið mjög góður og
gæftir einnig góðar. í 6 verstöðvum af 12 er aflinn talsvert miklu
meiri en í fyrra, í 3 mjög svipaður, en í 3 allmiklu rýrari. Mikil
vinna hefur allsstaðar verið við verkun aflans í mánuðinum. H. X,