Morgunblaðið - 08.04.1965, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.04.1965, Blaðsíða 28
HAMDBÓK VrRZLLfMAR MANNA AlSKRIFTARSÍMI 16688 16688 16688 tbl. — Fimmtudagur 8. apríl 1965 HAIMDBÓK VERZLUNAR tVIAMMA A’SKRIFTARSÍIWIII 16688 16688 16688 Björgun hafin úr Donwood Eins og skýrt var frá í Morgun ‘blaðinu í gær, keyptu nokkrir Vestmannaeyjingar togarann Donwood á strandstaðnum við Heimaklett. Kaupverði'ð var 25 þúsund krónur. Kaupendur voru S vélsmiðir og 3 starfsmenn hafn erinnar. Foráttubrim var í Eyjum í fyrradag, en veður miklu betra í gær, svo að dálítið var hægt að athafna sig við björgun. Náð- ist björgunarbáturinn í land og nokkuð af smádóti, sem skilið hafði verið eftir. Næsta skrefið við björgun úr Donwood mun verða að freista þess að ná 40 tonnum af olíu, sem um borð eru, í land áður en gat kemur á tankinn og olían flýtur inn á höfnina. í>á mun eiga að reyna að bjarga ljósavél- unum sem allra fyrst. Ekki kvéð ast eigendur Donwoods hafa neina von um björgun skipsins sjálfs. Fundur sveitarstjórn- urmúl FUEETRUARAÐSFUNDUR Sam bands íslenzkra sveitarfélaga hefst kl. 10 f.h. í dag í fundarsal borgarstjórnar Reykjavíkur og mun standa í tvo daga. Fundinn sitja 25 fulltrúar frá öllum lands fjórðungum. Varaformaður Sambandsins, Páll Líndal, borgarlögmaður, set ur fundinn. Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra og Hjálmar Vil Aflahæstur á öllu landinu Patreksfirði, 7. apríl. IHELGA Guðmundsdóttir mun < | vera langhæsti báturinn á i I vertið um land allt. Hún hóf * þó ekki veiðar fyrr en 4. febr- I úar en hefur síðan aflað um ( 11070 tonn. Hinn 31. marz hafðii I hún fengið 925,5 tonn í 31; róðri. Aflinn hefur verið sæmileg-í | ur síöustu daga og fremurí I jafn á bátana. Þeir voru allir; með um 15 tonn í gær og milli' 1 2@ og 25 tonn í fyrradag. — Trausti. | Togarasölur TVEIR togarar seldu erlendis í gær og tveir í fyrradag í Bremer haven 280 tonn fyrir 192.600 roörk. Pá seldi Harðbakur sama dag í Cuxhaven 166 tonn fyrir 92 þús. mörk. í gær seldi Júpíter í Bremerhaven 157 tonn fyrir 143.280 mörk og Sléttbakur í Grimsby 106 tonn fyrir 6.919 sterlingspund. hjálmsson, ráðuneytisstjóri, fiytja ávörp. Mun fjármálaráð- herra m.a. ræða breytingar á útsvarsálögum. Þá mun Páll Lín dal flytja skýrslu stjórnarinnar, lesa reikninga hennar og flytja tillögur um ýmis mál. Aðalumræðuefni fundarins eru tvö. I fyrsta lagi skólarnir og sveitarfélögin. Dr. Gylfi Þ. Gísla son, menntamálaráðherra, mun hafa framsögu um það mál kl. 3 í dag. í fyrramálið kl. 10 verður tekið fyrir hitt höfuðmálið^ staða sveitarfélaganna í þjóðarbuskapn um og hlutverk þeirra í .stjórn efnahagsmála. Bjarni B. Jónsson hagfræðingur flytur framsögu- erindi um það efni. A þessu ári er 20 ára afmæli bands íslenzkra sveitarfélaga og 25 ára afmæli málgagns þess, tímaritsins Sveitarstjórnarmál. Karl Kristjánsson, starfsmaður vegagerðarinnar, heldur á umferóarmerki, sein hrist hetur ver- ið af stöpli í Brákarsundi. Skiltin fa ekki friö! ÞESSAR myndir tók Ijós- myndari Mbl. Sveinn Þormóðs son í Brákarsundi fyrir nokkr- um dögum. Skiltini, sem gefa til kynna, ,að hjólreiðar séu bannaðar, voru sett upp í júlí sl sumar vegna slvsahættu, er skapaðist vegna hjólreiða ung- linga, en um það mál lágu fyrir lögregluskýrslur. Þau hiafa nú öll með tölu verið eyðilögð, og þarf þó ekki lítið átak til þess að hrista þau í sundur. Allar líkur benda til þess, að hér séu unglingar að verki. Hér má sjá lítið brot af þeim fjölda umferðarmerkja, sem eyðilögð haía verið, viðsvegar urn borgina. Starfsmenn vegagerðarinn- ar hafa haft ærinn starfa með höndum að skipta um merki, sem eyðilögð hafa verið, og að því er Karl Kristjánsson tjáði blaðinu, er Brákarsund- ið ekkert einsdæmi hvað þetta snertir. Sums staðar hef ur þurft að endurnýja merki á sama stöpli oftar en einu sinni. Karl sagði okkur, að hvert merki, sem rifið væri niður og eyðilagt, kostaði um þúsund krónur. Á mjög skömmum tíma hafa verið eyðilögð tíu umferðarmerki í Brákarsundi. Full ástæða er til að brýna fyrir foreldrum, að þeir ben>ði börnum sínum á, að umferð- armerki eru ekki heppileg leiktæki. Auk þess kostnaðar, sem eyðilegging þeirra hefur í för með sér, er hér bókstaf- lega verið að bjóða hættunni heim. Kennum hörnunum að virða lög og eignarrétt annarra. Kennum þeim að þykja vær>* um borgina sína! 3 nýir menntaskóiar Frumvarp komið fram á Alþingi í GÆR var lagt fram á Alþingi fitýornarfrumvarp um brcytingu á lögum um menntaskóla, sem felur í sér, að menntaskólum verði Ijölgað um þrjá og verði einn þeirra í Reykjavík, annar á Vestfjörðum og hinn þriðji á Austurlandi. í frumvarpinu segir: Menntaskólar skulu vera sex, tveir í Reykjavík, einn á Akur- eyri, einn að Laugarvatni, einn á Vestfjörðum og einn á Austur- iandi. Menntaskólarnir utan Reykjavíkur skulu vera heimá- vistarskólar. Menntaskólana á Vestfjörðum og Austurlandi skal stoína, þegar fé er veitt til þess í f'járlögum. Einnig skal, þegar tfé er til þess veitt í fjárlögum, heimilt að stofna fleiri mennta- skóla i Reykjavík eða nágrenni. Heimilt er menritamálaráðuneyt- inu að koma á fót kennslu í náms efni 1. bekkjar menntaskóla við gagnfræðaskóla, þar sem nem- endafjöldi og önnur skilyrði gera slíka ráðstöfun eðliiega og fram- kvæmanlega. Er þá ráðuneytinu heimilt að setja reglur um þetta skóláhald, þar á meðal skil- yrði um lágmarkstölu nem- enda í hverjum bekk. Heimilt skal að koma framangreindum menntaskólum á fót í áföngum, bæði að því er varðar kennslu og bygging húsnæðis fyrir þá. Kostnaður við stofnun og rekst ur menntaskóia greiðist úr ríkis- sjóði, svo og kostnaður við menntaskóladeildir, er komið kann að verða á fót við gagn- Framhald á bls. 27. Helga RE með metafla VÉLSKIPIÐ Helga RE kom til Reykjavíkur í gærmorgun með 72,4 tonn af fiski, en það er mesti afli, sem kunnugt er að nokkur bátur hafi komið með úr róðri i vetur. Fvrra metið í Reykjavík átti Björg- úlfur, sem fékk rúm 50tonn. Skipstjóri og eigandi Helgu er Ármann Friðriksson. Aflinn virðist heldur vera að glæðast í þorskanetin hjá Rcykjavíkurbátunum, sem ekki hafa aflað vel að undan- förnu. Ólafur bekkur gekk næst Helgu og kom að landi með 33 tonn og Ásþór með 29 tonn. Nótabátar voru ekki á sjó í gær, og afli hefur veri® rýr hjá þeim að undanförmu. Innbrol: 2 rodíólónum stolið í FYRRINÓTT var brotizt inn í húsgagnaverzlunina Búslóð, að Skipholti 19 í sama húsi og veit ingastaðurinn Röðull er. Farið var inn frá Nóatúni og stolið tveimur radíógrammófónum af gerðinni Luxor OKTV-Stereo og Luxor PIONJAR, sem samtals eru að verðmæti 23 þúsund kr. Þá var stolið nýju útvarpstæki, Luxor Symphony Stereo, sem kostar kr. 8.630,00 og auk þess ferðaritvél og notuðu útvarps- tæki. Rannsóknarlögreglan heitir á alla þá, sem kunna að hafa erðið varir við grunsamlegar manna- ferðir í Nóatúni umrædda nótt, að hafa samband við sig hið fyrsta. Telur hún, að hér hafi verið að verki fleiri en einn mað ur og þeir áreiðanlega verið i biL Siglufjardar- skarð upnað SIGLUÍTRf>I, 7. april — Siglu- íjarðarskarð var opnað biium um hádegi í gær, fyrr en nokkru sinni áður á vorin. Unnið hafði verið að því undanfaína daga að ryðja snjó aí fjallveginum meö stórri jarðýtu. Hefur það starf aldrei tekið eins stuttan tíma, þótt venjulega hafi verið notaðar tvær ýtur og mokað bóðum meg- in frá. Skarðið hefur verið teppt síð- ar, í október og er vegurinm mjöig slæmur undan snjónum, einkum um Fljótin. Vegurinm mun í rauninni ek'ki fær smærri bílum og þarf rækilegs ofaiú- burðíir og lagfæringar með. — E. J-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.