Morgunblaðið - 08.04.1965, Síða 5
Fimmtudagur 7. apríl 19B8
MORG U N BLAÐIÐ
Austast fyrir öllu landi
af einhverjum veit ég stað,
fjalleyju grænni og góðri,
getið þér, hver muni það.
Hún heitir Skrúður og
skýlir
Skrúðsbónda, öldnum hal;
úti fyrir Fáskrúðsfirði
þú finnur það eyaval.
Og hvenær sem ég hugsa
um hrútinn og pækilinn,
mér er sem ég sjái hann
Gísla
og hann séra Ólaf minn.
Þannig orkti Jónas Hall-
grimsson og mennirnir, sem
hann nefnir, vóru þeir Gísli
Hjálmarss'on læknir og séra
Ólafur Indriðason á Kolfreyu-
stað. Þeir frseddu hann um
Skrúðsbóndanri, hrútinn og
pækilinn, því áð aldrei kom
Jónas út í Skrúð, sá eyna að-
ein«s tilsýndar eins og hún
sést hér á myndinni. Skrúðs-
bóndinn var einhver vœttur,
sem bjó í helli á eynni. Hon-
um leiddist einlífi og rændi
dóttur prestsins á Hólmum.
Guðmundur biskup góði gisti
eitt sinn að Hólmum og bað
prestur hann þá að vígja
Skrúð svo að hann ætti „bónd
ann“ ekki yfir höfði sér. Um
nóttina dreymdi biskup áð
maður mikill vexti og skraut
búinn kæmi til sín og segði:
„Farðu ekki að vigja Skrúð-
inn, enda muntu ekki fleiri
ferðir fara, farir þú til’byggða
minna að gera^mér mein.“
Hætti þá biskúp við ferðina
og er Skrúðurinn óvígður enn
í dag. Um hrútinn er það
að segja, að ær voru látnar
ganga í eynni um vetur og
tekur þá Skrúðsbóndi jafnan
hrútinn í hagatoll, og „satt
er það, að hrútar hverfa frem
ur öðru fé úr Skrúðnum —
því að hornin munu stjaka
þeim frá berginu, svo þeir
hrapa í sjóinn þegar þeir
tildra sér á hillurnar", segir
Jónas. Pækillinn er sjór, sem
sezt þar í bergskvompur og
þegar hann gufar upp, .verður
hann brimsaltur. — Skrúður-
inn er fögur ey, hömrótt og
rís hátt úr sjó, og er iðgræn
bæði sumar og vetur; fölna
•þar ajdrei grös vegna þess
hve mikinn áburð fuglinn
veitir eynni. Halda sumir, að
vegna þessa litar sé nafnið
Skrúður komið, en það þarf
ekiki að vera. Nafnið getur
vérið flutt frá Noregi, því að
þar var til Skrúður áður en
ísiland byggist.
ÞEKKIRÐIJ
LANDIÐ
ÞITT?
VISUKORIM
Páil Ólafsson kvað þessar vísur
á gamals aldri:
Aldrei held ég venjist við að
verða hrumur,
mig langar enn í glaum og
glímur,
ganga í Skrúð og yrkja rímur.
Að trúlofast og tefla skák og
tæma kollu
getur breytt í æsku elli,
eins og að ríða Löpp á svelli.
Þá vildi ég líka sigla á sjó og
sjá ’ann hvessa,
og verði mér á víf að kyssa,
verð ég eins og hlaðin byssa.
Akranesferðir með sérleyfisferðum
X>órðar Þ. Þórðarssonar. Afgreiðsla hjá
B.S.R. við Lækjargötu. Ferðir frá Rvík
mánudaga, þriðjudaga, kl. 8 og 6, mið-
vikudaga kl. 8, 2 og 6, fimmtudaga
og föstudaga kl. 8 og 6, laugardaga
kl. 8, 2 og 6, sunnudaga kl. 10, 3, 9
og 11:30 (en kl. 11:30 frá B.S.f. ann-
ars alltaf frá B.S.R.).
Frá Akrarnesi mánudaga kl. 8 og 6,
þriðjudaga kl. 8, 2 og 6, miðvikudaga
og fimmtudaga, kl. 8 og 6, föstudaga
og laugardaga kl. 8, 2 og 6, sunnudaga
k 10, 3 og 6.
i .ískipafélag Reykjavíkur h.f.:
K-..a er í Rvík. Askja er væntanleg
4ii Kristianisand í dag frá Bremen.
H.f. Jöklar: Drangjökull er í Klai-
peda, fer þaðan til Ventspils og Ham-
borgar. Hofsjökull fór í gær frá Le
Havre til Rotterdam og London. Lang
jökull fer í dag frá Rotterdam til
Hamborgar. Vatnajökull fór í gær-
kvel'di frá Osló til íslands. ísborg
kemur til Cork á morgun, fer það-
an til London, Rotterdam og Rvíkur.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á
leið frá Gautaborg til Rvlkur. Esja fer
frá Reykjaivík kl. 17:00 1 dag vestur
um til ísafjarðar. Herjólfur fer frá
Vestmannaeyjum kl. 21:00 í kvöld
áleiðis tti Rvíkur. Þyrill or á Faxaflóa
i olíuflutningum. Skjaldbreið fer frá
Rvíik á morgun austur um land til
Þórshafnar. Herðubreið var við Vest-
mannaeyjar i gærmorgun á austurleið.
llafskip h.f.: Langá fór frá Gauta-
borg í gær tiil Rvíkur. Laxá fer frá
Hull í dag til Rvíkur. Rangá er í
Vestmannaeyjum. Selá er í Vestmanna
eyjum. Jeffmine fór frá Hamborg 5.
þm. til Vestmannaeyja. Hekla fór
frá Gautaborg í gær til Rvíkur. Minne
Basse lestar í Hamborg 9. þm.
Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell er 1
Rvfk. Jökulfell fór 5. þm. frá Glou-
cester til Rvíkur. Dísarfell fer vænt-
anlega 1 dag frá Glomfjord til íslands.
Litlafell Er í Rotterdam. Helgafell fór
í gær frá Rotterdam til Austfjarða.
Hamrafell er væntanlegt til Rvíkur
á morgun. Stapafell er í olíuflutning-
um á Faxaflóa. Mælifell fór 6. þm.
frá Glomfjord til Gufuness. Petrell
kemur til Rvíkur í dag.
H.f. Eimskipafélag íslands: Bakka-
foss fer frá Leith 7. þm. til Rvíkur.
Brúarfoss fór frá Vestmannaeyjum 7.
þm. til Grimsby. Dettifoss fer NY 7.
þm. til Rvíkur. Fjallfoss fer frá Hels-
ingfors 8. þm. til Rvíkur. Goðafoss
fór frá Vestmannaeyjum þm. til
Gdynia. Gullfoss fór frá Kaupmanna-
höfn 7. þm. til Leith. Lagarfoss fór
frá NY 2. þm. til Rvíkur. Mánafoss
kom til Rvíkur 7. þm. frá Rotterdam.
Selfoss fer frá Rvík 7. þm. til Súg-
andafjarðar, ísafjarðar, Bíldudals,
Keflavíkur og Vestmannaeyja. Tungu
foss fer frá Antwerpen 7. þm. til
Hull og Rvíkur. Katla kom til Rvíkur
6. þm. frá Austfjörðum og Gauta-
borg. EJcho kom til Rvíkur 7. þm.
frá Hamborg. Askja fór frá Bremen
7. þm. til Kristiansand, Skien og Gauta
borgar. Breewijd lestar í Hamborg
13. þm. til Rvíkur.
Utan skrifstofutíma eru skipafréttir
lesnar í sjálfvirkum símsvara 2-1466.
sá HÆZJ bezti
Læknir, sem starfar hcr í bænurn, verður meðal annars oft að
úrskurða, hvort stúlkur séu barnshafandi.
Þegar illa sten-dur á fyrir stúlkunum, verður oft grátux og
gnístran tanna, ef hann segir þeim, að þær séu méð barni.
Ein stúlka brást þó öðru vísi við, þegar hann kvað upp úrskurð-
inn, Hún sagði hin rólegasta:
„Ja, var það furða!“
Keflavík — Njarðvík
Amerísk fjölskylda óskar
eftir 3—4 herb. íbúð. Upp-
lýsingar gefur Milton
Wright, sími 6134, Kefla-
víkurflugvelli.
Iðnaðarhverfi
óska að taka á leigu upp-
hitað húsnæði í iðnaðar-
hverfi, 30—40 ferm. Uppl.
í síma 36253.
Tökum fermingarveizlur
og aðrar smáveizlur. Send-
um út veizlumat, snittur og
brauð.
Hábær, sími 21360.
Millivegg’japlötur
5 cm, 7 cm og lo cm.
Hagstætt verð.
Plötusteypan
Sími 35785.
Ámokstur
Sími 34699. — Amokstur.
Aheit og gjafir
Ahcit og gjafir til Strandarkirkju
afh. Mbl.: JJ 300; GG 200; GJ 100;
ÞK 25; ÁG 200; EB og JB 100; HJ 25;
MS og FJ 100; NN 200; ÁE 200; FM
125; S Andersen 100; SM 500; kona
100; g. áheirt 100; AG 100; OJ 350;
Hanna 50; Anna 1000; NN 50; áheit j
50; KB 100; MH 100; Anna Guðjónsd.
250; JH 100; NN 100; SteinUnn 100;
Þ Eyþórsson 150; MÓ Grinciavík 200;
NN 200; BM 2000; VHL 100; g. áh. KK
200; NN 100; Anna 100; ónefndur 100;
JGJ 500; IP 200; GP 50; ÓS 50; JG
100; GS 100; MK 100; J-G 100; ÓH 300;
SS 100; GG 100; IB 100.
Sólheimadrengurinn afh. Mhl.: EB
og JB 100; Ó 25; JGJ 500; HTH 200;
GH 25.
Hallgrímskirkja í Saurbæ afh. Mhl.
SJS 220.
Lamaði iþróttamaðurinn afh. Mbl.:
EE 100; Áheit XZ 25.
Fimmtudagsskrítlan
Frakki og Ameríkumaður ræð-
ast við:
Frakkinn: „Ebki er ættfræðin
á háu stigi í Ameríku. Það mundi
kosta flesta Ameríkumenn mikla
rannsókn í fjölda landa að kom-
ast að raun um bverjir séu afar
þeirra.“
Ameríkumaðurinn: „Alveg rétt.
En á hinn bóginn er það verk-
efni flestum Frökkum ofvaxið,
hversu löngum tíma sem þeir
verja til þess að komast fyrir
hverjir séu feður þeirra.“
Nú er rétti tíminn
til að klæða gömlu hús-
gögnin. Bólstrun Ásgríms,
Bergstaðastræti 2.
Sími 16807.
Klæðum húsgögn
Klæðum ’ og gerum upp
bólstruð húsgögn. Sækjum
og sendum yður að kostn-
aðarlausu. Valhúsgögn
Skólav.stíg 23. Sími 23375.
Ryðbætum híla
með plastefnum. Arsábyrgð
á vinnu og efni. 'Sækjum
bíla og sendum án auka-
kostnaðar. — Sólplast h.f.,
Lágafelli, Mosfellssv. Sími
um Brúarland 22060.
Plast-hillupífurnar
komnar. — G>ardínubú3in,
Ingólfsstræti.
ATHDGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Stuika óskast
Rösk og áreiðanlcg stúlka óskast til starfa í prjóna-
stofu i Sogamýri. Ekki unnið á laugardögum. Mögu-
leikar á ákvæðisvinnu. Það er ekki skilyrði að við-
komandi geti byrjað strax.
Upplýsingar í síma 11422 eftir kl. 5
í dag og á morgun.
Bókhaidaii
Vanur bókhaldari óskast til starfa á einni af stærstu
lögfræðiskrifstofum borgarinnar.
Fjölbreytt starf — góð vinnuskilyrði.
Þeir, sem kynnu að hafa áhuga fyrir starfinu sendi
nöfn sín og aðrar upplýsingar til afgreiðslu Morg-
unblaðsins merkt: „Fjölbreytt starf — 1898“.
Uigerðarmeiiai — Bátar
Höfum kaupendur að 10—50 lesta bátum.
Hafið samband við okkur ef þið viljið selja bát.
Skip & fasteignir
Austurstræti 12 — Sími 21735
eftir lokun sími 36329.
LaxveiSijörð til sölu
Til sölu er á næstkomandi vori jörðin Neðri-
Lækjardalur í A.-Hún. Túnstærð um 15 ha. mest
véltækt. Rafmagn og sími. Jörðin er um 3 km frá
Blönduósi. Ótakmarkaðir ræktunarmöguleikar. Til-
boðum ber að skila til undirritas fyrir 30 .apríl, n.k.
Áskilin réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Keflavík, 5/4. 1965.
Guðmundur Jakobsson, sími 1373.
Eldhússtörf
Okkur vantar aðstoðarstúlku í mötuneytið
á Álafossi. — Upplýsingar á skrifstofu
Álafoss, Þingholtsstræti 2.