Morgunblaðið - 21.04.1965, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 21. apríl 1965
MORGU N BLAÐIÐ
19
Guðmundur Haukur
BR við nokikrir bekkjarbræður úr
ÍM.R. vorum að spranga um fjöll
og firnindi í nágrenni Langjök-
ul'S nú á öndverðum vetri, hefði
okkur þótt það jnik.il býsn, ef
okkur hefði verið tjáð, að í lok
vetrar félli einn úr hópnum í val-
inn. En tiltektir dauðans eru
stundum harla kynlegar, og oft
virðist hann slæma ljá sínum, þar
eem sízt sikyldi. Og ekki höfðu
hinir fyrstu smáfuglar tekið að
þylja kvæðarugl sitt í vetrarauð-
tim görðum og tilveran yfirleitt
að glæðast lífi, en manni bárust
þær hörmungarfréttir að Guð-
mundur H. Guðnason væri allur.
Ekki er nokkur von til þess að
dragá upp heillegar minningar
nin Guðmund eins og eitthvað,
sem tekið er að hjúpast blámóðu
tímans, því að áhrif hans og andi
liggja raunar enn í loftinu, enda
tæpast unnt að trúa því, að hann
eé horfinn á braut.
Guðmundur var fæddur 28.
imarz 1943 sonur þeirra Petru
Pétursdóttur og Guðna Kr. Guð-
mundssonar, en hann lézt fyrir
nokkrum árum. Kynni mín af
Guðmundi hófust, er við lentum
i sama bekk í M.R. fyrir tæpum
4 árum. Guðmundur var fremur
fálátur dagfarsleiga og fór sínar
eigin slóðir, en í hópi vina og
fcunningja var hann hrókur alls
fagnaðar og sagði þá svo snilldar-
lega frá, að undrun sætti. Var
hann raunar mesti mælskumaður
og gæddur ríkri frásagnargáfu
og átti jafnvel til að ávarpa menn
með mjög forneskjulagu tungu-
taki, svo að ekki var laust við,
að sumir, sem lítt þekktu hann,
yrðu flemtri slegnir. Frásagnar-
gáfan ásamt ágætis húmor gerði
það að verkum, að hann átti auð-
vellt með að semja bráðskemmti-
legustu ritgerðir og var hann oft
svo fljótur að því, að furðu
gegndi. Ekki er langt síðan ég
las ritsmíð eftir hann, óhemju
fyndna, sem fjallaði um skemmt-
analif manna fyrr á öldum og nú
á tímum. Ritigerðina sauð hann
saman á örskömmum tíma að
talsverðu leyti í frímínútum.
Guðmundur var með afbrigð-
um góður tungumálamaður og
tók hann hvað mestu ástfóstri
við enska tungu. Hafði hann afl-
að sér svo mikillar þekkingar og
orðgnóttar' á því máli, að helzt
inátti líkja honum við lifandi
orðabók, enda var honum veitt
viðurkenning fyrir enskukunn-
áttu sína á stúdentsprófi sl. vor
og er óhætt að fullyrða, að sú við-
urkenning hafi komið í réttan
stað. Mér eru ákaflega minnis-
stæðir orðalistar ýmsir og klaus-
ur á ensku, sem Guðmundur
samdi oft í tímum og sendi um
bek'kinn mönnum til hrellingar.
Hristi hann þær fram úr erminni
löng og margslungin orð og pistla
svo snúna, að okkur hinum minni
spámönnum í ensku lá við að
svima. Skapferli Guðmundar var
þannig farið, að fengi hann mik-
inn áhuga á einhverri sérstakri
grein, lagði hann sig svo fram
við námið, að hann hlaut að skara
fram úr, en skeytti síður þeim
greinum, sem voru honum hvim-
leiðar. Sýnir þetta vel, hve heill
og óskiptur Guðmundur var í
hvívetna, en óheilindi og vingl
voru honum framandi.
Á þessum tímum sérhæfingar
eru menn, sem sameina andlega
og líkamlega kosti og hæfileika,
fágætar undantekningar og var
Guðmundur slík undantekning.
Auk ágætra námshæfileika var
hann heljarmenni að burðum og
hinn harðskeytasti sundmaður.
Keppti hann iðulega í sundi ým-
ist fyrir skólann eða fyrir félag
sitt K.R. f haust hóf Guðmundur
nám í ensku við Háskóla íslands,
en skömmu eftir áramót fékk
hann starf sem gtundakennari við
Voigaskólann í Reykjavík og
fcenndi þar jafnhliða náminu.
Efa ég ekki, að hann hafi reynzt
í því starfi svo skýr sem hann
var í hugsun og ákveðinn í at-
höfnum.
Það hlýtur að vera sérstaklega
Minning
sárt smáu þjóðfélagi að missa
sína mestu atgervismenn á unga
aldri og við sem kynntumst Guð-
mundi Guðnasyni, skynjum, að
nú er skarð fyrir skildi og það
skarð er vandfyllt. Við bekkjar-
bræður Guðmundar vottum móð-
ur hans, systkinum og ættingjum
öllum, okkar dýpstu samúð.
G.K.
Fæddur 28. marz 1943.
Dáinn 12. apríl 1965.
ÉG var harmi lostinn, er mér var
tilkynnt lát vinar míns og fyrr-
verandi skólabróðurs Guðmundar
Hauks Guðnasonar.
Kom mér þá í hug þetta gamla
spakmæli: Þeir sem guðirnir
elska, deyja ungir, og var það
mér hugarsvölun í þeim harmi
er gagntók mig. Hann var unigur
og efnilegur piltur í blóma lífsins,
og lífið virtist blasa svo undur-
samfega bjart móti honum. En
svo er hann allt í einu hrifinn
burtu af sjónarsviðinu. Þetta eru
grimm örlög, sem erfitt er að
sætta sig við.
Guðmundur, eins og hann var
alltaf kallaður, var fæddur 28.
marz 1943, og var því rúmlega
22 ára gamall er hann andaðist.
Kynni mín af honum voru fyrst
í Reykholtsskóla veturinn 1958-59
Oig hafa þau haldizt æ síðan, en
þó einkum hin síðari ár. Guð-
mimdur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum £ Reyk j a vík
síðastliðið vor, með 1. einkunn.
í haust settist hann í Háskóla
íslands og stundaði þar nám í
ensku og fröns'ku og sóttist hon-
um námið vel, enda frábær mála-
maður.
Hann var í hópi okkar beztu
sundmanna og mun það K.R. mik
i'll skaði, að missa svo góðan og
elskulegan mann úr hópi sínum.
Þótt við værum ekki í sama sund-
félagi, var það ekki til að skyggja
á okkar góðu vináttu, sem milli
okkar var. Hann var vinur vina
sinna og allt, er hann sagði stóð
eins og stafur á bók, og alltaf var
hann boðinn og búinn til að rétta
þeim hjálparhönd er til hans leit-
uðu.
Stuttu og flekklausu lífi er lok-
ið og þínar björtu vonir horfn-
ar, einu góðu mannefni færra,
björt minning vakinn, sem aldrei
gleymist þeim sem honum kynnt-
ust. Ollum ástvinum þínum votta
ég mína dýpstu samúð, og bið
guð að styrkja þá og blessa.
Vertu sæll minn bezti vinur,
guð varðveiti þig.
Sæmundur Sigursteinsson.
Fæddur 28. marz 1943.
Dáinn 12. apríl 1965.
Kveðja frá vinnufélögum
í Skálholti.
VIÐ helfregnina setur mann
'hljóðan, og því fremur sem um
er að ræða ungan mann og góð-
an vin. Þannig varð okkur vinnu
félögunum við, er við fréttum, að
Guðmundur Haukur Guðnason
væri horfinn af landi lifenda.
Hann var einn af þeim ungu
mönnum, sem óhætt var að binda
miklar vonir við, afreksmaður í
námi, dugmikill tií vinnu. Hann
Guðnason
75 ára:
7rú Pálína Þorfinnsdóttir
var ósvikinn íslenzkur sveitapilt-
ur og náttúrubarn.
Við, sem viljum minnast hans
með þessu litla greinarkorni,
kynntumst Guðmundi heitnum,
er hann að loknu stúdentsprófi
byrjaði að vinna með okkur að
byggingu sumarbúðanna í Skál-
holti síðastliðið sumar. Hann kom
okkur fyrst fyrir sjónir sem ljós-
hært þrekmenni, ákveðinn en dul
ur um eigin hag. Munaði strax
mikið um hann til verka. Hann
samlagaðist fljótt hópnum, sem
fyrir var á staðnum. Ekki mátti
þó kalla það skyldu hans, eins og
okkar hinna, að sækja hinar dag-
legu bænastundir okkar í dóm-
kirkjunni. Samt sem áður tók
hann þátt í þeim af einlægni. Af
mörgum þessara stunda áttum
við dýrlégar minningar,' sem seint
munu fyrnast.
Þegar menn eru langdvölum
saman á einum stað og vinna að
verkefnum, sem öllum er umhug-
að um að leysa sem bezt af
'hendi, mótast hópurinn á sérstæð
an hátt. Hver einstaklingur legg-
ur til sinn þátt í myndina. Þátt,
sem gerir myndina ríkari að blæ-
brigðum. Og það magum við með
sanni segja, að með hvarfi Guð-
mundar heitins úr hópi Skálholts
sveina 1964, hefur einn mikilvæg-
ur þáttur í myndinni brostið.
Hann var nógu rikur til að sikilja
eftir afmáanlega mynd í vitund
okkar, sem vorum honum sam-
tíða þetta sumar.
Og nú er hann genginn. Efcki
höldum við, að hann vilji láta
hafa miklar harmatölur yfir sér
látnum. En eitt höfum við þó
handa honum: herbergi í höll
endurminninga okkar, þar sem
mynd hans er sveipuð umgjörð
Skál'holtsstaðar í sumardýrð. Og
við viljum vona, að síðar fáum
við að sjá hann í annarri dýrð
og meiri, þegar við mætum frels
aranum, sem allt hefur gefið okk
ur af óverðskuldaðri náð.
. Vinnufélagar í Skálholti
sumarið 1964.
Afli Akranes-
báfa
um páskana
AKRANESI, 20. apríl. — 116
tonn var afli miðvikudag og
skírdag. Aðeins 3 bátar reru hér
á skírdag. Flestallir bátar héðan
voru á sjó laugardaginn fyrir
páska Heildaraflinn þá var 100
tonn. Aflahæstur var Sólfari með
29,7 tonn. Jafnóðum og þeir
lönduðu var fiskurinn lagður í ís
og geymdur þannig til morguns
2. páskadag. Á 2. páskadag reru
flestallir bátar héðan og öfluðu
á þriðja hundrað tonn. Á þorska-
netunum var aflinn 4—13 tonn
á bát. Höfrungur III. fiskaði 30
tonn og Sigrún 14 tonn, báðir
í þorskanót.
Ms. Katla lestaði hér í gær-
kvöldi og í morgun hrogn.
— Oddur.
ÞEGAR merkilegum aldurs
áfanga er náð á lífsferli manna,
kemur í ljós að það er ekki ald-
urinn ein, sem máli skiptir, held-
ur hvað eftir manninn liggur og
þá ekki hvað sízt það, er orðið
hefur þjóðfélaginu til nokkurs
gagns og framfara.
Þessar hugleiðingar komu
fram í huga þess, er þetta ritar
þegar minnast skal 75 ára .af-
mælis frú Pálínu Þo'rfinnsdóttur,
Urðarstíg 10, hér í borg, en hún
náði þessum aldri á páskadaginn
18. þ. m.
Fyrir rúmlega 50 árum var
Reykjavík bær upp á rúmlega
13000 íbúa, atvinna stopul og
skipulagning verkalýðsmálanna á
frumstigi. Þá er það að verka-
konur stofna Verkakvennafélag-
ið Framsókn haustið 1914. Meðal
stofnenda var frú Pálína Þor-
finnsdóttir, ung að árum en með
eldmóð hugsjóna og réttlætis-
kenndar fyrir bættum kjörum
verkakvenna. Vinnudagurinn
var langur og erfiður og eril
söm heimilisstörf biðu þegar
heim var komið að kvöldi. En
frítíminn var notaður til að
vinna að áhugamálunum og að
uppbyggingu félagsins, með
þeirri atorku og stefnufestu, sem
konum er svo lagið þegar þær
hafa ákveðið að hrinda málunum
í framkvæmd.
Frú Pálína hefur unnið sleitu-
laust og ávallt verið endurkos-
in í varastjórn Verkakvennafé-
lagsins Framsóknar frá stofnun
þess. Á sl. hausti var hún gerð
að heiðursfélaga á 50 ára afmæli
félagsins.
Sá er þetta ritar kynntist frú
Pálínu fyrir 15 árum, er hún
var kjörin í Safnaðarstjórn Frí-
kirkjunnar í Reykjavík. Kom þá
fljótt í Ijós að hjá henni fóru
saman mannkostir og samvinnu-
þíðni, enda hefur hún verið end-
urkjörin í safnaðarstjórnina
ávalt síðan. Hún er hrein og bein
— Gulífoss
Framhald af bls. 17
um prýdd og gluggar verzlana
skreyttir til heiðurs skipinu.
Lúðrasveit lék á Steins-
bryggju, verzlunum og skól-
um var lokað. Eftir hátíðina
hér í Reykjavík hélt skipið til
Hafnarfjarðar og síðan á Vest
firði til ísafjarðar. Hvarvetna
var því fagnað af mikilli
gleði, fjöldi heillaskeyta bár-
ust og mörg kvæði voru ort
til vegsemdar hinu nýja skipi.
Nú eru liðin 50 ár frá komu
fyrsta skips íslendinga. Margt
hefir breytzt og stórstígar
framfarir hafa orðið í sam-
göngumálum þjóðarinnar. Eim
skipafélagið hefir vaxið og
dafnað. Það er von og ósk
Morgunblaðsins að félagið
haldi áfram að halda hátt
merki sínu og bjóða velkomin
mörg skip, sem jafnan fylgi
gifta landsins frá höfn til hafn
ar og frá hafi til hafs.
og kemur til dyranna eins og hún
er klædd. Setti trú og mannúð-
armál öllu ofar og fylgdi fram-
kvæmdum þeirra mála fast eftir
með óeigingjarnri vinnu og dugn
aði. Kom það ekki hvað sízt
fram, þegar um fjársafnanir var
að ræða í þágu fegrunar kirkj-
unnar og annara framfaramála
safnaðarins. Þar standa fáir
henni á sporði.
Auk þessa hefur frú Pálína
starfað af sama dugnaði í fjöldá
félagasamtaka, í Kvenfélagi Frí-
kirfcjusafnaðarins í meira en ára
tug og Kvenfélagi Alþýðuflokks-
ins, svo nokkur séu nefnd. StarJ
hennar fyrir Hallgrímskirkju í
fjársöfnun og fleiru er viður-
kennt af þeim er til þekkja. Það
er furðulegt hvað hægt er að af-
kasta miklu þegar tekið er tillit
til þess, að öll eru störfin unnin
utan vinnutíma og heimilis-
verka.
Frú Pálína ber aldurinn vel,
þrátt fyrir veikindi undanfarna
mánuði, enda dvelur hún nú í
heilsuhæli N.F.L.Í. í Hveragerði.
Á þessum merkisdegi sendir
safnaðarstjórnin, fyrir hönd alls
Fríkirkjusafnaðarins í Reykja-
vík, frú Pálínu hjartanlegar árn-
aðaróskir um fljótan bata og aft-
urkomu til starfa.
Það er einlæg ósk og von, að
þau verðmæti, sem myndazt hafa
úr óeigingjörnum og dyggilega
unnum störfum, veiti henni þá
ánægju og uppfyllingu, sem er
einasta veganestið er við getum
tekið með okkur að leiðarlok-
um.
Magnús J. Brynjólfsson.
íbúðir óskasf
Höfum kaupenidur að 4ra, 5 og
6 herb. íbúðum. Einnig rað-
húsum og einbýlisliúsum. —
Háar útborganir.
FASTEIGNASALA
Vonarstræti 4 (VR-húsinu)
Sími 19672.
Heimasími sölumanns 16132.
YILHJÁLMUR ÁRNASON hrl
TÓMAS ÁRNASON hdL
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Ihnaharfaankahúsinu. Simar Z4G3S og 1G3Q7
Ingi Ingimundarson
hæstaréttarlögir.aðui
Klapparstíg 26 IV hæð
Hœlonsloppar
Vegna mikilla breytinga í báðum verzlununum seljum við okkar
vinsælu kvensloppa úr prjónanæloni á sérstöku niðursettu verði.
Komið strax því þetta tilboð stendur aðeins í nokkra daga.
Verð aðeíns kr. 198—
ATH.: Þetta verð býðst aðeins í nokkra daga.
Lækjargötu 4 — Miklatorgi.