Morgunblaðið - 21.04.1965, Síða 31
Miðvikudagur 21. aprfl 1935
MORCUNBLAÐiÐ
31
Talsvert berst að
af togarafiski
AFLI virðist heldur vera að
glæðast hjá togurum. Um helg-
ina hafa nokkrir togarar komið
itieð afla inn til Reykjavíkur og
var verið að landa úr þeim. Ing-
ólfur Arnarson kom á laugar-
dag með 195 tonn frá Austur-
Grænlandsmiðum og Marz kom
ó páskadag með rúm 200 tonn.
Var í gær unnið að því að landa
úr honum. Þá beið Þorkell máni
og átti að byrja að landa úr hon-
um 230 tonnum í morgun. Hafði
hann þá beðið í 2 sólarhringa.
Hallgrímur í Togaraafgreiðsl-
unni sagði að biðin stafaði af
því að ekki væri nógur mann-
skapur til að vinna að löndun
þegar margir togarar koma inn
í einu og í ýmsu fleiru er að
snúast. Menn vilja líka síður
vinna að löndun en öðru, því
það þykir hlífðarfatafrek vinna
og heldur leiðinleg. Ef um veru-
legar landanir úr togurunum
væri að ræða, mundi brátt horfa
til vandræða með það.
Þormóður goði er væntanleg-
ur á föstudag með afla, ekki vit-
að hve mikið. Og Sigurður kem-
ur frá Nýfundnalandsmiðum
með um 400 tonn á sunnudag eða
I mánudag. Svo talsvert berst nú
I að af togarafiski.
— Skákþingið
Framhald af bls. 32
félagi Menntaskólans og þar
stendur reyndar yfir mót
núna, en ég gat ekki tekið
þátt í því vegna skákþingsins.
— Mér fannst skákþingið
allerfitt og var ég einkum
orðinn þreyttur undir lokin.
— Það er enn óráðið um
minn skákferil í framtíðinni,
því ég hugsa fyrst og fremst
um að Ijúka námi í mennta-
skólanum. En ég held sjálf-
sagt áfram að tefla og stúdera
skákblöð, bæði erlend og inn
lend eins og ég hef gert hing-
að til. Annars fer það sjálf-
sagt eftir því, hverslu mikinn
tíma ég hef aflögu þegar ég
er búinn að lesa lexíurnar.
— Það er enginn sérstak-
ur skáksnillingur, sem ég hef
tekið mér til fyrirmyndar.
Þeir eru svo margir góðir,
en ég hef mikið dálæti á
Friðrik Ólafssyni, sem teflir
mjög skemmtilega.
— Núna verður vist ekki
mikið um tafl, því prófin
fara að byrja, sagði Guð-
mundur Sigurjónsson.
Lærði mannganginn
8 ára gaimall
Yngsti þátttakandinn á
skákþinginu var 16 ára piltur,
Haukur Angantýsson, sem er
nemandi í 3. bekk MR. Hann
varð í 3. sæti ágamt 3 öðrum
og munu þeir tefla sérstak-
lega um réttindi til að keppa
í landsliðsflokki.
Haukur sagði Morgunblað-
inu í gær, að hann hefði verið
8 ára að aldri, þegar hann
lærði mannganginn og hefði
hann upp úr því farið að
kynna sér skák nánar og stúd
era hana.
Hann er Keflvíkingur, en
býr nú í Reykjavík hjá for-
eldrum sínum, þeim Arina
Ibsen og Angantý Guðmunds-
syni.
Haukur kvaðst hafa teflt
innan Taflfélags Keflavíkur
og síðan í 1. flokki innan
Taflfélags Reykjavíkur og
komist þar í meistaraflokk ár
ið 1961 og tekið þátt í flest-
um mótum félagsins. Hefði
sér verið boðin þátttaka nú
ó Skáklþingi íslands.
Að lokum sagði Haukur, að
mótið nú væri það sterkasta,
sem hann hefði tekið þátt í,
einkum hefðu yngri skák-
mennirnir reynzt erfiðir.
„Nú ætla ég að fara að
lesa undir próf og ætla mér
í stærðfræðideild, ef vel geng
ur“, sagði hann.
Hinn slasaðl fluttur upp úr lest FJallfoss. Til vinstri sést hlerinn
sem á hann féll. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Verkamaður
ÞAÐ SLYS varð unj borð i
F'.illfossi á skírdag, að lúguhleri
féll niðut á verkamann um sex-
tugt sem var við vinnu í lest
skipsins. Maðurinn, sem heitir
Þorsteinn Sveinsson, Kirkju-
stræti 2, var flujtur í sjúkrahús
og er mikið slasaður.
Slys þetta gerðist um kl. 14.25
á skírdag. Orsakir þess voru þær,
áð vírkrækjur slitnuðu úr þung
um lúguhlera úr stáii, og féll
Ihlerinn niður . í lest skipsins.
Lenti hlerinn á Þorsteini, sem
slasast
hentist ti.T og festist undir hin-
um þunga stálhlera. Fljótlega
tókst að losa hlerann af Þorsteini
og var hann fluttur í skyndi á
Slysavarðstofuna og þaðan í
sjúkrahús, þar sem hann liggur
enn. Við rannsókn kom í ljós,
að Þorsteinn hafði viðbeinsbrotn
að og lærbrotnað, auk þess sem
hann hlaut áverka á höfði, sem
ekki er vitáð hversu alvarlegur
er.
| Virkrækjur þær, sem notaðar
voru, slitnuðu vegna þess hversu
ryðbrunnar þœr voru. '>
Hafís á Eskifirði.
ís frá Norðurlandi
langt norður í íshaf
Gfærl fil McrðurSíitids að
cLiistari og vestan
ÓFÆRT virtist bæði Langanes-
megin og fyrir Horn til Norður-
landsins vegna ísbreiðunnar, er
flugvél landhelgisgæzlunnar fór
ísflug á 2. páskadag. Virðist ís-
inn mjög út af Húnaflóa og fyr-
ir Skaga og er þar illfært skip-
um, en víðast annars staðar er
fært með landinu fyrir norður-
landi. ísbreiðan liggur síðan alla
leið norður til ísjakans Arlis II
við Grænlandsströnd, að því er
flugmenn af Keflavíkurflugvelli
hafa séð.
Landhelgisflugvélin sá þéttan
ís út af Þistilfirði og var hann
að leggjast að einnig sunnan
megin Langaness og ófært norð-
ur fyrir Horn. Ennfremur lá ís
upp að Digranesi, en autt var
með landi þaðan og suður úr.
Sjálf ístungan teygði sig svo út
á haf allt suður á móts við Hval-
bak, en lítið var í henni syðst.
Við sjálft Horn vestan megin
virtist fært, en ekki austur af
Horni.
Mikill is var í gær á Húnaflóa,
inn Miðfjörð og Hrútafjörð. —
Fréttaritarar blaðsins á Blöndu-
ósi og Hvammstanga símuðu eftir
farandi isfréttir:
Miðfjörður fullur af ís
HVAMMSTANGA, 20. apríl. —
Miðfjörður er nú fullur af hafís
og svo langt sem séð verður. ís-
inn rak hér inn fyrir rúmri viku
og er nú alveg samfrosinn bakka
á milli. Stillt og bjart veður
hefur verið undanfarið, en í dag
er þiðviðri.
Mikill hafís er einnig inni á
Hrútafirði.
Snjólaust má heita í Vestur-
Húnavatnssýslu og því vel fært
um allar sveitir.
Inflúensufaraldur sá sem geng-
ið hefur að undanförnu virðist
vera frekar í rénun. — S.T.
- Iþrótfir
Framhald af bls. 30
Jóna Jónsdóttir ísaf. 77.96
Karólína Guðmundsd. Ak. 78.84
Svig karla
Kristinn Ben. fs. 99.31 sek.
Hafsteinp Sigurðss. ís. 102.99
Svanberg Þórðarson Ól. 103.76
Björn Olsen Sigluf. 104.40
Hjálmar Stefánsson Sigluf. 111.10
Jóhann Vilbergsson Sigluf. 111.96
Alpatvíkeppni karla
Kristinn Benediktss. ís. 0 stig
Svanberg Þórðarson Ól. 44.20
Hafsteinn Sigurðsson ís. 64.82
Jóhann Vilbergsson Sigluf. 80.82
Alpatvíkeppni kvenna
Árdís Þórðardóttir Sigluf. 0 stig
Jóna Jónsdóttir ísafirði 181.72
Hrafnhildur Helgad. Rvík 207.14
Boðganga
Siglufjörður 3.15.14 klst.
ísafjörður 3.18.13 klst.
Fljótamenn 3.19.56 klst.
Skíðastökk
Ljósm.: Axel Tulinius.
Frýs milli jakanna
BLÖNDUÓSI, 20. apríl. — Síð-
an í lok marz hefur hafís verið
mjög nærri landi úti fyrir Blöndu
ósi. Fram í miðjan apríl var
hann að mestu kyrrstæður og
oftast landfastur við Þingeyrar-
sand og Vatnsnes. Um bænadag-
ana rak þann ís norður með
Skaga, en á laugardaginn fylltist
Húnaflói af ís, eins langt og séð
varð frá Blönduósi, nema hvað
mjó renna var auð við landið
frá Ytri-Laxá inn að Húnaósi.
í morgun var ísinn óbreytbur
og sjórinn allagður milli isbrúac-
innar og lands. í dag hefur verið
SA-átt og þíðviðri. ísinn hefur
færzt nokkuð frá, en sýnir þó
ekki á sér verulegt fararsnið. Og
ailtaf í frosti hefur ísinn lagt
milli jakanna.
Allstór borgarísjaki er strand-
aður skammt frá landi móts við
Vindhæli á Skagaströnd og gnæf-
ir hann upp úr ísbreiðunni.
Björn Ólafsson Ól. 213.0 stig
Björnþór átti lengsta stöfck
keppninnar, 38 m
Sveinn Sveinsson Sigluf. 221.0
Geir Sigurjónsson Sigluf. 202.8
Haukur Freysteinsson Sigl. 195.2
Stökk unglinga, 17—19 ára
Haukur Jónsson Sigl. 213.2 stig
Sigurjón Erlendsson Sigl. 145.2
Norræn tvíkeppni
Sveinn Sveinsson Sigl. 555.06 st.
Sveinn var eini keppandinn
Norræn tvíkeppni, 17—19 ára
Haukur Jónsson Sigl. 277.2 stig
Sigurjón Erlendsson Sigl. 177.8
30 km ganga
Gunnar Guðmundss. Sigl. 1.31.69
Trausti Sveinss. Flj. 1.32.50 klst.
Frímann Ásmundss. Flj. 1.35.40
Flokkasvig
ísafjörður 448.16 sek.
í sveit ísfirðinga voru Krist-
inn Ben., Samúel Gústafsson,
Árni Sigurðsson og Hafsteinn
Sigurðsson.
Siglufjörður 457.71 sek.
Reykjavík 484.87 sek.
B. B.
Fólk fennti inni á Raufarhöfn
Varð að brjótast upp um þakið
RAUFARHÖFN, 16. apríl.
Til Raufarhafnar hafa engin
skip komið í meira en mánuð,
vegna siglingaörðugleika, sem ís-
inn veldur, en hann hefur legið
hér fyrir höfninni og lokað
henni, þótt dag og dag hafi verið
fært fyrir Horn eða Langanes.
Fyrir síðustu helgi var orðið
svo til snjólaust hér um slóðir,
og bílfært um flesta vegi. Nú
um helgina byrjaði svo að snjóa,
og var leiðinda veður suma dag-
ana. í gær var svo komin vonzku
stórhríð og kingdi niður óhemju
snjó. Allir vegir eru ófærir út
frá bænum, og ekkert farartæki
nema þá helzt snjó'bíll, kemst
lihér urn götumar, en því miður
er hann ekki til á staðnum. Marg
ir skaflarnir, serrr. komu í gær
eru fjögra til fimm metra háir,
og sumstaðar hafa hús hreinlega
fennt í kaf og valdið íbúunum
nokkrum erfiðleikum.
Einna alvarlegast mun ástand-
ið hafa verið í húsi Magnúsar
Jónssonar en það er tveggja
hæða steinhús og stendur í
brefcku, og er sú hliðin, sem að
brekkunni veit, nokkuð niður-
grafin.
í morgun er Magnús hugðist
líta út, var fennt fyrir alla
glugga á báðum hæðunum svo
og báðar útgongudyrnar. Svo
var snjórinn mikill og harður
fyrir gluiggunum, að ekki var
unt að opna þá og komast þar
1 út. Á þaki hússins var gluggi
j og komst fólkið þar út og kom
I þá í ljós að aðeins reykháfur-
inn og smá blettur á þakinu
kring um gluggann, stóð uppúr
snjónum. Hitt var allt í kafi.
Var nú safnað mönnum og far
; ið að moka frá dyrum og glugg-
I um efri hæðarinnar, svó og þak-
| inu, því nokkur hætta var á að
| það brysti undan snjóþunganum.
j Nokkurs loftleysis var farið að
gæta, áður en þak glugginn var
opnaður, en fólk sakaði þó ekki.
Þess má að lokum geta að er
snjónum hafði verið rutt að þak-
inu, reyndist full seilingar hæð
frá þakbrúninni upp á skafUrtn,
þar sem hann var hæstur. Frá
efri brúm skaflsins að jafnsléttu,
götu megin við húsið mun vera
a.m.k. átta metrar.
— st. e. sig.