Morgunblaðið - 27.06.1965, Side 2

Morgunblaðið - 27.06.1965, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudiigur 27. jfed; 1«>65 Fálkinn til- einkaður Svíum í’ÁLKINI'Í kemur út á morgun iwánudag óg er i tilefni af heim- sókn utanríkisráðherra Svía, Thorstens Nilssons, tileinkaður Sviþjóð, landi og þjóð. Með.al greina er frásögn urh helztu ævi atriði Gustavs VI Svíakonungs; samtal við Thorsten Nilsson, einn ig. brugðið upp myndum frá heim ÍIÍ "sænska sendiHéfrans hér í teörg, nvo óg shmtal Við sendi- |ierra-.Íslands í Stokkhólmiv >«- Þá er sagt frá .heimsókn „Fálk- ans‘‘ til.tveggja s.tærstu dagblað anpa i Svjjþjóð. Fjöldi ljósmynda lyýða groinarnar sem al'.s eru ,11 talsins, tile.inkaðar .Svíþjóð, til- einkaðar Svíþjóð. Fálkinn er 68 fíður að þessu sinni. k —--------------------- — Als'ir Framhald af bls. 1 verið að- fremja skemmdarverk á rafmagnsleiðslum byggingarinn- ar.--- í>á skýrði fréttastofa AP frá því í dag, að símasambandið milli Alsír og Parísar hefði rofnað um morguninn og var engin skýring * því gefin. Mikil ólga er enn í Alsír. í gærkvöldi beitti lögreglan í Al- geirsborg táragassprengjum gegn stúdentum, sem höfðu í frammi mótmælaaðgerðir gegn því, að Ben Bella var vikið frá völdum. Þá áttu sér einnig stað mótmæla- aðgerðir í austurhluta landsins, m.a. í hafnarborginni Bone. Enn er óvíst um ráðstefnu Asíu- og Afríkuríkjanna og var það hermt eftir Shastri, forsætis- ráðherra Indlands, í dag, að hann myndi ekki taka þátt í henni, enda þótt hún yrði haldin. Stúdentar við Lumumbaháskól ann í Moskvu hafa sent símskeyti til Boumediene ofursta, formanns byltingarráðsins í Alsír, þar sem þess var krafizt, að Ben Bella verði strax látinn laus. í hópi stúdentanna voru stúdentar frá Alsír, en einnig stúdentar frá öðrum löndum Afríku, svo og frá Asíu. Blað eitt í Líbanon skýrði frá því í dag, að samkvæmt heimild- um, sem það hefði frá New York, væri Ben Bella dáinn, og hefði hann verið skotinn til bana strax í upphafi byltingarinnar sl. laug- j ardag. Engin staðfesting hefur fengizt á þessari frétt. — Bardagar Framih. af bls. 1 taka Ameríkuríkja (OAS) var send til San Franciseo de Mac- oris í gærkvöldi til að rannsaka ástandið í borginni. Eftir skamma dvöl tilkynntu nefndar- menn, að þar væri allt með kyrr- um kjorum og lögregla og her- menn, hlynntir Ibmert, hershöfð- ingja, og stjórn hans, hefðu yfir- höndina í borginni. Segir 'nefnd- in, .að átökin þar hafi hafizt, er flokkur úr liði uppreisnarmanna Caamanos kom þangað frá Santo Domingo. Tóku þeir að láta ófriðlega á götunum og lög- reglan og herinn í borginni veitti þeim mótspyrnu. — Kmverjar Framhald af bls. 1 an raóstefnu um framtíð lands- ins. í yfirlýsingu sinni í gær skora ráðherrar samveldislandanna á stjórn Rihodesíu að reyna að draga úr ólgunni í landinu með því að láta lausa alla leiðtoga úr hópi Afríkumanna, sem nú sitja þar í fangelsi. Samveldisráðherrarnir ræddu einnig deilur Malaysíu og Indó- nesíu. Lögðu þeir áherzlu á rétt MalaysLu til að verja land sitt og sjálfstæði, en kváðust vona, að unnt yhði að koma á vinsam- legum samskiptum Malaysíu óig Indónesíu, HOLLENDINGAR bíða þess nú með töluverðri óþreyju, að upp renni þriðjudagurinn 29. júní, afmælisdagur Bern- hards prins, eiginmanns Júlí- önu drottningar. Ástæðan tiL þessa er sú, að þann dag, eða jafnvel kvöldið áður, búast ' menn við því, að kunngerð verði trúlofun Beatrix krón- prinsessu og Þjóðverjans Klaus von Amsberg. Holl- enzka ríkisstjórnin hefur þeg- ar lagt blessun sína yfir ráða- hag þennan, en samþykki þingsins þarf til að prinsessan haldi erfðarétti sínum til krúnunnar. Þykir nú fullvíst, að það fáist, en með nokkrum semingi þó. Undanfarnar vikur hefur ekki verið um annað meir rætt í Hollandi og um fátt deilt harðar, bæði í þinginu, í blöðum og manna á meðal, hvórt Þjóðverji geti talizt frarnbærilegur eiginmaður til hándá krónprinsessu Hollend- inga, þó svo hann sé sjálfur sléttur ög felldur og hafi enga stríðsglæpi á samvizkunni. Hollendingar muna enn vel þýzka herinn og setu hans í landinu á stríðsárunum, og Klaus von Amsberg var her- maður í Wehrmacht Hitlers eins og svo ótal margir aðrir ungir Þjóðverjar í þá daga. Á sunnudaginn var birtu fimm félagar úr andspyrnu- Hvergi fær kóngafólkið frið — ekki einu sinni í garðinum heima hjá sér. Þau Beatrix og Klaus voru á gangi um garð- inn 1. maí og leiddust og voru lukkuleg — þegar ljósmyndari nokkur kom allt í einu auga á þau oig smellti af. Þau sáu hann líka, hættu að leiðast og vera lukkuleg — og fóru heim í höll- ina að drekka te. Harðar deilur í Hollandi um biðil Beatrix krónprinsessu - en búizt við trúlofunar- tilkynningu eftir helgi hreyfingunni hollenzku opið bréf til þjóðar sinnar og mót- mæltu harðlega áformaðri gift ingu prinsessunnar og sögðust með engu móti geta samþykkt að Beatrix gengi að eiga fyrr- verandi' félaga í Hitler-Jug- end, hermann sem verið hefði handbendi Hitlers. Það væri ekki til þess hugsandi, sögðu fimm-menningarnir, að naz- isti ætti eftir að verða drottn- ingarmaður í Hollandi og hershöfðingi í hollenzka hern- um. — Fimmtán félagar aðrir úr andspyrnuhreyfingunrii brugðu þá við skjótt og lýstu því yfir, að nú væri svo langt um liðið,' fyrnzt hefði yfir gamlar væringar og þeir hefðu ekkert á móti fyrirhug- uðum ráðahag Beatrix. Klaus von Ámsberg, þessi umdeildi biðill krónprins- essunnar, er 38 ára gamall, starfsmaður í utanríkisþjón- ustunni þýzku', lj óshærður,. hávaxinn aðalsrriaður, sem ekur bláum Forsche og. er sagður maður vel á sig kom- inn og vel þokkaður af kven- þjóðinni. Þau Beatrix kynnt- ust fyrir ári, í brúðkaups- veizlu einhvers' ótilgreinds aðalsfólks og endurnýjuðu kynni sín í Gstaad í Sviss í febrúar í vetur. Ekki fór þá miklum sögum af samdrætti þeirra, enda vel á haldið én það er erfitt fyidr kóngafólk að vera leynilega trúlofað til lengdar. Þegar Klaus von Amsberg kom að heimsækja Beatrix 1. maí s.l. og þau fóru í göngu- ferð í garðinum prinsessunnar (Beatrix flutti að heiman þegar hún varð fullyeðja, fyr- ir sex árum, og í sína eigin, ekki ýkjastóru höll, sem heit- ir Drakensteyn) — höfðu einhverjir naskir blaða- menn og ljósmyndarar haft af því pata. Og daginn eftir birt-, ust í blöðunum myndir af Beatrix og biðli hennar — sem fæstir vissu þá reyndar hver var — þar sem þáu vóru á gangi í garðinum og héldust í hendur og voru ósköp lukku- leg. Svo fór Klaus von A'msberg heim til Þýzkalands en Bea- trix tií Ltmdúna að halda undir skírn lítilli • frænku sinni, dóttur Margrétar Svía- prinsessu o.g brezka karip- sýslumannsins John Ambler. (Stúlkubarnið var skírð Sib- ylla Louise í höfuðið á Si'byllu ömmu sinni og Louisu Svía- drottningu, sem lézt í marz sl.). Við þetta tækifæri varð mörgum starsýnt á krón- prinsessu Hollendinga. Það var ekki einleikið, hvernig Beatrix hafði breytzt. Hún hafði lézt um heil tíu kíló og var orðin hin ásjálegasta, en ekki nóg með það, heldur blátt áfram geislaði af henni gleði og hamingja. Beatrix hafði alltaf verið broshýr, en það voru ósköp skyldurækin bros og vanabrindin og alls ólík brosum hennar nú. Blaðamenn gengu á Beatrix að fá úr því skorið, hvað eða hver væri valdur að þessum ánægjulegum umskiptum en Þegar Beatrix hélt Sibyllu svo hýr og- hamingjusöm á eitthvað byggi undir. prinses^an varðist allra frétta, og fór heim í snatri og bar siigi. upp við móður sína. Júlían^ drottnirfg lét boð út ganga til þegna sinna og- bað menn láta Beatrix í friði, og lofa henní að skoða hug sinn rækilega, Sá friður hefur reyndpi;,, einS og áður segir, verið npkkuð illa haldirin, og súmir lándar Beatrix voru farnir að hugsa um það í alvoru, hversu igra myndi ef hún fenglehlfi viljá' ’ sírium frámgerigt — hvort 'I hún myridi þá sætta sig við örðinn hlut, eða h'vort hún myndi fára að eiris og Iréna' yngri systir hennar, er áfsál,- aði sér rétti sínum til ’ höll- enzku krúnunnar (sem hún stóð næst Beatrix að érfa) til þess að giftast spánska priíis- inum Carlos Hugo fyrir rúmu ári. Og hvað yrði þá um holl- enzku krúnuna ef engiri væri krónptinsessan? Júlíana drottning hefrir lengi verið ‘ • sögð hlakka til þess dags-, er hún gæti sagt af sér stjórnár- störfum og falið dóttur sinni forsjá ríkisins — en ef nú dóttirin kysi að láta krúnuna. fyrir Klaus von Amsberg? Það hefur sem sé gengið á ýmsu í Hollandi undanfarið varðandi krónprinsessuna og biðil hennar. En nú er fengið samþykki rikisstjórnarinnar, að því er áreiðanlegar heimildir greina, þirigið hefur gefið góð orð um að það muni líka leggja bless- un sína yfir ráðahaginn — og Klaus von Amsberg dvelst þessa dagana í Hollandi, hjá æruverðugri hirðfrú Júlíönu drottningar, frú Rovell, þeirri hinni sömu, segja langminn- ugir Hollendingar, sem hýsti Bernhard prins af Lippe árið 1936, meðan verið var að þinga um það, hvort hann fengi Júlíönu. Og þrátt fyrir hörmungar heimsstyrjaldar- innar og óskemmtilegar minn- ingar um dvöl þýzka hersins í Hollandi á stríðsárunum eru flestir landar Beatrix því fylgjandi, eins og félagarnir fimmtán úr andspyrnuhreyf- ingunni, að láta hið liðna lönd og leið og lofa' krónprinsess- unni að éiga Klaus von Ams- berg, þrátt fyrir þjóðernið. litlu Louise undir skirn og var svipinn aS fólk fór að gruna að Mi 12 km. vatnsleiðsla til Sláttur hafinn SELJATUNGU, 26. júní: — Hér er góður þurrkur. Bændur hófu slátt 22. júní og var þá slégið í vothey, sem nú er komið í turna. Nú eru bændur hér víða farnir að slá, en grasspretta er í meðal- lagi miðað við árstíma, á túnum sem ekki hafa verið beitt. Á blettum sem beitt hefur verið, er aftur á móti langt í slægjugras /egna langvarandi þurrka. — Gunnar. EIN leiðin, sem Vestmannaeying- ar hafa haft í athugun til að ráða bót á vatnsskorti sínum, ér að ieggja leiðslu úr landi til Eyja. Hafa þeir t.d. fengið enska og norska verkfræðinga til að at- huga það mál. Nú hefur verið ákveðið að leita tilboða í slíka lögn, en bæjarstjórn gerði sam- þykkt þar að lútandi, á fundi sínum á fimmtudag. Mbl. spurði Guðlaug Gíslason, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, um þessa fyrirhuguðu leiðslu. Hann sagði að sjóleiðin til Vest- mannaeyja úr landi væri 12—13 km. og væri áformað að leggja tvær tommu pípur til að flytja Eyja vatnið. Með því ættu að fást 2100 til 2500 tonn- af vatni á sólarhring, sem er 400—500 lítrar á mann. Mundi það nægja fyrst um sinn til að sjá Vestmanna- eyingum fyrir fersku vatni. Verður nú leitað tilboða í.leiðsl una, bæði í efnið í hana og einn- ig efni og lögn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.