Morgunblaðið - 27.06.1965, Side 3

Morgunblaðið - 27.06.1965, Side 3
Sunnuðagur 27. júní 1965 MORGUHBLAÐID I Niður KAMBABRÚN — og sól yfir Suðuriandi. — En við stönz- um ekki og sleppum þess vegna öllúm „Det er jo et helt Kongerige’s“ hugleiðingum um Suðurlandsundirlendið að þessu sinni. f>að eru líka nógu margir sem gera það á þessum stað, þegar þeir hafa þessi ósköp af íslenzku láglendi fyr- ir fótum sér. Við höldum hik- laust áfram — setjum í 3ja og steypum okkur beint niður brekkuna. — — Beint? Nei, því fer vitanlega fjarri. Það vita allir sem fara Kambaveg. Þótt margir hlykkir og krókar hafi verið lagaðir, þá er þetta næstum því eins bugðótt leið og. vegir stjórnmálanna. En einu sinni var hér farið beint — alveg þráðbeint — en það er fyrir löngu síðan — víst um KAMBA 120 ár. Hvernig væri samt að rifja upp þá sögu. Það vita allir, sem lesið hafa bók Brynjólfs á Minna-Núpi, að Þuríður formaður var einn mesti kvenskörungur í Árnes- þingi á síðustu öld. Á efri ár- um sínum dvaldi hún um nokkurra ára skeið í Hafnar- firði. Þá fékk kaupmaður einn hana til að fara austur í Grafn ing snemma vetrar. Átti hún að semja þar um rjúpnakaup. Maður varð Þuríði samferða, Kotstrandarkirkja. Séra Eiríkur J. Eiríksson „Sunnudagur á morgun" er Magnús hét, kallaður Kastról. Hann var lausingi og drykkjumaður. Þau Þuríður gistu í sæluhúsinu á Bolavöll- um, fóru þaðan fyrir dag og ætluðu beinustu leið austur í Grafning. Þau hrepptu byl á heiðinni og vissu ekki hvar þau fóru, erfda þótt Magnús þættist rata, því hann hafði farið þessa leið áður. En hann reyndist ekki traustur leið- sögumaður. . Imríður hafði brennivínsflösku í poka sín- um. Krafðist Magnús nú þess að fá hressingu, neitaði að halda áfram að öðrum kosti. Veitti Þuríður honum það. En þegar þau höfðu bæði sop- . ið á, sló Þuríður flöskunni við staf sinn, svo hún fór í mola og sagði um leið: „Þó að við kunnum að komast í hann krappan, þá skal flaskan ekki drepa okkur“. Magnús brást hinn versti við, en Þuríður tók forustuna og hélt í þá átt, sem hún taldi réttasta. Kom hann þá á eftir. Undir kvöld komu þau fram á bratta brún, sem hjarnfönn lá L Þar taldi Magnús ófært, en Þuriður sett ist á staf sinn eins og börn tíðka og reið honum fram af brúninni og ofan á jafnsléttu. Lék Magnús það eftir og'gekk allt slysalaust. f vögulok komu þau að Reykjakoti í Ölfusi. oOo Volvóinn er fljótur í förum. En hann geldur þess hve margir krókar eru á veginum. Þessvegna getur hann ekki farið beint af augum og því verða þau Þuríður formaðúr og Magnús Kastról, ríðandi stöfum sínum, á undan okkur niður. Við hittum þau við ræt- ur fjallsins og þótt við viljum taka tal saman ganga samræð- urnar ekki vel. Við komum sitt úr hverri áttinni og geng- ur svo bágt með að skilja hvort annað, setja okkur inn 1 hvors annars hugarheim. Viðhorfin eru svo ólík, tím- arnir hafa breyzt svo mikið og við mennirnir með. G. Br. skrifar En eitt skiljum við þó af þvL sem þessi skörulegi og skarpvitri Kven-Árnesingur vill segja okkur í dag. Hún talar til æsku landsins, ekki sizt ungu stúlkunnar, sem vill vera fullorðin og vera með í öllum lífsins leik áður en hún er komin af barnsaldri. Við hana vill Þuríður segja: Það er villugjarnt víðar en í hríð- arkófinu uppi á Hellisheiði. Varaðu þig á flöskunni. Inni- hald hennar hefur mörgum körskum á kollinn steypt. oOo Meira heyrum við ekki af því, sem Þuríður formaður hefur að segja, þarna við ræt- ur Kamba þennan bjarta, sól- glaða vormorgun. Okkur ligg- ur á eins og öllum nú til dags þótt við vitum varla hvert við erum að fara eða til hvers við erum að flýta för okkar svo mjög. Vig ökum áfram veginn austur. Hér er þéttbýli Hvera- gerðis á vinstri hönd, þorp hinna miklu möguleika, hinn- ar stóru framtíðar, því þótt mikið sé búið að gera hér, er það þó meira, sem ókomni tíminn býr yfir Það gerir hverahitinn, orkan og ylurinn, sem jörðin býr yfir. Nú er það af sem áður var. Lítum til baka 7 aldarfjórðunga aftur í tímann. Það er 20. júní árið 10 e. Eld. (1793), nóttlaust vor yfir landinu og menn, sem komið hafa austur yfir heiði slá tjöldum sínum stundu fyr- ir hádegi að Reykjum í Ölfusi og liggja þar fram á næsta dag. Þarna er náttúrufræðing- urinn Sveinn Pálsson á ferð og honum farast svo orð um staðinn: „Kringum þennan bæ, jafn- vel í túninu, og fast við bæjar- húsin er aragrúi lauga, sjóð- andi hvera og ljótra leirpytta. Margir þeirra gjósa við og við en heldur lágt. Brennisteins- fýlan er óþolandi og litlu munar að jörðin leggist alveg í eyði, því að stöðugt koma upp nýir og nýir hverir“. En svona snúast hlutimir við.'Einmitt það sama og næst Framh. á bls. 12 n. sunnudagur eftir Trinitatis. Guðspjallið Lúk. 14,16—24. HANN var mikill hugmaður, blessaður. Varla var hann kom- inn inn úr dyrunum, er hann mælti: „Áttu kaffi, Dísa mín.“ Gamla konan hafði ekki ráð- rúm til að svara. Gesturinn var fyrri til: „Nei, auðvitað ekki. Hvað ætli þú eigir kaffi um þetta leyti dags.“ Og svo var hann kannske þotinn og heim- sóknin á enda. Hún átti nú raunar alltaf kaffi á könnunni, gamla konan, en það mátti ekki vera að stolsa. Kaffið varð að vera heitt á könnunni. Lífsbaráttan hörð. Hver stundin dýr. • „Ég hefi keypt akur----------. Ég hefi keypt fimm pör ak- neyta----------. Og annar sagði: Ég er nýgiftur og þess vegna get ég ekki komið.“ Á vorin, hyggja menn að ökr- um sínum og hafi menn keypt jörð eða jarðarskika, fará menn að athuga með hagnýtingu lands ins. Heima fyrir er og að mörgu að hyggja. Vinnudagurinn var oft lang- ur. Jörð bóndans, er getið var um, var frekar lítil, hvert strá varð að nýta, börnin mörg og mátti ferðin að heiman ekki taka of langan tíma. Erfitt var oft að gegna kvöld- máltíðarkalli guðspjallsins. Enn er annríkið mikið, en stundum er allur asinn með öfgum. Það er eins og líf manna þeytist eftir færiböndum í verksmiðju. Menn þurfa ekki alltaf að vera að flýta sér svona, fara áður en þeir eiginlega koma. Vitur maður sagði nýlega við mi’g: Guðsþjónusta hefði verið nóg á Þingvöllum 17. júní 1944. Það þurfti að drífa þessi ósköp in öll af, og bænin skyldi vera stutt. „Beyg kné þín, fólk vors föðurlands, þinn fjötur Drottinn leysti." Menn hittast í þeim flýti, að enginn þekkir lengur neinn. Guðssamfélag tekur tíma. Skipuleggjendur borga telja, að hvert heimili þorrfi að hafa dálítið landrými umhverfis. Fræ kornið fýkur eftir gangstéttinni, en staðnæmist, þar sem mold er. Við þurfum að geta séð hver' annan mennimir, nálægðin má ekki skyggja á náungann. Hrað- inn og flýtirinn gefur aðedns tóm til stuttrar bænar, ef þá nokk- urrar. „En er einn af þeim, er til borðsins sátu, heyrði þetta, sagði hann við hann: Sæll er sá, sem etúr brauð i guðsríki.“ Athyglisvert er, að Jesús tek- ur ekki þannig undir þessi orð, að hann fari að útmála gæði guðsríkis máltíðarinnar. Hann þurfti þess ekki eða öllu heldur, hann vildi það ekki. Hann leggur ávallt mesta á- herzlu á veginn, baráttuna, fóm ina, þjáninguna, en dvelur lítt við larrn þessa utan þessa sjálfs. Hann lætur sig mestu varða • gildi hins mannlega gjalds Og, að þar eru launin fólgin. Þær eru margar matreiðslu- 'bækur guðsrikismáltiðarinnar hér á jörð. Hver kynslóð á »ér slíka bók, en inargir lifa það að sjá hana bregðast. Matföngin kunna að vera óaðfinnanleg, en mönnum verður ekki alls kost ar gott af réttunum. Þeir eru ekki í sem beztu samræmi við þarfirnar, of eða van einatt. Guðsríkið er ekki, hiinn dýrð- legasti mannfagnaður né Vieins konar íburður fata, matar, lifn- aðarhátta ljúfra. Guðsríkið «r að vísu réttlát skipting heims- gæðanna, að allir fái, það sem þeir eiga skilið, en umfram allt er það vöxtur og þroski, land- nám sumaraflanna og þá fyrst og fremst i manninum sjálfum, því að þar er það og allt, sem er utan við manninn á að þjóna manngildi hans, að fögnuður hans fullkornnist í góðu barátt- xmni. „Og þeir tóku allir í einu hljóði að afsaka sig.“ Síðan ganga þeir til veraldlegra við- fangsefna sinna. Vandinn er að heyra kaiU Krists til kvöldmáltíðarinnar miklu, heyra það í viðfangsefn- um og ’vanda manlífsins, heyra klukknahljóm í þungu fótataki daganna, bumbur fallveltis barð ar ,en skynja sigursöngva lífs og framtíðar því, sem gott er salt og í sannleika fagurt. Af- sökunarbeiðni hinna boðnu er sök þeirra. Menn vilja sleppa við að þjóna lífinu og höfundi þess undir yfirsskini sjálfrar iifsþjónustunnar, menn ætla að rækta án þess, að sáning fari fram hins góða sæðis, elska, án þess að lind sannrar ástar fái að streyma fram. Menn stunda rányrkju á kostnað lífsins, vilja sitja að nægtaborði þess afla ávaxtanna án þess að itía upp til trésins. Mennirnir í guðspjallinu máttu vel fara tii vinnu sinnar, ef þeir hefða litið á verkahring sinn sem sjálfan veizlusalinn. Það mun reynast drjúgt til hamingju og velferðar að finna gleðina í starfi sinu og á heim- ■ili. Jafnvel dauðinn getur verið mönnum fuilnægmg þarfar að fóma og þjona. Skildið lítur þannig á hinz+u fótmál Jóns Arasonar: „Fór með flýti og greizlu fagnandi sem til vfizlu.“ Það væri vel, ef hver* ein- staklingur gæti Þmdið sér verka hrmg að k’.ukknanna rniúr kvæði þér v:ð og kvöldmáltíðar- kalilið. Þrátt fyrir a'.lc hefur sú orðið raunin um feður t kkar og mæð- ur í kristnu lar.di. Getið var um hugmann. Um heyskapartímann lá oft mikið á og þurfti þá að ýta daiítið við l'öi i.unum, so’n að visu voru sérstakt manndómsfólk: „S.unnudagur á morgun. Eng- inn slær þá né heylar.‘ Varðveitu-n við sunnudaginn nú, er heyannir taka að nálgast, hvcrsu er um hlýðni okkar við kaL kvöldmáitiðarinnar í dag- snr.a þraut og baráttu? Kirkja va' nýlega reist um guðræikna hug- og eljumann- inn og eiginkonu hans og böm af svni þeim og öðrum systkin- um, og fleiri studdu þar að. Klukkur þeirrar kirkju munu óma með öðrum klukkum þessa lands húsanna helgu og manns- hjartnanna, að við iðjum og biðjum og hlýðumst þannig kalli guðsspjallsins. mmmm Anm>n Arnarbæli í ÖlvesL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.