Morgunblaðið - 27.06.1965, Síða 6

Morgunblaðið - 27.06.1965, Síða 6
e MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 27. júní 1965 Próf. Trausti Einarsson Athugasemd um byggingamál Náttúrugripasafnsins I VÍSI 22. júni er viðtal við Eyþór Einarsson grasafræðing, um Náttúrugripasafn Islands, en Eytþór er nú forstöðumaður þess. Eyþór hefur starfað svo stutt við þessa stofnun, að hann tók ekki þátt í þeim byggingamálum, sem hann skýrir frá og er honum nokkur vorkunn hvernig hann segir söguna. Hann segir í við- talinu: „Málið (þ.e. bygginga- málið) var svo að segja komið í höfn, til voru fullgerðar teikn ingar af húsinu og fé var fyrir hendi til að reisa það. I raun og veru stóð ekki á neinu nema f jár festingarleyfi . . . var endanlega synjað um það árið 1957. í þess stað var veitt fjárfestirigarleyfi til byggingar Háskólabíós, og virðist svo vera, sem menn hafi gert sér vonir um að það yrði mikið gróðafyrirtæki“. Það er ekki erfitt að lesa út úr þessum ummælum hverjir eigi að bera ábyrgð á því, að náttúrugripasafnsbygging er ekki risin upp.Niðurstaðan verður sjálf sagt sú, að háskólinn hafi verið heldur áhugalítUl og skilningur fjárfestingarvaldsins um of tak- markaður. Er það raunar í sam- ræmi við það, sem ég hefi oft heyrt m.a. á opinberum vett- vangi, hvernig svo sem þær hug myndir kunna að vera tilkomn- ar. Ég átti sæti af hálfu háskól- ans í nefnd þeirri, sem undirbjó teikningar af safnhúsinu, svo og í byggingarnefnd. Þykir mér ekki ótilhlýðilegt, að gefnu til- efni, að skýra nokkuð frá þeim •þætti málsins, sem Eyþór Einars- son hleypur yfir. Geri ég það sem gamall nefndarmaður, en há skólinn hefur ekki séð ástæðu til 1 að hlaupa til hverju sinni þegar þetta mál hefur borið á góma opinberlega og hans hlutur verið gerður frekar minni en meiri. Þess mætti fyrst geta, að á síðari stríðsárunum vildu ráða- menn háskólans hefja kennslu í náttúrufræði og var það þó ekki í fyrsta sinn, sem ráðagerðir voru uppi um þetta. Voru þeir Ami Friðriksson og Finnur Guð- mundsson beðnir um tillögur varðandi kennsluna og á grund- velli þeirra var Alþingi beðið um fjárveitingu, en hún fékkst ekki. Um svipað leyti var Nátt- úrufæðifélaginu heimilað að byggja safnhús á háskóialóðinni. Kom þó brátt í Ijós, að félagið hafði ekki bolmagn til að reisa slíka byggingu og ríkisstjómin ófús að kosta hana. Varð það þá að samkomulagi milli ríkisstjóm arinnar og háskólans, að safnhús yrði reist fyrir Happdrættísfé. Skyldi þannig rísa bækistöð fyr- ir kennslu og rannsóknir í nátt- úrufræði í nánu sambandi við, eða öllu heldur innan vébanda háskólans. Var nú ráðinn arkitekt, Gunn laugur Halldórsson, og 18. jan- úar 1946 skipaði háskólaráð nefnd honum til aðstoðar og vom í henni Ólafur Lámsson rektor; Askell Löve; Finnur Guð mundsson; Sigurður Þórarinsson og Trausti Einarsson. Háskólaráð ákvað, að byggingunni skyldi ætluð lóð við Melaveg, milli há- skólabyggingar og íþróttahúss. Háskólinn lagði fram fé til þess að þeir Finnur Guðmundsson og Gunnlaugur Halldórsson gætu í sameiningu kynnt sér hliðstæð- ar byggingar erlendis. Að þeirri ferð lokinni vom teikningar gerð ar og miðaðar við áðurgreinda lóð. Vom stærðir herbergja og sala gerðar eftir tillögum Finns Guðmundssonar. Teikningamar voru afgreiddar í nóvember 1947 og samþykktar einróma af nefndinni. Skal tekið fram, að mér er af sérstökum ástæðum minnisstætt að þeir Finnur og Sigurður létu í ljósi sérstaka ánægju með teikningarnar Næst voru teikningarnar samþykktar af háskólaráði 16. apríl 1948, og sendar ráðuneyti og samþykktar af því. Líkan af bygginunni yar sýnt opinberlega á sýningu arki- tekta, og hlaut mjög lofsamlega dóma hjá fagmönnum. Á þessum teikningum var gert ráð fyrir tveimur sýningarsölum fyrir almenning, samtals 570 fermetrar, eða nærri sex sinnum meira flatarmál en Eyþór Ein- arsson segir að nú sé verið að koma sýningarsafni fyrir í. Þá voru stórir geymslusalir fyrir visindalegt birgðasafn með vinnu aðstöðu fyrir vísindamenn. Vinnu herbergi voru fyrir þrjá deildar- stjóra, hvert 24 ferm. og sérher- bergi fyrir minnst 6 sérfræðinga að auk. Auk bókasafns o.fl. var loks fyrirlestrarsalur og við hann tilraunastofa (laboratori- um) og kennslusafn, þannig að ic Vegabætur Ég sá það í einu blaðanna í gær, að nú á að breikka ak- brautina upp Ártúnsbrekkuna. Satt að segja var ég búinn að skrifa stutta klausu um nauð- syn breikkunar á þessum stað, en var fijótur að kippa henni út, þegar ég las fréttina annars staðar. Þessi mjói vegur upp brekk- una innan við Elliðaár er eins og flöskuháls fyrir umferðina út úr bænum fyrir helgar — og í bæinn síðari hluta helg- anna. Ég vona, að nú verði greiðari vegur fyrir vegagerðarmenn að komast út úr bænum um helg- ar til þess að skoða vegina sína — og ég bendi þeim á holuna stóru á Sandskeiði, ef þeir hafa ekki séð hana. Dr. Trausti Einarsson þarna var hugsað fyrir háskóla kennslu í nátturufræði. Bygg- ingin var vel við vöxt á marg- an hátt og dýr miðað við fjár- ráð háskólans. Af hálfu háskólans var ákveð- ið, að þessi bygging skyldi reist er lokið væri frágangi á háskóla lóðinni, sem þá var að hefjast. 1952 var komið að þessum bygg ingaframkvæmdum og 4. apríl þ.á. skipaði háskólinn bygginga- nefnd, sem í voru Þorkell Jó- hannesson formaður; Finnur Guð mundsson; Jón Steffensen; Sig- urður Þórarinsson og Trausti Einarsson. En nú skeðu brátt þau tíðindi, sem kollvörpuðu öllum fyrirætl- Surtseyjarævintýri Vestmannaeyingurinn, sem réðist til landgöngu á Syrtling, sem hvarf, hefur nú aftur sýnt framtak, en dálítið annars eðl- is. Frímerkjasafnar keppast nú um að gefa út yfirlýsingar um nýju Surtseyjarfrímerkin, sem hinn uiígi maður stimplaði í Surtsey, séu einskis virði, því þetta hefðu allir getað — og gætu gert enn. Það skiptir auðvitað ekki mestu máli í þessu sambandi hvort frímerkin eru verðmikil eða verðlítil, því Páll Helgason, hinn 'umræddi Vestmannaéying ur, seldi frímerkin við háu verði — og safnarar kepptust um að kaupa. Fyrirtækið heppnaðist, því safnararnir voru ekki búnir að fá neina línu um hyað væri gott — unum. Háskólaráði og nefndinni barst bréf undirskrifað af þeim Finni Guðmundssyni og Sigurði Þórarinssyni, dags. 9. marz 1953, þar sem þeir Iýstu því yfir, að fyrirhuguð bygging væri of lítil. Verulegir hlutar hennar, sér í lagi vinnuherbergi deildarstjóra og tilvonandi starfsmanna þyrftu að stækka um 50%. Þetta bréf kom sem reiðarslag yfir háskólaráð og fulltrúa há- skólans í bygginarnefnd. Það var Ijóst, að ekki aðeins teikningar voiu ónýttar, heldur lóðin einnig, og málinu stefnt í tvísýnu. Sú bygging, sem krafa var gerð um, varð að fara út af háskólalóð- inni og tengingin við háskólann og kennslu varð þá nokkuð vafa söm. Ég get ekki efast um, að safnbyggingin væri fyrir löngu komin upp og kennsla í náttúru fræðum í háskólanum komin á góðan rekspöl, ef safnmennirnir hefðu ekki tekið þessa afstöðu. Háskólaráð tók í fyrstu af- stöðu gegn verulegum breyting- um á hinum samþykktu teikn- ingum, en féllst á nokkra endur- skoðun án þess að til brott- færslu af lóðinni þyrfti að koma. Hér kom enn fram, eins og í því sem á undan var gengið, að há- skólinn Iagði áherzlu á góða samvinnu við safnmennina. En þetta dugði ekki. Eftir nokkurt þóf var hætt við fyrirhugaða lóð og leitað að öðrum lóðum. Horfst var í augu við stóraukinn bygg- ingarkostnað og leitað var til f jár festingarvaldsins. Loks lentu þess ir þrír þættir: heppilegt lóðar- stæði, fjárhagsgeta Happdrættis- ins og fjárfestingarleyfi í hnút, og hvað ekkL Þeir létu leika á sig. Hitt er svo annað mál, að það var ekki rétt af Páli að fara út í Surtsey í leyfisleysi, þótt honum hafi e.t.v. fundizt hann ætti fyllega rétt á að stíga þar á land eftir hreysti- verkið á dögunum. Ef hann lendir í málaferlum og fær sekt ir fyrir tiltækið getur það e.t.v. gert frímerkin hans merkileg á ný — þó að því tilskildu, að hann riti sjálfur á umslög- in, því það getur enginn gert hvenær sem er. — En e.t.v. yrði slík uppáskrift frímerkja- söfnurum of dýr, því Páll er ekki „billegur". Utanskólapróf í vikunni gerði ég það að umræðuefni, að ungxir maður sem að lokum var höggvið á með neitun um fjárfestingu. En háskólinn sleit ekki taugina til safnmannanna. Hann keypti hæð við Hlemmtorg og lét innrétta þar þær skrifstofur, sem þeir báðu um, og þar hafa þeir unað hag sínum vel, að því er ég bezt veit. Þeir hafa nú fengið að sleppa safnheitinu úr nafni stofn unarinnar og sóttu það mjög fast. Mér hefur lengi verið hrein ráð gáta hver væri eiginlega stefna safnmanna og sér í lagi afstaða til háskólans. Vilja þeir stuðla að háskólakennslu með stofnun sinni og tengjast háskólanum, eða vilja þeir eitthvað annað? Vildu þeir lausn byggingamálsins með háskólanum eða vildu þeir hana ekki? Ég hef margar fleiri spurn ingar til safnsins á takteinum, en sleppi þeim hér. Hitt þarf ekki að spyrja um, að þörfin fyrir náttúrufræðikennslu fer sívaxandi. Þetta er ekki aðeins mál háskólans, heldur rniklu fleiri aðila, og væii vel að menn hugleiddu málin og að al- menningsálit skapaðist, sem stuðl aði að heilbrigðri lausn þeirra. Fyrr eða síðar verður háskól- inn að hugsa fyrir byggingu yfir náttúrufræðikennslu, og tekst þá vonandi betur til en hið fyrra sinnL Trausti Einarsson. Bernard BariK i látinn New York 21. júní_NTB. HINN kunni bandarísiki fjár- mála- og srtjómmálamaður Betm- ard Baruch lézt í nótt að heimili síruu á Manhattaneyju nær 93 ára gamall. Er Barudh var þrítuigur hafði hann grætt fyrstu milljón dollar- ana á kauphaEarviðskipitum. Hann sneri sér síðan að stjórn- málum, og varð þekktxir sem mik ill mannvinur. Hann var ráðgjafi sex Bandiaríkjaforseta íir bá'ðum flokkum, þeirra Warren G. Hard- img, Calvin Coolidge, Herbert Hoover, Franklin D. Roosvelt, Harry S. Truman og Dwight D. Eiserxhower. hefði fengi, 0,0 í íslenzku við stúdentspróf frá MR. Þótti mér það allundarlegt og undraðist hvernig sami maður hefði komizt í gegn um landspróf og próf milli bekkja. Nú var hringt frá Mennta- skólanum og mér tjáð, að pilt- urinn liefði hvorki tekið lands- próf né próf milli bekkja 1 menntaskóla. Hann hefði kom- ið úr Samvinnuskólanum og fengið ráðherraheimild til þess að reyna við stúdentspróf. Það fylgdi ennfremur sögunni, að til skamms tíma hefðu utan- skólamerxn gengið undir stú- dentspróf án þess að hafa tekið próf í neðri bekkjum mennta- skóla, en nú væri þetta ekki hægt lengur. Samkvæmt nýrri reglugerð yrði að prófa hvort þeir væru ekki vel heima í öllu námsefni menntaskóla. Samkvæmt of anrituðu er þvl ljóst, að mál þetta er ekki jafn dularfullt og það virtist áður, senda væri það i hæsta máta óeðlilegt, að maður, sem staðizt hefði öll próf í neðri bekkjum menntaskóla fengi síðau skyndilega eitt stórt núll í ís- lenzku við stúdentspróf. Alltaf eykst úxwalið. Nú bjóð- um vér einnig rafhlöður fyrir leifturljós, segulbönd, smá- mótora o. fl. BRÆÐURNIR ORMSSON hi. Vesturgötu 3. ____

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.