Morgunblaðið - 27.06.1965, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 27. júní 1965
Byltingén
■ Alsír
UNDANFARIN þrjú ár hefur
Ahmed Ben Bella haft mikil á-
hrif á gang mála í Arabaríkjum
N-Afríku. Er frelsisbaráttu Alsír
lauk, sneri hann baki við sam-
herjum sínum, og tók við æðstu
völdum. Ben Bella mistókst að
bæta úr matvælaskortinum í
Alsír, og atvinnuleysi ríkti eftir
sem áður. Hann hallaðist að
kommúnistum, og gerði Algeirs-
borg að annarri aðalmiðstöð
þeirra, sem berjast fyrir stefnu
Nassers, Egyptalandsforseta. —
Stefna Ben Bella hefur löngum
verið ráðamönnum á Vesturlönd-
um áhyggjuefni.
Fyrir rúmri viku lauk valda-
tíma hans. Er undirbúningur stóð
sem hæst í Algeirsborg fyrir ráð-
stefnu Asíu- og Afríkuríkja, óku
skriðdrekar skyndilega um götur
höfuðborgarinnar, og skömmu
síðar var lesin í útvarp tilkynn-
ing frá yfirmanni alsírska hers-
ins, Houari Boumedienne: bylt-
ingarráð hafði tekið völdin í
landinu; Ben Bella var steypt af
stóli, og myndi „hljóta örlög allra
einræðisherra“.
VERÐ FRÁ kr: 591.00.
PÓSTSENDUM.
Austurstræti 10 — Laugavegi 116.
Í.VfJ+IY
■itMr *•?
Fjrrstu dagana eftir byltinguna
var ekki fyllilega Ijóst, hverjir
það voru, sem tekið höfðu hönd-
um saman gegn Ben Bella. Tals-
menn utanríkisráðuneyta stór-
veldanna voru orðfáir. Soyézka
útvarpið tilkynnti stuttlega, hvað
gerzt hafði, en ráðamenn í
Moskvu höfðu á sínum tíma
heiðrað Ben Bella, og veitt hon-
um titilinn „Hetja Sovétríkj-
anna“. í París var fylgzt nákvæm
lega með öllum fregnum frá Al-
geirsborg, en Frakkar eiga enn
mikilla hagsmuna að gæta í
Alsír. -
Margir Alsírbúar höfðu ástæðu
til að vinna gegn Ben Bella. í
þeirra hópi eru nokkrir af upp-
hafsmönnum byltingarinnar gegn
Frökkum 1954. Er Ben Bella tók
völdin, lét hann ýmist fangelsa
þá, eða þeir urðu að fara í út-
legð. Gömlu byltingarforsprakk-
arnir hafa sakað forsetann fyrr-
verandi um að hafa svikið mál-
stað frelsissinna, og tekið upp ó-
ábyrga sósíalíska stefnu, þjóðnýtt
landbúnað og iðnað, sem fyrr var
í eigu Frakka, með þeim árangri,
að framleiðsla hafi verið í lág-
marki. Afleiðing þess hafi verið,
að ekki hafi verið hægt að taka
upp það efnahagssamstarf við
Frakkland og önnur Vesturlönd,
sem leitt hefði getað til betri
kjara landsmanna.
Þó hefur það aðeins verið einn
maður, sem fram til þessa hefur
sýnt andúð sína í verki í Alsír.
Hocine Ait Ahmed, leiðtogi þjóð-
arminnihluta í Kabýlafjöllum,
gerði byltingartilraun, sem mis-
tókst. Nú var það hins vegar
Boumedienne, yfirmaður hersins
og varnarmálaráðherra, sem lét
til skarar skríða. Hann tók hönd-
um saman við Ben Bella á sínum
tíma, og hefur starfað við hlið
hans síðan. Þó hafa margir þótzt
greina, að hann hefði sínar eigin
skoðanir á mörgum málum, og
væri metorðagjarn.
Sakir þær, sem hann hefur bor-
ið á forsetann fyrrverandi, eru
þungar. Boumedienne sagði í til-
kynningu sinni eftir byltinguna,
að öll völd í Alsír hafi verið í
höndum eins manns, og það vald
hafi verið misnotað á versta hátt,
og því ríki nú skelfingarástand í
innanríkismálum Alsír. Af þess-
um orðum hafa margir, sem vel
þekkja til í Alsír, talið, að Boume
dienne njóti stuðnings frjáls-
lyndra afla í landinu. Þó er það
á engan hátt tekið sem sterk vís-
bending um, að mikilla breyt-
inga sé að vænta í málefnum
Alsír.
Margir hafa þvert á móti talið
Boumedienne róttækari en Ben
Bella.. Boumedienne heimsótti
Fidel Castro í Havana í júlí sl.
ár, og er byltingarmaðurinn al-
sírski talinn bera mikla virðingu
fyrir starfsbr.óður sínum á Kúbu..
Stjórnmálamenn í París, sem
sennilega hafa fylgzt hvað bezt
með þróun mála í Alsír undan-
farið, telja ekki ólíklegt, að inn-
anríkismál hafi ráðið mestu um,
að byltingin var gerð. Ben Bella
reyndi að koma á sáttum við
Kabýlinga, .deilur hafa staðið
milli forsetans fyrrverandi og
nokkurra yfirmanna hersins,
vegna skipana í há embætti, og
hefði Ben Bella fengið að koma
fram sem æðsti maður lands síns
á fundi Asíu- og Afríkuríkja, telja
margir, að það hefði orðið til að
tryggja hann enn meira í sessi.
Sé sú skoðun á rökum reist, að
innanríkismál hafi reynzt þyngst
á metunum, er vart meiri háttar
breytinga að vænta í afstöðu
Alsír til erlendra ríkja.
AHMED BEN BELL.A
Forsetinn, sem nú hefur verið
steypt af stóli, leitaðist við að
verða sjálfskipaður leiðtogi van-
þróaðra Afríkuríkja. Hann fór
eitt sinn þeim orðum um sjálfan
sig, að „hann væri eina von
Alsír“.
Ben Bella er bóndasonur, fædd
ur 1961 í smábæ nærri landamær-
um Marokkó. Hann gerðist þjóð-
ernissinni á unga aldri, en var
kvaddur í franska herinn í síð-
ari heimsstyrjöldinni. í stríðslok
fór hann að gefa sig að stjórn-
málum í æ ríkara mæli.
Nánasti samstarfsmaður hans
fyrr á árum var Mohammed
Khider, og í sameiningu gerðu
þeir eitt sinn sprengjuárás á póst
hús í Oran. Ben Bella náðist, og
'var varpað í fangelsi. Þaðan tókst
honum að sleppa, og var um
tíma í Kairó í útlegð. Þar kynnt-
ist hánn Nasser, Egyptalandsfor-
seta.
Ben Bella var einn af stQfn*
endum þjóðfrelsishreyfingarinn-
ar, sem hóf baráttu sína fyrir
frelsi Alsír 1. nóvember 1954. Á
næstu árum var ferill Ben Bella
mjög stormasamuf, og hann var
margoft fangelsaður. Á þeim ár-
LANCÓME
I
KREM
eru óborganleg.
Veljið Abyssale, Frescabcl, Nutrix eða
Fraicheur eða Bien Aise, Grain Fiu,
Creme No. 2, Adieu Rides. .. .
Allt eftir því hvað hæfir húð yðar og útlitL
Hin heimsþekktu
LANCOME krem fást einungis hjá:
SÁPUHÚSINU,
OCULUS
Tízkuskóla ANDREU og
Hafnarfjarðarapóteki.
um varð hann að alsírskri þjóð-
hetju, og var dáður í Arabalönd-
unum.
Er vopnahlé var samið í Alsír
1962, var Ben Bella leystur úr
haldi, og tók við embætti vara-
forsætisráðherra. Hann tók þá
höndum saman við Houari Bou-
medianne, sem hafði með hönd-
um yfirstjórn hersins.
í september 1962 varð Ben
Bella forsætisráðherra. Hann tók
upp kommúníska stjórnarhætti,
þjóðnýtti landbúnað og iðnað.
Forseti var hann kjörinn árið
eftir.
HOUARl BOUMEDIENNE
Houari Boumedienne hefur
löngum verið umdeildur maður.
Hann fæddist Í925 í A-Alsír,
og er bóndasonur eins og Ben
Bella. Boumedienne er kunnur
fyrir þá hörku, sem hann hefur
^sýnt af sér á liðnum árum. Hann
gengur aldrei með heiðursmerki
á einkennisbúningi sínum, og er
oftast sagður ganga í síðum regn-
frakka, nema á heitasta tíma árs-
ins.
Boumedienne var kennari i
heimabæ sínum, er baráttan fyrir
frelsi Alsír hófst. í upphafi barátt
unnar gegn Frökkum flúði hann
til Karió, þar sem hann kynnt-
ist Ben Bella. Síðan hélt hann til
Moskvu og síðar Peking, þar sem
hann hlaut herþjálfun. Að henni
j lokinni gerðist hann forsprakki
byltingarmanna í Oran.
1957 var hann gerður að yfir-
manni frelsissinna í Oran-héraði,
og ári síðar var hann látinn taka
við stjórn herforingjaráðs frelsis-
sinna, og hafði þá aðsetur í N-
Marokkó. Þá tók hann einnig
sæti í þjóðarráði alsírsku bylting
arinnar, þingi frelsissinna.
1960 var honum fengið það
verkefni að koma á fót sérstökum
frelsisher, og tókst honum að
sameina útlaga í Túnis og Mar-
okkó. Þeir urðu síðar sterkasta
baráttuvopn í löndum Araba.
Er Ben Bélla tók alræðisvald I
Alsír 1963, var Boumedienne skip
aður varnarmálaráðherra. —
Skömmu síðar varð hann vara-
forseti, næst mestur að völdum á
eftir Ben Bella.
ABDELAZIZ BOUTEFLIKA
Er Ben Bella gerði fyrstu end-
urskipulagningu á ráðuneyti sínu,
í september 1963, varð Abdelaziz
Bouteflika utanríkisráðherra.
Ben Bella taldi þetta ráðherra-
embætti svo mikilvægt, að frá
því, að Mohammed Khemisti, ut-
anríkisráðherra, var myrtur, I
maí það ár, og þar til í septem-
ber, að Bouteflika tók við, gegndi
j Ben Bella sjálfur þessum emb-
ætti.
Margir stjórnmálamenn á Vest-
urlöndum tóku vel fregninni um
skipan Bouteflika, því að hann
var þekktur fyrir góðar gáfur og
réttsýni í mörgum málum.
Vélahreingerningar og
gólfteppahreinsuni.
Vanir menn J0
Vönduð
vinna
Þ R I F
Símar: 21857 — 33049 ilK. I
ÓLAFUR STEPHENSEN
LÖGGILTUR SKJALAÞÝÐANDI
ENSK BRÉFAVIÐSKIFTI
HAFNARSTRÆTI 22 SÍHI 21285
í| Opið tSI klukkan 9 RUMGOÐ 1 BUASIÆfll
KIÖRBÚfi á mánudág og alla næstu viku SIMINN ER 1
LAIIGAVEGI164 24339 I