Morgunblaðið - 02.07.1965, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.07.1965, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ Föstndagur 2. júlí 1965 Við ætlum að vinna — en munum þó 1—1 jafnteflið í siðasta landsleik segja Danir ÍÞRÓTTASÍÐAN átti í gær símtal við fréttaritara sinn í Kaupmannahöfn, Poul Prip Andersen, ritstjóra íþróttasíðu Berlingske Tidende. Hann dró ekki dul á, að Danir gera sér vonir um sigur í landsleiknum við ísland á mánudaginn — cn gera þó ráð fyrir öllu, því þeir hafa ekki gleymt jafn- teflinu, 1-1, í síðasta landsleik þjóðanna. Prip gaf okkur upp ýmsar upplýsingar um danska knattspyrnu og danska lands- liðið. í viðtalinu kom í ljós að upplýsingar KSÍ um lands- ieikjafjölda dönsku leikmannanna eru rangar. Hefur víðast gleymzt að bæta við landsleiknum við Rússa — og einnig kom á daginn að nýliðar í danska liðinu eru aðeins tveir, en ekki þrír, sem sagt hefur verið. Það eru þeir Heini Hald, vinstri bakvörður, og Kaj Poulsen, hægri útherji. Egon Niel- sen, sem einnig var talinn nýliði, hefur þrjár landsleiki að baki — alla í sumar. En snúum okkur að frásögn okkar ágæta vinar í Kaupmannahöfn. Við Danir gerum okkur mikl- ar vonir um sigur, — en enginn okkar hefur þó gleymt jafntefl- inu 1—1 í síðasta leik landanna 1959. Og það skeði í Kaup- njannahöfn. Við þykjumst viss- ir um að Danir séu sigrustrang- leyjri, en samt erum við með- vitandi um að allt getur skeð í knattspyrnu. Dönsk knattspyma er ekki á háu stigi þessa dagana. Við höf- um á síðasta ári misst 10 lands- liðsmenn til Skotlands og 2 til Þýzkalands. Og þáð sem er allra verst er að við höfum misst Ole Sörensen — einmitt nú þessa dagana. Hann hefur gerzt atvinu maður í Þýzkalandi. Það var Ihann sem skapaði sigurinn yfir Svíum — þann fyrsta í 14 ár. í hinum tveim landsleikjun- um lékum við gegn Finnum og unnum 3—1 og nú á sunnudag- inn gegn Rússum í Moskvu. I>að vai lélegur leikur hjá okkar landsliði — og þá var heldur enginn Ole Sörensen með. En ef við tölum um liðið, þá skipar markvarðarstöðuna Max Möller, 22 ára gamall. Hann hefur aðeins leikið einn hálfleik i landsliði. Kom inn sem vara- maður einu sinni. Val hans kom dálítið á óvart nú, því Leif Niel- sen hefur staðið í markinu í 12 landsleiki í röð og var í fyrra talinn bezti markvörður Evrópu. Var hann talinn það eftir keppn ina um „þjóðabikarinn“ (Nati- ons Cup) á Spáni. En hann var óöruggur í Moskvu á sunnu- daginn. Jörgen Hansen er 26 ára og hefur leikið 18 landsleiki. Hann var m.a. í Norðurlandaliðinu gegn „öðrum Evrópulöndum“ í fyrra. Hann er einn sterkasti maður liðsins. Heini Hald er v. bakv. 23 ára gamall og nýliði í landsliðinu. Hánn • er sterkur og hörku-leik- maður, en lágvaxinn og ekki sér- lega fljótur, en mikill keppnis- maður. 3ent Hansen er h. framv., 31. árs gamall. Hann hefur leikið 5ð landsleiki. Hann var í fyrra í Norðurlandaliðinu og hann var með í liði Dana sem vann silf- urverðlaun á OL í Róm 1960. Miðframvörðurinn er Carl Hansen, 22. ára gamall með 7 landsleiki að baki. Hann var einn af þeim örfáu sem áttu góðan leik í Moskvu. V. framvörður er* Preben Arentoft 28. ára gam- all og hefur leikið 3 landsleiki alla á þessu ári — debuteraði í leiknum við Finna. Hann er einn af þeim fáu sem komið hefur þægilega á óvart í danskri knattspyrnu í ár. Það er enginn giæsileiki yfir spilamennsku 'hans — en hann vinnur vel og staðan er vel skipuð með hon- um. A hægra kanti er Kaj Poulsen. Hann er mjög fljótur og leikur vel með knöttinn en fær ekki uppskeru sem erfiði. ' Það er stundum eins og hann sé hrædd- ur við eigin hæfileika. Hægri innherji er Egon Han- sen. Hann er 28 ára gamall og debuteraði í landsliðinu á þessu ári. Hann er sóttur alla leið til liðs KFUM sem er í 4. deild danskrar knattspyrnu. Hann hef ur verið með í öllum leikjun- um þremur á þessu ári, en ekki átt góða leiki .Ef hann ekki nær góðum leik móti íslendingum, verður honum án efa „sparkað“ úr landsliðinu og þá er oft erf itt að komast þangað aftur. Og þá komum við að aðal „kanónunni" Ole Madsen í mið- herjastöðunni. Hann hefur leikið 43 landsleiki. Hann hefur skorað yfir 40 mörk í landsleikjum — eða sem sagt öruggur með mark í hverjum leik. Það er afrek. Hann var kjörinn „knattspyrnu- maður ársins" í Danmörku s.l. ár. Hann er einstaklega snöggur og viðbragðsfljötur leikmaður og mjög hættulegar. Hann var í Norðurlandaliðinu og atvinnu- mannafélögin hafa oft gert hon- um boð — en ekki nógu há. Hann var með á móti íslandi í 1-1 leiknum 1959. Vinstri innherji er Kjeld Pet- ersen. Hann hefur aðeins leikið 1 landsleik. Hann er 23 ára. Fyrsti landsleikur hans var gegn Finnum á dögunum. Þá stóð hann sig ekki vel — og var vara- maður bæði gegn Svíum og Rússum. En nú þegar forföll Kennarar og greinarhöfundur. OLE MADSEN fyrirliði Dana hafa verið boðuð þá er gripið til hans aftur. Hann er mjög fljótur — og óútreiknalegur. Hann leik- ur í stöðu miðherja í sínu félags- liði <Köge). Gamla kempan Henning Enok- sen er á vinstri kanti. Hann er 29 ára. Hann hefur 48 landsleiki að baki. Það var hann sem tryggði Danmörku jafntefli gegn íslandi, er landsliðin hittust sið- ast 1959. Hann fékk tilboð um að gerast atvinnumaður fyrir 100 þús. dollara — en sagði „Nei“ því atvinnumennska væri ekki fyrir hann. Hann vonast eftir að til ná 50 landsleikjum — og gerir það áreiðanlega í haust. Það er enginn atvinnumaður í danska liðinu. Við í Danmörku höfum það fyrir fasta reglu að kalla ekki atvinnumennina heim til landsleikja. Merkilegt œskulýðsstarf aS Núpi í Dýrafirði Bogi Þorsieinsson, form. KKÍ segir frá heimsókn þangað ÉG brá mér nýlega vestur að Núpi í Dýrafirði í boði Sigurðar R. Guðmundssonar, íþróttakenn- ara og formanns Héraðssambands Vestur-ísfirðinga. Tilgangur far- Hún sigraði Cassíus FALLEGA konan hans Cassiusar Clay, Sonja, fékk með dómi í skilnaðarmáli sem maður hennar höfðaði gegn henni» sér dæmda 350 dollara vikulegar greiðslur og 2500 dollara í málskostnað. Skilnaðurinn er genginn í gildi — en fréttamenn benda á að hjónaband þeirra Clay- hjónanna hafi varað í 344 daga — og Sonja sé eini mót- herjinn sem Cassius Clay hafi ekki sigrað. Sonja fór fram á þúsund dollara greiðslu vikulega — en því hafnaði dómarinn og taldi hæfilega 350 dollara upphæð. Clay krafðist skilnaðar á þeim sökum að Sonja *hefði rofið gefið loforð um að taka upp múhameðstrú sem eigin- maður hennar. Hann tiltók að hún neytti víns, notaði andlitsfarða og vildi ekki sem lög krefðust klæðast skósið- um kyrtli við trúarathafnir. Og nú eru þau skilin — og þetta kalla margir fyrsta ósigur Clays. arinnar var fyrst og fremst, að ræða um körfuknattleik á íþrótta námskeiði, sem þar var haldið og sýna nokkrar kennslukvik- myndir. Ég var svo heppinn, að vera viðstaddur úrslitaleikina í körfu- knattleiksmóti þeirra Vestur-ís- firðinga. Keppt var bæði í karla og kvennaflokki og sýndu liðin, að þrátt fyrir íþróttalega ein- angrun, hafa Vestfirðingar náð tslsverðri leikni í þessari skemmtilegu íþróttagrein. Endaþótt ég væri ánægður með áranigurinn í körfuknattleik, þá varð ég þó hrifnari af að kynn- ast því mikla starfi fyrir æsku- lýðinn þar vestra, sem unnið er að Núpi undir forystu Sigurðar R. Guðmundssonar. Vorið 1959, þegar héraðsskól- inn hafði lokið störfum, efndi H.V.f. til íþróttanámskeiðs að Núpi, fyrir unglinga á aldrinum 13 til 16 ára. Námskeið þetta sóttu 23 unglingar víðsvegar að af sambandssvæðinu. Námskeiðið þótti gefa svo góða raun, að það hefir verið endur- tekið á hverju vori síðan og er nú orðinn fastur liður í uppeldi æskufólks þar vestra. Nemendur á námskeiðinu í vor, sem stóð yfir dagana 10.—20. júní, voru samtals 100, eða svo margir, sem húsnæði leyfði. Unglingarnir byrja að sækja þessi námskeið 13 ára gamlir og síðan koma flestir þeirra aftur á hverju ári til 16 ára aldurs. Á þessum námskeiðum eru kennd- ar þessar íþróttagreinar: Frjáls- ar íþróttir, körfuknnattleikur, knattspyrna, leikfimi og hand- bolti. Sund er einnig æft, en er ekki sérstök námsgrein. Kennarar á námskeiðinu í vor voru: Sigurður R. Guðmundsson, Valdimar Örnólfsson, Vilborg Guðjónsdóttir og Þór Hagalín. Stundaskrá námskeiðsins er þannig, að nemendur eru vaktir kl. 8 að mongni, kl. 8,30 fer fram fánahylling og fjöldasöngur fyrir framan skólann, en síðan er geng ið til morgunverðar. íþrótta- kennsla í hinum ýmsu greinum frá 9 til 12 og er nemendum skipt í flokka eftir aldri og getu. Mat- arhlé og hvíld frá kl. 12 til 14, en síðan eru íþróttaæfingar til kl. 15,30. Eftir kaffi kl. 16,15 hefjast æfimgar á ný, en kl. 19 er kvöldverður snæddur oð síð- ar um kvöldið fer fram kvöld- vaka og sjá nemendur sjálfir um skemmtiatriði. Sum kvöld er dansað, en kl. 23 ganga nemend- ur til náða. Það vakti athygli mína við heimsóknina á þetta námskeið að Núpi, hversu góð stjórn var þar á ölhim hlutum, án þess þó að nokkurri hörku virtist vera beitt. Þarna var glaðvær hópur myndarlegra ungmenn, frjálsleg- ur í framkomu, sem virtist taka íþróttakennsluna alvarlega. Þessi árlegu námskeið að Núpi, hafa mikið uppeldislegt og félagslegt gildi fyrir unglingana í hinum dreifðu byggðum Vest- fjarða. Þarna kynnast ungling- arnir hverir öðrum læra góða framkomu í leik og starfi Fjöldi unglinganna eru þarna i sinni fyrstu dvöl utan veggja heimilisins og er því hiikils um vert, að þau njóti góðrar og ör- uggrar handleiðslu. Ég var þarna á dansleik á laugardagskvöldi þar sem sam- an voru komin á annað hundrað unglingar og þar sá ekki vín á nokkrum manni og framkoma unglinganna var með öllu óað- finnanieg. Framhald á bls. 2L '

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.