Morgunblaðið - 28.07.1965, Page 3
Miðvikudagur 28. ffilf 1965
MORGUNBLAÐIÐ
3
SÖLIN hellti geislaflóði sínu
yfir Rivieru Reykvíkinga-
Nauthólsvík, þegar Ijósmynd
ari Míbl. átti leið þar um í
fyrradag. Fjöldi fólks notaði
sér veðurblíðuna til þess að
ná af sér hvíta hörundslitn-
um, aðallega þó mæður með
böm sín. Innan um voru’ þó
nokkrar ungar og fallegar
stúlkur. Á meðan sóldýrkend-
ur skvömpuðu í flæðarmálinu
eða lágu og sóluðu sig, tóku
þrír ungir menn, sem þarna
voru, veðurblíðuna inn í
skömmtum af flöskustút
Vakti þetta að sjálfsögðu
mikla eftirtekt barna, sem
fylgdust vel með aðgerðun-
um.
Nauthólsvíkin er að verða
ákaflega vinsæll baðstaður á
góðviðrisdögum eins og í
fyrradag. I>ar safnast reyk-
vískar mæður saman með
böm sín og ræða vandamál
hins daglega lífs á meðan
börnin skvampa og leika sér.
í>á koma í Nauthólsvík ungar
stúlkur, sem þurfa að fá sér
dálítið brúnt hörund, sem fer
vel við ljósa sumarkjóla. Karl
Ekki vitum við hvað þessi fallega stúlka heitir, enda skipt-
ir það ekki máli. Myndin er góð og þarfnast ekki skýringa.
Nauthdlsvík
SMSTFINAR
Sami leiðari
í sex daga
Morgunblaðið vill ekkert um
það segja hvort ritstjórar Tím-
ans eru allir í sumarfríi eða frjó-
semi hugans í þeim herbúðum
ekki meiri, en staðreynd er það,
að síðustu sex daga frá miðviku-
deginum 21. júlí til þriðjudags
27. júlí hefur sami leiðarinn
birzt í Tímanum með mismun-
andi tónbrigðum, að vísu. Þessl
gagnmerki leiðari, sem endur-
prentaður hefur verið fimm sinn-
um (til þessa) fjallar um »of-
sköttun“, sem er leiðinlegt orð,
sérstaklega úr penna Framsókn-
armanna. Um það skal ekkert
sagt, hvor skýringin er hin rétta
og kannski er til sú þriðja. Tíma-
menn vita auðvitað, að skatt-
skráin kemur út innan skamms
og hugsanlega eru þeir nú að
reyna að kynda upp nýjan skatta
eld, minnugir kenningar Göbbels
sáluga um, að endurtaka þurfl
lygina nógu oft, og þá verði
henni trúað.
En er þessi glímuskjálfti ekki
heldur fljótt á ferðinni. Fyrir þá,
sem lesa leiðara dagblaðanna er
svo skelfing leiðinlegt að lesa
þetta staut í Tímanum dag eftir
dag. Hvernig væri að veita mönn
um svolitla tilbreytingu.
Eru, taugarnar
Þau voru að lelka sér i fíæð armálinu.
EINS OG áðnr hefur verið skýrt
frá hér í blaðinu voru ensku
spilararnir Reese og Schapiro
kærðir yfrir að nota fingratákn
í Heimsmeistarakeppninni, sem
fram fór í Argentínu. Var þeiim
vikið úr keppninni og leikir
ensku sveitarinnar dæmdir tap-
aðir. Alþjóðabridgesambandið
óskaði eftir, að enska bridgesam
bandið léti rannsaka málið og
var því kunnum lögfræðingi, Sir
John Foster, falið að stjórna
þessari rannsókn. Var fyrst
reiknað með að rannsókn þess-
ari yrði lokið um miðjan ágúst,
en þar sem nokkur vitni frá
Bandaríkjunum geta ekki komið
til London fyrr en í septembei
er ekki reiknað með að niður-
stöður liggi fyrir fyrr en í októ-
ber.
Enska bridgesambandið hefur
nýlega valið sveit þá, sem keppa
á í kvennaflokki í Evrópumótinu,
sem fram fer í Ostende í Belgíu
í september nk. Sveitin er þann
í ólagi
Eitthvað virðast taugamar
vera í ólagi hjá forystumönnum
Framsóknarmanna og kommún-
ista þessa dagana, a.m.k. ef
marka má skrif málgagna þeirra.
Fram eftir öllu sumri börðust
þeir örvæntingarfullri baráttu til
þess að koma í veg fyrir samn-
inga við verkalýðsfélögin og
knýja fram löng verkföll. Það
tókst ekki, verkalýðsfélögin
sömdu. Þá kom síldardeilan eins
og af himnum send, en hún leyst-
ist eftir örfáa daga, nú tönnlast
Tíminn dag eftir dag á „ofskött-
un“, en Þjóðviljinn er skrifaður
daglega eins og nú eigi’ sér stalð
stórkostlegar verðhækkanir.
Hver hefur talað um verðhækk-
anir að undanförnu? Enginn
nema Þjóðviljinn. Hann rífst við
sjálfan sig og spyr: Verður gerð
almenn tilraun að svipta verka-
menn þeim ávinningi; sem
vannst í kjarasamningunum í
sumar? Hver talar um það. Hef-
ur ríkisstjórnin ekki marg ítrek-
að, að hún vilji bæta kjör lág-
launafólks m.a. með styttum
vinnutíma og hefur það ekki ver-
ið gert? Hefur Morgunblaðið
ekki hvatt til þess, að verðlaginu
í landinu verði haldið niðri? Það
fer ekki á milli mála, að það eru
kommúnistar einir, sem tala um
verðhækkanir. Er það af hollustu
við verkalýðinn. Eða eru þeir
kannski að reyna að kynda undir
verðbólgueldinn. Vilja þeir
kannski eyðileggja árangurinn
af samningunum í sumar. Er reið
in ekki enn runnin af Einari Ol-
geirssyni og kommúnistalýðntun
í Tjarnargötu vegna samning-
anna sem Guðmundur J. gerði.
Eða er þetta allt saman bara
örvæntingarfullt fálm út í loft-
ið þegar þessir herramenn sjá, að
ríkisstjórnin hefur aldrei verið
sterkari en nú og ajlar tilraun-
ir þeirra til þess að koma henni
frá með óþjóðhollu eyðileggingar
starfi, hafa farið út um þúfur.
ig skipuð: R. Markus; D. Shana-
han; D. Durran; P. Juan; T. Harr
is og P. Williams. Fyrirliði er
H. Franklin.
Keppni um sæti í sveitinni,
sem spila mun í ppna flokknum
stendur nú yfir og mun ljúka 1.
ágúst. Kepp't er í tvímenning i
sveitakeppnisformi og eru þessi
pör efst:
1. J. Cansino og J. Collings
Framhald á bls. 23.