Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 14
14
MORGUNMAÐIÐ
Miðvikudagur 28. júlí 1965
EiginmaðuT minn, faðir, tengdafaðir og afi,
KARL MAGNÚSSON
járnsmíðameistari, Skipagötu 7, Akureyri,
lézt mánudaginn 26. þessa mánaðar.
Eiginkona, börn,
tengdabörn og bamaböm.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN GUÐMUNDSSON
frá Guðnabæ, Akranesi,
andaðist 27. júlí sl. — Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigurrós Guðmundsdóttir, börn,
tengdabörn og barnaböm.
Konan mín,
FRIÐMEY GUÐMUNDSDÓTXIR
Vesturgötu 25, Akranesi,
andaðist í sjúkrahúsi Akraness, 26. þ. m.
Magnús Gunnlaugsson.
Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir
og afi,
GUÐMUNDUR GUÐ.TÓNSSON
gjaldkeri, Karlagötu 21,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
29. júlí kl. 1,30 e.h. — Þeim, sem viidu minnast hins
látna er bent á líknarstofnanir.
Kristín Brynjólfsdóttir,
Guðjón Guðmundsson, María Sigurðardóttir,
Guðrún Stewart, Jamie Stewart,
Inga Guðmundsdóttir, Þorsteinn Jónsson,
Bryngeir Guðmundsson, Valva Asgríms,
Sigurður Guðmundsson, Gunnvör Björnsdóttir
Ólafur Ólafsson, og barnabörn.
Hjarfanlegar þakkir til allra, sem sýndu okkur sam-
úð við fráfall og jarðarför mannsins míns, föður okkar,
sonar, tengdasonar og bróður,
SVERRIS GUÐMUNDSSONAR
Álftamýri 46.
Ein af langferða bifreiðum Greyhound.
99 dagar — 99 dalir
HÉR á landi var staddur fyrir
skemmstu Ted van Schelven,
sendimaður fyrirtækisins Grey-
hound í Bandaríkjunum. Hann
boðaði á sinn fund blaðamann
Mbl. til þess að kynna nýjung,
sem félagið hefur tekið upp. Eru
það farmiðar, sem seldir verða
á 99 dali og gilda á öllum leiðum
félagsins í 99 daga.
Greyhound-fyrirtækið er nú,
að sögn Mr. van Schelven, eitt
stærsta fólksflutningafyrirtæki í
heimi. Saga þess hefst árið 1914,
Innilegustu þakkir vil ég færa böi-num mínum, tengda
er ungur Svíi, Carl Eric Wick-
man, hóf áætlunarferðir milli
tveggja lítilla námubæja I
Minnesota. Hafði hann til þeirra
nota tíu farþega Hupmoible. Nú
þegar félagið er orðið 50 ára
gamalt, hefur það 5 þúsund stór
as áætlunarbifreiðar í förum um
öll Bandaríkin. Sú vegalengd,
sem bifreiðar félagsins aka á degi
hverjum er að sögn Mr. van
Schelven um milljón mílur, eða
fjórum sinnum vegalengdin til
tunglsins.
Sú nýjung var tekin upp á
fimmtíu ára afmæli félagsins, að
fólkið er gefinn kostur á að
kaupa einn farmiða til 99 daga
í senn. Getur fólk þá ferðast á
öllum leiðum félagsins þessa 99
daga án þess að greiða meira
í fargjöld en þá 99 dali, sem
greiddar eru fyrir farmiðann í
upphafi. Námsfólkí og kennurum
er einnig gefinn kostur á að
kaupa slíka farmiða nokkrum
mánuðum áður en farmiðarnir
I ganga í gildi. Þannig getur náma
I fólk, sem fer héðan til náms í
Bandaríkjunum, keypt slíka far-
miða áður en það fer héðan, en
notað þá síðan að loknu kennslu
misseri.
j Farmiða þá, sem að undan er
getið, er hægt að fá hjá öllum
helztu ferðaskrifstofum hér á
landi, svo og afgreiðslum allra
: flugfélaga. Hins vegar er ekki
! hægt að kaupa slíka miða í
Bandaríkjunum.
börnum og barnabörnum. Ennfremur öi’.um frændum og
vinum, sem glöddu mig með gjöfum, blómum og heilla
skeytum á 80 ára afmæli mínu. Guð blessi ykkur öll.
Kristjana Sigtryggsdóttir.
Bezt að auglýsa
. Morgunblaðinu
Eftirlæti
ffölskyldunnar
Anna Guðjónsdóttir og synir,
Guðlaug Grímsdóttir,
Sigríður Halldórsdóttir, Guðjón Guðmundsson,
og sysíkini hins látna.
Eiginmaður minn, faðir og stjúpfaðir,
ÞÓRÐUR EIRÍKSSON
skipasmiður frá Vattarnesi,
verður jarðsunginn miðvikudaginn 28. þ.m. kl. 10,30
frá Hallgrímskirkju. — Blóm vinsamlegast a^þökkuð, en
þeim sem vildu minnast hins Iátna er bent á Blindre
vinafélagið. — Athöfninni verður útvarpað.
Sigrún Finnsdóttir,
Drekavogi 18.
GUÐBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR
Hverfisgötu 114,
sem andaðist 24. júlí sl. verður jarðsungin föstudaginn
30. júlí kl. 10,30 frá Fríkirkjunni.
Systkini hinnar Iátnu.
Jarðarför
JÓHANKESAR BJÖENSSONAR
Snæbýli í Skaftártungu,
sem lézt 22. þ. m. fer fram frá heimili hans laugar-
daginn 31. júlí kl. 14.
Vandamenn.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför dóttur minnar og systur okkar,
LAUFEYJAR ÁSU ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Reykjum.
Guðrún Jónsdóttir og börn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og út-
för eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
GUÐBJARGAR GÍSLADÓTTUR
Freyjugötu 45.
Jóhann Kr. Hafliðason,
Hjálmar Jóhannsson, Valgerður Guðmundsdóttir,
Hafliði Jóhannsson, Svanfriður Ingibergsdóttir,
Vigdís Jóhannsdóttir, Einvarður Hallvarðsson,
Gunnsteinn Jóhannsson, Steinvör Egilslóttir,
Jón Jóhannsson,
og barnabörnin.
Handhægasta máltíðin
Ómissandi á hverju heimili
★ Fæst í næstu matvörubúð.
CORN FLAKB©