Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 15
Miðviku(?a£ttr 28. júlí 1965 MORGUNBLAÐIÐ 15 Gísli Sigurbjörnsson: Ellin og framtíðin LÍKIÆGA hefir ýmsum brugðið, sem lásu nýlega hér í blaðinu, hvernig komið er í velferðarrík- inu Svíþjóð í heilbrigðismálum. Frá því var skýrt, að nýlega hafi Svíar keypt sjúkrahús í Róma- foorg til þess að geta látið hjúkra Iþar sænskum langlegusjúkling- um, sem fluttir yrðu frá Svíþjóð þeirra erinda. Er nú svo komjð þar í landi, að þrátt fyrir næg fjárhagsleg efni — éða einmitt þess vegna — þá geta Svíar ekki starfrækt sjúkrahús sín sem skyldi og verða því að grípa til slíkra óyndisúrræða. Sjúkrahús geta þeir reist. en fengið hjúkr- unarlið og annað starfsfólk, það er allt annað mál. Hjá okkur er þetta ennþá ekki orðið svona slæmt, þrátt fyrir allt. Við reisum reyndar mörg sjúkrahús og viðbætur við þau þessi árin, og þarf á sínum tíma fjöldann allan til þess að sjá um þá starfsemi. En við þurfum nú ekki almennt að hafa miklar áhyggjur eða vangaveltur um framtíðina. Þetta gengur ein- hvern veginn — slarkast af, eins og það er kallað. Þó eru þeir nokkrir, sem halda, að betra væri að hafa fyrirhyggju og nokkra framsýni í þessum málum sem öðrum, ef ekki á illa að fara. Að undanförnu hefi ég verið að hugsa um,' hvað til bragðs skuli taka til þess að vekja at- hygli og skilning þorra manna á málefnum ellinnar. Þettá er ekki nein ný hugsun og heldur ekki frumleg. Árum saman hafa marg ir verið að velta þessari alvar- legu spurningu fyrir sér — hvað verður um mig í ellinni? Svörin eru margvísleg, en fjöldinn allur veit þó ekki, hvert skal snúa sér, í hvaða skjól skal venda. Um allt þetta hefir þegar verið skrif- að og talað oft og mörgum sinn- um, svo að margir eru orðnir ónæmir fyrir, en aðrir búnir að fá ofnæmi. En miskunnarlaust verður að hamra á þessum mál- um, í þeirri von, að fleiri og fleiri fari að hugsa um þau með alvöru og að hafizt verði handa um úrbætur, áður en í öngþveiti er komið. Borgarstjórn Reykjavíkur ernú íarin að rumska — og er það ágætt út af fyrir sig — en mörg eru tækifærin glötuð, og verður nú að freista þess að gera stórt Og mikið átak í þessum málum, til þess að úr greiðist. íbúðir fyrir aldurhnigið fólk eru nauðsynlegar, og verði nokkr ar reistar á vegum Reykjavíkur- foorgar. Er það byrjun á því, er koma skal. Þörfin á hæli fyrir geðveilt eldra fólk er mikii og brýn. Hefir marg oft verið ritað og rætt um þetta við ráðamenn landsins, að maður tali nú ekki um ráðanjenn borgarinnar. Ekk- ert hefir þó verið gert. Allt situr þetta við það sama, við rífumst og deilum, en vesalingarnir bíða. Biðin verður þeim mörgum of löng og öllum árangurslaus. Og svo erum við að halda okkur mikla karla, en þessum aumustu allra, þeim getum við ekki líkn- að. Þetta er skrifað sem gagnrýni við yður, lesendur góðir, en ég tel mig ekki sjálfan undanþeg- inn. Þó er rétt að geta þess, að í þessu máli hefur sú stofnun, sem ég veiti forstöðu, oftar en einu sinni komið með tillögur um úrbætur, en allt hefur þetta því miður verið árangurslaust. Hversu lengi vont getur versnað, veit ég ekki, en líklega verða stjórnendur borgarinnar og lands ins fyrst persónulega að verða fyrir barðinu á þessum málum, áður en eitthvað er að gert. „En hvað varðar mig um hann Jón“?, sagði maðurinn. Þáttur þeirra mörgu, sem árum saman eru rúmliggjandi sjúklingar, oft í heimahúsum, er heldur ekki neinn skemmti- eða gleðiþáttur. Þetta fólk er oft illa statt og þá ekki síður vandamenn þess og ættingjar, sem hjúkra því og annast. Reynt er að fá dvöl í sjúkrahúsi, stundum fæst hún, oft'aðeins um skamma stund, en oftast er þó afsvar. Litlu betra er að komast á vistheimili eða hjúkrunarheimili. Venjulega^t er svarið — því miður ekki hægt, öll pláss fullsetin. Og þannig líða árin, og svo þegar ellin færist yfir, þá bætist fjöldinn allur við þessa endalausu biðröð vonlausra njanna. Dugnaður okkar íslend- inga er með afbrigðum. Við fisk- um' og fiskum, við seljum og getum allt gert, eða svo finnst okkur og Færeyingum, en að sjá um gamla fólkið sem er orðið lúið eftir langt og erfitt starf, þessu fólki getum við ekki hjálp- að við höfum gleymt því í öllum hraðanum, í öllu stríðinu fyrir að fá íbúð og bíl. Líklega þykir ýmsum þetta fullsagt og sumt ósanngjarnt, og má vera að segja megi þetta allt með öðrum orð- um og án tilfinninga. En hvað mynduð þér segja og gera í mín- um sporum? Þér hafið í áratugi verið að vinna í þessum málum. Þér hafið fengið kynni af fjöl- þættu þjóðarvandamáli og þér vitið, að unnt er að leysa málin með samvinnu, skipulagi og um fram allt með þrotlausu starfi. Og þér horfið eftir árunum, sem líða. Þér eruð bráðum sjálfir komnir á efri ár og þegar þér lítið yfir veginn, þá finnst yður svo sáralítið hafa áunnizt. Jú, að vísu eru stofnanir orðnar fleiri, vistplássin líka, en þér hugsið oft um — líklega of oft — hvað hefði verið hægt að gera, ef — ef.... Já, þessi ef eru mörg og hvert þeirra er merki um glatað tæki- færi til framkvæmda í málum, sem þjóðina alla varða. En nú er farið að rofa til. Söfn- uðir landsins eru sumir farnir að sinna líknarmálum meira en áð- Ur. þó alveg sérstaklega málefn- um ellinnar. Þetta er mörgum gleðiefni. Kirkjan hefir, sem bet- ur fer, enn mikil og góð áhrif, og þau munu efalaust aukast og eflast. þegar söfnuðir landsins fara að sinna líknarmálum af lífi og sál. Vonandi verður þess ekki langt að bíða, að árangurinn af því starfi, sem nú er hafið verði öllum sjáanlegur, en fyrst og fremst, að hann verði mörgum til hjálpar og blessunar. Gísli Sigurbjömsson. Heildarsýn yfirl veðrið I heiminum Mót bindindismanna i Vagiaskógi um helgina Myndamósaik þetta hefur 1 verið gert úr 450 ljósmyndum, l sem teknar voru á 24 klst. 13. febrúar sl. úr veðurathugana- hnettinum Tiros IX. Hvíta, lárétta línan, sem dregin er yfir myndina og merkir mið baug, og hvíta línurnar á út- jöðrum meiriháttar lands- svæða eru dregnar á banda- rísku Veðurstofunni. Ljósustu hlutar myndamósaiksins merkja skýjabreiður, eða þær sem undir eru heimskauta- svæðinu, ísbreiður. örin efst á myndinni sýnir ísland. Landssvæði eru dálítið ljósaril en höfin. y Tiros IX. var skotið á loft 22. i | janúar, 1965, frá Kennedy- , höfða í Flórída. (Frá Upplýs- ingaþjónustu Bandaríkjanna.)' Akureyri,' 22. júlí. BINDINDISMÓT verður haldið í Vaglaskógi um verzlunarmanna helgina, og ver'ður það með líku sniði og sams kónar mót, sem þar var haldið í fyrra og á veg- um sömu félagssamtaka að mestu, en þau eru íþróttabanda- lag Akureyrar, Héraðssamband Þingeyinga, Ungmennasamfoand Eyjafjarðar, Þingstúka Akureyr- at;, Æskulýðsráð Akureyrar, Skátafélögin á Akureyri og Æskulýðsráð Akureyrar, Skáta- félögin á Akureyri og Æskulýðs- samfoand kirkjunnar í Hólastifti. Framkvæmdastjóri mótsins verð ur Þóroddur Jóhannsson. Mótið er ekki haldið í fjáröfl- unarskyni, enda verður verði á aðgöngumiðum og veitingum í hóf stillt, eins og kostur er á, til þess að auðvelda sem 'flestum að sækja mótið. Skógarmótið í fyrra sóttu um 3000 manns og fór það ágætlega fram. Sýndi það, að ungt fólk getur og vill koma saman til áð skemmta sér á fögrum stað án þess að hafa vín um hönd, enda er það til- gangur og markmið þeirra, sem að mótinu standa. Þar verður algerlega bannað að vera með eða drekka áfengi, og verður hver sá, sembrjóta kann það bann fjarlægður þegar í stáð, en á stað num verður öflugur vörður lög- reglu og eftirlitsmanna. Dagskrá mótsins verður í aðal atriðum á þessa leið: Laugardaskvöldið 31. júlí kl. 20.00 verður mótið sett í Stóra- rjóðri, en síðan fara fram ýmis skemmtiatriði. Þau annast m.a. Smárakvartettinn á Akureyri, Ómar Ragnarsson og skátar frá Akureyri, en um mfðnættið verð ur varðeldur og flugeldasýning í Hróarsstaðanesi. Þá verður dansleikur í Brúarlundi frá kl. 21:00 til kl. 3 eftir miðnætti. Á sunnudaginn leikur Lúðra- sveit Akureyrar kl. 13:00, en kl. 13:30, hefst messa, þar sem sr. Þórir Stephensen á Sauðár- króki prédikar. Eftir messu skemmta sömu skemmtikraftar og kvöildið áður, en síðan hefst íþróttakeppni. Kvennaflokkur úr ÍBA og HSÞ keppa í handknatt- leik, og III. fl. úr Þór, KA, UMSIE og HSÞ keppa í knattspyrnu. Þá verður keppt í starfshlaupi og e.t.v. dráttarvélaakstri — Um kvöldið verður svo kvöldvaka með gamanþáttum gamanvísum, einsöng o.fl. — Dansa’ð verður í Brúarlandi til kl. 2 eftir mið- nætti. — Mótinu verður formlega slitið eftir hádegi á mánudaginn. Mikil undirbúningsvinna hefir verið af hendi leyst og mun verða unnin í sambandi við mót þetta, og mun að því vinna um ! 200 manns. Varðmenn verða við ! tjaldstæðin allan tímann, 'og , einnig verður sjúkra- og slysa- , varzla, meðan á mótinu stendur. ! Beint símasamband verður við . Akureyri og talstöðvasamfoand milli einstakra starfshópa í skóg- inum. Ýmsar veitingar verða seldar, svo sem skyr, mjólk, grautar, pylsur, heitir og kaldir drykkir og m.fl., aðallega á veg- um kvenfélagsins í Fnjóskadal. Ferðir verða frá ferðaskrif stofum á Akureyri alla mótsdag- ana. — Sv. P. T rúlof unarhr ingar H A L L D O R Skólavörðustíg 2. Hafnarfjörður — Hafnarfjörður Leikja- og Iþróttakennsla hefst að Hörðuvöllum, fimmtudaginn 29. júlí. Piltar og stúlkur 8 — 10 ára mæti kl. 9 f.h. Piltar og stúlkur 7 og 8 ára mæti kl. 1,30 e.h. Piltar og stúlkur 11 — 13 ára mæti kl. 3 e.h. Öllum börnum heimil þátttaka. Innritun á staðnum. (Hafið strigaskó meðferðis). m- Æsku/ýðsráð Hafnarfjarðar íþróttabandalag Hafnarfjarðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.