Morgunblaðið - 30.07.1965, Síða 6
e
MORGUNBLAÐID
Föstudagur 30. júlí 1965
* r *
Sýn/ð sanna
ferðamenningu
m
þVEHSKURÐUR
ÍOO ?00 300*
FYRIRHUGUO BÚRFELLSVIRKJUN
Undirbúningur Búrfeilsvirkjunar
rætt v/ð Eir'ik Briem, frkvstj. La ndsvirkjunar
MORG UNBLAÐIÐ átti í gær
samtal við Eirík Briem, íram-
kvæmdastjóra Landsvirkjunar,
Og spurði hann um undirbúnings
framkvæmdir við Búrfell og aðra
starfsemi Landsvirkjunar. Fékk
blaðið eftirfarandi upplýsingar
hjá Eiríki:
Hinn 1. júli s.L tók Landsvirkj
un við af stjórn Sogsvirkjunar
innar en fól þá jafnframt Stein
grími Jónssyni, framkvæmdastj.
Sogsvirkjunar, og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur að annast rekstur
Sogsins fyrst um sinn, enda gera
Landsvirkjunarlðgin ráð fyrir að
Landsvirkjun taki við rekstri
Sogsvirkjunarinnar um næstu
áramót.
Landsvirkjun hefur hins vegar
yfirtekið undirbúning Búrfells-
Eiríkur Briem
virkjunarinnar. Ráðunautur
Landsvirkjunar, verkfræðifyrir
tækið Harza í Chicago, vinnur að
útboðslýsingu á virkjuninni og er
ráðgert, að þær verði tilbúnar
í lok september.
Áður en til útboðs kemur, er
gert ráð fyrir svonefndu forvali
á byggingarfyrirtækjum, sem er
í því fólgið, að fyrirtækjum, sem
áhuga hafa á verkinu, er gefinn
kostur á að sanna hæfni sína.
Forvalsskilmálar verða auglýstir
snemma í ágúsL
Nú er unnið að gerð vegar
fyrir ofan Ásólfsstaði og ennfrem
ur er verið að smíða brýr yfir
Fossá (58 m. á lengd) og Sandá
(35 m. með langri aðfyllingu).
í sumar verður væntanlega líka
unnið að lagfæringu á vegum og
brúm á þjóðveginum fyrir neðan
Ásólfsstaði.
í haust verður líka unnið við
undirbúning íbúðarhúsa, vatns-
lögn, skála og fleiru við Búr
fell, en allur undirgúningur og
framkvæmdir miðast við það að
hægt verði að hefja aðalfram-
kvæmdir við virkjuna næsta vor.
Boðnar verða út tvær tilhag
anir virkjunar. önnur gerir ráð
fyrir að byrjað sé með 70 þús.
kílówatta virkjun en hin 105 þús.
kw. Hvor tilhögunin verður val-
in, fer eftir því, hvort ráðizt
verður í að reisa aluminium
bræðslu.
Sú virkjun, sef nú er reiknað
með við Búrfell, verður allt 210
þús. kw. Þá er vatnið þó ekki
fullnýtt og síðar, þegar miðlanir
koma upp ofar á vatnasvæði
Þjórsár, má virkja áfram við
Búrfell.
Landsvirkjun mun, auk Sogs-
virkjunarinnar, yfirtaka eimtúrb-
ínustoðina við Elliðaár frá
Reykjavíkurborg. Verið er að
stækka þá stöð nú úr 7,5 þús.
kw í 19 þús. kw. Reiknað er með,
að því verki verði lokið haustið
1966. Fram til þess tíma mun
Rafmagnsveita Reykjavíkur hafa
rekstur stöðvarinnar með hönd-
um og annast stækkunarfram-
kvæmdirnar.
Auk framkvæmdastjórans, Ei-
ríks Briem, hefur Landsvirkjun
ráðið Svavar Pálss. cand.oecon.,
löggiltan endurskoðanda Lands-
virkjunar, og Gunnlaug Halldórs-
son og Guðmund Kr. Kristinsson,
sem arkitekta við virkjunina.
VERZLUNARMANNAHELGIN
er á næsta leiti. Ein mesta ferða
helgi ársins, þegar eftir þjóðveg-
unum þjóta fylkingar bifreiða
í endalausum röðum, þéttsetn-
ar konur og körlum, ungum og
öldnum. Þúsundum saman þyrp
ist fólkið í allar áttir, úr borg
og bæ, í leit að hvíld og ró frá
önn og erli hversdagsins.
í slíkri umferð, sem nú er
íramundan og reynslan hefur
sýnt og sannað, að eykst ár frá
ári, einmitt um þessa helgi, ber
eitt boðorð öðru hærra: öryggi.
En að það beðorð sé í heiðri
haft, getur gætnin ein tryggt.
Það er þeim ömurlegar lyktir
hvíldar og frídaga, sem, vegna
óaðgæzlu, verða valdir að slysi
á sjálfum sér, ástvinum sínum,
kunningjum eða samferðafólki.
Sá sem í þær raunir ratar verð-
ur aldrei samur og jafn.
Einn mestur böl- og tjónavald-
ur í þjóðfélagi nútímans, er
áfengisneyzlan, ekki hvað sízt
með tilliti til margþættrar og sí-
aukinnar vélvæðingar, á æ
fleiri og fleiri sviðum, og þá
einmitt ekki hvað sízt í hinni
vaxandi umferð og þá allra helzt
á tylli- og frídögum, svo sem
helgi verzlunarmanna.
Það er alltaf dæmigert ábyrgð
arleysi að setjast undir bílstýri
undir áhrifum áfengis, en í há-
mark nær slíkt ábyrgðarleysi á
slíkum tylli- og frídögum, sem
verzlunarmannahelgin er, þegar
allir vegir eru krökir af vél-
væddum farartækjum, þá er
sannarlega allrar athygli þörf,
ef allt á að ganga að óskum.
Minnstu áfengisáhrif geta
haft hinar óheillavænlegustu af
leiðingar, og á svipstundu breytt
langþráðri skemmtiför í hrylli-
legan dauðdaga eða lífstíðar-
örkuml.
Áður en til komu hin al-
mennu farartæki nútímans —
bifreiðarnar — sem vissulega eru
hin mestu þarfaþing, en þó að-
eins með nákvæmri meðferð og
stjórn algáðs hugar og handa,
var hesturinn aðalfarartækið,
og þó húsbóndinn væri þá stund
um „illa fyrir kallaður“ kom það
síður að sök, þar sem hesturinn
var alltaf allsgáður. En nú eru
breyttir tímar og til þeirra breyt
inga ber öllum hugsandi mönn-
um og konum, að taka fullt til-
lit.
Áfengisvarnanefnd Reykjavík
ur skorar á alla þá sem nú
hyggja til ferðalaga um verzlun
armannahélgina, að sýna sanna
ferðamenningu, með fullkominni
tillitssemi í umferðinni og
snyrtimennsku á dvalarstöðum,
svo sem sæmir frjálsbornu fólki
og siðuðu. En því aðeins verð-
ur það gert, að hafnað sé allri
áfengisneyzlu á slíkum skemmti
ferðalögum sem framundan eru.
Áfengisvarnanefnd
Reykjavíkur.
Verðmæti
hlunninda
Hlunnindi, lax og silungsveiði,
selveiði, dúntekja o.fl. er drjúg
tekjulind á mörgum bæjum. AU
ir vita að greiða verður morð
fjár fyrir að fá að renna í góðar
laxveiðiár og kópaskinnin hafa
verið í háu verði og hækkandi,
allt upp undir kr. 2.000,00 fyrir
I. fl. skinn undanfarin ár.
í sumar hefur víða verið ágæt
selveiði, en ekki aukast þó tekj-
ur bænda að sama skapi, því að
verðlag á skinnum hefur fallið,
enda berst nú meira af þeim á
heimsmarkaðinn en áður, því að
fleiri veiða vel heldur en íslend-
ingar.
• Peningalyktin
1 vikunni lagði þennan in-
dæla peningaþef fyrir vit Reyk-
víkinga, eða bannsetta grútar-
stybbuna, eins og aðrir mundu
orða það. Verið var að bræða
síld í Faxaverksmðiðjunni í
Effersey, eða Örfirisey ,eins og
barnakennarar kenna börnun-
um að kalla eyna, sem er renyd
ar engin eyja lengur. Uppfyll-
ingar hafa gerbreytt lagi eyjar-
innar, svo að gamlir Reykvík-
ingar þekkja hana naumast
lengur. En það var víst lyktin,
sem við ætluðum að minnast á.
Margir hafa hringt til Morgun-
blaðsins og kvartað undan
ólyktinni. Segist fólk ekki hafa
getað opnað glugga, meðan ver-
ið var að bræða, og svona verk-
smiðjur eigi ekki heima inni í
eða við borgir. En atvinnulífið
verður að hafa sinn gang, þótt
mönnum slái fyrir brjóst, og þá
þykir mér langt gengið, ef það
er satt, að Seyðfirðingar sveii
lyktinni. Það hefði að minnsta
kosti þótt gikksháttur í Siglu-
firði að amast við peningalykt.
• Skattamir
Nú hættir fólk að nöldra
vegna lyktarinnar í bráð, en
þá tekur við hið árlega gremju-
efni borgarbúa: Skattaskráin,
sem heitir vist gjaldheimtuskrá
núna, kemur út í dag. Þá finnst
mörgum þeir eiga um sárt að
binda. Nóg er samt að borga
sina skatta, þó að maður ergi
sig ekki upp í vanlíðan með því
að þrasa endalaust um það,
hvað þetta sé nú erfitt, en marg
ir virðast bókstaflega leggja
skattauka á sjálfa sig með reiði
legu nöldri. Nei, enginn kemst
hjá því að borga sín opinberu
gjöld, sem standa undir rekstri
þjóðfélagsins, þó að mörgum
finnist djúpt kafað í budduna.
• DoktorshúsL
Kunningi Velvakanda, sem
oft á leið um Ránargötu, segist
hafa séð útlendinga standa í
hópum fyrir framan gamla
Doktorshúsið og taka myndir.
Þykir þeim húsið víst harla
ógeðslegt svona inni í miðri
borg. Húsið er í megnustu van-
hirðu, rúður brotnar og spýt-
ur negldar fyrir glugga. Þetta
hús á sér langa sögu að baki,
og ætti aðhalda því sæmilega
við, meðan það stendur þarna
enn. Útlendingar eiga oft leið
framhjá því, vegna þess að City
Hotel er rétt hjá, Ef ekki á að
flytja húsið inn eftir (ekki á
Klepp, heldur í Árbæ), þarf að
mála það og þrífa.
• Ruslaskrínur eða
póstkassar ?
Vinkona Velvakanda segist
hafa séð erlent ferðafólk setja
frímerkt bréf í ruslaskrínur
þær, sem víða hanga á ljósa-
staurum. Á þeim eru auglýsing
ar og áletrunin „Hrein torg fög-
ur borg“, en bæta þyrfti við
áletrun a.m.k. á ensku, sem
gæfi til kynna, að þama væri
ekki um póstkassa að ræða.
Áletrunin þyrfti ekki að vera
stór, ef hún væri rétt við rif-
una, svo að menn rækju augun
í hana, um leið og þeir stinga
einhverju ofan í kassann.
Nýtt símanúmer:
38820
BBÆÐURNIR ORMSSON h.f.
Vesturgötu 3. — Lágmúla 9.