Morgunblaðið - 16.09.1965, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.09.1965, Blaðsíða 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 16. sept. 1965 Malbikun gatna í Patreksfirði hafin Patreksfirði, 10 sept.: — t DAG lauk framkvæmdum við fyrsta malbikaða vegarspottann bér í kauptúninu og um leið hin um fyrsta á Vestfjörðum utan ísafjaröar. Framkvaemdir að verki þessu hófust í byrjun júnL Fyrst var hafizt handa að byggja Gongnamenn fundn hest Geldingarholti, 15. september. ÞEGAR gangnamenn í norður leit komu í Miklulækjarbotna fyrir slkömmu, fundu þeir rauðan hest, tvístjörnóttan. Hesturinn er markaður blað-stýft framan hægra og merktur U á hægri lend. Eigandi hans getur fengið hest sinn me'ð því að hafa sam- band við símstöðina á Ásum- — Jón. nýtt holræsi á 110 metra kafla. Holræsi þuð, sem fyrir var, var hið elzta, sem byggt var á vegum hreppsins. Malbikaði végarkaflinn er frá horni Þórsgötu og Aðalstrætis og upp fyrir samkomuhúsið Skjald- borg, eða um 250 metra langur. Gatan er 7 metra breið að við- bættum bifreiðastæðum, sem eru á 95 metra kafla og 2,5 metrar á breidd. Áformað er að ljúka við eins mikið af gangstéttunum og unnt er, ef veður leyfir. Er hrepp urinn sem stendur að koma sér upp aðsötðu til framleiðslu á gangstéttarhellum. Frá byrjun hafa 8—10 verka- menn unnið að þessu undir stjórn verkstjóra hreppsins, Frið geirs Guðmundssonar, sem sá um framkvæmd verksins. Leifur Harmesson, verkfr. annaðist verkfræðilegan undirbúning, svo sem mælir.gar og teikningar og gerði hann enn fremur kostnað aráætlun. ísafjarðarbær leigði Malb inkun gatna hafin á Patreksfi röL malbikunarvélarnar, og eru þær hinar sömu og Gatnagerð s.f. átti og ísafjarðarbær keyptL Er ánægjulegt, að þessar nauð- synlegu framkvæmdir eru hafn- ar, og máitækið segir „hálfnað er verk þá hafið er“, en vega- lengd gatna hér mun vera um 6 kílómetrar. — TraustL Eftirvænting í gær var Velvakandi í styttra lagi af því að ég þurfti að flýta mér heim í fyrrakvöld. Ætlaði ekki að missa af neinu, vera vel búinn undir kvöldið — og hvíla mig. En ég gat ekki slappað af. Aftur og aftur greip ég Morgunblaðið, las fyrst heil- síðu auglýsinguna, síðan grein- ina í Dagbókinni, skoðaði mynd irnar. Já, aftur og aftur, því svo sannarlega eru þeir „snill- ingar“, eins og segir í greininni — og „stórkostlegir", eins og segir í auglýsingunni. Ég kunni þetta utan að. Mér svelgdist tvisvar á súp- unni og var skjálfhentur. Svo gat ég ekki beðið lengur, en þaut af stað klukkan hálf sjö. Þetta átti að byrja korter yfir sjö og ég ók í loftinu inn eftir. En ég sá ekki sálu. Ég varð fyrstur, ágætt. Það var tekið að skyggja og ég sat í bilnum og beið eftir skaranum, reiðubúinn að taka til fótanna og verða fyrstur að dyrunum. En klukkan varð sjö, korter yfir — og enginn kom. Aðejns strætisvagninn, en hann var tómur. Hvernig stóð á þessu? Hafði ég misskilið þetta í blað- inu, eða les enginn Morgunblað- ið nema Velvakandi? Ég fór út úr bílnum og gekk í humátt að stóra húsinu. Það var komið myrkur og ljós var í öllum gluggum. En þarna var allt hljótt. Skyndilega flaug að mér hræðileg hugsun. Ég stanz- aði snögglega og greip andann á iofti: Þeir skyldu þó ekki hafa sloppið út? Guð minn góður! Nei, það væri hræðilegt. En af hverju var allt svona hljótt, eng inn hávaðL engin öskur, engin óp? Ég gekk eftirvæntingarfullur hægum skrefum umhverfis stóra húsið, var lengi á leiðinni, skimaði upp í hvern glugga. Gekk einn hring, síðan annan — og þann þriðja, en ég.var enn einn. Fólkið var ekki byrjað að safnast saman. Eitthvað hlaut að hafa komið fyrir. Aðdáandi Allt í einu opnuðust dyrn ar, aðaldyrnar — og ég varð eftirvæntingarfullur, nema stað ar. Maður í hvítum sloppi ávarp aði mig úr dyrunum „Að hverju leitið þér maður minn?“ Ég flýtti mér til hans og spurði ákafur: „Eru þeir ekki komnir? Hvenær koma þeir? Þetta átti að byrja klukkan korter yfir sjö!“ Hann leit ransakandi augum á mig — og spurði rólegur: „Hverjir?" „Ertu að reyna að gabba mig? Fóru þeir kannski út um bakdyrnar til þess að enginn gæti snert þá?“ „Ha?“ „Eg er aðdáandi þeirra, ég heimta að fá að snerta þá,“ sagði ég og hélt áfram að þrefa við hann, því að ég skildi strax, að hér voru brögð i tafli. Þeir voru að reyna að komast und- an aðdáendum sínum. En allt í einu heyrði ég töfra- orðið. Einhver hrópaði það skærum rómi þarna inni í hús- inu. Það var næstum því liðið yfir mig, þegar ég heyrði þetta — og' undarleg sælutilfinning fór Um alaln kroppinn. Ég rauk á manninn í hvíta sloppnum, ýtti honum óþyrmilega úr gang veginum og þaut inn í húsið — hrópandi af ölluirr lífs og sálar kröftum, eins og ég hafði heyrt hina hrópa: „THE KINKS, THE KINKS, THE KINKS!!!“ Ein- hver hefur kannski haldið, að ég væri orðinn vitlaus. ^ Dásamlegt „Hvar eru þeir, hvar eru þeir?“ hrópaði ég á hlaupum inn ganginn. „Hérna, hérna“, kvað við úr öllum áttum. Já, þeir voru þarna, svo sannarlega voru þeir þarna. Og miklu fleiri. Fullt af þeim, síðhærðum — í háhæluðum skóm, gulum sokkum, þvengmjóum buxum — og þeir skríktu einhvers stað ar á bak við hárið. Ég varð orðlaus af aðdáun að sjá þá svona, klædda eigin hoidi. Þeir sögðu líka í auglýsingunni í Morgunblaðinu: „Tvímælalaust stórkostlegustu hljómleikar, sem hafa verið haldnir hér“. Hver hefði trúað því fyrir tveim ur árum, að slíkir atburðir ættu eftir að gerast á fslandi? Svo hófu þeir upp raust sína og loftið fylltist hljóðum, sem enginn mannbarki hefur fram- leitt fyrr. Hárið slóst til á þeim svo að stundum sást í nebbana, „Dásamlegt! Stórkostlegt!" hróp uðu allir síðhærðu aðdáendurn- ir og ég hafði það á tilfinning- unni, að þakið mundi rifna af húsinu og kvöldsvalinn streyma inn á okkur til þess að „kæla mannskapinn niður“, eins og þeir orða það. Allir voru með „Kinks-húfur“, og „Kinks- flögg“. Sumir voru í „Kinks- peysum", eða „Kinks-huxum." Öll blöðin höfðu sent frétta- menn á staðinn — og ljósmynd ararnir smelltu af í hvert sinn og sást í nebbana. Heimss.ögu- legur viðburður, sagði einn spek ingurinn — og hrópin hækkuðu um allan helming. „Trvggðu þér miða í tínia" hvíta sloppnum mér út að hlið- inu: „Komdu aftur annað kvöld, þá verða þeir enn betri“, sagði hann — „en tryggðu þér miða í tíma“, bætti hann við. Ég var að velta því fyrir mér af hverju „THE KINKS“ hefðú verið í rimlabúri þarna inni í húsinu, ég áttaði mig ekki á því fyrr en öllu var lokið. Senni- lega til þess að aðdáendurnir gerðust ekki of nærgöngulir. Ég spurði einskis. En af hverju voru allir litlu aðdáendurnir líka í rimlabúr- um? Sennilega til öryggis, til þess að þeir yrðu ekki of nær- göngulir við THE KINKS. Allt átti sína skýringu. Ég var of máttfarinn til þess að aka sjálfur heim. Ég skildi því bílinn minn eftir og steig upp í strætisvagninn, sem stopp ar þarna alveg við hliðið hjá Kleppi. Merkingu orða snúið við Ég hef fengið bréf frá nokkrum lesendum, sem einnig hafa fengið nóg af bítilæðinu. Þeir setja skoðanir sínar hins vegar fram á dálítið annan hátt en ég hef gert hér að framan — og er sjálfsagt að birta hér eitt bréfanna — fyrir þá, sem bet- ur kunna að meta skorinorð skrif í „Rabb-stíl“: „Hefur einhver geðveiki grip ið fólkið í þessari borg? Eru eng in takmörk fyrir því hvað hægt er að bjóða vesælum mann- skepnum°“ Það á að setja ritskoðun á auglýsingar frá þessum vesal- ingum, sem auglýsa: „Þetta eru tvímælalaust stórkostlegustu hljómleikar, sem hér hafa verið haldnir“ — og bjóða svo upp á brezk bítilmennL sem varla er farin að vaxa grön. Þar með er búið að eyða þremur orðum úr íslenzkri tungu, gera þau merkingar- laus — eða a.m.k. gefa þeim allt aðra merkingu en þau höfðu: Tvímælalaust, stórkostlegur, i hljómleikar. „Tvímælalaust" þýðir hér eft ir „vafasamt". „Stórkostlegur“ þýðir hér eft ir „ógeðfelldur". „Hljómleikar" þýðir hér eftir „múgöskur". Þótt hingað kæmi Maria Call- as, Birgit Nilsson, Arthur Rub- instein, Vladimir Horowitz eða Hans Hotter fengu þau áreið- anlega ekki heilsíðuauglýsing- ar í Morgunblaðinu með full- yrðingum um, að þar væri um að ræða „stórkostlegustu hljóm leika“ sem hér hefðu verið haldnir, enda er vafasamt, að þetta heiðursfólk kæri sig um það úr þessu. Vinur Velvakanda." Ég þakka þessum „vini“ bréf ið og nota tækifærið til að benda honum á það, að senni- lega væri þetta ekki jafnstór- kostlegt, ef barnabítlarnir „Bravó“ frá Akureyri — og „Tempó“ létu ekki til sín heyra ásamt þeim brezku. Eða, hefur þú, vinur sæll, heyrt í Dúmbó og Steina, eða hvern fjandann þeir kalla sig? Þeir eru senni- lega ekki dónalegir. Misskilningur Velvakandi hefur verið beðinn um að geta þess, að frá- sögn um yfirmálningu á mynd- um eftir Guðmund Thorsteins- son (Mugg) á Vífilsstöðum, sem getið var í útvarpserindi um Daginn og veginn sl. mánudag er á misskilningi byggð. Mugg- ur málaði aldrei neina vegg- mynd á Vífilsstöðum. Umrædd veggskreyting var gerð fyrir 45 árum þegar herbergið var notað sem borðstofa fyrir barna deildina. Nú mun herbergi þetta hafa verið tekið undir röntgen- tæki. Þurfti að brjóta einn vegg herbergisins og þar af leiðandi óhjákvæmilegt að mála . NÝJUNG TVEGGJA HRAÐA HÖGG- OG SNtJNINGSBORVÉLAB Brœðurnlr ORMSSON hd. Veaturgötu Z. — Simi 36820. Þegar ég fór, fylgdi sá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.