Morgunblaðið - 16.09.1965, Side 16

Morgunblaðið - 16.09.1965, Side 16
16 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 16. sept. 1965 íbúð óskast Ung barnlaus hjón óska eftir 1—2 herberbja ibúð til leigu. — Upplýsingar á Kárgreiðslustofunni Perma Simi 33968 eða 34484. FramtsCaratvCnna Ungur maður, laghentur og reglusamur getur feng- ið atvinnu við mjög hreinlega og létta iðn (optik) Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist afgr. Mbl., merkt: „Framtíð — 2191“. Tanbútcsala—Taubútosala Seljum í dag og næstu daga taubúta úr enskum alullarefnum, tilvalið í pils og skólabuxur á drengi. Andersen & Lauth Vesturgötu 17. Hafnarf|örðar 2ja herb. íbúð óskast til leigu. — Tvennt í heimili. Vinna bæði úti. — Upplýsingar í síma 50653. Einnig á kvöldin á Talstöð Hafnarfjarðar í síma 50030. Starfssfúlkur óskast Starfsstúlkur vantar í eldhús Kleppsspítalans. — Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 38160, milli kl. 13 og 16. Reykjavík, 15. sept. 1965. Skrifstofa ríkisspítalanna. Starisstúlka óskast Starfsstúlku vantar í Kópavogshælið. — Upplýsing ar gefur matráðskonan í síma 41502. Reykjavík, 15. sept 1965. Skrifstofa ríkisspítalanna. Sjötugur í dag: Asgrímur Þorgrímsson Borg HÚN ER fögur land'leiðin vest ur á Snæfelilsnes. Fjallgarðurinn þegar kemur í Hnappadalssýslu hefir margan töfrað. heír eru margir, sem aka vestur og verð ur starsýnt á hinar blómlegu jarðir meðfram fjallgarðinum. Ein þeirra er Borg. Nafnið leyn ir sér ekki því stór klettabor-g er rétt fyrir ofan bæinn svo sem yfirskrift þessarar falilegu jarð- ar. Mikilar byltingar hafa átt sér stað á þeirri jörð svo sem mörg- u.m ö'ðrum. Þar er nú þríbýli- Ásgrímur býr þar ásamt syni sín um og tengdasyni. Þær eru marg ar ærnar, sem þeir þurfa að rýja á vorin. Húsin eru rismikil og bers stórhug vott. Rafvirkjun er þar næg til ljóss og hita og ann- ars er til þarf. Það er 35 kw stöð og kostaði fyrir 12 árum yfir 200 þúsund. Og ábyggilega er hún búin að borga sig hvernig svo sem er reiknað. Ásgrímur á Borg er 70 ára í dag. Hann á mikinn og sérstæðan vinnudag að baki og væri gaman að gera honum veruleg skil, en því mi'ður verður það að bíða- En það skal tekið fram að eitt af því fyrsta sem ég heyrði um Miklahioltshreppinn og íbúa hans var að þeir gætu ekki hugsað sér að neinn yrði undir í lífsbarátt- unni. Ef óhapp eða tjón henti ein mættu sem urðu fjötur um fót, reis sveitin öll til hjálpar og það voru engin vetlipgatök sem þá voi'u á ferðinni. Ég held ég halli ekki á neinn þótt ég haldi því fram að Ásgrímur á Borg hafi verið í fremstu viglínu þeirrar ihjálparsveitar, en hvað um það samhjálparandi rikir þar í byggð og samikomulagið er ágætt. Mér flaug í hug einn daginn áð bregða mér heim til Ásgríms með blað og myndavél og fá hann til að rifja upp nokkrar minningar. Var þar af miklu að taka og ekki rúm fyrir líema fátt eitt og varð ég að vinsa úr. Ásgrímur sagði m.a. — Ég er fæddur að Kongs- bakka í Helgafellssveit. Foreldr ar mínir voru Soffía Jóhannes- dóttir og Þorgrímur Ólatfsson- Höfðu þa-u flutzt frá Akránesi méð vinum sínum Guðrúnu og Ásgrími Jóhannessyni, er þau fluttu frá Görðum að Kongs- bakika. Þar ólst ég upp »g bar nafn þeirra hjóna því ég heiti fullu nafni Ásgrímur Gunnar. Ég man ekki eftir mér fyrr en í Ögri, en þamgað höfðu foreldr- ar mínir komið í húsmennsku til heiðurs hjónanna Helgu frá Helgafelli og Páls Guðmundsson ar, sem lengi var kunnur við Hörskuldsey og sjósóknari mikill. Pabbi stundaði sjóinn méð hon- um og ákvað í æsku að verða sjómaður. Við krakkarnir byggð um okkur báta, sem tóku „mikið af vörum og farþegum“. Við þetta var unáð og ekki skeitt um máltíðir. Ég var ekki gamall, þegar ég tókst á við Ægi, en þar fór ég flatt því sjóveikin ætlaði mig lifandi að drepa og varð ég því að sætta mig við að halda mig við jörðina. Ég var þá ráðinn srmali til nafna mins, sem þá var kominn að Staðar- bakka. Var þá 9 ára- Mér þótti ekki gott að hverfa frá öllum börnunum í Ögri og í fásinnið á Staðarbakka, enda sótti hei-m- T rúloíunarhringar K 1 II O R Skólavorðustig 2. þráin að mér og fór svo að ég fékk að fara heim til mömmu, en næsta ár gekk þetta allt betur. Ég átti ekki afturkvæmt til for- eldra minna því mamma dó, þeg ar ég var 10 ára og pabbi fórst skarmmt fyrir utan Stykkishólm árið etftir. Við vorum 4. systkinin. Þegar svona var komið var ekki annað að gera en vera hjá nafna og þar var ég til 18 ára aldurs. Þótti mér væmt um, þegar tima- bilinu lauk að ekikert þurtfti sveit in að gefa með mér heldur þvert á móti. Nafni og kona hans voru mér góð. Hjá þeim læiði ég að vinna og hlýða og vera hirðp,- samur- Sá skóli hefir gefið lífi mínu mest gildi. Það sé ég bezt þegar aginn er nú af skornum skammti með þjóðinni. Trúmenn skan er það sem ég legg mest úr og er sterkasti þáttur heilbrigðra j 'l'ífsihátta. Fósturforeldrar mínir ólu einnig upp systur mána og Gest föður Svavars. Fóll okkur Gesti ágætlega enda hann hinn léttasti og skemmtilegasti mað- ur, sem ég hefi kynnzt, stórvel- geifinn og vel lesinn þrátt fyrir enga skólagöngu. Á Staðarbaikka var ég til 18 ára aldurs en þá leystist heimiili fósturforeldra minna upp. Fór þá sinn í hverja áttina. Ég í lausavinnu til að ná mér einhverjum efnum, en um haustið ræð ég mig sem vetrar- mann til Stefáns hreppstjóra á Borg og var ég ráðinn hjá honum tvo vetur, en svo kom ég þang- að alkominn og hér hetfir dvöil miín orðið sfðan. Ég á því annað merkisaifmæli nú þar sem ég er ! búinn að vera heimilismaður í i Miklaiholtehreppi í 50 ár- | Okkur Stefáni kom ágætlega saman. Ég fann fljótt að hann vi'ldi mér vel og sjálfsagt hefir | hann séð að ég sparaði ekkert til að vinna honum þa'ð gagn sem ; ég gat. Mér hefir nefnilega fund 1 izt það aðall lítfsins að svíkjast aldrei um né snuða nokkurn. Við Anna dóttir StefánS fel'ldum huigi saman og giftumst 1916. Langaði okkur þá til að hefja búskap af kratfti þótt efnin væru ekki-önnur en góð heilsa og ó- bilandi trú á framtiðinni. En það er nú noikkuð þegar rétt er á liitið. Við ætluðum að ná okkur í jörð því á Borg var ekki til margskifta því á hálfendunni móti Stefáni bjó Ólafur Guð- mundsson tengdasonur hans. Þó fór svo að Stefán gat haldið okk- ur á Borg í sínum hluta oig nokkru sðar tflutti Ólafur til Stykikishó'ims og ég tók við hans hluta. Fyrsta búskaparár okkar hjóna áttum við 20 ær 7 gemlinga 2 hross 2 tryppi og kálí- Þótt þetta þyki ekki mikið í dag, lannst okikur við vera með mikil auðæfi, enda hetfir þetta bless- ast vel. Við keyptum húsið af Ólafi. Þó þetta væri l'ítill bær og fjár- hús, var þetta mikið stöikk fyrir okkur. f nóv. 1925 andast Stefán tengdatfaðir minn. Þá átti ég helminginn af Borg og var því ekki um annað að ræða en kaupa hluta tengdatföður máns, eða gefast upp, en það hefir ekki verið mitt mottó til þessa dags. Varð það því úr að ég keypti alla jörðina. Þegar ég keypti fyrri hluta jarðarinnar gat ég ■ekki fjárhagslega gert það, en þá buðust tveir heiðursbændur hér, þeir Halildór í Gröf og Þor- gils á Kleifávöllum að ganga í ábyrgð á láni til þess að ég gæti náð partinum. Þessu drengskapar bragði gleymi ég aldrei og ekki mun þetta hatfa verið fyrsta góð verk þessara ágætu manna- Skólamenntun hlaut ég enga. Séra Sigurður Gunnarsson sem fermdi mig, gaf mér eitt sinn er hann var í húsvitjunarferð ailla upphafsstafina á blaði. Þeir voru óspart notaðir til ætfinga. Reikninskennslu sótti ég í hálf- an rnánuð tvær bæjarleiðir og meiri varð menntunin ekki fyrir fermingu. Al'lt annað hefir lífið kennt mér. Það hefir verið mér ágætur skóli og tií þessa hefi ég getað reiknað það sem ég heíi þunft með einföldustu tölum. Mangt hefir auðvitað á dagana drifið, en það verður ekiki tíund að hér, en þakklætið er efst í huga mínum er ég stend á sjón- arhóli sjötugrar æfi. Þakkir til þess sem stjórnar öllu er þar efst Hann hefir getfið mér hamingju góðan lítfsförunaut og mikið barnalán- Og hvað vilja menn hafa það meira. Þá má ég ekki gleyma mjnum ágætu sveitung- um. Ég tel það sérstaka gæfu hve þessi sveit hefir átt jafnan góða og samtaka íbúa, samtaka og hjálpsama þegar þess hefir þurft og eins til allra átaka. Þá er aildrei spurt um skoðanir. Hitt er öHu ofar. Þessvegna er far- sæld hér mikil og búsæild góð. Eitt mesta yndi mitt er að sitja góðan hest. Fjölilin lokka, seiðmagri þeirra er milkið. Grenja virinslu hetfi ég stundað yfir 20 ár. Oft hefir þurft að taka á og bið- hind að hafa. Ég á margar sér- kannilegar myndir úr þeim ferð um. Veiðináttúra er mér í blóð borið. Ég fer enn á laxveiðar og hefi yndi af. í dag eru hinir mestu mögu- lei'kar afkomuilega séð sem þjóð- in hefir lifað. Það geta al'lir sem vilja komist áfram. Hagsæddin aldrei meiri en nú. Væri ég t.d- um tvítugt myndi ég notfæra mér hina miklu mögufleika sem nú eru á boðstólum til að geta gert gagn og nú er gaman að gl'íma við ræktun og framkvæmd ir með öl'lum þeim vélakosti sem þjóðin hefir yfir að ráða. Allir sem heilsu hafa eiga bjarta fram tíð. Meðfdrð verðmætanna er það sem gil'dir það skyildu ungir menn í huga hafa og lífsafkoma þjóðarinnar hefír aldrei verið betri en nú. Svona lít ég á málin eftir 60 ára reynslu og 70 ár að ba'ki. Þetta sagði Ásgrímur á Bórg Hann er bjartsýnn á lífið, hefir komið upp 7 'mannvænilegum börnum og eru 4 þeirra búsett í hreppnum, stórhuga og dugandi fóOk. Hann hefir ekki staðið einn í baráttunni. Hans góða kona hetf- ir verið sterk og sýnt það í ertfið um veikindum að henni er ekki fisjað saman- Ásgrímur á Borg er táknrænt dæmi um hvað er að afkasta með þjóðinni etf vilji og dugnaður er fyrir hendi. Slíkir kvLstir svíkja engan. Honum senda allir blessunar- óskir á þessum tímamótum og þakka góða samfylgd. Ég er einn þeirra. Árni Helgason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.