Morgunblaðið - 16.09.1965, Side 20

Morgunblaðið - 16.09.1965, Side 20
20 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 16. sept. 1965 12 bæknr frá LEIFTRI \i< ' Todda í Snnnnhlíd eftir MARGRÉTI JÓNSDÓTTUR. Þetta er fram- hald bókarinnar TODDA FRÁ BLÁGARÐI. — 1 fyrri bókinni segir frá dvöl Toddu í Kaup- mannahöfn. Þegar hún er 7 ára, fer hún til Is- lands með móðursystur sinni. Hér er sagt frá viðtökunum, sem Todda litla fær hjá ömmu sinni i Sunnuhlíð og ýmsu, sem við ber fyrsta veturinn, sem hún dvelur á Islandi. Hanna og Tont, siðasta bókin um Hönnu. Hanna finnur nú, að njósnir og eltingaleikur við allskonar óknytta- lýð er bæði erfitt og getur verið áhættusamt. Og þar sem ástin er nú líka komin í spilið, tekur hún að lokum þann kostinn að láta allar njósnir sigla sinn sjó og breiðir faðminn mót unnusta sínum. Kim og Ioður|akkarnir og Kim og smyglararnir Áila þessara bóka eru UNGLINGA- BÆKUR, en fjórar fyrir fullorðna. Auk þess kom fyrr á árinu bókin Gruss aus Island efiir dr. Alexander J óhannesson. Sú bók er nú nærri uppseld. BÆKUR FTRIR FULLORÐNA Draumar og vitranir eftir HUGRÚNU. — Prófesor Jóhann Hannesson segir m. a. í formála fyrir þessari bók: „Veröld hins ósýnilega er oft og einatt hrollvekjandi, ekki síður en hinn sýnilegi hlutaheimur. Þetta veit sérhver sá, sem verið hefur í snertingu við hina ósýnilegu veröld. Nú hafa íslendingar ekki aðeins verið í snertingu við hina ósýni- legu veröld í hundruð ára, heldur jafnvel átt eríitt með að greina á milli veraldanna. Oft virðast áhrifin frá hinu ósýnilega hafa orkað sterkar á menn en öfl hins sýnilega heims. Mér er i minni kona ein öldruð, er sagði okk- ur systkinunum sögur, þegar við vorum lítil. Ævintýrin gerðust í ævintýraheiminum, þar sem flest fór á endanum, eins og það átti að fara. — En hvað um huldufólksheiminn, draugana, galdrana — og drauma, sem menn dreymdi?" eru nýjustu bækurnar um Kim og félaga hans. Vinir okkar frá fyrri Kim-bókunum flækjast hér inn i viðsjárverða atburði, spennandi og dularfulla. Við fylgjumst með því í þessum nýju bókum, hvernig þau bjarga sér að lokum úr klipunni. Vigga og vinir hennar. Þetta er hugþekk saga um Viggu og vini henn- ar, þá Níels og Henning. Þeir eiga litinn og rennilegan seglbát, sem þeir sigla oft á sér til skemmtunar. Og auðvitað er Vigga með þeim á þessum dásamlegu ferðum. En Vigga geymir ieyndarmál. Og það er erfitt fyrir unga stúlku að þegja yfir leyndarmáli. Hvert leynd- armálið er, fáum við að kynnast í bókinni. Sagan af Tnma liíla. Hér kemur seinna bindið og niðurlag sögunnar af Tuma litla eftir Mark Twain. Islenzkir les- endur, eldri og yngri, kannast við Söguna af Tuma litla, en bókin hefur verið ófáanleg mörg undanfarin ár, og kemur nú sem góður vinur í heimsókn til islenzkra lesenda. Þrír fræknir forðalangar. Þessi skemmtilega saga kom út fyrir nokkrum árum og seldist þá upp. 1 bókinni er sagt frá ævintýralegu ferðalagi þriggja röskra drengja. Þeim hafði verið boðið til Frakklands i heim- sókn til frændfólks, en glötuðu vegabréfum og farangri. En þeir gefast ekki upp. Gang- andi fara þeir ferða sinna og sofa þar sem þá ber að garði. Ævintýrin geta verið erfið, en gaman er að ryfja þau upp og heyra frá þeim sagt á skemmtilegan hátt. Fallogu wvintýrín. 1 þessari skemmtilegu bók eru fjórtán gömul ævintýri. Mórg gömlu ævintýrin eru falLeg. Þau hafa haft i sér lífsmáttinn til þess að standast umrót breytinganna. Timinn siar úr það bezta og skilur eftir perlurnar. Ævintýrin heita: Steinn Boliason, Förin til stjarnarma, Fiskurinn í eykinm og hérinn i tjörninni, Sendi- boði Drottins. Köiski og saumastúlkan, Bauna- kóngurinn, Kóngsveizlan, Munðarleysingjamir sjö, Snarráði drengurinn, Sagan af heimskam strák, Gæfubaunin, Sólin og tunglið, Smælki, Höllin fyrir austan sól og vestan mána. — Bjarni Jónsson listmálari hefur teiknað margar fallegar myndir i bókina. Sjö sögur eftir SIR ARTHUR CONAN DOYLE. — Höfundur þessarar bókar, Sir Arthur Conan Doyle, var einn af kunnustu rithöfundum Breta. Hann var fæddur 1859, las læknisfræði og stundaði lækn- ingar um skeið, en gerðist síðan blaðamaður og að lokum skáldsagnahöfundur. Mesta frægð hefur hann hlotið fyrir leynilögreglusögur sín- ar, ævintýri Sherlock Holmes. En auk þess hefur hann ritað fjölda lengri og styttri sagna frá ýmsum tímum. Nokkrar þeirra hafa verið þýddar á islenzku, svo sem fyrrnefndar leyni- lögregiusögur, Hvita hersveitin, Baskerville- hundurinn, 1 heljargreipum og ýmsar smásögur og ritgerðir. Þessar SJÖ SÖGUR, sem hér birtast á prenti og ekki munu áður hafa verið þýddar á ís- lenzku, eru úr smásagnahefti, sem höfundur- inn kallaði „Sögur frá liðnum öldum“. Jónas Rafnar læknir þýddi sögurnar. Sofandi kona eftir Georg Alexander. — Ingibjörg Jónsdóttir þýddi. — Sagan er ótrúlega spennandi. Hún fjallar um ást og afbrotamál. Viðburðarás sög- unnar er ör og fjörlega rituð. Lesandinn er hugfanginn frá fyrstu til siðustu blaðsíðu. — Taflið milli slunginna misyndismanna og þaul- æfðra þjóna lögreglunnar, þar sem gullið og auðævin eru annars vegar en fagrar og glys- gjarnar konu hins vegar — þar eru öll meðul notuð í baráttunni. Gerviaugað eftir ERI.E STANLEY GARNER. — Þetta er PEHRY MASON-bók. — Ölafur Sv. Björnsson þýddi bókina. — Höfundur þessar bókar er meðal allra frægustu höfunda leynilögreglu- sagna. Bækur hans eru nú þýddar um allan heim. Aðalpersónu hans, Perry Mason, þekkir svo til hvert mannsbarn. Perry Mason er hér eins og venjulega að leysa torráðna gátu. Og honum tekst að sýkna þann, sem hafður er fyrir rangri sök. Lftið inn f nœstu bókabúö. Þessar bœkux fást hjá öllum bóksölum. Prenlsmiðjan LEIFTUR Sendisveinn óskast strax eða sem fyrst allan eða hálfan daginn. Smith & Norland hf. Suðurlandsbraut 4. Bátur tíl sölu 61 rúmlest í góðu standi. Bátnum'fylgja öll tæki svo og veiðarfæri eftir samkomulagi. — Upplýsingar í síma 24635. Frá Miðskólanum í Hveragerði Nokkrir nemendur geta enn komizt að í ÍII og IV bekk skólans (þ.e. í miðskóla- og gagnfræðadeildum) næsta vetur. — Fæði og húsnæði verður útvegað á einkaheimilum. Nánari upplýsingar gefur skólastjórinn. Miðskólinn i Hveragerði. Vil kaupa 2 Yi ferm. olíukyntan miðstöðvarketil með sjálf- virkum brennara. — Tilboð, merkt: „2195“ sendist afgr. Mbl. fyrir 20. þ. m. Sendisveinn Röskur og áreiðanlegur sendisveinn óskast hálfan eða allan daginn. — Upplýsingar á skriístoíunnL Glohus hf. Vatnsstíg 3. Iðnaðarhúsnæði 100—200 ferm. iðnaðarhúsnæði á jarðhæð óskast nú þegar eða síðar. Uppiýsingar í síma 24-700 kl. 9 til 7 daglega. Söngfólk óskast í kirkjukór Ásprestakalls, sérstaklega tenór og altraddir. — Upplýsingar í síma 33758 milli kl. 6 og 8 fimmtudags- og föstudagskvöld. Sóknarnefnd Ásprestakalls. Sendisveinn Óskast nú þegar eða 1. október hálfan eða allan daginn. Slippfélagið hf. í Reykjavík Einkaritari karl eða kona, sem m.a. getur unnið sjálfstætt að enskum verzlunarbréfum óskast til starfa hjá traustri sérverzlun sem staðsett er miðsvæðis í bæn um. Þeir, sem vilja sinna þessu leggi nafn og síma- númer á afgr. Mbl., merkt: „2224“,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.